Vísir - 10.04.1968, Qupperneq 1
Fyrsta þyrlupéstfhigið
Fyrsta hérlenda þyrlupóstflugið var fariö i morgun. Lengst til vinstri er Björn Jónsson, flugmaður þyrl-
unnar, í miðið er Siguröur H. Þorsteinsson, formaður Landssamb. fslenzkra frímerkjasafnara. (Ljósm. Bragi)
Þyrla landhelgisgæzlunnar lenfi á bifreiáastæði Umferðarmiðstöðvarinnar
i morgun og flutti með sér 8000 umsl'óg
VERÐUR MÁl HÖFÐAÐ GEGH
FORSTJÚRA STJÖRNUBlÓS?
Klám eða lisf? — Málsh'ófðun ekki undirbúin
□ Mynd sú, sem nú er verið að sýna í Stjörnubíói, „Ég er
forvitin - gul“, hefur vakið miklar deilur og blaðaskrif.
Nú síðast hefur stjórn Æskulýðssambands íslands látið frá
sér fara ályktun, þar sem hvatt er til að kvikmyndaeftirlit
hér á landi verði hert og lágmarksaldur að myndum eins og
„Jag ar nyfiken - gul“ verði hækkaður upp í 18 ár í stað
16 eins og nú er.
ÆSÍ vekur einnig athygli
manna á 210. gr. hegningarlaga
19/1940, en þar segir meðal
annars: „Ef klám birtist á -prenti
skal sá, sem ábyrgð ber á birt-
ingu þess eftir prentlögum.
i
sæta sektum varðhaldi eða
fangelsi allt að 6 mánuðum. —
Sömu refsingu varðar það að
búa til eða flytja inn i út-
breiðsluskyni, selja, útbýta eða
dreifa á annan hátt út klám-
ritum, klámmyndum eða öðr-
um slíkum hlutum, eöa hafa þá
opinberlega til sýriis, svo og
að efna til opinbers fyrirlestrar,
eða leiks, sem er ósiðlegur á
sama hátt.“
Kvikmyndaeftirlitið er skip-
að af menntamálaráðuneyti og
í því eiga sæti Guðjón Guðjóns-
son. Hulda Valtýsdóttir og Er-
lendur Vilhjálmsson, en sá síð-
astnefndi skýrði frá því í við-
tali við Vísi í morgun, að eftir-
litsfólkið hefði ekki leyfi til að
banna fólki, sem orðið er 16 ára
aðgang að kvikmyndum.
. . .. .... ■ -... ..
Lögreglustjóri hefur heldur
ekki leyfi til að banna sýning-
ar á myndum, nema þá á
Reykjavíkursvæðinu, en það
mundi vera skammgóður verm-
ir, úr því að engin slík takmörk
eru í Kópavogi og Hafnarfirði.
Margir muna eftir því, að í
undirbúningi var hér á árunum
að gefa út „Rauða rúbíninn“
eftir Agnar Mykle. Lögreglu-
stjóri sendi þá þeim, sem hugð-
ust standa að útgáfunni ábend-
ingu um innihald áðurnefndr-
ar 210. greinar hegningarlaga,
M->- 7. síða.
Peningurinn
var \ vörzlu
Geysisnefndar
Nú er komið í Ijós hver var eigandi
10 króna peningsins, sem fannst
á Laugaveginum — en peningar
þessir voru slegnir fyrir nokkru og
verða þeir ekki settir í umferð fyrr
en seint í þessum mánuði. Væntan
lega verða þessir pcningar mikiö
notaðir í sjálfsala og peningurinn
sem týndist á Laugaveginum, var
einmitt lánaður sem sýnishorn
vegna siálfsala, sem Geysisnefndin
hyggst láta setja upp við Geysi. —
Fá ferðamenn vaentanlega lýsingu
á umhverfi Geysis með því að
7. síöa.
Þetta samband var stofnað í októ
ber síðastliðnum og hlaut nafnið
„Landsamband íslenzkra frímerkja-
safnara" og stóðu þrjú frímerkja-
safnarafélög að stofnun þess, en
síðan hefur eitt bætzt í hópinn.
I gær voru flutt 8000 umslög til
Keflavíkurflugvallar, með leyfi við
komandi ráðuneytis og í samráði
við póstmeistarann í Reykjavík, en
póstþjónustan á Keflavíkurflugvelli
heyrir einnig undir hans embætti.
Þegar þyrlan var lent, steig Sig-
urður Þorsteinsson, formaður Land
sambandsins fyrstur út, en síðan
kom flugmaðurinn ásamt kvik-
myndatökumanni Sjónvarpsins sem
hafði fengið aö fljóta með í hina
sögulegu ferð. Sigurður og flug-
maðurinn tóku póstpokann úr vél
inni og var hann síðan borinn í
póstbifreið sem beið skammt frá,
en bifreiðin mun hafa flutt hinn
dýrmæta farm niður á Pósthús, þar
sem umslögin munu stimpluð svo-
kölluðum „bakstimpli", en að því
loknu munu þau verða seld í frí-
merkjaverzlunum í Revkjavík.
■ Klukkan Iiölega hálftíu í morgun Ienti þyrla Landhelgisgæzl-
unnar á bifreiðastæði Umferöarmiðstöðvarinnar. Það þykir
að vísu ekki frásagnarvert nú orðið, þótt þyrlan Iendi á hinum
ólíklegustu stöðum, en í þetta sinn var tilgangur lendingarinnar
nokkuð óvenjulegur, en þyrlan var í fyrsta póstflugi sinnar teg-
undar á íslandi.
Það er nýstofnað landsamband , flugi og var það farið i fjáröflunar
frímerkjasafnara sem st** að þessu skyni fyrir sambandið.
Lögreglan rann á landalykt og
fann bruggtæki,
en var í öðrum erindugjörðum
Allstæk landalykt vísaði lög-
reglunni á uppsett bruggtæki £
húsi einu í borginni í gærmorg-
un, sem hún hafði verið kvödd
í, vegna þess að íbúarnir héldu,
að stolið hefði verið öryggis-
töppum úr rafmagnstöflu húss-
ins. Rafmagnstaflan var niðri í
kjaliara hússins og þangað niður
fóru lögreglumennirnir til þess
að rannsaka aðstæður, en fundu
þá sterka lykt Ieggja fyrir vit
sín, sem líktist grunsamlega mik
ið brugglykt.
Runnu þeir á lyktina og fundu
í geymsluherbergi einu í kjallar-
anum uppsett brugg- og eiming-
artæki, ásamt tveim kútum, sem
lagt hafði verið f. Var annar
fullur, en slatti í hinum. Auð-
séð var á eimingartækjunum, aö
bruggarinn hafði nýlega soðið
einhvern „slurk“.
Við nánari rannsókn viður-
kenndi piltur, sem var búandi
í húsinu, að vera eigandi að tækj
um þessum. Sagði hann lögregl-
unni, að hann væri nýbúinn að
setja tækin upp, fyrir hálfum
mánuði, og hefði eimað úr brugg
inu eina flösku af vínanda.
Tækin, kúturinn og lögurinn
í þeim var allt gert upptækt.
Gleðilega páskal
Ingibjörg Ragnarsdóttir fékk að halda á fimm lijllum páskaungum
þegar hún heimsótti ungabúið að Teigi í Mosfellssveit á dögunum.
Að Teigi eru margar þúsundir unga, en Ingibjörg heimsótti unga-
búið í fylgd með blaðamanni Vísis. - Með þessum páskaungum
sendir Vísir lesendum sínum beztu óskir um gleðilega páska.