Vísir - 29.02.1968, Page 1
VISIR
58. árg. - Fimmtudagur 29. febrúar 1968. - 51. tbl.
~ ' -jr^/vjrtv w v
—
Félög með 19 þijsund laun-
þegum hafa boðað verkföll
— Reynt að leysa yfipofandi verkfali á spítölunusn
• Yfir 50 verkaiýðsfélög
innan Alþýðusambands ís-
lanrs hafa nú boðað vinnu-
stöðvanir, sem eiga að hefj-
ast 4. marz og dagana þar á
eftir ef ekki hefur samizt
um verðtryggingu launa fyrir
þann tíma. Innan þessara fé-
laga éru um 19 þús. af 35 þús-
undum Iaunþega, sem eru inn
an Alþýðusambandsins.
Deilunni um vísitölumálin
hefur verið vísað til sáttasemj-
ara og var fyrsti fundur full-
trúa atvinnurekenda og undir-
nefndar ASÍ með sáttasemjara
haldinn í gær, en hann varð
árangurslaus. — Annar fundur
hófst j morgun kl. 10, en spurnir
höfðu ekki borizt af honum,
þegar blaðið fór í prentun.
Margvíslegir erfiðleikar munu
þegar hljótast af, ef til verk-
falla kemur eins og alltaf er
í verkföllum. Menn hafa þó ver-
ið sérstaklega uggandi um,
hvernig hægt verður að reka
spftalana ef starfsstúlknafélag-
ið Sökn, þ. e. aðstoðarstúlkur
á spítölum fara í verkföll 4.
marz eins og félagið hefur boö-
að. Georg Lúövíksson, fram-
kvæmdastjóri rfkisspítalanna
hefur leitað eftir þvf við Al-
þýðusamband íslands að verk-
fallsboðun Sóknar verði aflétt,
en ekki hefur verið tekin afstaða
til þess máls hjá Alþýðusam-
bandinu.
Georg Lúðvíksson sagöi í við-
tali við Vísi í morgun, að að-
stoðarstúlknavinnuafl þetta
væri meginuppistaðan í þvotta-
m~> 10. síða.
Hvítá flæddi inn í hlöður
Ólafsvallabænda
— Vatn komst i gripahús — Mikib tjón af flóó-
unum i ánni, sem náðu hámarki kl. 3 i nóft
í morgun voru Elliðaárnar aftur orðnar að sakleysislegum ár-
sprænum, en þannig hafa þær leikið veginn, sem Iá upp að Vatns-
^ enda yfir þessi rör. Menn unnu þar að viðgerðum í morgun. AIls-
staðar meðfram ánni má sjá eyðileggingu, eflaust fyrir milljónir
króna.
Mesta úrkoma sem
mælzt hefur
Það fór sem menn hafði grunað,
að úrkoman f gær og fyrrinótt slægi
öll met. Á Kvískerjum í Öræfum
mældist hún 228 mm á einum
sólarLring (til kl. 5 f gær) og það
langmesta úrkoma sem mælzt hef-
ur frá því úrkomumælingar hófust.
Fram að því höfðu mælzt mest 216
mm í Vík ' Mýrdal. Víða annars-
staðar á landinu var mikil úrkoma
í gær, en hvergi nærri eins mikil
og f öræfunum, enda mun hafa
rignt þar að heita má stanzlaust
allan sólarhringinn.
Heldur dró úr úrkomunni um allt
land eftir því sem leið á gærdaginn,
í gærkveldi var orðið þurrt um allt
land, nema fyrir austan, þar hætti
að rigna í nótt. Var komið þurr-
viðri og lítilsháttar frost um allt
land í morgun, nema á Austfjörð-
um, en þar var um 2ja stiga hiti.
Ekki er spáð meiri rigningu í bili,
en gert ráð fyrir frosti í dag og út-
synningi með éljum.
■ Vatnavextir hafa valdið
gífurlegum skemmdum víða um
Suður- og Vesturland. Hvítá
breiðir úr sér yfir mjög ^tórt
landsvæði á Skeiðum og eru
þar margir bæir umflotnir.
Flóðið í Hvítá náði hámarki í
nótt.
Vísir hafði í morgun tal af Eiríki
Valdimarssyni í Norðurgarði í Ól-
afsvallahverfinu á Skeiðum, en þar
i hefur flóðið gert usla á sex bæjum
í hverfinu.
- Það er ógjörningur að meta
tjónið enn sem komið er, sagði
Eiríkur. Þaö flæddi inn í tvær hlöö-
ur hiá mér, en í þeim eru 7 — 800
hestar af heyi. Vatnið var á að
gizka 60—70 cm djúpt í annarri,
en ég hef ekki komizt að hinni
1 ennþá.
| Ennfremur flóði vatn inn í fjár-
hús og varð ég að hleypa kindun-
I um út og geymi ég þær nú í
kúahlöðunni.
Annars staðar hefur vatn komizt
inn í hesthús og önnur gripahús.
j Flóðið náði hámarki í nótt. Ég
mældi vatnsborðið á miðnætti í
nótt og var það þá 17 cm. neðar
en í flóðunum 1948, en vatnsborðið
' óx eitthvað eftir það. — Nú hefur
heldur dregið úr vatnavöxtunum
með morgninum og vonum við að
það versta sé afstaðið.
Þorsteinn Vigfússon símstöövar-
stjóri að Húsatóftum á Skeiöum
FLÓÐ Á
SELFOSSI
— Vatnsborðið hærra
en Jbað var i flóðunum
1948
Fióðið í Ölfusá náði hámarki í
nótt og var orðið sjö cm. hærra
vatnsborð í ánni en það varð
mest í flóðunum í marz ’48. — Jaká
ruðningurinn í ánni hefur skrapað
gólfið á hengibrúnni og brot-
ið þar vatnsleiöslu bæjarins, svo
að nú er vatnslaust í bænum og
ógjörningur að komast að leiðsl-
unni til viðgerða.
Vatnsflaumurinn nær langt inn í
bæinn og hafa ibúar orðiö að flýja
sex hús við Selfossveginn.
Nánar segir frá flóðunum á blað-
siðu 2 í blaðinu.
sagði að áin flæddi milli bæjanna
Vorsabæjar og Fjalls og yfir veg-
inn að Efri-Brúnavöllum.
Bærinn Úrverk, sem stendur
nærri Hvítá er algjörlega einangr-
aður.
Hænsni hafa farizt á bæjum í
Ólafsvallahverfi, en ekki er vitaö
um tjón á öðrum skepnum.
Vatnsborðið i Þingvallavatni
hækkaði um 70 cm. í gær og var
þvi gífurlegt vatnsmagn, sem safn-
aðist saman i Ölfusá úr Hvítá og
Sogi. Bæirnir neðan við Selfoss,
meöfram Ölfusá eru margir umflotn
ir og þar hefíir áin valdið gífurleg-
um skaða á girðingum og öðrum
mannvirkjum. — Hafa bændur í
Kaldaðarneshverfi austan árinnar
og Arnarbælishólum, vestan henn-
ar oröið fyrir miklu tjóni af vatna-
ganginum.
//
Kardimommubærinn
mannslandi?
44
■ /
— Hvorki Kópavogur né Reykjavik banna
byggingar á landssvæðinu
• Eins og kunnugt er munaði litlu, að stórslys hlytist af,
er hestamenn voru í gær og fyrradag að bjarga reiðskjótum
sinum úr hesthúsunum fyrir neðan Elliðavatn.
• Hesthús þessi standa í Ieyfisleysi eða eftir því sem næst
verður komizt fá þau að vera þama, vegna þess að hvorki
Reykjavíkurborg né Kópavogskaupstaður telja sig hafa nægi-
lega stoð í lögum til að banna byggingar á staðnum.
Hjá bæjarverkfræðingnum í
Kópavogi fékk blaðið þær upp-
lýsingar, að Einar skáld Bene-
diktsson hefði átt hið umdeilda
landssvæði beggja vegna Elliða-
ánna. Síðan fékk Vatnsendi
þessar landspildur fyrir engjar,
en nú vantar gögn, sem sanna.
að við það hafi landamerki jarð
arinnar færzt út, svo að bæði
Reykjavíkurborg og Kópavogs-
kaupstaður vilja fara varlega í
að eigna sér fullan ráðstöfun-
arrétt yfir landinu.
Ólafur Jensson bæjarverk-
fræðingur tjáði blaðinu, að fyr-
ir um það bil fjórum íjrum
hefði Kópavogskaupstað borizt
umsókn frá aðila, sem vildi fá
leyfi til að byggja hesthús á
hinu umdeilda landi, en beiðn-
inni var syniað. Maðurinn lét þó
svniunina sem vind um evrun
þjóta og hófst handa við að
reisa sér hesthús.
Reykjavíkurborg var látin
vita af þessu, en hvorugur aðil-
inn treysti sér til þess að
stöðva byggingarframkvæmdirn
ar. Fleiri komu á eftir og nú
einskis-
stendur þarna húsaþyrping, sem
hefur verið nefnd „Kardi-
mommubærinn."
Þeir, sem byggja þarna,
munu flestir gera sér ljóst, að
þetta er í trássi við allar regl
ur og auk þess er þetta hættu-
svæði, eins og nú hefur komið
f Ijós. En hestamenn í Reykja-
vík og nágrenni eiga ekki i
mörg hús að venda, og óvíöa
geta menn komið sér upp hest-
húsum með litlum tilkostnaði.
Flóðin umhverfis ,,Kardi-
mommubæ" stöfuðu af því, að
vatni var hlevpt af stíflunni
við Elliðavatn um hádegisbil f
fvrradag, en þá var vatnsborðið
við stffluna orðið metra hærra
heldur en hæsta vatnsborð
við venjulegar aðstæður.
P-ý 10. síða.
Romney
úr leik!
k Romney ríkisstjóri i
Michigan hefur tilkynnt, að hann
sé hættur við að keppa um að
verða fyrir vali sem forsetaefni
flokk síns, republikana. Kvaðst
hann ekki hafa fengið eins gððar
undirtektir og hann hafði búizt
við, og viiji ekki valda flokks-
forustunni erfiðleikum með því
að streitast við að halda áfram
baráttu sinni.
k Er nú taliö líklegt, að i
höfuðkeppinautarnir verði þeir '
f’ixon og Rockefeller.
I