Vísir - 05.06.1968, Síða 3
VlSIR . Miðvikudagur 5. júní 1968,
3
MfýiíniOÚ
Traustir skulu hornsteinur.../7
Horasteínninn að mesta
fyrirtæki landsins, Búr-
fellsvirkjun, var lagður í
fyrradag, á annan í hvíta
sunnu. Þá brugðu marg-
ir af forráðamönnum
þjóðarinnar sér austur
að virkjuninni miklu til
að vera viðstaddir at-
höfnina. — Að athöfn-
inni lokinni var farið um
virkjunarsvæðið og
gafst fólki kostur á að
skoða þessar stórmerku
framkvæmdir og MYND
SJÁIN okkar í dag, sem
ísak Jónsson tók fyrir
okkur, er einmitt af ferð-
inni um virkjunarsvæð-
ið að Búrfelli.
í ávarpi forseta Islands við
þetta tækifæri sagði hann m.a.:
„Ein af þeim spurningum,
sem lögð var fyrir Job, sem
allir kannast við, þegar hann
var kveðinn í kútinn, er þessi:
„Hver lagði hornstein jarðar-
innar, þegar morgunstjörnurnar
sungu gleöisöng allar saman“?
Þar vottar þegar fyrir því sem
algengast er enn þann dag í
dag, að nota orðið „hornsteinn"
sem líkingu, tákn þess, sem
skal vera traust, varanlegt og
bjargfast. „Traustir skulu horn-
steinar hárra sala“, segir Jónas
um „Alþing hiö nýja“.“
Þeir geta lika gert aö gamni sínu ráðherrarnir. Magr.ús Jónsson, fjármálaráðherra, Eggert G.
Þorsteinsson og eiginkona Magnúsar.
GINNUNGAGAP gæti hún
ari skaut þarna upp í þungbúinn himininn neðan úr göngun-
um.
„Urð og grjót..ekkert nema urð og grjót á leið manna og kvenna, sem eru að skoða
vlrkjunarframkvæmdirnar. Framarlega á myndinni er menntamálaráðherra hjálpað yfir erf-
iðan hjalla. Lengst til vinstri og ofarlega virðist einn fara „hina leiðina“.
■
Forseti Islands ásamt Björgu, dóttur sinni og Páli Ásg.
Tryggvasyni, tengdasyni sínum.
Gestirnir horfa upp í gatið fyrir ofan.
OGREIDOIR l
REIKNINGAR *
LÁTIÐ OKXUR INNHEIMTA...
Það sparar yður t'ima og óbægindi
INNHEIMTUSKRIFSTOFAN
Tjarnargötu 10 —III hæð - Vonarstrætismegin — S'i mi 13175 (3linur)