Vísir - 08.05.1968, Blaðsíða 10
VISIR
M50
Jyrir
árum
Bæjarfréttir. — Athygli lögregl-
unnar má vekja á því, að mann-
þyrping mikil safnast oft og ein-
att saman á gangstéttinni fyrir
framan „Hótel ísland“ einkum á
kvöldin, og standa menn þar ó-
bifanlegir og glápa hver á annan,
upp í loftið eða á bifreiðarnar,
sem standa þar á götunni, en
þeir sem leið eiga þarna um geta
ekki þverfótað fyrir þessum lýð.
Lögreglan á að gæta þess að
slíkt eigi sér ekki stað, enda veld
ur það talsverðum óþægindum.
ísir 8. maí 1918.
kaupmanimasamtök
ÍSLANDS
V í SIR . Miðvikudagur 8. maí 1968.
Fyrirlestur og myndusýning
Norski verzlunarráðunauturinn H. B. Nilsen heldur
erindi og sýnir myndir frá rekstri smásöluverzlana
á Norðurlöndum í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld
kl. 19:00.
Framreiddur verður léttur kvöldverður.
Fyrirlesturinn er fyrir kaupmenn úr öllum grein-
um smásölunnar.
Æskilegt er að láta vita um þátttöku til skrif-
stofu Kaupmannasamtakanna í síma 19390 og 15841.
Framkvæmdastjórn K.í.
8ILASK0SUNIN
I DAG ER SKOÐAÐ:
R-3301 — R-3450
Heimsmet i köfun (án súreín
geymis) á bandarískur rafvirk
Robert Foster, 32 ára, en hs-r
kafaöi í 13 mínútur og 42,5 sek-
úndur. Þessi atburður átti sé>
stað 15. marz 1959 í sundlaug •
Californíu og var Robert allan,
tímann á meira en 10 feta dýpi.
Ökumenn þeyttu homin óspart á gatnamótum Miklubrautar og Lönguhlíðar í morgun rétt um kl. 9, þegar þeir síðustu voru að
verða of seinir í vinnuna. Þama myndaðist um tíma nokkurt öng þveiti, vegna þess að verið er að breyta umferðarljósunum fyrir
H-dag, en úr þessu greiddist þó, þegar lögregluþjónn kom á staðinn og leiðbeindi vegfarendum.
Fyrir aðeins kl*. 68.500.OO getið þér fengiö staðlaöa
eldhúsinnréttingu i 2 — 4 herbergja íbúðir, meö öllu tll-
heyrandi — passa i flestar biokkaribúðir,
Innifaliö i veröinu er:
0 eldhúsinnrétting, klædd vönduöu plasti, efri
og neöri skápar, ásamt kústaskáp (vinnupláss tæpir 4 m).
# ísskápur, hæfilega stór fyrir 5 manna fjölskyldu I
kaupstaö.
0uppþvottavél, (Sink-a-matic) ásamt eldhúsvaski.
Uppþvottavélin þvær upp fyrir 5 manns og aö auki má nota
hana til minniháttar tauþvotta. (Nýtt einkaleyfi).
® eldarvélasamstæða meÖ 3 hellum, tvefm
ofnum, grillofni og steikar- og bökunarofni. Timer og önnur
nýtízkú hjálpartaeki.
^ lofthreinsari, sem meö nýrri aöferö heldur eld-
húsinu lausu viö reyk og lykt. Enginn kanall — Vinnuljós.
Allt þetta fyrir kr. 68.500.oo. (söluskattur
innifalinn) Ef stööluö innrétting hentar yöuf ékki gerum viö
yöur fast verötilboð á hlutfallslegu veröi. Gerum ókeypis
verötilboð f éldhúsinnréttingar f ný og gömul hús.
Höfum einnig fataskápa. staðlaða.
- HAGKVÆMIR GREIÐSLUSKlLMÁLAR -
KIRKJUHVOLI
REYKJAVÍK
S ( M I 2 17 16
VEÐRI8
> DAG
Hægviðri. smá-
skúrir. Hiti 2-4
stig.
BELLA
Nei, ég nenni ekki að fara að
skoða kjóla — ég er að hugsa um
að fara aö skoða stsákana í kjör-
búðinnl.
)
Eltingorleikur —
i. siðu.
rakst hann þar á mann, sem
þegar lagði á flótta út.
Hinn vildi ekki láta mann-
inn sleppa við svo búið og bað
konu sína að hringja í lögregl-
una, en hóf sjálfur eftirför á
bíl sínum. Missti hann aldrei
sjónar af flóttamanninum og
barst leikurinn um Landakots-
hæðina og kringum kirkjugarð-
inn.
Á sama tíma hafði lögreglan
sent fjóra bíla af stað til að-
'stoðar manninum, en þeir vissu
aðeins i hvaöa átt maðurinn
hafði haldið í fvrstu og fórust
þeir því á mis, og þjófurinn
sloppinn, þegar þeir hittu hús-
ráðandann.
Hafði manninum tekizt að
stöðva þjófinn, sem svo reyndist
vera, á Ásvallagötunni, en þeg-
ar hann ávarpaði hann og sagði
honum að bíða lögreglunnar, gaf
flóttamaðurinn honum kjafts-
högg og áður en húsráðandi
hafði áttað sig, var hinn horfinn
inn í húsagarð og allur á bak
og burt.
Hins vegar vildi svo til, aö
maður einn kom út í dyr á
húsi sínu við Ásvallagötu og sá
viðureignina. Gaf hann sig fram
við lögregluna og sagðist kann-
ast við flóttamanninn. Hefði f
verið gestur í nótt hjá leigjanda
í húsi sínu.
Kom þá í ljós viö rannsókn,
að leigjandinn, sem var útlend-
ingur, hafði verið á einhverju
næturrölti um nóttina og fbúar
hússins höfðu séö hann koma
með kassa inn eldsnemma í
morgun.
Þegar lögreglan kvaddi dyra
hjá útlendingnum, var stödd
hjá honum stúlka og brugðust i
þau bæði illa við heimsókn lög
reglunnar og þeim tilmælum
hennar, að koma niður á lög-
reglustöð til frekari yfirheyrzlu.
Sló í brýnu og uröu lögreglu-
þjónarnir að leggja mannin í
járn.
Þegar niður á lögreglustöö
kom, skýrðust málin og útlend
ingurinn viðurkenndi aö hafa
brotizt inn ásamt kunningja sín
um í hús þess, sem stóð mann-
inn aö verki í kjallaranum.
Höfðu þeir stolið kassa af mat
vælum og fundust matvælin und
ir rúmi í herbergi útlendingsins.
Eitthvaö hafði fólkið verið við
skál um nóttina.
Fasteignir —
16- síðu.
megi láta ófreistaö til að gera þess-
ar upplýsingar aðgengilegar og
varðveita þær fyrir séinm tíma og
jafnframt megi ekki láta verkið
niður falla — heldur eigi aö koma
á fót aiisherjarstofnun, er veröi
miðstöð upplýsinga um fasteignir
í iandinu."
Söngflokkur —
m-> i sfðu.
The New Christy Minstrels er
nú að ljúka fimm vikna hljóm-
listarferð um Evrópu, og hefur
flokkurinn hlotið mjög góða
dóma. Á þeim 8 árum, sem
flokkurinn hefur sungið saman
hafa komið út með honum ekki
færri en 151 stór hljómplata.
— Nú, er þau koma til Banda-
ríkjanna bíður þeirra 12 vikna
samningur I Las Vegas og nem-
ur samningsupphæðin 10 millj.
ísl. króna.
Forsala aðgöngumiða er f
Bókabúð KRON og á skrifstofu
Sjálfsbjargar. )
SKIPAFRÉTTIR
Ms. ESJA
fer austur um land til Vopna-
fjarðar 11. þ. m. Vörumóttaka í
dag og á morgun til Djúpavogs,
Breiðdalsvíkur, Stöðvarfjaröar, Fá-
skrúðsfjarðar, Reyöarfjarðar, Eski-
fjarðar, Norðfjarðar, Seyðisfjarðar,
Borgarfjarðar og Vopnafjarðar.
Ms. HERJÓLFUR
fer til Vestmannaeyja og Horna-
fjarðar á morgun. Vörumóttaka til
Hornafjarðar í dag.
Röskan afgreiðslumann
vanan, vantar okkur nú þegar.
UlUaUcUdj