Vísir - 29.02.1968, Blaðsíða 2
. Fimmtudagur 29. febrúar 1968.
eitt þeirra húsa sem umflotin eru.
ViS fórum strax i gær, sagði hann,
í kirkjuna til þess að athuga
skemmdir. Vatnið hafði aðeins
komizt í kjallarann og björguðum
við þaðan öllu vérðmætu, en flóðin
hafa ekki valdið teljandi skemmd-
um á húsinu. Það er hins végar
mjög óhugnanlegt að sjá það
standa þarna í miðri íshrönninni.
Séra Sigurður sagði að fimm eða
sex fjölskyldur hefðu orðið að
flýja heimili sín vegna flóðanna og
skemmdirnar væru orðnar mik’.ar
á sumum húsanna.
Þannig var um að litast á aðalgötum bæjarins í gær, rétt eins og jökulhlaup hefði farið yfir staðinn.
ISKYGGILEGT ÁSTAND VEGNA
FLÓDANNA ÁSELFOSSI
— Flóðin stórjuicust s nótt
Flóðin f Ölfusá hafa valdið gífur-
legum skemmdum á Selfossi á
íbúðarhúsum og öðrum mann virkj-
um. — Vatniö hefur verið mikið í
ánni f nótt og var vatnsborðiö orð-
ið sjö sentimetrum hærra f morg-
un, en þaö var hæst f flóðunum
miklu 1948, en síðan eru nákvæm-
lega 20 ár og þrír dagar.
Nú er komið frost og fannviðri
og líta Selfyssingar mjög alvarleg-
um augum á ástandið. Óttast er að
klakastíflan neöan við Selfoss frjósi
þar föst og áin haldi áfram aö
flæða inn í þorpið, en skemmdirn-
ar verða að sjálfsögöu gífurlegar,
ef vatnið nær að frjósa inni f hús-
unum.
Eins og sagt var frá í Vísi i
gærdag, kom mikið hlaup í ána í
fyrrinótt og náði vatnsborðið þá
Langferðabílar
aka samkvæmt
úætlun þrátt fyrir
vegaskemmdir
Jón Baldvinsson framkvæmda-
stjóri Bifreiðastöðvar íslands tjáði
blaðinu í gær, að akstur gengi
samkvæmt áætlun, og ekið væri á
öllum leiðum eins og venja er og
ekki um neinar teljandi seinkanir
að ræða.
Þó er ófær leiðin austur fyrir
fjáll, svo að bílarnir verða aö fara
Krýsuvíkurleiðina. sem lengir ferð
ina um á að gizka hálfa klukku-
stund.
Skriða hafði fallið á veginn, en
látið var nægja að ryðja burt mesta
stórgrýtinu, og slðan héldu áætl
unarbifreiðirnar leiðar sinnar.
; sömu hæð og það gerði í flóðun-
um 1948, vatnsborðið minnkaði
! þegar á morguninn leið, jókst aftur
| undir hádegi, en þá kom annað
I hlaup í ána og vatnsborðið stór-
hækkaði aftur.
Hlaupin fluttu með sér jaka upp
á aðalgötur bæjarins og inn í garða
til fólks. — Bílar urðu einnig fyrir
jákaruðningnum og lokuöust sum-
ir inni. Var unniö að því með jarð-
ýtum I gær að bjarga þeim. Voru
! sumir skemmdir, en engir mikið.
Fjölskyldur flýja hús.
Flóð hefur hertekið mörg hús svo
að fjölskvldurnar hafa orðið að
flýja. Það hefur rutt útihúsum um og
brotið niður geymsluhús, sem stóðu
vestanvert við Tryggvaskála, en
þar flýtur nú vatnið inn um veizlu-
salina og er upp undir mittisdjúpt
vatn inni á gólfinu. Óttast margir
að þetta gamla og nafnfræga hús
liöist sundur undan ágangi flóðsins
og ísreksins.
Flóðið náði í nótt upp undir brú
argólfið og rákust ísjakar þár und-
ir. Rifnaði' 1 sundur vatnsleiðsla
bæjarins, sem lá þar undir brúnni
og er síðan vatnslaust í bænum.
Vatnið komst inn í kjallara Hótel
Selfoss og komst þar f rafmagns-
töflu, svo aö húsið varð rafmagns-
laúst. ■— Er því ekkert hötel starf
andi á Selfossi í bili.
Óhugnanlegt að sjá
kirk'una í miðri íshrönn-
inni.
Vísir hafði í morgun rétt sem
snöggvast tal af séra Sigurði Páls-
I syni, vigslubiskupi, en kirkjan er
Ölfusá flæðir yfir þjóðveg-
inn austan Selfoss.
Alvariegast taldi hann þó að nú
skyldi vera byrjað að frjósa og
klakastíflan neðan við bæinn héldi
enn þá. — Svo gæti farið aö vatnið
héldi áfram að renna inn í bæinn,
ef stíflan héldi.
Áin flóði einnig út fyrir farveg
sinn, skammt austan við Selfoss
hjá Kiartansstöðum og flæðir hún
bar yfir þjóðveginn austur á 25 —
30 metra kafla. Er þar ekki lengur
fært nema stórum bílum og þó ill-
fært. Gera má ráð fyrir að vegur-
inn lokist þar I dag, ef flóðin réna
ekki I ánni.
Ástandið vegna flóðanna eystra
er því orðið allískyggilegt. Auk
skemmdanna, sem orðið hafa á Sel-
fossi hafa flóð í ánum ofar í hér-
aðinu uppi í Hrunamannahreppi og
Biskupstungum, til dæmis, gert
mikinn usla, sópað burt girðingum,
flætt inn í útihús og umhverfis
bæi. Brúin yfir Brúará steyptist í
ána í gær, en vatnið var þá búið að
grafa undan undirstöðunum og
stóð brúin úti í miðri ánni eins
°g
Ölfusárbrúin í hættu.
I í flóðinu um hádegið lentu ís-
jakar á vírunum og festingunum,
sem halda Ölfusárbrúnni uppi og
löskuðust þeir og við það riðaöi
brúin á tímabili undan ágangi jaka-
hlaupsins og óttuðust menn að hún
kynni að falla, ef fióðunum héldi
áfram.
Voru gerðar ráðstafanir til þess
aö veria vírana áföllum, en þá
voru slitnir í þeim (strengir og
festingar beyglaðar.
Þegar komið var fram um miðj-
an dag í gær tók heldur að sjatna
í ánni aftur og síðdegis í gær losn-
aði um klakastífluna neðan við
fossinn á svokallaðri Árbæjarvík.
Seig þá vatnsborðið á augabragði
um nokkra metra og vatnið foss-
aði í lækjum út úr húsum og
beljatji milli húsanna niður aö ánni.
Var þá á tímabili útiit fyrir að
flóðin væru afstaðin, en ekki var
því aö heilsa.
Undir nóttina var vatniö tekið
aö vaxa enn í ánni og stíflan var
að myndast aftur á Árbæjarvíkinni.
Vatnsborðið hækkaði smátt og
smátt í nótt og var í morgun oröið
hærra, en menn hafa nokkurn
tíma mælt í Ölfusá.
' ••
i ifp '
Mörg hús voru umflotin upp undir glugga.
RUMENAR ATTUAUD VELT MED
ÁÐSIGRA 23:14
íslenzka landsliðinu í
handknattleik gekk ekki
eins vel í gær í leik sínum
gegn Rúmenum í Cluj,
tapaði með 23:14, eða með
9 marka mun fyrir mun
betra rúmensku landsliði
en í fyrri leiknum, en í hálf
ieik hafði rúmenska liðið
yfir 10:4.
Rúmenar komust í 4:1
tnemma i leiknum og höfðu eft-
ir það alla yfirburði í leik.
Seinni hálfleikurinn var að vísu
heldur jafnari en þó bættu
Rúmenar við forskotið 3 mörk-
um og unnu auðveldan sigur,
23:144.4
Virðist af fréttum að dæma
að Rúmenar hafi styrkt lið sitt
töluvert í séinni leiknum með
reyndum ,,jöxlum‘‘ eins og t. d.
Costache, sem mun ekki hafa
verið með fyrri leiknum.
íslenzka landsliðiö fór þegar
að leik loknum til Búkares með
iárnbrautarlest og þaðan fljúga
Iandsliðsmenn i dag til Miin-
chen jneð viðkomu í Vínarborg
en i (Miinchen verður leikið
annað kvöld við Þýzkaland, en
fjórði og síðasti leikur liðsins
verður svo aftur við V.-Þýzka-
land á sunnudaginn, en komið
heim á mánudag.