Vísir - 05.06.1968, Side 1

Vísir - 05.06.1968, Side 1
VÍSIR 58. árg. - Mlðvikudagur 5. fúni 968. - 121. tbl. • Xtnndy skotinn 3 skotum í kosningnsföð sinni í Los Angeles í morgun kl. 7.20 uð ísl. tímu Árasarmadurinn hondtekinn — Fögnuður yfír sigri Kennedys í forkosningunum hreyttisf í þungun hurm Þessa símamynd fékk Vísir um hádegið. Kennedy liggur á sjúkra börum á gólfi Ambassadorshótelsins, þar sem skotárásin á hann var gerð. Kross og talnaband hefur verið lagt ofan á hinn særða mann. Laust fyrir klukkan eitt í nótt að staðartíma í Los Angeles (um kl. 7.20 að ísí. tíma) var Robert Kennedy öldungadeildarþingmanni sýnt banatilræði. Var skotið á hann þremur, í sumum fregnum segir fimm, skotum. Kennedy hneig þegar niður og blæddi mjög úr sárum hans, og var hann fluttur í skyndi í aðalsjúkrahúsið í Los Angeles. Síðari fregnir hermdu, að hann lægi milli heims og helju, og hefði kaþólskur prestur farið tíi hans í sjúkrahúsið og veitt honum hinztu smurn- ingu. Árásarmaðurinn var handtekinn, særður á fæti, af skoti lífvarðar Kennedys. Hér verða nú ra'ktar fréttir af þessum hrj'ggilega atburði í sömu röð og þær bárust. í NTB-frétt snemma í morgun segir, að Robert Kennedy hafi vef ið skotinn niður í aðalkosninga- stöð sinni í Los Angeles, laust eft- ir að ljóst var orðið, að hann hafði sigrað í forkosningu demo- krata í Kaliforníu, en áður voru kunn úrslit í forkosningu i Suður- Dakota, en þar sigraði hann með yfirburðum. Menn voru mjög fagnandi vfir þessum úrslitum og var Kennedy að tala við samstarfs- og stiiðnings menn sína, er skotið var á hann hverju skotinu á fætur öðru. Sjón arvottar töldu, að hann hefði feng ið skot í hnakkann og á mjöðm, og ef til vill hefði hann særzt af þremur skotum. Hann hneig nið- ur, en margir þeirra sem fagnað höfðu fóru að gráta, og stundu upp: Guð minn. Rohert Kennedy — stjórnmálamaðurinn — maðurinn .... • Robert Kennedy er 42ja ára, 'S" • --- Aðalstöðin er í gistihúsinu Hotel Ambassador. Þar voru þrír læknar og veittu þeir Kennedy fyrstu að- stoð og hjálpuðu til að bera hann út í sjúkrabílinn. Ethel, kona yfirleitt miög dáður af almenn- ingi, enda hefir hann marga sömu kosti til að bera og John F. Kenne- dy heitinn, forseti, bróðir hans, en með þeim voru miklir kærleikar, hans, sem er með barni kraup sem snöggvast niður hjá manni sínum, áður en hann var borinn burt. Hún var nábleik og allir andlitsdrættir sem stirðnaðir. „Það hlýtur að hafa verið vitskertur maður'1, var kall- að í þrönginni, er sjúkrabilnum var ekið af stað, og ,,það Iftur út fyrir að það sé lífsmark með hon- um.“ Sjónvarpsmaðurinn Ron Schul- mann segir, að Kennedy hafi ver- ið á leið fram f eldhús, er þetta gerðist. Maður nokkur steig fram og hóf skothríðina. Maðurinn var þegar handtekinn, særður af skoti lífvarðar Kennedys, sem fvrr var greint. Maðurinn er sagður hár maðu vexti, hvftur. Annar maður var handtekinn, að því er sagt var f fréttum nokkru síðar. Haft er eftir ýmsum sjónarvott- um, þeim, er næstir voru, er Kenne dy var borinn út i sjúkrabílinn, að hann hafi þá verið með nokkurri meðvitund, og tautað: „Er ekki allt f lagi?" Klukkan um hálftíu eftir íslenzk um tíma barst frétt um, að lækn- ar væru í þann veginn að hefjast I handa um skurðaðgerð á Kennedy. Var .búizt við, að hún mundi hefj- ast eftir 5 eða 10 mínútur og 10. sfða. og fyrir hann barðist Bobby með oddi og egg, og varð svo dóms- málaráðherra í stjórn bróður sins, og gegndi því embætti með sæmd og dugnaði. Eftir lát bróður síns héfir hann haft að marki að verða j forseti — og var alllengi búizt við, | að hann mundi draga að gefa kost 1 á sér sem forsetaefni þar til 1972, ! en svo fór sem kunnugt er, og ó- ' þarft er að rekja, að hann ákvað að gefa kost á sér sem forsetaefni, I og mun hafa ætlað að McCarthy | drægi sig þá í hlé, en það varð | eigi. | Enginn vafi er, að æskan dáir 1 Robert Kennedy, — hann er ung- i legur, þótt hann sé kominn yfir fertugt, glaðlyndur, áhugasamur um mál æskunnar, en Boddy á sína haturs- og öfundarmenn eigi síður en bróðir hans Kennedy forseti átti, meðal stjórnmálamanna og auð- manna, og þeirra sem ekki vilja unna blökkumönnum jafnréttis, en eins og við Kennedy forseta bundu blökkumenn meiri vonir við Bobby en aðra. Robert Kennedy er maður auð- ugur. Gamli Kennedy faðir hans, hafði hann sið að gefa börnunum eina milljón dollara, er þau urðu »-> 10. síðu. Sibustu fréttir: Aðgerðin heppn- aðist! í þann mund, sem blaðið var að fara í prentun, gaf einn læknanna, sem skára Kennedy upp, út þá yfir- lýsingu, að skurðaðgerðin hafi heppnazt mjög vel til þessa. Var vonast til að hann gæti náð sér að fullu. Andardráttur hans og hjart sláttur var mjög góður og öll ósjálfráð viðbrögð eðli- leg. Halda átti áfrarn aðgerð- um á Kennedy í a. m. k. tvær klukkustundir. ALLIR SLEGNIR ÓHUG Vísir leitaöi til nokkurra valinna manna til þess að heyra hvernig þeir höföu brugðizt við hinni hörmulegu fregn, að Robert Kennedy hafi verið skotinn. — Viðbrögðin voru öll á einn veg. Allir voru slegnir óhug vegna atburðarins, en einnig vegna þess að morðtilraunin virðist aðeins vera einn liður í þeirri upplausn og ofbeldisæði, sem nú hefur gripið heiminn. Karl Rolvaag, ambassador Bandaríkj- anna á íslandi. My god has it happened again, — guð minn góður hefur það gerzt aftur var það fyrsta, sem mér kom í hug, þegar ég heyrði hin hörmulegu tíðindi. Aðeins geðveikur maðtir gæti hafa gert þetta. Við erum harmi slegnir, þó við vonu mþað bezta. Þeir eru nú að skera Robert Kenne- dy upp. Hann var skotinn tveimur skotum. Annaö skotið situr í höfuðkúpunni bak við hægra eyr að og ætla þeir að reyna að ná því út. Ég held ekki að þetta hafi á- hrif á opinbert lif i Bandarikjun- um. Menn munu ekki hætta við að leita frama í stjómmálaheim- inum, þrátt fyrir endurtekin morð og morðtilraunir á stjórn- málamönnum. Ástæðuna fyrir þessum atburð um tel ég vera þá, að það hljóta alltaf að vera margir geðveikir menn i 200 milljóna þjóð. Ingólfur Jónsson, ráðherra. |i Mann hryllir við að það skuli geta átt sér stað, aftur og aft- ur. Það lítur út fyrir að skrfl- mennskan vaði þarna uppi, en uppreisnarandi og los virðist vera að hvolfast yfir heiminn. Þessi atburður getur hæglega haft alvarlegar afleiðingar fyrir 10. síða.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.