Vísir - 07.05.1968, Blaðsíða 12
“'7 rv •~T 'V
12
V í SIR . Þriöjudagur 7. maí 1968.
CAROL GAINE:
Amf
□
lú T (1Q ir ~~p
111 1 a) lii
r íú T1 w 5
11. lil ij J3
8
ég veit hvenær ég get komizt til
London næst.
— Já, gerið þér það, sagði ég og
munaði minnstu að ég bætti við:
— Nei, gerið þér það ekki. Ég er
að gabba yöur. Ég get ekki farið
Ut með yður. >ér eruð svoddan
grænjaxl.
Á MIÐVIKUDAGINN!
— Barnarán? spurði Peter, þegar
Grant var beðinn um aö ná í glös
handa einhverjum, skömmu síðar,
og varð að skilja mig eina eftir í
sófanum. — Þér gangið alveg fram
af mér!
Ég fann roðann færast í kinnam-
ar og var komin á fremsta hlunn
með að segja, að hann gengi alveg
fram af mér.
— Er hann kominn yfir fermingu?
spurði hann.
— Talið þér ekki eins og bjáni!
sagöi ég stutt. Ég vissi að ég hag-
aði mér bamalega og að hann gat
ómögulega vitað að ég hafði séð
hann meö Marciu.
— Hef ég gert eitthvað á hlut
yðar?
— Nei-nei.
— Látið þér ekki svona. Þér er-
uð æst út af einhverju. Okkur kom
svo vel saman fyrr í kvöld.
Ég yppti öxlum og ætlaði að snúa
ÝMISLEGT ÝMISLEGT
GISLI
JÓNSSON
Akurgerði 31
Simi 3519ö
Fjölhæf jarðvinnsluvél. annast
lóðastandsetningar. gret hús
grunna holræsi o. fl.
BBÉÆl
SS« 304 35
Tökum aö ókkur hvers konai múrbroi
og sprengivinnu : húsgrunnum og ræs
um. Leigjum úr loftpressur og víbra
sleða Vélaleiga Steindórs Sighvats
,.onar Alfabrekku við Suðurlands
braut, sími 30435.
RAFVELAVERKSTÆÐI
S. MELSTEÐS
SKEIFAN 5 SÍMi 82120
&AENSÁtVCOUR
■vnTii ri 11 mii i rnmTTi rn rm 111.. i
TÖKUM AÐ OKKUR:
■ MÓTORMÆLINGAR.
■ MÓTORSTILUNGAR.
■ VIDGEROIR A* RAF-
KERFI, DÝNAMÓUM,
OG STÖRTURUM.
■ RAKAÞÉTTUM RAF-
KERFID
VARAHLUTIR Á STAONUM
TL'KUR ALLS KONÁf? KLÆÐNINGAR
FL.J0T OG VÖNDUÐ VINNA
OrvaL AF ÁKLÆÐÚM
LAUGAVEG 62 - SlMI 10825 HEIMASlMI B3634
BOLSTRUN
mér frá honum, en þá var farið að
spila danslag, og áður en ég vissi
hafði hann tekið utan um mig.
— Ég er þreytt, sagöj, ég. ■— Mig
langar ekki að dansa núna.
— Ég sá ekki betur en að þér
heföuð gaman af að dansa núna
rétt áðan.
Ég reyndi ekki fleiri mótbárur.
Peter dansaði ágætlega og ég fylgdi
hreyfingum hans vel.
— Eigum við aö borða miðdeg-
isverð saman einhvern tfma I næstu
viku? spurði hann eftir nokkra
stund.
Ég fann að ég varð veikari fyrir.
Hvernig svo sem vináttu hans og
Marciu var varið, gat hún ekki ver-
ið alvarleg eða haft áhrif á kunn-
ingsskap okkar á nokkum hátt.
Marcia var f farsælu hjónabandi.
Þaö hafði ég ekki efazt um éitt
augnablik, síðan hún tók á móti
mér á stöðinni. Ég sagði við sjálfa
mig: — Hún er þannig gerð, að hún
heillar aila karlmenn, þeir flögra
kringum hana eins og fluga kring-
ijós. Kannski hafði hún lifað stutt
ástarævintýri meö Peter áöur en
hún giftist, og kannski höfðu þau
bara verið að rifja upp gamlár end-
urminningar er þau sátu saman í
stofu föður hennar í kvöld.
Ég reyndi að þagga niður í mér
afbrýðina. Mér hafði liðið svo vel
í kvöld — þangað til ég sá þau
þama inni. Og ef ég gæti gíeymt
þessu litla atviki, gæti mér aftur i
liðið vei. •
— Viltu þaö, Joyce? sagði Peter
lágri röddu við eyraö á mér. Ég
leit upp og augnaráð hans var þetta
sama, sem ég hafði orðið svo hrif-
in af, fyrsta skiptið sem ég sá hann.
Ég brosti. — Já, ég held það.
Hann þrýsti mér fastar að sér.
— Ég skal hringja til þín á miðviku-
dagsmorguninn.
— Þá verður þú að hringja
snemma. Ég fer að heiman klukkan
hálfníu.
— Ég skal hringja klukkan átt'a
— réttstundis.
Mér til sárrar gremju kom Grant
Dickson áftur og greip fram í dans-
inn okkar, og ég var viss um aö
Peter gramdist þaö líka. En það
var algeng venja að skipta um herra
í miöjum dansi, svo að ég gat ekk-
ert við þessu sagt. Peter fór og
tók Marciu frá þeim sem hún var
að dansa við. Ég óskaði að hann
hefði valiö einhverja af hinum stúlk
unum.
Samkvæminu var að ljúka og
Grant sagðist því miöur verða að
fara. — En við hittumst I London,
Joyce?
— Já, áreiðanlega.
Nokkrum mínútum síðar kom
Peter til mín.
— Nú verð ég að fara. Ég er bú-
inn að kveðja Marciu og foreldra
hennar. Ætlarðu að fylgja mér út?
Ég gekk með honum út að bíln-
úm, sem stóð neðarlega á stígnum.
Peter horfði á mig í tunglsljósinu.
— Rautt hár og græn augu, muldr
aði hann. — Það er uppáhaldið
mitt.
Ég hló lágt og þótti vænt um að
hárið á mér fór vel og að þaö var
eðlilega liðað. En ég vissi ofurvel
sjálf, að munnurinn á mér var í
stærra lagi, þó að tennumar væru
jafnar og hvítar. Og oft hafði mér
dottið í hug, að nabbanefiö á mér
þyrfti lagfæringar við.
Peter horfði í augun á mér og
hélt áfram: — Augun í þér skipta
litum. Vissirðu það?
Ég brosti og mundi að John hafði
sagt þetta líka.
— Stundum eru þau dökkgræn,
sagöi hann. — Þau eru það í kvöld.
Það þykir mér fallegt.
John hafði líka fundizt þaö fall-
egt. Og ég vissi upp á hár, hvenær
augun í mér voru dökkgræn — og
hvers vegna. Þau voru það þegar
mér leið sérstaklega vel.
Allt í einu kyssti hann mig. Ég
andæfði fyrst í stað, en lét svo
undan og fannst nautn að því að
finna hann halda utan um mig.
Þegar ég sleit mig af honum varð
ég að spyrja sjálfa mig, hvað gengi
eiginlega aö mér.
— Á miðvikudag, sagöi Peter og
strauk mér um kinnina.
— Á miðvikudaginn, endurtók ég
en hugsaði með mér um leið, að
stundum gæti manni fundizt tveir
dagar vera heil eilífð.
Ég gekk hægt inn í húsið og
þrýsti höndunum að brennheitum
kinnunum og vonaði aö það sæist
ekki á mér að ég væri nýkysst.
Marcia kom inn í herbergið til
rri'in til þess aö bjóða góða nótt.
— Var þetta ekki skemmtilegt?
sagði hún um leið og hún séttist
við snyrtiborðiö og fór að laga á
sér hárið.
— Ljómandi.
— Peter er viðkunnanlegur,
fihnst þér það ekki?
Augu okkar mættust i speglin-
um.
— Jú,- það er hann, sagði ég. —
Þú þekktir hann áður en þú kynnt-
ist.Ca'rlos?
—■ Já, löngu áður. Ég hef sagt
þéij það. Þá vorum við unglingar og
við yorum trúlofuð.
Eg andaði djúpt. Hvað eru þau
núiia? hugsað.i ég inéð mér. Skyn-
semirí, sagði mér að þau væru aö-
eins gþðir vinir. En um leið sá ég
þaú f anda í skrifstofunni — með
kinn við kinn.
— Það var kannski gott að Carlos
var ekki, héma í kvöld, glopraðist
út úr mér. — Hann heföi getaö orð-
ið afbrýðisamur. Hún hló. — Hrædd
ur um mig fyrir Peter? Skelfingar
vitleysa.
Ég hikaði augnablik_ Svo sagði i
ég: — Ef hann hefði séð ykkur
sitja saman í skrifstofunni hans föö
ur þíns, eins og ég sá ...
Hún vatt sér til á stólnum og
horfði á mig stórum augum.
— Sást þú okkur þar inni?
— Já. Ég ætlaði að sírna til Mary.
Ég komst ekki lengra en 1 dymar.
Þið voruð svo hugfangin hvort af
öðru, að ég tJímdi ekki að ónáða
ykkur.
Marcia hnyklaði brúnirnar. Mér
sýndist í svip að hún ætlaði
að segja mér, hvað þau hefðu verið
aö tala saman um, en það var aUð-
séö, aö hún hætti við það. í stað-
inn sagði hún, dálítið ergileg: — Þú
hefðir gjarnan mátt láta vita af þér.
BÍLASALINN
VIÐ VITATO RG
SÍMAR: 12500 & 12600
Aidrei meira urval af nýjum og
notuðum bílum.
Rambler '56 fæst án útb. og fleiri
tegundir, sem þarfnast viðgerðar.
Fiat ’65, '66 ,67 og eldri. — Sport-
bílar. — Skoda sport, Skoda Fel-
icia, Triumph, Austin Hily Mark 1.
Morris 1000. Austin mini station.
Allar tegundir af jeppum og öðr-
um gerðum með framhióladrifi. —
Rússajeppi með diesel-vél og húsi
og meö blæjum. Bronco, ekinn
6.500 km. Willys '42 til ’66. —
Nýir op gamlir vörubilar. Toyota
Crown ’66, Consul 315 ’62, Cortina
'65—66 De Luxe, Mercedes Benz
’53—’66. Bílaskipti við allra hæfi.
Taunus 12M og 17M '54—'67. —
Sendiferðabílar með sætum og
stöðvarleyfi. — Vantar bíla fyrir
skuldabréf.
• Akið á eigin bíl í sumarleyfið.
OpiB frá 10—10 alla vlrka daga.
Laugardaga 10—6 sunnud. 1—6.
Nýjo Bílcsþjónustan
Lækkið viðgerðarkostnaðinn
með þvl að vinna sjálfir að
viðgerð bifreiðarinnar. — Fag-
menn veita aðstoð ef óskað er.
Rúmgóð húsakynni aðstaða
tll bvotta.
Nýjn Bílnþjónustnn
Hafnarbraut 17.
sfmi 42530
opið frá kl. 9-23.
RAUOARÁRSTÍG 31 Sfflfll 23Q22
USTEM, CtóU, TC CAH! QLB3*
LA LOWES TME APLtWAN. AND
«UST HflSE HSPPQ4 HWVl F TCU
SSifl? SPCS TD KffiP WATCH ON
«32. WHEN SHE fiŒS TO Hl»_
VH& MLL KNCEM!
_AN> rr NLL WT9E IWC TME FLAJUN6 900
BE EASY TD WLL 900N LOOK IWWN UFCN
BE RK> QF I A ICW QLEEN OF OPAR_
ALL OF L -------
Cadj, við höfum Ieitað timunum sam-
an, og finnum þau hvergi — innan Opar
eða utan.
„Þá eru þau ennþá hér innan veggja
Opar — en hvar?“
„Hlustaðu á Oah Cadj. La drottning
elskar apamanninn og hún hlýtur að
hr.fa falið hann. Ef þú lætur njósna um
hana, þegar hún fer til hans, munum
við finna þau
— og þá verður auðvelt að losna við
þau öll“.
„Vitra Oah. Hfnn brennandi guð mun
fljótlega líta niður til hinnar nýju drottn-
ingar Opars — þín Oah.“
ERCO
BELTIog
BELTAHLUTIR
áBELTAVÉLAR
BERCO
Keðjur Spyrnur Framhjól
Botnrúllur Topprúllur
Drifhjól Boltar og Rær
jafnan fyrirliggjandi
BERCO
er úrvals gæcavara
á hagstæSu verði
EINKAUMBOÐ
ALMENNA
VERZLUNARFÉLAGIÐ"
SKIPHOLT 15 — SÍMI 10199
mmm