Vísir - 24.02.1968, Blaðsíða 13

Vísir - 24.02.1968, Blaðsíða 13
V1 S IR . Laugardagur 24. febrúar 1868. 13 !■■■■■■ UMFERÐARNEFND REYKJAViKUR IÖGREGLAN í REYKJAVIK Aöalbrautarréttur ekki virtur. Um allra árekstra og umferð Verndun aðalbrautarréttarins Algengasta orsök umferðarslysa og árekstra í Reykjavík undanfar- in ár er sú, að reglur um stöðv- unar- og biðskyldu eru ekki virtar. Ákvæðin um þessi atriði eru skýr, og ætti því ekki að vera vand- kvæðum bundið fyrir ökumenn, að hafa þau ávallt í huga 'og aka sam- kvæmt þeim. Tilgangurinn með aðalbrautar- réttinum er sá, að gera veg þann, sem nýtur aðalbrautarréttarins, greiðfærari en aðra vegi og auka þannig notagildi hans að miklum mun. Mikilvægt er því, að ökú- maður, sem kemur frá hliðarvegi, virði til fullnustu rétt þess, sem fer um'aðalbrautina, meðal annars með því að draga úr hraða, hæfi- lega löngu áður en komið er að vegamótum. Snögghemlun á síð- ustu stundu verður til þess. að öku maður á aðalbrautinni hikar. Hann getur ekki treyst rétti sínum alger- lega, en það tefur báða aðila og rýrir að mun notagildi aðalbraut- arinnar. STÖÐVUNARSKYLDA. Allir ökumenn þekkja stöðvunar skyldumerkið, en hvað boðar þetta merki? Þegar ökumaður kemur ak- andi að gatnamótum, sem merkt eru með stöðvunarskyldumerki, ber honum að stöðva algjörlcga, áður en hann ekur inn á, eða yfir gatna- mótin. Ef stöðvunarlína er mörkuð á yfirborð götunnar, á að stöðva við hana, þannig að framendi bif- reiðarinnar nemi við stöövunarlín una. Sé stöðvunarlína ekki mörk- uð á akbrautina, er heppilegast að hafa það fyrir fasta venju. að stöðva við sjálft stöðvunarmerkið. Ef merkið eða ,;stöðyunarlfnan er ekki nærri jaðri akbrautarinnar, þannig að ökumaður sjái vel til beggja hliða eftir aðalbrautinni, et rétt að framkvæma sjálfa stöðvun- ina eins og áður er sagt, en bifreiðina síðan renna rólega inn að sjálfum gatnamótunum og stöðva aftur, ef umferð er á aðal- brautinni. Aðalatriðið er, að stöðvunin sé markviss, að bifreiðin sé í algjörri kyrrstööu, til aö tryggia aö um- ferðin á aðalbrautinni veröi ekki i'yrir trufiun eða töfum. BIÐSKYLDA. ‘ Þegar ökumaður kemur akandi að biðskyldumerki, ber honum að draga úr hraða í hæfilegri fjar- lægð frá gatnamótum og gæta þess, að trufla ekki þá umferð, sem fer eftir aðalbrautinni.' Ef út- sýni er mjög býrgt eða blint, þann ig að ökumaðurinn hefur ekki nægi legt útsýni yfir gatnamótin, ber honum aö stöðva alg.idUega, sem um stöðvunarskyldu væri að ræöa. Biðskyldu- og stöðvunarskyldu- merki eru sett upp til þess að skapa greiöari og öruggari umferð. Merkin eru fyrst og fremst sett upp við götur, sem liggja að mikl- um umferðargötum, til þess að vernda þá umferð, sem fer eftir aðalbrautinni og varna því, að sú umferð verði trufluð eða hindruð. Ökumenn! Verum minnugir þess, að um 15% umferðaróhappa í Reykjavík sl. ár urðu vegna þess, að reglur um biðskyldu og stöðv- unarskyldu voru brotnar. Kvenfélag Hallgríms- kirkju hefur happdrætti Gott málefni — góðir vinningar Þégar ég er búinn aö setja fyrir- | efni — góðir vinningar", finnst sögn á þessa Iitlu grein, „gott mál-1 mér, að ég heföi mátt bæta við orð Danfoss hitastýrður ofnloki er lykillinn að þcegindwn Húseigendur! I vaxandi dýrtíð hugleiða flestir hvað spara megi í daglegum kostnaði. Með DANFOSS hitastilltum ofnventlum getið þér » senn sparað og aukið Sægindi í hý- býlum yðar. = HEÐINN = VÉLAVERZLUN-SfMl: 24260 unum „gott fólk“. Svo er nefni- 'eca mál með vexti eins na heear hefir verið getið um opinberl., að kvenfélag Hallgrímskirkju er að stofna til happdrættis fyrir gott málefni, bvggingu Hallgrímskirkju. Fleiri og fleiri eru nú að komast á þá skoðun, að með byggingu þeirrar kirkju sé þjóðin að sam- einast um átak, sem eigi eftir að verða guðs rfki til eflingar og þjóð- inni til gleði um aldir fram. Góðir vinningar eru í happdrætt- inu. Hér er óþarfi að telia þá upp, þvf að þeir ru skráðir á hvern miða. Enda er málefnið aðalatrið- ið fyrir flestum, sem kaupa slíka happdrættismiða. En „gott fólk“ er það, sem gefið hefir verðmæta muni til happdrættisins, og auk bess vinnu sína við prentun eða dreifingu miðanna. Stundum yppta menn öxlum yfir því, að of mikið sé orðið um happdrætti á landi hér, en sé nánar að gáð, þá ber hvert happdrætti óbeinan vott um. að til er hópur af óeigingjörnu fólki, • sem ekki er að hugsa um eigin hag, heldur almennings. Og þegar happdrættismiðar kvenfélags ins eru boðnir til sölu, vænti ég þess, að fleira og fleira af góðu fólki hlaupi undir baggann og kaupi miðana. Þessari áskorun minni vil ég láta fylgja beztu þakk- ir til alls hins góða fólks, sem bæði fyrr og síðar hefir stutt að byggingu Hallgrímskirkju, minn- ingu séra Hallgríms og kristnTHFí landsins yfirleitt. j. ■ Jakob Jónsson. rpiirjn uoft rJ''æplega er hægt að ásaka nú- verandi stjórn Taflfélags Reykjavíkur um aðgerðaleysi nú í vetur. Varla er einu skák- mótinu lokið fyrr en annað byrjar og nú standa. yfir tvö skákmót f einu. Annars veg- ar úrslitakeppni Skákþings Reykjavíkur og hins vegar svo- kallað Boðsmót T.R. Gestur mótsjns er ungur færeyskur skákmaður, Rubek Rubeksen. Er vissulega ánægjulegt að virk samskipti skuli hafa komizt á í skák milli Færeyinga og íslend- inga, en s.l. ár bauð færeyska taflfélagið íslendingi til alþjóð- legs skákmóts í Þórshöfn. Fær- eyingar hyggja á þátttöku í Olympfuskákmótum og leggja kapp á aö þjálfa lið ,sitt eftir föngum fyrir þá erfiðu keppni. í undanúrslitum á Skákþingi Reykjavíkur skáru þeir sig nokk uð úr í A riðli, Gunnar Gunn- arsson og Guðmundur Sigur- jónsson. Skákin milli þeirra varð úrslitaskákin um efsta sætið í riðlinum og fer hún hér á eftir. Hvítt: Guöm. Sigurjónsson. Svart: Gunnar Gunnársson. Drottningarindversk vörn. 1. d4 Rf" 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4. Rc3 Bb7 5. Bg5 ... Skákin hefur teflzt eins og 1. skákin í einvíginu Spassky: Keres. en í 5. leik lék Keres h6 6. Bh4 Be7 7. e3 Re4 8. BxB DxB 9. RxR BxR 10. Be2 Db4 + 11. Rd2 Bxg og sókn hvíts reyndist ekki nægilega sterk. 5. . .. Be7 6. e3 Re4 7. BxB DxB 8. RxR BxR 9. Be2 0-0 10. 0-0 f5? Þessi leikur reynist illa. Svarti biskupinn villist af réttri línu og lendir í erfiðleikum. 11. d5! f4 Þvingað. Svartur verður að rýma fyrir biskupnum. 12. exf Hxf 13. Rd2 exd 13. ... Bg6 14. Bf3 c6 15. Hel hefðúvarla gefið betri raun. 14. RxB DxR 15. cxd Ef 15. Bf3 HxB 16. DxH DxD í 17. gxD og svartuif hefur meira mótspil en hann fékk í skákinni. 15. . .. c5 16. Hel Dd4 17. Bd3 Hvítur er óhræddur við að gefa peðið á f2. Opin f-línan yrði aðeins aukið álag á svörtu stöðuna. 17. ... HfS 18. Dc2 g6 19. He7 Df6 20. Hael Svartur teflir raunverulega með tveim mönnum minna, svo ekki er von að vel fari. 20. ... a5 21. De2 Ha7 22. De3 Hc7 23. Dh6 Dxft 24. Khl DxH + Örvænting. Svartur gæti eins gefizt upp. 25. HxD d6 26. h4 c4 27. Bxc! HxB 28. He7 Gefið. Eftir 28. . . Hf7 29. He8 Hf8 mátar hvítur. Jóhann Siigurjónsson. .■.V.V.V.V.’.V.V.V.V.V.V. 10 'rsaxir í hverju skipi arslysa í Reykjavík 1967 orsökuðust af því, að reglur um bið- og stöðvunarskyldu voru ekki virtar. I greininni um isvarnir i blað- nýlega mátti skilja að reglur um þetta atriði krefðust þess að ninnst sex ísaxir væru um borð í íslenzkum fiskiskipum. en það er ekki rétt 1 reglunum segir um þetta atriði eitthvað á þá leið. að togarar og önnur fiskiskip. sem hafa langa útivist að vetrarlagi skuli Ivera búin 10 ísöxum. eða öðrum hentugum bareflum til þess að brióta með klaka. Almennt eru ísaxirnar taldm- beztu áhöldin til þess að losa is at skipum, en marg- ir nota einnig eikarkylfur með öx- unum til þess að losa um ísinn. Róðið hitanum sjálf með ... LEIKFIMI JA2Z-BALLETT ÉTFrá DANSKIN m 47V 8 Búningar So|<kabuxur Netbuxur Ijmm Dansbelti JplsE Margir litir Allar stærðir ■ Frá GAMBA Æfingaskór m Svartir, bleikir, hvítir V* Táskór ' + # Ballet-töskur ^&allettíúð in SÍMI 1-30-76 I I I I I I I I I I II I II I I I Með ÖRAUKMANN hitastilli a hverjum ofni getið þér sjólf ókveð- ið hitastig hvers herbergis — BRAUKMANN sjólfvirkan hitastilli ít %hægt að setja beint á ofninn eða hvar sem er á vegg í 2ja m. tjarlægð fró ofni Sparið hitakostnað og aukið vel- líðan yðar BRAUKMANN er sérstaklega hent- ugur á hitaveitusvæði SIGHVATUR EINARSSON&CO SÍMI 24133 SKIPHOLT 15

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.