Vísir - 29.02.1968, Qupperneq 5
V1 S IR . Fimmtudagur 29. febrúar 1968.
5
plasti eða stáli og er mjög auð-
velt að koma þeim fyrir. Að
setningu." Ofið hengi, Ur ull eða
> 10. síða.
þar sem öðrum megin er hengi
fyrir föt, en hinum megin skúff-
Hirzla undir hvernhlut
^ Skipuleggið skápa og skúffur undir allar eigur fj'ólskyldunnar og
jbið munið sanna til: — Það verður helmingi auðveldara að
halda heimilinu snyrtilegu.
Ein höfuðundirstaðan fyrir
snyrtilegu heimili er að hafa
góðar og skipulagðar hirzlur,
þar sem hægt er að geyma áll-
ar eigur heimilisins, matvæli,
fatnað, leikföng, og ýmsa smá-
hluti. Viö vitum öll að það er
'nauðsynlegt að hafa hirzlur und
ir föt og mat, en það er ekki
síður nauðsynlegt að hafa hirzl-
ur undir leikföng barnanna,
blöð, bréf, skótau, snyrtivörur
og ýmsa aðra smávöru, ,en það
gefur heimilinu gjarna hirðu-
leysislegan blæ, ef enginn á-
kveðinn staður er til fyrir það.
En nauðsynlegasta hirzlan, að
minnsta kosti á stórum heimil-
um, er hirzlan þar, sem „allt
og ekkert" er geymt. Bezt er
að þaö sé skúffa, annaðhvort á
gangi, í forstofu, eldhúsi eða
jafnvel í svefnherbergi. í þessa
skúffu er ýmsum smáhlutum
hent, sem kunna að liggja í ó-
reiöu, t. d. eru þar nælur hár-
spennur, eldspýtur, pennar,
reikningar, öryggi, jafnvel lykl-
ar, smápeningar og strætisvagna
miðar, teiknibólur, bréfaklemm-
ur, eða annað þvílíkt, sem oft
þarf aö grípa til með stuttum
fyrirvara, en erfitt er að hafa
sérstaka hirzlu fyrir. Ef þið kom
ið ykkur upp svona skúffu, þá
munuð þið sanna að öskubakkar
og skálar fyllast ekki af þessum
hlutum, eins og oft vill verða,
en í staðinn jnun þessi skúffa
veröa orðin full af ýmsu smá-
dóti áður en langt um líðurv
Síðan er nauðsynlegt að taka til
f skúffunni af og til, og henda
öllu sem óþarfi er að geyma.
Lítil geymsla er nærri því
eins nauðsynleg í hverri íbúð,
og eldhúsiö, og því minni sem
geymslan er, því nauðsynlegra
er að hún sé vel og skipulega
innréttuð. Lág geymslukompa
undir stiganum er vissulega
betri enn ekkert. Þar má gera
skógrind við lægsta vegginn og
hafa hillur eða skúffur hinum
megin. Innan á hurðina er hægt
að koma fyrir grind, þar sem
hægt er að geyma húfur, vettl-
inga, skó, trefla eða annað sem
börnin þurfa að nota, og geta
gengið frá þvi sjálf í grindina.
Slíkar grindur eru nú fáanlegar
af fjölda mörgum gerðum, úr
T. v. Lítil geymsla undir stiga getur verið mjög hentug og
hér sjáum við eina slíka. Á hurðinni hefur verið komið fyrir
hengi, þar sem börnin geta lagt frá sér vettlinga, húfur
trefla og þvílíkt.
Geymslan er eitt þýðingarmesta herbergið í íbúðinni og því
nauðsynlegt að hún sé vel innréttuð. Matur, sem ekki er
niðursoðinn er geymdur undir glugganum, eða við kaldasta
vegginn. Hillur fyrir dósir og krukkur eru hafðar Iágar og
gleymið ekki að hafa auðan vegg einhvers staðar, þar sem
hægt er að geyma ferðatöskur og pappakassa.
sama skapi eru innréttaðar
stærri geymslur. Ef um matar-
geymslur er aö ræöa er yfir-
leitt bezt að smíða tréhillur,
misjafnlega háar meöfram veggj
unum, en ef gevma á eitthvað
fleira í geymslunni en mat er
bezt að gera ráð fyrir matar-
geymslu við þann vegginn sem
er kaldastur (útvegg) og hafa
þar hillur, en hinum megín má
koma fyrir skúffum eða grind-
arskúffum, sem fást í mörgum
stærðum og gerðum og eru látn-
ar renna á listum, sem auövelt
er að koma fyrir. Gott er að
hafa auðan vegg í einu horninu
þar sem ferðatöskur, pappakass
ar og annað getur staðið.
í nýrri íbúðum tíðkast gjarna
að hafa sérstakt fataherbergi,
ur og skápar undir undirfatnað,
peysur, skyrtur, skótau og því-
Iíkt, og er slíkt herbergi vissu-
lega þarfaþing. Er sjálfsagt að
hafa þar sérstaka skúffu, eða
hirzlu fyrir óhrein föt. Margir
láta sér nægja að hafa stóran
og góðan innbyggðan skáp i
svefnherberginu og innrétta
hann meö alls kyns hirzlum.
Þessir innbyggðu skápar eru
oft nokkuð dýrir, ekki sízt
hurðirnar. sem oftast eru úr
tekki eða eik, en rétt er að
benda á þaö, aö nái slíkir skáp-
ar yfir heilan vegg, eöa því
sem næst, getur verið mjög
skemmtilegt að hafa fallegt
hengi fyrir, t. d. úr sama efni
og gluggatjöldin og festa því
með svokallaðri „amerískri upp-
Hér sjáum við þennan ágæta regnfrakka, sem getur bæði
verið stuttur og síður.
Stutt — Sítt?
Sjaldan hafa tízkukóngarnir
farið eins illa að ráði sínu og
f sambandi við stuttu tízkuna,
eða réttara sagt pilssíddina yf-
irleitt. Ýmist fréttist að stutta
tízkan sé algerlega úr sögunni,
og um leið hlaupa hundruð
stúlkna til að síkka öll sín pils,
eða þeir tilkynna að stutta tízk-
an haldi velli um fyrirsjáanlega
framtíð, og þá verðum viö auð-
vitað að stytta allt f grænum
hvelli.
Ennþá er ómögulegt að segja
hvað verður ofan á í þessu máli,
en þó má frekar gera ráö fyrir
að stutta tízkan verði áfram í
tízku næsta sumar, en yfirleitt
styttist pilsfaldurinn frekar en
síkkar á vorin.
Síðu pilsin hafa selzt illa í
London og New York í vetur,
en Frakkar hafa hins vegar selt
þau ágætlega. Nú hafa Englend-
ingar fundið upp ágæta nýjung,
til að koma til móts við þær
sem vilja síðu tízkuna, og líka
þær sem vilja ganga stuttklædd
ar. Þeir hafa framleitt regn-
frakka,- sem er með þeim ágæt-
um, að hægt er að taka neðan
af honum, og þá er hann stutt-
ur. Lausa stykkið, er fest á með
festibandi, og mjög fyrirhafnar-
lítið aö fjarlægja það. Þessi á-
gæti frakki, sem við sjáum
hérna á myndinni er frá enska
regnkápufyrirtækinu Weatherall,
tvíhnepptur með gylltum tölum
og hlýju fóðri. Hver veit nema
við getum von bráðar fengið
pils með færanlegu stvkki aö
neðan? Þá getum við kannski
farið að fyrirgefa tízkukóngun-
um, að geta ekki ákveðið sig í
sambandi við pilssíddina.
Hentugustu hirzlur í barnaherbergjum, eru skúffur undir rúmunum, þar sem hægt er að
geyma leikföng og annað. Þessar skúffur má smíða úr venjulegum trékössum og mála þær
eða lakka eftir vild.