Vísir - 24.02.1968, Blaðsíða 3

Vísir - 24.02.1968, Blaðsíða 3
VlSIR . Laugardagur 24. febrúar 1968. „Eg á svo svakalega marga túkalla „Heyröu, ertu frá Visi. Þá ætla ég aö fá einn Vísi. Ég á marga peninga.“ „Nei, ég er ekki aö selja Vísi. Ég ætla bara aö tala viö ykkur og taka myndir“. „Og fæ ég þá engan Vísi? Ég á svo svakalega marga tú- kaila.“ Eftir þessi orðaskipti var blaðamanni og ljósmyndara hleypt inn í gang í Dagheimil- inu í Kópavogi, og drengurinn sem átti túkallana bætti viö: „Hún kemur bráðum hún Berg- þóra“. Bergþóra er reyndar forstöðu- kona á Dagheimilinu og von bráöar birtist hún og bauð okk- ur að líta í kringum okkur á heimiiinu. Það fyrsta sem við tókum eftir var undarlegur bátur úr eggjaformum sem hékk í loft- 66 inu á ganginum og bak viö hann var spjald, þar sem á stóð, aö allir foreldrar væru hvattir til aö henda ekki ýmsum úrgangs- efnum, svo sem dósum, brúsum, keflum og stokkum, heldur leyfa bömunum á heimilinu aö nota það til að búa til ýmsa hluti, „Við látum hörnin búá til ým- islegt skemmtilegt úr þessu dóti, og þau hafa- mjög gaman af því,“ sagði Bergþóra. Við fórum inn í „Fiskadeild- ina“, og þar voru öll börnin að drekka mjólkina sína, en ekki var hægt að hafa bömin úti þennan dag, vegna hálku. Sum hættu að drekka og litu á okk- ur stórum augum, önnur létu eins og þau sæju okkur ekki og ein lítil stúlka sagöi um leið og við gengum inn í næstu stofu „Bangsadeildina, „Þú mátt aiveg fá mjólk lika“. Á „Bangsadeildinni“ voru allir búnir aö drekka og farnir að leika sér af fulium krafti. — Deildin hafði eignazt dálítið af gömlum fötum og voru bömin búin aö klæðast þeim og settu upp tilheyrandi hatta og fínirí. „Við erum að fara f kaffiboö“, sögöu telpurnar og tritluðu með kápurnar niður á hæla og hatta niður á nef út í eitt horniö þar sem þær settust niður við lítið borð og fóm að drekka kaffi „í þykjustunni“. Við yfirgáfum „Barnadeildina“ og heimsóttum að iokum leik- skólann, en þar eru börnin bara hálfan dáginn. Þar vom bollu- vendir í stórum kössum með- fram veggjunum, og lítill herra haföi náð sér í vönd til aö lumbra á þeim sem næstir stóöu. Börnin höfðu sjálf búið til vendina með hjálp fóstranna. „Ætlið þið ekki að fiengja marga á bolludaginn?“ spurðum við börnin. „Júhú, alla sem ég þekki, og þig líka“, var svarið og með það kvöddum viö Dagheimilið f Kópavogi, og forstöðukonuna, Bergþóm Gísladðttur. „Og svo flengi ég alla sem ég þekki“. Þessi ungi maður með bolluvöndinn heitir Þröstur Guðmundsson og er 4 ára. MYNDSJÁIN heimsækir Deigheimllið í Kópcivogi Hiuti af „Fiskadeildinni.“ i fr* . I_ „Við ætlum að fá okkur smákaffisopa“. Frá vinstri Fjóia María 4 ára, Laila 5 ára^Anna María 4 ára og Margrét 5 ára. / I

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.