Vísir - 17.11.1967, Síða 9

Vísir - 17.11.1967, Síða 9
V1S IR . Föstudagur 17. nóvember 1967. 9 jKað er nú búizt við, að Wil- son forsætisráðherra Breta muni innan skamms neyðast til að viðurkenna uppgjöf og ósigur í glímunni við efnahagsvanda- mál landsins. Hefur upp á síð- kastiö veriö búizt viö því á hverri stundu, aö hann tilkynni stórfelída gengislækkun á sterl- ingspundinu til samræmis viö það, að grunnurinn hefur grafizt svo ískyggilega undan verðgildi gjaldmiöilsins, aö honum veröur ekki lengur haldið uppi með venjulegum fjármálaráöstöfun- um, þar dugir nú ekkert minna en gengisfellingar-uppskurður til að lækna meinið, sem ella getur breiðzt út um allt þjóðfé- lagið á næstu mánuðum og valdið víötæku atvinnuleysi í landinu. Nú í síðustu viku var að vísu gerð smávegis tilraun til að bjarga sterlingspundinu, eða láta að minnsta kosti líta út fyrir, að því verði bjargaö, þar sem bankafo. vextir voru hækk- aðir upp í 6Y2 prósent, sem er það hæsta sem þeir hafa komizt um áratuga skeið. Meö svo há- um vöxtum á að reyna að stöðva fjárflóttann úr landi, en talið er ólíklegt, aö sú beita nægi, þar sem menn þykjast sjá, að gengislækkun pundsins sé yfirvofandi og getur engin vaxtahækkun vegið þar á móti lengur. / Tþað eru margar ástæður fyrir því, að svo illa er nú komið fyrir Bretum og Wilson-stjórn- inni. Styrjöldin milli Araba og ísraelsmanna og lokun Súez- skurðarins hefur komið þyngra við þá en nokkra þjóð aðra, en það sem gegnir þó verstu upp á síðkastið hefur verið harkaleg afstaða verkalýðsfélaganna i Bretlandi, sem segja má, að hafi orðið til að eyöileggja alla við- leitni stjórnarinnar til aö bjarga gjaldmiðlinum, síðast með löngu hafnarverkfalli, sem hefur valdið þjóðinni stórkost- legu tjóni í útflutningi og öfl- un markaöa. Sú útflutnings- stöövun, sem hefur fylgt þessu hafnarverkfalli er svo stór- kostlegt áfall, að engu er lík- ara en doði og framleiðslu- stöðvun ætli að breiðast út frá því langt inn 1 atvinnulíf Bret- lands, atvinnuleysi fari vaxandi svo aö við ekkert verði ráöiö. Eina leiðin til að bjarga frá hreinum hörmungum virðist vera að lækka gengið til þess að gera brezka atvinnuvegi aft ur samkeppnisfæra á mörkuð- um víðsvegar um heim og bæta þannig á ný framleiðslu og at- vinnuástandið, þó svo aö menn viti að gengislækkun er á hinn bóginn líka alvarlegt mál sem getur haft hinar verstu afleið ingar í fjármálaheiminum. endurnýja framleiðsluhættina í sama mæli og iðnaður megin- landsins. Ýmsar ástæöur eru til þessa greindar, svo sem aö Bretar séu í eðli sínu íhaldssamari en flest ar. aðrar þjóðir. Þó er það nú svo, að flestir eru nú orðnir sammála um það, bæöi fylgis- menn Ihaldsflokksins og Verka- mannaflokksins, að undantekn- um nokkrum róttækustu vinstri mönnum, að þaö séu fyrst og fremst stirðbusalegar og ágeng- ar starfsaöferðir brezku verka- lýðsfélaganna, sem hafi valdið þessari stöðnun, sem nú ógn- ar lífskjörum fólksins. Foringjar Verkamannaflokks- ins, þar á meðal Wilson sjálfur vildu ekki viðurkenna þetta fyr ir nokkrum árum, en síðan þeir tóku við völdunum, hafa þeir sjálfir neyðzt til að viðurkenna það og síðan hafa þeir sett efst á blað í umbótatillögum sínum endurbætur og nýskipun í verkalýösmálum. Það sem þeir hafa þurft að glíma við er það alvarlega vandamál nútímaþjóð félaga að spilling og gengdar- laus kröfuharka kröftugra verkalýðssamtaka getur ógnað framtfð og framförum þjóöfé- lagsins. Tjað er Ijótur listi, sem safnað hefur verið saman í opinber ur skýrslum um framferði verkalýðsfélaganna. Þaö hefur verið alvanaleg krafa hjá þeim ef framleiöslufyrirtæki tóku í notkun ný framleiöslutæki er spöruðu vinnukraft að það vinnu afl sem losnaði fyrir tilkomu véla yrði áfram á fullum laun- um, þó fólkið geröi ekkert hand tak. Þetta fyrirbæri, sem kallað er á enska tungu „featherbedd ing“ hefur verið feikilega út breitt í ensku atvinnulífi. Það hefur haft þau áhrif, aö þó fram leiðsluverksmiðjur tækju dýr og fullkomin sjálfvirk tæki í notkun, hefur framleiöslukostn aðurinn ekkert lækkað, Ijeldur þver' á móti hækkað. Það eitt út af fyrir sig er aö sjálfsögöu mjög alvarlegt mál, en þó hefur hin hliðin veriö framleiðslu þeirra landa, þar sem þrónuin hefur orðið örari. ‘j^'okkur dæmi eru um það, að fyrirtæki hafa reynt að rísa upp gegn þessum starfsað- feröum og hefur þess einkum gætt í bílaiðnaðinum, þar sem samkeppnin er svo stíf á mörk andi kröfur þeirra og vinnu- stöðvanir orðið mein í brezku atvinnulífi. gin er sú starfsstétt, sem tregust hefur verið til aö leyfa nýjar aðferðir og nýja tækni og það eru hafnarverka- mennirnir. En jafnframt því Talið er, að Harold Wilson hafi nú gefizt upp, — gengislækkun standi fyrir dyrum. uðunum, að fyrirtækjunum hef- ur verið nauðugur einn kostur, að taka upp nýjar aðferöir þar sem þau hefðu ella dottið út úr mörkuðunum á skjótum tíma. Og það er líka einna helzt í bílaframleiðslunni ,sem Bretar hafa staöið sig sæmilega. En hver hefur afleiðingin samt orð hefur félagsskapur þeirra verið einn allra öflugasti verkalýðs- félagsskapur í Englandi. Og með þessum kröftuga félags- skap og eöli atvinnu sinnar hafa þeir náð þvílíku kverkataki á atvinnulífi þjóöarinnar, aö ugg vænlegt er. Það er kunnugt, að með nútímatækni mætti fækka jpiestum er kunnugt um þá erf iðleika sem Bretar hafa átt viö að stríða að undanförnu. Iðnaðarframleiðsla þeirra hefur dregizt mjög mikiö aftur úr öðrum löndum bæði að verði, gæðum og nýjungum og stafar þetta af því, að iðnrekendumir þar hafa ekki séð sér fært að enn hættulegri, að þessi stirð- busaháttur hefur valdið því, að enskar verksmiðjur hafa yfir- höfuð ekki séð sér fært að end urnýja vélakost sinn og fram- leiðslutæki sem skyldi og hefur iðnaðurinn því dregizt saman og er hvarvetna að bíða lægri hlut fyrir fullkomnari iðnaðar- ið þar. hún hefur verið sú, að framleiöslan hefur átt i sífelld um erfiðleikum vegna enda- lausra sérgreinaverkfalla. Nú eru starfsmenn í bílaverk smiðjunum ekkert láglaunafólk heldur eru þeir meðal hæstlaun uðu starfsstétta í Englandi En þrátt fyrir það hafa sívax starfandi hafnarverkamönnum i Bretlandi svo, að aðeins þyrfti til starfsins fimmta part af þeim mannafla, sem nú fer til þess. Því að það er ekki nóg með það að fulkomna mætti tæknina f hafarkrönum, flutningarvögn- um og öðrum löndunartækjum, heldur mætti og framkvæma gerbreytingar á hleðsluaðferð um og fryirkomulagi í lestun. En þarna stendur brezka hafnar verkasambandið algerlega sem þröskuldur í vegi. Þar hefur yfir höfuð ekki mátt framkvæma neinar nýjungar, heldur á aö vinna þessi verk eins oe gert var um síðuo.u aldamót. Toaara menn sem koma til brezku fiski hafnanna, Hull og Grimsby hafa kynnzt áþreifanlega gamaldags aðferöum viö fisklöndun og þannig er það á fleiri sviöum. Tregðu sína hafa þeir rök- stutt með því, að notkun nú- tíma tækni muni skilja hundruö og þúsundir manna eftir at- vinnulausar. Svo gamaldags er hugsunarháttur þeirra, að þeir geta ekki skilið að það er ein- mitt með nyjum og fullkomnari framleiösluaðferðum, sem tæki- færin og atvinnan myndast i framtíðinni. Ef allt er látið danka í sama farinu þá heldur stöðnunin og atvinnuleysið inn reið sína. Þannig hefur þetta verkalýðsfélag kosið sér það hlutverk að hamla gegn fram- förum og gera starfsmenn sína að nokkurskonar sníkjudýrum á þjóöarlíkamanum í stað þess að hjálpa til við uppbygg- inguna og skapa nýja og meiri atvinnu fyrir framtíðarkynslóð- ir. /í ður en Wilson foringi Verka mannaflokksins komst til valda, vildi hann aldrei gagn- rýna hina stirðu stefnu sam- bands hafnarvarkamanna, en skömmu eftir að hann komst til valda og lét framkvæma úttekt á þjóðarbúinu og framleiöslu- getu þess, brá svo við, að hann komst að þeirri niðurstöðu, að starfsaðferðir þessara samtaka væru beinlínis þjóðhættulegar og ógnuðu velferð brezks al- mennings, þar sem þær stóðu eins og þröskuldur í vegi fyrir eflingu viðskipta. Gerði hann það brátt að einu höfuðstefnu- marki sínu, að framkvæma ný sköpun hafnarvinnunar í land- inu. Svo líða aðeins nokkrir mánuðir Bretland hefur gengið í gegnum þrengingar. Verkamannaflokks- stjómin hefur lagt aö sér að reyna að bæta úr vandanum og bægja kreppu frá dyrum og útdeilt byrðunum á þjóðfélags þegnana eftir því sem sann- sýnilegast var. Allt virtist vera á sæmilegri framfaraleið, mikil endurskipulagning hefur verið framkvæmd í framleiösluiönað inum á nokkrum mánuöum og menn voru bjartsýnir um aö kannski ætlaði gamla Bretland aö komast yfir erfiöleikana. Tj’n -þá geröist þáð allt i einu um miöjan september aö samband hafnarverkamanna kemur fram sínum hefndum yf ic Wilson og lýsir yfir algeru verkfalli og stöðvun vinnu I höfnum landsins svo vikum skiptir. Er nú álitið aö þetta verkfall sem hefur kostað um 30,000 milljónir króna í sam- drætti útflutningsins og eyði- leggingu hafi það i för meö sér að allar tilraunir brezku stjóm arinnar til að bjarga við gengi gjaldmiðilsins séu að engu orðn ar. Það er víst, að verkalýðsfélög hafa miklu hlutverki að gegna í nútíma lýðræðisþjóðfélögum. En hvað sem stundarhagsmun um líður ættu þau að líta á það sem fremstu skyldu sina að vemda hag þjóðarheildar og atvinnulífs, en ekki að gerast krabbamein á þjóðarlíkamanum eins og dæmin sanna í sérhags munastefnu brezkra verkalýðs- félaga upp á sfðkastið. Þorstelnn Thorarensen

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.