Vísir - 09.05.1968, Blaðsíða 7
t
VÍSIR . Fimmtudagur 9. maí 1998.
1 morgun útlönd í morgun útlönd í morgun °útlönd 1 morgun c - ■ , 1 ■ ■■■■- ' -■•V-.V.* "útlönd-
Flokksleiðtogar Póllands,
Þýzkolands og Búlgaríu
Rætt um hættuna, sem sócialismanum
stafar af auknu lýðræði / Tékkóslóvakiu
Ungverjalands, Austur-
ú skyndifundi ■ Moskvu
Fréttir bárust um það i gær-
kvöldi, að höfuðleiðtogar fjög-
urra kommúnistaríkja i Austur-
Evrópu væru komnir til Moskvu
til viðræðna við æðstu leiðtoga
Sovétríkjanna. Hér er um að
ræða höfuðleiðtoga frá Póllandi,
Búlgaríu, Ungverjalandi og
Austur-Þýzkalandi.
Síðar fréttist, að þeir hefðu
rætt við Kosygin forsætisráð-
herra og Brezhnev, flokksieiðtog
ann sovézka, að viðstöddum
Podgornij forseta Sovétríkjanna.
Ekkert hefur verið tilkynnt um
þetta nánara opinberlega, en
menn ætla, að viðræðuefnið sé
sú hætta, að reynt verði af and-
stæðingum sósíalismans, að nota
sér gegn honum, að frjálslyndari
öfl marka nú stefnuna i Tékkó-
slóvakíu. Minnt er á, að Dubcek,
nýi flokksleiðtoginn í Tékkó-
slóvakíu, sagði í Prag eftir
Moskvuför fyrir skemmstu, að
sovétleiðtogar hefðu áhyggjur í
þessu efni.
Komin er til Prag sendinefnd
við forustu Konievs hershöfð-
ingja til þess að vera við há-
tíöahöld i tilefni þess, að 23 ár
eru liðin frá því Tékkóslóvakía
var leyst undan oki nazista.
I framhaldsfrétt frá Budapest
og Moskvu segir, að alger leynd
sé í Moskvu um fund kommún-
istaleiðtoga þar.
Ekkert hefir verið sagt þar um
fundinn, og það kom mjög ó-
vænt að hann var hal<j>nn- ‘
Hin opinbera ungverska frétta
stofa birti frétt síðastliðna nótt
sem gæti bent til, að jiessum við
ræðum væri þegar Iokið.
Sagt var aðeins, að leiðtogarn-
ir hefðu skipzt á skoðunúm
varðandi á^and og, horfur á al-
þjóðaveltvangi og raunveruleg
vandamál innan. verkalýðs- og
kommúnistahreýfingárinnar í
heiminum.
Mikið mannfall í liði beggja í
Vietnam það af er mánuðinum
Barizt var áfram í gær í
Saigon. Milli stjómarhersveitanna,
sem bandarískar flugvélar og
skriðdrekasveitir veita aðstoð, og
liðs kommúnlsta, í kínverska hverf-
’nu, er „no man’s Iand“, þ.e. belti,
þar sem allt er í rúst, og var áköf
sprengju- og skothríð yfir þaö af
beggja hálfu. Mark stjómarher-
sveitanna er að hrekja lið andstæð-
inganna úr borginni.
1 gær var fjórði dagur hinnar
nýju sóknar Vietcong. Yfir svæði
því í Cholon, sem fyrr var nefnt,
blaktir fáni þQÍrra, og heppnaðist
stjómarhermönnum ekki að skjóta
hann niður. Talið er, að 400 manna
lið Vietcong og Norður-Vietnam
verjist þama.
1 framhaldsfrétt frá Saigon var
sagt: Við brú eigi langt frá blakti
upplitaður suður-vietnamskur fáni,
gulur og rauður, meöan stjómar-
hersveitir umkringdu hverfið, en
ibúamir streymdu út úr húsunum,
til þess aö slást í hóp 29.000 flótta-
manna, sem fyrir eru í borginni.
Samkvæmt bandarískum heimild-
um hafa 2000 Vietcongliðar falliö
og er mannfall liösins mest í Cho-
lón. Bandarískur talsmaöur sagöi.
að á Saigon-svæðinu væru í sum-
um herflokkum andstæðinganna 90
af hverjum 100 hermönnum úr
fastaher Norður- Vietnams.
Rauði krossinn vinnur aö því
að koma flóttafólki burt frá bar-
dagasvæðinu.
Kennsla hefir verið lögð niður
í 19 skólum, sem notaðir eru til
þess að taka við flóttafólki. Kirkjur
em einnig þess. ' »
Tala flóttamanna í sókninni fyrr
á þessu ári komst upp í um
100.000.
Útgöngubann er í sumum hverf-
um borgarinnar allan sólarhringinn.
í sumum borgarhlutum er mikil
umferð, en ef til vill barizt í næsta
borgarhluta. 1 sundhöll einni var
eins margt manna og vanalega.
Þökkum viðskiptin
\
Vegna umferðarbreytinga hættir sölutuminn
á Hlemmtorgi nú starfsemi sinni þar, en opn-
ar í breyttum húsakynnum í BreiðholtshVerfi
innan fárra daga. Viljum vér því þakka þeim
fjölmörgu, er við oss hafa skipt undanfarin
20 ár fyrir, viðskiptin.
Sölutuminn Hlemmtorgi.
Vöruverð hefir hækkað, t.d. á
hrísgrjónum um 25%,
1 fréttum frá Hanoi segir að 700
bandarfskir og suður-vietnasmkir
hermenn hafi fallið mánudag og
þriðjudag viö þjóðveg nr. 9, í Ua
Thien-héraði og skammt frá mynni
A-Shaudalsins, sem hluti Ho Chi
Minh leiðarinnar liggur um féllu
350 bandarískir hermenn og suður-
vietnamskir fyrstu 6 dagana í maí.
Seinustu fréttir.
Barizt er enn í Cholonhverfj, en
kyrrt annars staðar í Saigon að því
er fréttir þaðan hermdu í morgun,
en, í frýttaauka brezka útvarpsins.
eftir miðþáettt í- nótt var sagt'
aö Víetcpng hafi komið auknu liði
inn í borgina.
Kammúnistaflokkui
Bundaríkjunnu til-
kynnir þútttöku í
forsetu-
kosningunum
Kommúnistailokkur Bandaríkj-
anna ætlar að taka þátt í forseta-
kosningunum í haust — í fyrsta
$inn síðan 1940. Forseta- og vara-
forsetaefni vérða valin á flokks-
þingi 4. júlí.
. 1940,. tékk fórsetaefni flokksins
48.579. atkvæði, en mest fylgi sem
forsetaefni hlaut 'William Z. Fost-
er, ]93^,éðá 102 þúsund 992 atkvæði
af, 39. milljóoum, 751. þúsund ög
.438 at'kvæöurn, ’sérþ gréidd ivpru í
kosningunum.
Bandaríkin vilja fá fulla
greiðslu kosfnaðar við að
hafa 7. herinn 7 V-Þýzkalandi
Vestur-Þýzkaland og Bandarík-
in hafa nú byrjað samkomulagsum-
leitanir varðandi kostnaðinn af stað
setningu bandarískra hersveita í
V.Þ. Búizt er við\ að Bandaríkin
krefjist þéss, að kostnaðúrinn verði
að fullu greiddur.
Ekki eru taldar neinar líkur á,
að um það veröi samkomulag, og
segir í NTB-frétt um þetta, að það
mesta, sem Bandaríkin geti gert sér
vonir um sé endumýjun án veru-
legra breytinga á núgildandi sam-
komulagi, sem rennur út 30. júní.
Samkvæmt þeim kaupir vestur-
þýzki bankinn bandarísk rikis-
Skuldabréf til skamms tíma fyrir
500 miiljónir doliara.
Það er „Sjöundi Bandaríkjaher-
inn“, sem er f V.Þ. og í honum eru
nú 220.000 hermenn. Hann er mik-
ilvægasti landher Noröur-Atlants-
hafsbandalagsins, sem ræöur yfir
k j arnorkuvopnum.
Kostnaðurinn við aö hafa hann
i V.Þ. nemur 7—800 milljónum
dollara árlega. Bandaríkjamenn
munu fara fram á, að V.Þ. kaupi
hefgögn í Bandaríkjunum fyrir tvö
til þrjú hundruð milljónir dollara
næsta fjárhagsár, svo að þeir fái
allan kostnaö sinn greiddan, en
til þess segist vestur-þýzka stjórn-
in ekki hafa fjárhagslega getu.
■Á- Tunis hefir slitið stjórnmála-
sambandi við Sýrland vegna móðg-
andi ummæla Yousefs Zeayens
forsæti.sráðherra Sýrlands í ræðu
1. maí- en hann hélt því fram, að
Bourgiba, .Túnisforseti hafi svik-
ið málstað Araba í Palest-
ínu. — Aðalræðismanni Sýr-
iands, í Tunis hefir verið sagt að
verða á brott úr landinu með allt
sitt starfslið. í opinberri tilkynn-
ingu í Túnís var sagt að sendiráðs-
menn Sýrlandsstjórnar hefðu marg-
sinnis „brotið allar diplomatiskar
spilaréglur”.
★ í frétt frá Hominy Fálls i
Vestur-Virginiu segir, aö 15 þeirra
námumanna sem þar lokuðust inni
í kolanámu, væru enn á lífi, og
ekki í yfirvofandi hættu. Vatn
flæddi inn í námuna af slysni s.l.
mánudag og er talið, að þá hafi 10
námumenn drukknað. Göngin þar
sem.þpir voru eru nú full af vatni.
Nefnd.á mannréttindaráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna í Teheran hef-
ir ákært þjóöir í Norður-Atlants-
hafsbandalaginu fyrir vopnasölur
til? Portúgals, þar sem „vopnin séu
notiið tfi bess, að bæla niður unn-
.reistartilrauni.r. . í . Afríkulöndum
Portúgals“r Nefndin hvatti einnig
Afríkúlönd til þess aö neita Norður-
Atlantsbandaláginu um Ieyfi til
herstöðva. Þá er því haldiö fram,
aö vopnin sem Portúgal fái séu
send áfram til Rhodesiu, sern noti
þau gegn skæruliðum.
VbPálI páfi hefur tilkynnt, áð hann
tmli í þriggja dagá heimsókn til
; Bogota í Columbia, Suður-Ame-
ríku í ágúst í sumar.
ir Upplýsingamálaráðherra Frakk-
lands sagði á fundi meö frétta-
mönnum í gær, að ríkisstjórnin liti
ekki á viðræðurnar, sem hefiast
París á morgun, sem undirbúnings-
viðræður aöeins, heldur sem upp-
haf samkomulagsumleitána til þess
að koma á friöi i Vietnam. Ráð-
herrann, Georges Gorse, las upp
greinargerð um þetta frá Couvé du
Murville utanríkisráðherra.
ir Frétt frá Libreville í Gabon í gær
hermir, að Gabon hafi viðurkennt
Biafra sem sjálfstætt land. Aðeins
eitt land — Tanzania — hefur áður
viðurkennt sjálfstæði Biafra (áður
Austur-Nigeria).
VÖRUSKEMMAN
GRETTISGÖTU 2
*. ‘ú
Inniskór barna kr. 50
. Kveninniskór kr. 70
Kvenskór . kr. 70 og kr. 250
Kvennomsur jmargar gerðir) kr. 100
Gúmmfstígvél barna kr. 50
’Barnaskór kr. 50 og kr. 70
Gúmmískór kr. ■-50
Leikfimiskór kr. 20
Karlmannaskór kr. 280
HÓFUM TEKIÐ UPP
NÝJAR SENDINGAR AF
SKÓFATNAÐI
Hjá okkur fáið þér mikið
fyrir litla peninga.
KOMIÐ — SKOÐIÐ
SANNFÆRIZT
Nylonsokkar .....................
Hárlakk .........................
Barnasokkar .....................
Skólapennar .......................
Bítlavesti (ný gerö) .........
Barnakjólar ................ kr.
/
65
Röndóttir kvenkjólar
Margar stærðir af bai
Bonnie og Clyde kvenkjólar margar gerðir
kr. 25
...... kr. 40
kr. 10
kr. 25
kr. 150
og Iitir kr. 190
kr. 350
kr. 80- 140
kr. 350
VÖRUSKEMMAN Grettísgötu 2
í HÖSÍ ÁIÖÍJÖRNS ÖLAFSSONAR.
3.isa