Vísir


Vísir - 24.02.1968, Qupperneq 12

Vísir - 24.02.1968, Qupperneq 12
72 VISIR . Laugardagur 24. febrúar 1968. En brosið hvarf af andliti höfuðs mannsins, þegar honum varð lit- ið á tíunda leiðangursmanninn, James Grenier loftskeytamann. Það voru ekki liðnir nema sex mánuö- ir síðan Grenier hafði unnið við hænsnabú foreldra sinna uppi í sveit í Nýju Mexikó. Hann var sveitamaður enn í húö og hári — Greindur og góðlegur náungi, sam- vizkusamur og ólatur, og skilríki hans sönnuðu, aö hann var mjög fær loftskeytamaður og vel að sér í öllu, sem viö kom radiotækni. En sjóliði var hann ekki í fyllstu merkingu þess orðs, og enn síður að hann ætti heima í hópi harösnú- inna landgönguliða. í rauninni var það því furðulegt, að honum' skyldi falið svo ábyrgðarmikið starf í þess um hættulega og þýðingarmikla ieiðangri, enda bar annað til. Loft- skeytamaðurinn, sem upphaflega varð fyrir valinu, hafði veikzt af botnlangabólgu á síðustu stundu. Grenier var þá eini loftskeytamað- urinn þar í stöðvunum, sem unnt var að grípa til eins og á stóð. Óheppni, hugsaði Davis höfuös- maður — og ekki síður fyrir Gren- ier sjálfan- en leiðangurinn. Það voru ill örlög fyrir nýliða að vera sendur 1 njósnaleiðangur, inn á yf- irráðasvæði fjandmannanna. Og Grenier var einmitt að brjóta heilann um það sama, þótt höf- uösmanninum væri að sjálfsögðu ókunnugt um það. En nú var öllum heilabrotum leiðangursmanna lokið í bili. Flug- maðurinn stöðvaði hreyfla vélarinn ar. Það fóru eins og krampakippir um skrokk hennar, þegar hún tók sjó, en innan skamms var allur skriður af henni. Hún vaggaöi leti- lega á öldunum eins og feit æðar- kolla. „Þá er þessum áfanga lokið“, sagði Grenier og geröi sér upp kæruleysi ,en fór allur hjá sér, þegar hann fann að þeir Iitu á hann hinir, með vanþóknun, að honum fannst. Munnlegra fyrirskipana var ekki þörf. Þeir vissu hver um sig hvað bar að gera. höfðu iært sérhvert handarvik og viðbragð utanaö fyr- ir síendurtekna þjálfun. Þeir renndu fingurgómum yfir útbúnaö sinn. Kaðalhankirnar, sem fest var við skotfærabeltið ásamt hnífun- um og handsprengjunum. Allir voru þeir vopnaðir þungum marg- hleypum í fetahylki, og riffli og hrfðskotabyssu aö auki. Hjálmur- inn var málaður grænflekkóttur eins og klæðnaður þeirra, svo þeir RYDVÖRN Á E3FREIÐINA Þér veljið efnin, vönduð vinna. Gufuþvottur á mótor kostar kr. 250.00 Gufuþvottui, albotnþvottur.undirvagn kr. 600.00 Ryövörn undirvagn og botn. Dinetrol kr. 900.00 Ryðvörn undirvagn og botn, Tectyl kr. 900.00 Ryðvörn undirvagn og botn Encis fluid kr. 600.00 Ryðvörn undirvagn og botn Olíukvoðun kr. 450.00 Alryðvöm. Tectyl utan og innan kr 3500.00 Ryðvarnarstö&in Spitalasfig 6 FLJÓT OG GÓÐ ÞJÓNUSTA. ÓDÝR 0C GÓÐ ÞJÓNUSTA væru sem samlitastir frumskóg- inum. Wartell opnaði dyrnar á hlið flug- vélarinnar og varþaði tveim ' gúm- bátum fyrir borð. Corey varö lit- ið þangaö, sem Grenier stóð. „At- hugaðu að talstöðvarumbúnaðurinn sé vatnsþéttur“, sagði hann. „Brim ið getur gert lendinguna dálítið við sjárverða.“ Grenier reyndi að bregða á gam an til aö levna kvíða sínum, „Hafðu ekki neinar áhyggjur af því, undir foringi. Ég er því vanastur að handleika brotthætt egg“, sagöi hann. Corey hvessti á hann augun, og sennilega hefði tilsvar hans orðið miður notalegt, en nú stóð Davis höfuðsmaður við hlið honum, og hann þagði við. Davis strauk kjálk- ana og staröi köldum, stálgráum augunum út í myrkrið. „Ég verö í fyrri bátnum, Steve“, sagði hann. „Þið komið svo á eftir og hafið bilið á milli bátanna sem næst 25 metrum. Við tengjum bát ana saman til vonar og vara með dráttartaug, og bilið verður að vera það langt, að hún sé alltaf vel strengd. Ég þarf ekki aö minna ykkur á að vera við öllu búna og tala ekki saman nema f ýtrustu nauðsyn. Stefnið beint á háu trén þarna og haldiö linunni strengdri. Við kærum okkur ekki um neina móttökunefnd í landi...“ Corey tuldraði eitthvaö. Davis veifaöi til flugmannsins. „Þakka þér fyrir samfylgdina", kallaði hann. Flugmaðurinn glotti. „Beröu kéis aranum kveðju mína“, kallaði hann! Davis höfuðsmaður lét sem hon- um þætt fyndnin óviðeigandi eins og á stóð. „Þessir flugglannar", sagði hann lágt. Hann hjálpaði fjór um. af félögum sínum um borö í annan gúmbátinn, og fór svo sjálf ur um borð. Og andartaki siöar voru þeir horfnir út í náttmyrkrið. Corey undirforingi hafði umsjón með seinni bátnum. Grenier loft- skeytamaður var sá fjórði f röð- inni um borö. Svo illa tókst til, að alda reið undir gúmbátinn og bar hann áleiðis frá flugvélinni, þegar hann hugðist taka stökkið og nokk urt andartak hékk hann á annarri hendi og með annan fótinn í flug- vélinni, en með hinni hendinni hélt hann senditækinu fast að barmi sér, og reyndi með öllu móti að halda jafnvæginu. Corey undirforingi, sem stóð á bak við hann inni í flugvélinni, bölvaði heiftarlega og ekki í hljóði. Um leið teygði hann aðra höndina fram fvrir barm Greniers, svo að hann náði öruggu taki á sendi- tækinu, en með hinni tók hann í öxl honum og kippti honum inn í vélina aftur. „Það er eins gott að þú gerir þér það ljóst, klaufinn þinn“, mælti hann hranalega, „að leiöangurinn getur snúið til baka, þess vegna, ef eitthvað kemur fyrir þetta sendi- tæki, svo þaö verður óvirkt. En ég er hræddur um, að þér yröi það ekki auöið að koma með okkur, ef þannig tækist til.“ Grenier fölnaði. Veltan á flug- vélinni var nóg til þess, að hann fann til sjóveiki. „Fyrirgefðu mér klaufaskapinn, undirforingj". stam aði;lfáhA.:i;Ég'’héf áldrei fyrr tek ið þátt í landgöngu eöa njósnaleið angri.“ Corey bölvaði enn, þegar hann stökk um borð í gúmbátinn. Svo te. göi hann upp hendurnar. „Svona, réttu mér senditækið, en farðu gætilega", sagði hann við Grenier. Hann tók svo við tækinu og kom því fyrir á öruggum stað í gúmbátnum. Grenier komst nú slysalaust um borö, og var auðséð á honum, að hann varð því fegnastur. Félagar hans vöruðust að líta þangað sem hann sat, samanhnipraöur í skutn- um. Reyndu að láta s.em hann væri ekki til. Þér getið sparað Með þvi að gera við bilinn sjálf ur. Rúmgóður og bjartur salur. Verkfæri á staðnum. Aðstaða til að þvo, bóna og ryksuga bilinn. Nýja bílabjónustan Hafnarbraut 17 — Kópavögi. Simi 42530. VERO&GiEÐI Heilsuvernd Síðasta námskeið vetrarins i tauga- og vöðvaslökun ög önd- unaræfingum fyrir konur og karla hefst miðvikud. 28 febr. Uppl. 1 slma 12240. Vignir Andrésson. Eldhúsinnrétting fyrir 5—8 rnanna fjölskyldu, ásamt: Stálvaski Uppþvottavél „Blanchard" Eldavél „Siemens" Lofthreinsara „Xpelair" VerS frá kr.81900Q0 inamr FráJfeklu „Þarna sérðu foringi, Zana vildi heldur brjóta krukkuna með lyfinu en drekka það:“ „Nei, hvutti.“ „Einn hunda þinna Iapti er dauður.“ fconwood ■■ CHEF Frá Jfeklu

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.