Vísir - 06.05.1968, Blaðsíða 9
V í SIR . Mánudagur 6. maf 1968.
9
„Mjólkursölumálin þarf að færa í annan far-
veg en þau hafa verið í undanfarin 35 ár"
— sogð/ Sigurður Magnússon, framkvæmdastjóri Kaupmannasamfakanna i viðtali við Visi
□ Fá mál eru oftar rædd meðal neytenda en
mjólkursölumálin, og í lesendadálkum blaðanna eru
þau algengasta umræðuefnið. Þetta á ekki aðeins
við í Reykjavík heldur um land allt, eins og sjá má
af því, að nú stendur ýfir „mjólkurstríð“ í Ólaf sfirði.
□ Þar hefur að undanf ömu verið deilt vegna þess
að verzlunin Valberg hf. hefur viljað hafa mjólk á
boðstólum fyrir viðskiptavini sína, en þar hefur
Mjólkursamlag Kaupfélags Ólafsfjarðar verið
Þrándur í Götu.
\7alberg leitaöi þess vegna til
Akureyrar og flutti þaöan
mjólk, sem síðan var höfö til
sölu í verzluninni. Út af þessu
hefur veriö lögð fram kæra, þar
sem óheimilt er samkvæmt 22.
grein laga um Framleiðsluráð
landbúnaöarins aö flytja mjólk
milli sölusvæða. Þetta mál er
nú hjá bæjarfógeta á Ólafsfirði.
Vegna þessa sneri blaðið sér
til Sigurðar Magnússonar, fram-
kv.stj. Kaupmannasamtakanna,
til þess að ræöa við hann um
mjólkursölumál almennt.
„Kaupmannasamtökin hafa á-
huga á þv£ að flytja mjólkur-
sölumálin í annan farveg en
verið hefur undanfarin 35 ár,“
sagði Sigurður Magnússon, þeg-
ar tíðindamaöur blaðsins hitti
hann að máli á skrifstofu sam-
takanna.
„Fyrir ári gerðu kaupmanna-
samtökin ályktun, sem beint var
til Framleiösluráðs landbúnaðar
ins,' um að það geröi kaupmönn
um kleift að selja og hafa á
boðstólum mjólk og því um
líkt.Ástæöan fyrir þessu er fyrst
og fremst sú, að húsmæöur eru
mjög óánægöar yfir því, að ekki
skuli vera hægt að fá mjólk
heimsenda eins og annan nauð-
synjavarning, síöan tekinn var
upp sá háttur að setja mjólk í
nýtízku umbúðir, þannig að
geymsluþol hennar er orðið á
við aðra vöru.“
„Hvað kemur helzt í veg fyr-
ir að kaupmenn fái þessari
kröfu sinni framgengt?"
„Það er nú svo að þeir sem
ráða þessum málum mismuna
aðilum herfilega í sambandi við
sölu mjólkur. Landinu er skipt
í mjólkursölusvæði og óheimilt
er að flytja mjólk, rjóma og
skyr milli þessara svæða til þess
að selja, þannig aö óheimilt er
til dæmis verzlun í Ólafsfirði
að kaupa mjólk frá Akureyri
til þess að hafa á boðstólum
fyrir viðskiptavini sína í Ólafs-
firði."
„Kaupmenn eru væntanlega
Sigurður Magnússon
óánægðir meö þetta fyrirkomu-
lag?“
„Já, eins og gefur að skllja
viljum við að jafnrétti sé ríkj-
andi í sambandi við viöskipta-
lega aöstöðu, svo að hver og
einn sem uppfyllir þær kröfur,
sem geröar eru af heilbrigðis-
yfirvöldunum á hverjum stað,
geti fengið að selja mjólk. Það
er þjónusta, sem margir1 Ivið-
skiptavinir hafa farið fram á
viö kaupmenn sína, og ’ þaö
mundi spara mönnum snún-
inga“. ' s
MIKIÐ ORYGGI AÐ
BEYGJULJÓSSJM
* Rætt við Gest Ólafsson i Bifreiðaeftirliti rikisins
Tú, þessi beygjuljós eru áreið-
" anlega góð. Það fylgir þeim
aukið öryggi. Ljósgeislinn, þeg-
ar hann vísar til hliðar f beygj-
unni. víkkar sjónhring öku-
mannsins. — sagði Gestur Ól-
afsson, forstöðumaður Bifreiða-
eftirlits ríkisins, ( spjalli viö
Vísi.
Blaðið spurði hann álits á
þessum nýja ljósabúnaði, sem
lesendum Vísis hefur áður ver-
iö kynntur á tæknisíðu blaðsins,
og almennur áhugi hefur vakn-
aö fyrir.
„Til skamms tíma hefur þó
ekkert ákvæði verið um þau I
reglugerð okkar. Þetta er svo til
alveg nýtt af nálinni, en nú
nýlega hefur verið tekin af-
staða til þeirra og fyrsti bíll-
inn með þessúm útbúnaði er nú
kominn' á götúna. eftir að hafa
fariö ; gegnurr skoðun.“
„Þ r eru nú orðnar svo ör-
ar, breytingarnar og nýjungarn
ar við ökutæki, Gestur. Er ekki
orðið erfitt að fylgjast meö
beim öllurn?"
„Víst eru margar nýjungar
og örar, en við reynum eftir
beztu getu að fylgjast með. Viö
erum t. d. í nánu sambandi við
kollega okkar í nágrannalönd-
unum, sem senda okkur gjarnan
ýmsar upplýsingar varðandi
nýjungar og nýjar gerðir öku-
tækja. — Hvað séu veikir blett-
ir í þeim og hvað sé aftur á
móti gott frá öryggislegu sjón-
armiði séð.
Annars eiga innflytjendurnir,
samkvæmt 16. gr. umferðalag-
anna, að senda okkur nákvæma
lýsingu og myndir áf nýjum
gerðum skráningarskyldra öku-
tækja, feem þeir hyggjast flytja
inn í landið.
Heföi það veriö gert til dæm-
is strax og beygjuljósin komu
fram — að innflytjendur bif-
reiða með slíkum útbúnaði
hefðu sent okkur strax grein-
argerð um þau — þá hefði
fyrir löngu legið eitthvað á-
kveðið fyrir um bessa nýjung.
Við höfðum ekki fengiö neitt
slíkt, þegar bíleigandinn kom
með fyrsta bílinn með þessari
nýjung til skoöunar, og urðum
aö byrja á því að afla okkur
þeirra gagna. Fyrst urðum viö
að snúa okkur til okkar yfir-
valds, sem er umferöarlaga
nefnd. og svo framvegis, sem
olli töfum, en framvegis verð-
ur þetta svo í pottinn búið. að
við sjálfir í eftirlitinu megum
Gestur Ólafsson
úrskurða löglegan útbúnað ■ á
ökutækjum, sem eru jafnj ó-
tvíræöur öryggisauki, eins , og
t. d. beygjuljósin. 1
Það fer ekki milli mála, að
þau eru til mikilla bóta á okkar
krókóttu vegum.“
„Hvaö þá um „blikk“-útbún-
aðinn, sem komið var fyrir i
mörgum amerískum bifreiöum,
þannig að stööuljósin blikka,
þegar ökumaðurinn kveikir á
þar til gerðum ljósrofa inni í
bílnum? Er sá útbúnaður ekki
jafngóður og þessi glithyrnings-
merki, sem mælt er með?“
„Það er vafalaust öryggi að
því. Þegar menn verða að nema
staðar á óupplýstum vegum
vegna sprungins hjólbarða eða
vélarbilunar, þá er fyrirhafnar-
minna að kveikja á ljósrofa inni
í bílnum, heldur en koma glit-
hymingnum fyrir. Þetta blikk-
ar eins og neyðarljós og sést
langt að.
Jú, víst er öryggi aö því, en
það er bara möguleiki á því,
að menn misnoti þetta og aki
meö þessum blikkandi ljósum,
því... jú, bílar með blikkandi
rauöum ljósum njóta ýmissa
forréttinda í umferðinni.
En þetta þykir eins og beygju
ljósin augljós öryggisauki og
þetta hefur verið leyft nú. Að
vísu höfum við hleypt þeim i
gegn, þegar þannig útbúnir bíl-
ar hafa komið í skoðun til okk-
ar.“
„Nú stendur yfir hjá ykkur
hin árlega skylduskoðun bif-
reiða. Hvernig hefur hún geng-
ið?“
„Hún hefur gengið sinn gang.
Viö erum búnir að skoöa núna
3000 bíla. Dagleg afköst hjá
okkur eru 150 bílar á dag, eins
og í fyrra. Viö getum ekki auk-
ið afköst okkar meira hérna.
Það er svo þröngt um okkur."
„Er þróunin jákvæð í þessa
átt?“
„Hún hefur verið það í seinni
tíð, til dæmis stóð „mjólkur-
stríö" á Húsavík, en því er nú
lokið, þannig að verzlanir þar
selja nú mjólk eins og aðra
vöru. Á Sauðárkróki er nú einn-
ig ósamlyndi út af þessu máli,
þar eð mjólkursamlög* víðast
hvar hafa mjólk til sölu aðeins
I kaupfélagsverzlunum. Þetta
helzt mönnum uppi vegna þess,
hversu mikil nauösynjavara
mjólk er, þrátt fyrir að ótelj-
andi tilmæli hafi borizt verzl-
ununum um að selja heimilun-
um mjólk.
Ég hef átt tal við ýmsa fram
ámenn um þessi mál, og þeir
hafa látiö í Ijós vaxandi skiln-
ing á því, að framkvæmd mjólk-
ursölu þarfnist mjög endurskoð-
unar.“
„Hvernig er þessum málum
háttað í öðrum löndum?"
„T. d. í Danmörku var ástand
ið svipað þangað til fyrir um
það bil ári, en þá var rofið
skarö í þetta gamla skipulag,
og nú er mjólk til sölu í flest-
um nýtízkulegum verzlunum,
sem hafa kæliaðstöðu eða tök
á því að varðveita vöruna ó-
skemmda.
Ég Vil ekki trúa því að ó-
reyndu, að menn gangi fram-
hjá því sjónarmiði, að sjálfsagt
sé að taka hér upp nýtízku
söluaðferðir og leggja niður
gamla og óþjála hætti, sem
bera keim af einokun, sem ekki
er samboöin landi þar sem
frjáls verzlun á aö ríkja."
ÍIIW:|
nokkra eldri bifreiöastjóra:
„Ætlið þér að hætta akstri eftir
hægri breytinguna?"
Magnús Skaftfjeld, Skóla-
vörðustíg 28, 74 ára bílstjóri
hjá Hreyfli: „Nei, ekki aldeilis!
Það er ekkert verra að aka á
hægri kanti, en vinstri. Ætli
maður sulli sér ekki. í þetta,
fyrst farið var út í þessa vit-
leysu á annað borð.“
Magnús Ólafsson, Stórholti
35, 80 ára bílstjóri hjá BSR:
„Nei, ekki ég. Ég verð búinn að
fá mér nýjan bíl þá, svo það
má sjá, aö ég er ekki í neinum
slíkum hugleiðingum."
Sveinn Jónsson, Hæöargarði
26, 76 ára bílstjóri hjá BSR:
„Nei, ég hef ekki hugsað mér
þaö. Viljandi hætti ég ekki,
enda erum viö ekkert verri þess
ir eldri til þess að aka eftir
svona breytingu. Við sem alltaf
erum meö bíl í höndunum."
Ólafur Einarsson, Laugarnes-
vegi 58, 81 árs bílstjóri hjá
Hreyfli: „Ekki hef ég hugsað
mér það. Ætli maður reyni ekki
að gutla þetta eitthvað áfram.“