Vísir - 29.02.1968, Blaðsíða 3
V1SIR • Fimmtudagur 29. fcbrúar 1968.
illl
Neöstu brýmar höföu látiö nokkuö á sjá undan beljandi straumnum og í gærmorgun var hafizt
handa um viögerö á skemmdunum.
i inn á gömlu rafstöðina
• Beljandi vatnselgurinn fyllti undir eins kjaiiara stöðvarbyggingarinnar í gömlu rafstöðinni,
þegar skarðið myndaðist í Árbæjarstíflunni í gærmorgun, og í næstu húsum fylltist ailt af vatni
um leiö. Vatniö rann um undirstööur spennivirkis ins, þar sem niðurtak Sogslínunnar er, en þó töldu
menn öliu óhætt, svo framarlega sem stfflumar brystu ekki alveg, en þá var komið skarö í efri
stífluna uppi við Elliöavatn.
• Hins vegar höföu menn áhyggjur af þvf, hvernig gröfst undan homi spennistöövarinnar, þaðan
sem jaröstrengimir liggja undir ámar, en eftir þeim fá Reykvikingar rafmagn sitt. Heföu þeir siitn-
aö, heföi allur bærinn oröiö rafmagnslaus. Starfsmenn rafveitunnar unnu viö aö bera sandpoka inn Þegar Árbæjarstíflan rofnaöi í gærmorgun, flæddi allt í kring um
f kjallara spennistöövarinnar til styrktar, þar sem straumiðan mæddi mest á. Var vonazt til þess gömlu rafstööina og vatniö gróf undan spennistöðinni og jarö-
aö það myndi duga. strengjunum, sem liggja undir ámar, enda var straumkastið mikiö
viö spennistöðina, eins og sjá má á myndinni.
Hestamir úr húsunum reknir í hóp við húsin, en þegar þeim hafði veriö safnaö saman voru þeir reknir yfir árnar.
ÖH hrossin björguðust
fkll hrossin f Kardimommu-
bænum svonefnda, uppi viö
Elliðavatn náðust yfir á þurrt
land undir hádegisbilið í gær,
en þá höfðu björgunaraðgerðir
staðiö siðan kl. 8 um morgun-
inn. Öll hrossin vom lifandi þeg-
ar þau náöust úr húsunum, þó
að þau hafi mörg staðið f vatni
upp á miðja Ieggi rúman sólar-
hring. Hrossin voru flutt í girð-
ingu og hús hestamannafélags-
ins Fáks viö Elliðaámar, þegar
þeim khaföi veriö bjargaö, en ó-
kunnugt er hvort þau hafi hlot-
ið varanlegan miska vegna
hrakninganna.
Björgunarsveitin Ingólfur og
nienn úr umferðardeild lögregl-
unnar höföu yfirumsjón meö
björguninni og skipulögöu ör-
yggisráðstafanir til þess að
koma f veg fyrir slys á mönn-
um, en þeir Jóhannes Briem for-
ingi Ingólfs og Magnús Einars-
son aðstoðarvarðstjóri stjómuðu
aðgeröunum. Ekki kom tii
neinna slysa, þó að einhverjir
hafi dottiö í ámar.
Umferðardeild lögreglunnar
hefur haft mikinn viöbúnað til
aö bægja fólki frá hættulegum
stöðum og hefur eftir megni
fylgzt meö og varaö fólk viö
yfirvofandi hættum. Var m. a.
skipulagt aövörunarkerfi til að
vara menn viö ef stíflurnar
brystu, en hætta var talin á því
um tíma, aö Elliöavatnsstífian
gæti brostiö meö ófyrirsjáanleg-
um afleiöingum. Var komið á tal
stöðvasambandi á milli hinna
ýmsu staöa viö ámar til að vara
menn við ef stíflurnar létu sig
fyrir ofan, þar sem menn voru
að störfum.
Hestaeigendur og menn úr Ingólfi róa yfir aö hesthúsunum. Meö
þessu móti vora alimargir ferjaðir yfir að húsunum.