Vísir - 19.04.1968, Side 4

Vísir - 19.04.1968, Side 4
Nýlega voru gefin saman í hjónaband í Bandaríkjunum þau Joan Baez þjóðlagasöngkonan fræga og David Harris, sem er mikill leiðtogi friðarvina og for- maður stúdentafélags Stanford- háskóla. Joan er 27 ára en David 22. Pau munu hafa kynnzt er þau sátu saman í steininum fyrir þátt- töku í uppþotum, sem stöfuðu af baráttu fyrir friði á jörðu. Ekki tóku þau sér langa hveiti brauðsdaga, bar sem þau eru bæði á þönum um allar jarðir til að taka þátt í samkomum hjá samherjum swum í hinum ýmsu fylkjum Bandirríkjanna. David á líka yfir höfði sér ákæru frá herstjórn Bandaríkjanna, en hann hefur lieitað því þverlega að gegna herþjónustu. Ekki eru aliir Bandarikjamenn jafnáfjáðir í að fá Robert Kenne- dy i forsetastól í haust, og hafa menn horn í síðu hans af ýmsum ástæðum, og sumir vilja jafnvel gefa honum holl ráð, eins og þetta bréf, sem fer á eftir sýnir, en það birtist í tímaritinu ,,Time.“ „Robert Kennedy fannst nauð synlegt, eða að minnsta kosti hentugt.'að fara til annars fylk- is til að verða kjörinn öldunga- deildarþingmaður. (Frá Massa- chusetts til New York). Vonandi velur hann nú þá leið að fara ti! annars lands til að verða kjörinn forseti. • • Nýlega er komin út bók um dálítið sérstæðan mann. I einka- lífi sínu gekk hann undir nafn- inu Joseph Pujol. Hann var fæddui í M'arséilles árið 1857 og var lærður bakari. En á sviðinu l.Moulin Rouge eöa Rauðu myll- unni í París var hann þekktur sem „Le Petomane", en þaö orð gæti verið erfitt að 'þýða á ís- lenzku. Þggar hann stóð á tindi frægðar sinnar vann hann sér inn helmingi meira en Sarah Berhardt, ein frægasta stjarna allra tíma. Bæði unnu fyrir sér með því að framleiða hljóð. Hún söng, en hann gerði hávaða — með óæðri endanum. Oft sneri hann bakhlutanum .í áhorfendur til þess að sýna þeiní, að hann hefði ekki falið nein hjálpartæki í buxnasetunni. Hann gat slökkt á kerti, sem var fet frá honum, og jafnvel framleitt músík á þann hátt, sem ekki hefur verið leikinn eftir fyrr eða slðar. En það furðulegasta var, að list hans fylgdi alls enginn ó- þægilegur þefur — eins og menn kynnu þó aö halda. Ekki er það þó neitt eins dæmi, að menn framleiði hljóð Joseph Pujol: einkennileg náð- argáfa. » með öðru en talfærunum, og við íslendingar höfum meira að segja átt stjörnu, sem hélt „konserta" .fyrir fullu húsi, en það var sá frægi Guðmundur ' dúllari, sem einnig var um langt skeið einkarit- ari Símonar Dalaskálds. Svanur eða fíll? Fíll og/eða svanur. Öskubakki eftir Salvador Dali. •« Teiknar skopmyndir til að vinna íyrir námi Hann er við söngnám og auð- vitað er það dýrt, en hann, hefur ráð undir hverju rifi, og nú hefur hann sett upp sýniiigu á skop- myndum eftir sig á Brönnum- kaffihúsinu í Höfn, til þess að vinna sér inn peninga. Að Ey- vindi standa margir óperusöngv- arar. Faðir hans, Stefán íslandi, er vel þekktur, sömuleiðis móðir Máttur auglýsinga er mikill, og því sérstæðari sem auglýsing- arnar eru, þeim mun méiri at- hygli vekja þær — og tilgang- inum er náð. Flugfélag eitt fann upp á því að láta súrrealistann heimsfræga, Salvador Dali, búa til fyrir sig öskubakka, sem það notar síðan í auglýsingaskyni. Eins og myndin sýnir er þetta talsvert merkilegur öskubakki, því að ef svaninum, sem heldur honum uppi er snúið við, þá breytist hann í fíl. Eyvind Brems íslandi er góð- kunnur hérlendis, því að hann er sonur Stefáns óperusöngvara, og ekki alls fyrir löngu hélt hann hér konsert. hans, Else Brems óperusöngkona, og afi hans, Anders Gerðu ekki eins og ég geri — gerðu eins og ég segi! Það er frægt, þegar Pétur mikli Rússakeisari vildi láta síðskeggj- aða hirömenn sína taka upp vest rænni háttu á fyrri . hlúta 18du aldar, skipaði hann þeim að raka skegg sín og gekk sjálfur á und- an með góðu fordæmi — og að- stoðaði þá jafnvel, ef hohum þótti raksturinn hjá þeim ganga seint Nú hefur annar þjóðhöfðingi tekið upp sömu stefnu, Fidel Castro á Cubu sem að vísu er að opna austurgluggann en ekki gluggann í vestur eins og Pétur sáiugi I Rússlandi. Castro er orðinn þreyttur á frjálslyndi stúdentanna í Havanna háskóla og hefur sett þá alla und- ir heraga, sem þýðir, að þeim er bannað að láta sér vaxa skegg, ganga í þröngum buxum og með hár niður á herðar. Ekki mun Castro þó sjálfur né ráðherrar hans hafa í hyggju að skerða skeggvöxt sinn, sem er orðinn nokkurs konar tákn kommúnistanna á Kúbu, eins og yfirskeggið var tákn þeirra Stal- íns og Hitlers. • o o o o 0 t) Ofboðslegar fréttir. Mörgum er farið að ofbjóða hið óskaplega fréttaflóð frá Ví- etnam-stríðinu. Þessar hörmu- legu stríðsfréttir fylla frétta- dálka blaðanna og meirihluta af fréttatíma sjónvarpsins, enda eru Bandaríkjamenn vafalaust ósparir á fréttamyndir sínar. Stundum fvlla fréttamyridir frá Víetnam meiri tíma í frétta- sendingum sjónvarps, en inn- lendar fréttamyndir, eða að minnsta kosti finnst manni á stunduno, að stríösfréttirnar það an að austan, sem, svo vissu- lega eru hörmulegar, fylli held- ur mikið rúm af fréttatímanum, dag eftir dag, svipaðar myndir af skothríð og fljúgandi þyrlum og hlaupandi konum og börn- um að léíta sér skjóls. Ástandið á fréttasíðum blað- anna er svipað og er fólki far- ið að ofbjóöa tilbreytingaleys- ið í þessum fréttum dag eftir dag, og margteygður lopinn. Okkur sem unnum samvinnu viö vestrænar bjóðir, sem við stönd- ■um í menningarlegu tilliti næst, rennur til rifja það sem þarna er að ske, og við ölum aðeins á óvild og viðbjóði með öllum þessum fréttaviðbjóði, af hörmulegum atburðum, sem okk ur er um megn að standa gegn eða hamla á móti. Við getum aðeins dropið höfði af hryggð. En það væri illt ef þessir J hörmulegu atburðir sem í nafni • friðar og hetjuskapar ættu eft- o ir að sundra samstöðu friðelsk- J andi vestrænna þjóða. • Fréttaþurður íslenzkra þlaða, * útvarps og sjónvarps má ekki J mótast eingöngu eftir því, , hvernig auðveldast er að afla J fréttanna og hlutfallið í frétt- o unum má ekki verða amerísk- J ara en í Ameríku sjálfri, og alls • ekki bannig að' halda mætti, a að það væri þegar komin • stjarna < fánann okkar — • hvorki hvít eða rauð. . • 1 e Þrándur í Götu. o í

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.