Vísir - 19.04.1968, Page 16

Vísir - 19.04.1968, Page 16
Þýzkur sjómuður tekinn fyrir nð selja knffi Lögreglan handtók í gærkvöldi sjómann af þýzkum togara, sem nú liggur í Reykjavikurhöfn, en henni höfðu borizt spumir af því, að maðurinn falbyði áfengi og kaffi á götum. Grunur lék á, að hann hefði ekki greitt toll af vörunni og hefði að auki ekki verzlunar- leyfi hér. Kaffið var í dósum, merktum Jakobs-kaffi. ^éhennteskynning ð Kópovogi Leikfélag Kópavogs gengst fyrir kyimingu á verkum Magnúsar Asgeirssonar skálds n.k. mánudag kl. 21.00 í Félagsheimili Kópavogs. Fr þetta í áttunda sinn, sem Leik- céiágið stendur fyrir slíkri kynn- •'ngu, og er aðgangur ókeypis. Flytjendur verða Kristinn Halls- son óp5rusöngva<’i, Baldvin Hall- dórsson leikari og ieikarar úr Leik- féiagi Kópavogs. Þá mun Jóhann T-ijálmarsson tala um skáldið, en kynnir verður Ragnar Jónsson í Smára. AFTUR KEMUR VOR í DAL \ Þegar vorblærinn kemur sunnan yfir fjöllin, og hinn kaldi andgustur Norðra konungs verður undan að láta, þarf að ræsta til eftir hríðarkófið, sem veturinn og hafísinn hafa fært yfir Siglufjörð. Eftir miklar frosthörkur og langvarandi norðanátt kom loks hlýviðri í vikunni fyrir pálmasunnudaginn og hefur hald- ið áfram fram yfir páskana. Mikið hefur tekið upp af snjón- um ag allur lagís á firðinum er að hverfa og hafísinn er kominn út í hafsauga, og á vonandi ekki afturkvæmt. Götur bæjarins hafa mestallan veturinn verið ruddar og því hefur verið bílfæ.t um bæinn oftast nær. En oft hefur verið um mikla fönr að ræða. Meðfylgjandi myndir tók Hafliði Guðmundsson ljósmynd- ari Vísis á Siglufirði, 03 svipmót vetrarins um miðjan ein- mánuð er ennþá yfir byggðinni. En „aftur kemur vor í dal“ og undanfarna daga hefur ísa leyst og fönnin bráðnar óð- um fyrir hægum sunnanþey í 10 — 12 stiga hita. Þ. R. J. Snjókoma fyrír ttorðaa í awrgun — engar 'isfregnir vegna lélegs skyggnis Snjómugga var víöa fyrir noröan i morgun, og höfðu Veðurstofunni engar ísfregnir borizt, enda mun -kyggni víðast hvar aðeins hafa verið um 1 km. Sif, flugvél Land- lelgisgæzlunnar fór í ískönnunar- 'lug í gær og kom í ljós, að sigl- "icmleiðin fyrir Langanes er enn rfið og þéttist ísinn þar mjög mikið. Dálítið frost er á Norðurlandi, og er færð ágæt ennþá. Hafði Vega- gerðin ekki fengið neina fréttir í morgun af ófærð vegna snjókom unnar. Öxulþungi er ennþá tak- marka.ður á flestum aðalvegum um allt land. Spáð er norð-austan golu hér á Suðurlandi í dag, en væntan lega verður úrkomulaust. Kosningaaldur lækkaður: TVÍTUGIR FÁ AÐ VELJA FORSETA □ Kosningaaidur hefur nú verið lækkaður úr 21 ári f 20 ár og varð 'rumvarp til laga um breytingar •essar að lögum í gær. Afgreiddi "ri deild Alþingis frumvarpið með ' S atkvæðum gegn 2. Rannsóknir á infiúenzu- veiruttni standa enn yfir Veikindafaraldurinn, sem hefur ^engið yfir síðan um páskana, virð- ist ekki vera i .rénum, eftir þvi sem aðstoðarborgarlæknir, Bragi Ölafsson, sagði biaðinu í morgun. p^nr-Qóknir á veirunni standa enn yfir á Keldum, og er úrskurðar ekki að vænta fyrr en eftir 1—2 vikur, en margir telja líklegt að hér sé um Asíuinflúenzu að ræða. F.kki vissi Bragi Ólafsson til að BYRJUÐU VEL Á HANDFÆRUM 5000 krónur / hlut í fyrsta róðri Akurnesingar eru nú að byrja að skaka á þeim ágætu miðum £ „hrauninu", og eru 3 trillur þegar byrjaðar. I gærmorgun var ör- deyða hjá stærri bátunum fyrir vestan í Stykkishólmi og Ólafsvík, og lítið hjá Akranesbátum, og i morgun var ekkert að frétta af aflabrögðum þar efra. Hins vegar hafa trillukarlar kom ið með ágætan afla og þeir þrír bátar sem byrjaðir voru í gær höfðu fiskað vel, komu með 3 tonn hver. Aflahluturinn á mann er því um 5000 krónur, en róður- inn varð óeðlilega langur hjá þeim og síðasti báturinn var að koma inn eftir sólarhring og gekk ekk- ert of vel að komast áfram í niðdimmri þokunni £ gærmorgun. í □ Þeir sem verða orðnir tví- tugir fyrir 30. júni n.k, eiga nú þess kost að ganga að kjörborðinu, — og f þetta sinn stendur valið á ; ' * . milli a. m. k. tveggja forsetaefna, í , Margréí Guðnadóttir Iækn.r a þeirra Gunnars Thoroddsen og I Ke,dum’ er barna með egg, sen, Kristjáns Eldiárn. S notuð en‘ t!l aö rækta inf,uenzu‘ ------,-----------------------------í> veiruna. veikin heföi borizt út á land. — Hettusóttin hefur breiðzt hægt út. og eru veikindatilfelli álíka mörg og fyrst eftir að fór að bera á henni að ráði eftir áramótin. Kirkjuræknar dúfur fiæmdar úr Dóm- kirkjunni Önnur náðist i orgelinu ■ Meö einhverjum hætti höfðu tvær dúfur komizt inn í Dóm- kirkjuna i fyrradag, þegar kirkjuvörðunnn kom í kirkjuna um morguninn og bættist því það við morgunverkin hans, að koma þeim út úr kirkjunni. Það dugði ekki að hafa tvær dúfur flöktandi um guðshúsiö næst, þegar messað yrði. ■ En þær voru bara hreint ekki á því blessaðar dúfurnar, að íáta reka sig þaðan út, fyrst þær á annað borð voru komnar inn, og eftir langan eltingaleik og árangurslausan varö kirkjuvöröurinn að biðja Iögregluna um hjálp. ■ Tveir lögregluþjónar komu honum til liðs og var nú neytt allra bragða, en tíminn Ieið svo, að ekkí varð dúfunum komið út. Hefðu nú góð ráö verið dýr, ef þarna hefði átt að fara fram messu- gjörð kl. 11, en svo var ekki þennan dag. ■ Eftir hálftíma eltingaleik náðu lögreglumennirnir dúfunum ioks — annarri þar sem hún hafði flogið inn í kirkjuorgelið — og komu þeim út, en kirkjuvörðurinn tók aftur til við morgunverk sín. t

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.