Vísir - 30.03.1968, Blaðsíða 1

Vísir - 30.03.1968, Blaðsíða 1
VISIR 58. árg. — Laugardagur 30. marz 1968. - 72. tbl. Beittu exi á hurðir en rofjárni á þökin Ótrúleg spellvirki framin á sumarbústöðum við Hvaleyrarvatn □ Brotnar rúður, brotnar ljósakrónur, speglar og hurðir og fleiri viðurstyggileg merki skemmdarfýsnar og ómennsku blöstu við þeim, sem komu að tveim sumarbústöðum við Hvaleyrarvatn fyrir nokkru. □ Svipaða sjón gaf að Iíta í golfskála Hafnfirðinga þar nærri og hefði enginn trúað, sem séð hefði, að þar hefði óbrjáluð mann- eskja verið að verki, en rannsóknarlögreglan í Hafnarfirði hefur nú haft upp á þeim, sem þetta gerðu. Fisköskjur og mjólkur- fernur teknar af frílista Innlend framleiðsla ódýrari en innflutt Viðskiptamálaráðuneytið tók í gær öskjur út af frílista til þess að geta haft eftirlit með innflutningi á fiskumbúðum og mjólkur- fernum. Blaðinu barst um þetta fréttatilkynning frá viðskipta- málaráðuneytinu. í tilefni henn ar hafði það samband við Björg vin Guðmundsson, deildarstjóra í viðskiptamálaráðuneytinu. Björgvin sagði, að athugun hefði leitt í ljós, að 500.000 öskjur, sem Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna keypti nýlega frá Bandarfkjunum, hefðu verið mun dýrari en eins öskjur, sem hægt var að fá innanlands. Hefðu bandarísku öskjurnar kostað fob. rúma krónu stykk ið og þar við bættist flutnings- kostnaður og útskipun, en ís- lenzku öskjurnar kostuðu 91 eyri. Mundi ráðuneytið stöðva slíkan flutning í framtíðinni. Þá hefur Vísir frétt, að nefnd sú, sem skipuð var af fjórum ráðuneytum til ‘þess að kanna mjólkurumbúöaverð, hafi kom- izt að þeirri niðurstöðu, að ódýr ara væri að láta framleiða fern umar hér heima heldur en flytja þær inn frá Svfþjóð. Voru allir fulltrúar ráðuneytanna sammála um þetta, en forstjóri Mjólkursamsölunnar skilaði sér- ák»i. Þessar tvær athuganir munu hafa leitt til aðgerða þeirra, sem viðskiptamálaráðuneytið hefur nú gripið til. Fréttatilkynningin um málið hljóðar svo: „Ráðuneytið hefur i dag sett reglugerð, er felur það í sér, að framvegis verði innflutningur á pappakössum og öskjum háður innflutnings- og gjaldeyrisleyfum. Er ráðstöfun þessi gerð til þess að unnt sé að hafa eftirlit með innflutn- ingi á öskjum utan um fisk og mjólkurfernum." Hinir seku reyndust vera þrir unglingsstrákar á aldrinum 12-13 ára. Þeir voru úr hópi 5 pörupilta sem uppvísir eru aö því að hafa brotizt fjórum sinnum inn í skipa smíðastöðina Bátalón í Hafnarfirði. Þaðan stálu þeir ölföngum, en engu verulega verðmæti, en spilltu þar hins vegar híbýlum fyrir þúsundir króna. Þremenningarnir brutust fyrir stuttu inn i golfskálann við Hval- eyrarvatn og réðust þar á allt inn anhúss, sem brotlegt var. Rúður speglar, ljóshjálmar, ljósmyndir. Ekkert var skilið eftir óbrotið. Ýmis tæki glofleikmanna eyöilögöu þeir einnig og innbú fleira. Þó keyrði alveg um þverbak, hegðan. þeirra, þegar þeir stór- skemmdu tvo sumarbústaöi, sem einnig eru viö Hvaleyrarvatn. Hver einasta rúöa var mölbrotin, hver einasti Ijóshjálmur var brotinn. Aö hurðum réðust þeir með exi og brutu. Upp á þak fóru þeir einnig með rofjárn og rufu gat á þakið. Öllu var spillt, sem þeir höfðu krafta til að vinna á. Annar þessara bústaða var afar vandaður og vel' frágenginn með dýrri harðviðarhurð og teppi á gólf um. Þar kveiktu þeir upp í eldavél og fleygðu svo hripgunum af elda vélinni á gólfteppið og upp á sófa borð eitt vandað. Trén í garöinum hjuggu þeir upp og giröinguna um hverfis rifu þeir niður. Þeim sumarbústaöi fylgdi kartöflu geymsla sem eigandinn geymdi í sérstakt kartöfluútsæöi, sem hann hafði ræktað með þrotlausri vinnu og erfiði. Hana brutu þeir upp og skildu eftir opna, þegar þeir yfir gáfu staðinn. Eyðilagðist því allt útsæðið. Engum lögum veröur komið yfir þessa þokkapilta, en lögreglan hef ur talað við foreldra þeirra og nokkrar vonir standa til þess, að eigendum þessara bústaða verði að einhverju leyti bætt tjónið. — Piltarnir verða hins vegar sendir til sálfræðings í geðrannsókn. Strandferðaskipin úreit áður en smíði er hafin? — Ekki miðuð við nýjustu flutningatækni, segir i grein i Ægi Smíði hinna nýju strand ferðaskipa Skipaútgerð- ar ríkisins, sem nú er að hefjast á Akureyri, hef- ur sætt nokkurri gagn- rýni. í grein í tímaritinu Ægi er bent á að skipin séu ekki teiknuð sam- kvæmt nýjustu tækni við losun og lestun flutn ingaskipa og reynslu annarra þjóða í þeim efnum, heldur virðist þau byggð samkvæmt hinum gamla hefð- bundna byggingarstíl. Hin nýja tækni við losun og lest un flutningaskipa, sem mjög hef ur rutt sér rúm erlendis að undanförnu er fólgin í því, að varan er tekin um borð í skip ið gegnum sérstakar hurðir á síðunni. Hurðir þessar eru til þess gerðar að hægt sé að taka þar í gegn með lyfturum bretti hlaðin vöru. Tveir lyftarar vinna þannig verk margra manna. Annar kemur vörunni að hurðinni á síðunni og hinn tekur við henni um borð staflar henni í lestu - skipsins. Bent er á í greininni að Norðmenn hafi byggt strandferðaskip með slíkum útbúnaði („Pallet“- skip) og hafi þau reynzt mjög vel. Auk þess yrði krani miöskips sem nota mætti bæði við fram og afturlest skipsins. Vörur, sem ekki væri hægt að setja á bretti svo sem steypustyrktar- jám, timbur og annað slíkt eru hifðar um borð með krananum ig yrðu þá látnar liggja í stroff um. þannig að ekki þyrfti ann að en að húkka þær á í losunar höfn. Þann tíma sem ekki væri hægt að nota siðuhurðir vegna flóðs og fjöru yrði varan hífð niður i lest á brettunum, þar sem lyftarinn tæki við þeim og staflaði þeim upp. Núverandi fyrirkomulag við losun og lestun skipa krefst fjölda verkamanna, þar sem handfjatla þarf hvem einasta kassa eða pakka og stafla upp W-*- 10. síða. Skipað inn í bæi er sprengjan sprakk | Þaö hefur verið sagt svo að minnst ríkir af öllum lítið fjáðum mönnum hér á landi séu ; Skaefirðingar manna blankastir. Engu að síður eru Skagfirðingar mjög ánægðir með lífið, . Iiugsa um nross siíemmtan, — og um þessar mundir stendur yfir í Skagafirði óslitin ! vika af sælu, Sæluvika Skagfirðinga, sem fer fram að venju á Sauðárkróki. Myndina tók | ljósmyndari Vísis á Sauðárkróki, Guðni Friðriksson, af einu atriði Sæluvikunnar, revíu ; úr bæjarlífinu. Það tók undir í fjöllunum, þegar eldflaugar úr varnarliðs- j þotunni voru sprengdar austur i í Landssveit milli klukkan fimm og sex í gær. MikiII viðbúnaður var á staðnum. — Lögreglan frá Keflavíkurflugvelli og hér- aðslögreglan í Ámessýslu höfðu menn á staðnum til þess að varna forvitnu fólki aðgöngu, en fólkið á bæjunum í kring var látið halda sig innan dyra. „Lömbin sem voru í túnjaðrinum tóku á rás heim til bæjar, þegar sprengingarnar byrjuðu", sagði Guðni Kristinsson, hreppstjóri að Skaröi, sem er einn af bæjunum næst þeim stað, þar sem þotan h paði á dögunum með 24 eld- flaugar innanborðs. — „Hér voru gerðar miklar varúðarráðstafanir og fólk varð að halda sig innan dyra á bænum, meðan á sprenging unum stóð, en það var frá klukkan fimm til korter fyrir sex. Mikill revkur aaus uno. beear eldflauearn ar sprungu, en drunurnar uröu ekki eins miklar og þegar vélin fórst." Vísir náði tali af Benedikt Þórarinssyni yfirlögregluþjóni á Keflavíkurflugvelli sem var við- staddur sprenginguna og sagði hann, að lögregluþjónarnir hefðu orðið að vísa forvitnu fólki í burtu. Enginn hefði verið í minna en kílómetra fjarlæeð með- an sprengjurnar sprungu. Benedikt sagði að sprengjurnár hefðu verið sprengdar þetta fjórar í einu. Er þeim vísað niður í jörðina við sprenginguna, en hún er fram- kvæmd líkt og dinamitsprenging, bannig að þráður er leiddur frá hvellhettunni að rafmagnsrofa, um kí'ómetra ieið. — Sagði Benedikt aö allt hefði þetta tekizt vel og eins og áætlað var. Leitinni að tuttugustu og fjórðu eldflauginni verður haldið áfram en ekkert hefur bólað á henni enn þá. Engin hætta er þó talin stafa af henni, þar eð hún þarf mjög mikið stuö til bess aö springa.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.