Vísir - 05.06.1968, Side 5
V1SIR . Miðvikudagur 5. júní 1968.
5
Breytið gömlu
kjólunum í
tízkuflíkur
'C'ruö þér i hópi þeirra kvenna,
sem ekki segist geta saum-
að beinan saum á saumavél? Ef
svo er, þá höfum við nokkur
góð ráð til hjálpar, og að sjálf-
sögðu eru þau líka ágæt fyrir
þær sem eitthvað fást við að
sauma sjálfar.
1 fyrsta lagi ættuð þér að
velta fyrir yður, hvers vegna
þér getið ekki komið saman
flík svo að lag sé á. Eða kannski
hafið þér bara aldrei reynt það,
af þvi að þér eruð svo vissar
um að geta það ekki.
Fyrir húsme-ður er bráðnauð-
synlegt að geta saumað dáiitið
sjálfar, að ekki sé talað um ef
börn eru á heimilinu. Og meðan
tizkan er saumakonum svona
hliðholl, eins og f dag, þá er
eiginlega engri konu vorkunn
að sauma sér eina og eina flfk.
Víðu og beinu kjólamir eru eins
auðsaumaðir og hugsazt getur
og bezt er að sjálfsögðu að
kaupa sér gott, sígilt snið, sem
siðan má nota með breytingum
oftar en einu sinni.
Ef þér eruð undir þrftugu (og
jafnvel þótt þér séuð eldri!) eig-
þér sjálfsagt ekki færri en 10
kjóla inni í skáp eða uppi á háa
lofti, sem sjaldan eða aldrei
eru dregnir fram, vegna þess
að þeir eru gamaldags og
kannski ekki mátulegir lengur.
Ef ykkur langar til að spreyta
ykkur á að breyta einum göml-
um kjól, áður en farið er út í
að sauma heila flfk, þá er ráð
að drffa þessa gömlu kjóla fram
a gólf og athuga hvort ekki sé
hægt að breyta þeim fyrirhafn-
arlítið í tízkuflfk.
Aðalatriðið er að sjálfsögðu
að kjöllinn passi vel, og bezt
er að þurfa sem minnst að
breyta sniðinu sjálfu. Ef t. d.
þarf að víkka gamlan kjól, þarf
efnið að vera mjög gott og Iftið
slitið til að slikt borgi sig.
Þröngir kjólar af ýmsu tagi
voru mikið í tfzku hér fyrir
nokkrum árum og þá má sann-
arlega lifga uppá og gera sem
nýja. Breið belti, mislitar legg-
ingar og hnappar geta gert slík-
an kjól sem nýjan, að ekki sé
Tvilitur, blár og hvitur blúndu-
jakki yftr gömlum dökkbláum
kjól gerir kjóli.in eins og nýj
an.
Þessi kjóll var með löngum erm
um, beltislaus og töluvert vfð-
ari. Málmbelti, hnappur og mis-
lltur klútur gera kjólinn eins og
nýjan.
'
talað um ef þunnt efni er rykkt
við asdirnar eða brjóstin og látiö
ná niður á kjólfaldinn, Slíkur
kjóll þarf helzt að vera úr ein-
hverju fíngerðu efni og utanyfir
efnið gegnsætt. Ef kjóllinn er
einlitur er fallegt að hafa utan-
yfirefnið doppótt eða mynstrað,
en einlitt ef kjóllinn er mislitur.
Litlir jakkar af ýmsu tagi eru
lika tilvaldir yfir þrönga kjóla,
og eru langermuðu blúndujakk-
arnir hvað skemmtilegastir. Þá
er mjög auðvelt að sauma, og
má jafnvel sníða þá eftir gam-
alli blússu.
Ýmiss konar tvískiptir kjólar
hafa verið í tízku af og til und-
anfarin 10 ár og nú er einmitt
rétti tíminn til að draga þá
fram fyrir sumarið, stytta erm-
amar og stanga t.d. jakkanp
með grófu gami í fallegum lit.
Belti á mjöðmum eru mikið f
tízku, og svo má að sjálfsögðu
ekki gleyma að stytta pilsið
rækilega.
Að lokum örfá heilræði áður
en þið byrjið: Þegar pils eða kjól
ar úr ull er stytt, er bezt að
pressa faldinn fyrsta. Fylgið
mynstrinu f efninu eins vel og
þið getið, það hjálpar til að hafa
saumana beina. Ef efnið er ó-
mynstrað, dragið þá einn þráð
úr eftir endilöngu efninu, svo
að saumurinn verði beinn.
Skrifstofur vorar
eru lokaðar
eftir hádegi fimmtudaginn 6. júní 1968, vegna
jarðarfarar Sigurðai Kristjánssonar fyrrv.
forstjóra.
Samábyrgð íslands á fiskiskipum.
TIL LEIGU
Iðnaðarhúsnæði á jarðhæð, ca. 200 ferm., og
3ja herb. hæð á sama stað til leigu frá 15. júní.
Tilboð merkt „Leiguhúsnæði — 25“ sendist
augl.d. Vísis fyrir 8. júní.
FÉLAGSLÍF
Knattspymudeild Vikings.
Æfingatafla frá 20. maf til 30
sept. 1968:
1- fl. og meistaraflokkur:
Mánud. og þriðjud. kl. 7,30—9.
miðvikud. og fimmtud. 9—10,15.
2. flokkur:
Mánud. og briðjud. 9—10,15.
Miðvikud og fimmtud. 7.30—9.
3. flokkur:
Mánud. 9,—10,15. þriðiud. 7,30-
9 og fimmtud. 9 — 10,15.
4. flokkur:
Mánud og briðjud 7—8, Mið
vikud. og fimmtud. 8—9.
5. flokkur A, og B.:
Mánud og þriðiud 6—7. Mið-
vikud. op fimmtud 6.15—7,15.
5 flokkur C. og D.:
Þriðjud. og fimmtud. 5,30—6,30.
KARLAKÓR ÍSAFJARÐAR
SUNNUKÓRINN, ÍSAFIRÐI
SÖNGSKEMMTUN
í Gamla Bíói föstudaginn 7. júní kl. 21.
Söngstjóri: Ragnar H. Ragnar.
Undirleikari: Hjálmar Helgi Ragnarsson.
Einsöngvarar: Herdís Jónsdóttir, Margrét
Finnbjörnsdóttir, Gunnar Jónsson, Gunn-
laugur Jónsson og Guðmundur Guðjónsson
óperusöngvari.
Aðgöngumiðar hjá Lárusi Blöndal og hjá Ey-
mundsson.
Sunnukórinn Karlakór ísafjarðar.
IÐNAÐARHÚS
Til sölu er iðnaöarhúsnæöi á bezta staö í Múlahverfi,
600 ferm. á 3 hæðu. .. Verð og útborgun eftir sam-
komulagi. — Tilboð merkt „Iðnaðarhús — 99“ send-
ist augl.d. Vísis fyrir 9. júní.
BIFREIÐAEIGENDUR ATHUGIÐ!
Bónstöð, bifreiðaþjónusta
LAUGAVEGI118 (ekið inn frá Rauðarárstíg).
Veitir yður aðstöðu til að þvo og bóna bif-
reið yðar, einnig tökum við að okkur þvott,
hreinsun á sætum, toppum, hurðarspjöldum
(leðurlíki). Bónum og ryksugum.
SÍMI 21145.
Fyrir aöeíns kr. 68.500.oo getið þcr fengiö sfaölaöa
eldhúsinnréttingu í 2 — 4 herbergja ibúöir, meö öllu «11-
heyrandi — passa i ílcstar blokkaribúöir,
Innifaliö i veröinu er:
£ eldhúsinnrétting, klædd vönduöu plasti, efri
pg neöri skápar, ásamt kústaskáp (vínnupláss tæpir 4 m).
0 ísskápur, hæfiiega stór fyrir 5 manna fjölskyldu i
kaupstaö.
0uppþvottavél, (Sink-a-matic) ásamt eldhúsvaski.
Uppþvottavéiin þvær upp fyrir 5 manns og aö auki má nota
hana til minniháttar tauþvotta. (Nýtt einkaleyfi).
£ eldarvélasamstæða meö 3 hellum, tveim
ofnum, grillofni og steikar* og bökunarofni. Timer og önnur
nýtizku hjálpartæki.
£ lofthreinsari, sem með nýrri aðferð heldur eld-
húsinu lausu viö reyk og lykt. Enginn kanall — Yinnuljós.
Allt þetta fyrir kr. 68.500.oo. (söluskattur
innifalinn) Ef stööluö innrétting hentar yöur ékki gerum viö
yöuf fast verötilboö á hlutfallsiegu veröí. Gerum ókeypis
verötilboö í eldhúsifinréttingar f ný og gömul hús.
Hófum cinnig fataskápa, staðlaða.
- HAGKVÆMIR GREIÐSLUSKILMALAR -
K I R KJ U HVOLI
REYKJAVlK
S ( M I 2 17 18
Stjómin.