Vísir


Vísir - 05.06.1968, Qupperneq 9

Vísir - 05.06.1968, Qupperneq 9
V1SIR . Miðvikudagur 5. júnf 1968. 9 MENN STÓÐU Á KAFi í SJÓ VIÐ AUSTUR-EN VÉLIN GEKK SAMT T eggi maöur leið sína niöur að höfninni á Akranesi um það leyti sem fiskibátamir koma að landi, veitir maður því athygli að bílamir sem aka upp farmin- um staðnæmast fyrir framan lftinn skúr, sem stendur þar nokkuö ofan við hafnarbakkann. Þarna er afli bátanna veginn áður en hann er lagður inn til vinnslu hjá fiskverkunarstööv- unum. Þama getur aö líta háan, roskinn mann hélaðan um hár og hógværan á svip. Er þar Siguröur Vigfússon, sem nú um 14 ára skeið hefur haft það starf á hendi að fylgjast meö aflabrögöum þeirra, sem sækja til fiskimiða frá Akranesi. Þvi auk þess aö vera vigtarmaður er hann einnig trúnaðarmaöur Fiskifélags íslands þar á staðn- um. Mín meðfædda forvitni ræður þar um að ég smokra mér inn f skúrinn til Siguröar og inni eftir, hvort ekki sé hann fáanlegur til að rabba viö mig smástund. Hann tekur þessu ekki ólíklega, en segir þó að lítið tóm muni gefast meðan bátamir séu að afferma. — Ég sætti mig við þessi málalok, því ég þykist vita til hvers muni draga og nú sit ég hér í notalegri stofu á heimili Sig- urðar og konu hans Jónínu Eggertsdóttur og læt mér líöa vel. — T>ú ert Akurnesingur, Sig- urður? — Já, fæddur og uppalinn og hef verið hér allan minn aldur, sem nú er jafnhár og ár aldarinnar em mörg. Foreldr- ar mínir, Vigfús Magnússon og Gróa Sigurðardóttir vom bæði af borgfirzkum bændaættum, en byrjuðu þó sitt samlíf hér á Akranesi. Faöir minn stundaði sjó og reri flestar vertíöir frá Akranesi nema þá síðustu, þá réðist hann á „kútter" frá Reykjavík, er Svanur hét, á honum var yfir 20 manna áhöfn og margir hásetanna héðan. Þeir voru að byrja túr. Þetta var á vertíðinni 1912, komu sem snöggvast hér á höfnina, en héldu svo út og suöur fyrir land. Skömmu eftir að þeir voru famir gerði ofsa landsynn- ingsveður og hörkubyl. Þegar suöur á Eyrarbakkabugt kom, lenti Svanur í árekstri við franska skonnortu, með þeim afleiðingum að nokkur hluti skipshafnarinnar drukknaði. þar á meðal faðir minn. TVTú stóð móöir mín uppi með okkur þrjá drengi, þann elzta 14 ára. Hann fór í Hjaröar- holt til séra Ólafs, en við tveir þeir yngri ólumst upp heima. Móðir mín var dugleg, og við fórum snemma að vinna bræð- urnir, annað gilti ekki þá. Flest sumur fram að 16 ára aldri var ég í sveit, svo í skóla og vinnu eftir því sem til féll og við varð komið yfir veturinn. Oddur Sveinsson hafði stofnsett hér unglingaskóla, og þar naut ég kennslu tvo vetur eftir ferm- ingu. Réðist síðan til Haraldar Böðvarssonar, sem þá hafði verzlun og útgerð í Sandgerði, og vann hjá honum við verzlun og ýmis afgreiðslustörf i þrjú ár. — Fórst bú aldrei til sjós? — Jú, ég stundaði sjó sumar og vetur í fjögur ár og var þá alltaf með sama skipstjóra, Ár- manni Halldórssyni, héðan frá Akranesi. Frá 1923—1927 var ég verzlunarmaður hjá Guðjóni föður Elíasar, sem nú hefur verzlunina Staðarfell hér á Skaganum. Svo byrjaði ég að verzla sjálfur og hélt því óslitiö til 1953. w fvernig var að verzla á þeim árum? — Þaö mátti heita gott, en svo keypti ég ásamt öörum línuveiðarann Andey 1931. Þaö gekk sæmilega til að byrja með. Þá fengum við annan norskan, sem Olga hét, en við skiptum um nafn og kölluðum ,,Goluna“. En nú fór að síga á ógæfuhlið og 1936 rann allt út í sandinn og útgerðin gafst upp. Var þá ekkert eftir nema tapiö þegar upp var staðið. Verzluninni hélt ég þó áfram en varö nú að vera í leiguhúsnæði, sem ég þó mátti láta af hendi 1953 vegna þess að eigendumir tóku það til eigin afnota. Þá var ég beðinn að taka að mér vigtina, svo ég hugði þá ekki frekar til verzlun- arreksturs. — T>ú hefur sem sagt alizt upp með þróun Akraness úr smáfiskiþorpi f blómlegan bæ? — Já, það var hvorki mann- margt eða reisulegar byggingar, aðrar en þær sem heimiliö þá helgar sér. — Héðan hefur ávallt verið mikil útgerð? — Já, á meðan bátarnir voru smærri, frá 20—30 tonn eða um það leyti sem ég byrjaði starf mitt hér viö vigtina, voru héðan 25 bátar, af þeim flota átti Haraldur Böðvarsson & Co 12. Nú ganga héöan 15 bát- ar frá 60—350 tonn að stærð, átta þessara skipa tilheyra fyr- irtækinu Haraldur Böðvarsson & Co. Þar að auki gengur nú héðan einn togari. — HVenær *-e^ur aö hafi verið mestur uppgangs- tími á Akranesi. — Árin frá 1940 og fram til • VIÐTALl DAGSINS1 „... en sé þó hattinn hans fljóta rétt við borðið, sting þá hendinni niður í sjóinn og allt upp að öxl og næ þá f jakkalafið.“ er við Sigurð Vigfússon vigtmann, sem hefur séð Akranes vaxa i 4000 manna bæ þegar ég fyrst man þennan bæ. Lending var oft brimasöm og erfitt að koma að. Þó man ég ekki að slys hafi orðið hér bein- línis vegna landtöku, en meðan bátum var lagt hér á Lamb- húsasund, rak þá marga upp í hleinarnar, þar sem þeir lösk- uðust meira og minna? — Nú er Akranes orðinn bær með yfir 4000 íbúa, ekki eru þetta allt uppfæddir Akurnes- ingar? — Nei, hingað hefur flutzt margt fólk, sérstaklega af Vest- fjörðum og Ströndum. Fyrst komu menn til sjóróðra og svo ílengdust þeir og þá komu fjöl- skyldurnar. — Hvemig hafið þið svo van- izt þessum Vestfirðingum? — Yfirleitt er þetta harð- duglegt fólk. Margir hafá komið hingað með léttan mal, en vax- ið til bjargálna og bættrar aö- stöðu. Á Akranesi hefur alltaf fram á síöasta ár verið mikil og góð atvinna, má segja að hver hafi getað ráðið sínum vinnudegi þess vegna, að verk- efni hefur ekki skort. Þessi miklu verkefni sem fólki hefur boðizt eru ef til vill orsök þess, hve örðugt virðist að halda uppi félagsstarfsemi hér í bænum. Fólkið gefur sér fáar frfstundir 1960 má ýkjulaust kalla upp- gangs- og athafnatímabil f þess- um bæ. Fólkinu fjölgaði ört, fyr- irtæki risu upp og efldust. Þá stóðu í fararbroddi menn eins og Haraldur Böövarsson, Sig- urður Hallbjamarson og eig- endur Heimaskaga og Fiskivers. Fyrirtæki þessara manna stóðu föstum fótum í bænum. Sum þessara fyrirtækja eru nú ekki lengur til, önnur hafa dregið saman seglin og berjast við erf- iðar aðstæður. Langstærsta fyrirtækið hefur verið og er ennþá Haraldur Böðvarsson & Co. Þá hafa einnig eflzt hér til stórra athafna fyrirtæki eins og Þorgeir & Ellert sem nú hafa á annað hundrað manns f vinnu, og Þórður Óskarsson, geysi- duglegur maður, sem nú hefur nýlega komiö hingað með stærsta fiskibátinn og á annan fyrir. Það að Sementsverksmiðj- an var reist hér hefur verið mikill hagur fyrir kaupstaðinn. — Ertu þá ekki bjartsýnn á framtíðina? — Mér sýnist að horfur á vaxandi eða endurheimtri vel- megun útgerðar hér frá Akra- nesi séu ekki nægilega góðar, valda því minnkandi aflabrögð og nú síðast verðfall afurða. Þó er það álit mitt að víða muni örðugra upplit til framtíðarinnar en hér. — T''etur þú ekki sagt mér einhverjar smásögur frá volki sjóferða eða uppvaxt- aráranna, svona seni rúsínur í pylsuendann? — Ég hef nú sjaldan i svaðil- förum lent, sem í frásögur er færandi, enginn sem eitthvað fæst við sjó, kemst hjá því aö sjá brotna úr báru. — Eitt árið mitt til sjós, var ég á 10 tonna bát, sem annaðist fiskflutninga milli Akraness og Reykjavfkur. Einu sinni, þegar viö vorum að koma að sunnan með fulla lest af salti, kolapoka og gríðar- mikið eikarkjaltré á dekki, gerir á okkur norðan öskurok og gadd um það bil sem við erum komn- ir út fyrir eyjamar. Kemur þá allt í einu leki að bátnum. í bonum var aðeins handdæla með leðurhosu, en áður en langt leiö varð hún óvirk vegna saltsins sem f hana kom. Var það þvf okkar þrautaráð að ausa með fötu sjónum upp af svinghjólinu. Öllu sem á dekki var ruddum við fyrir borð. Þrátt fyrir það þótt heita mætti að við værum alltaf á kafi í sjó, gekk vélin. Þetta var 10 ha. Dan. Eftir 31/2 tfma komum við á Akranes, var þá ekki annað eftir af farm- inum en ofurlítil salthrúga f lestinni. T annað skipti lágum við f Reykjavfkurhöfn og höfðum dálitla „jullu“ fyrir léttbát. Um kvöldið þegar myrkt var orðið komu tveir menn fram á bryggj- una, biður annar þeirra okkur að skjóta sér um borð í skip, sem lá utarlega á ytri höfninni. Ekki voru menn nú almennt fúsir fararinnar og vísaði hver frá sér. Það varð svo úr að ég gaf kost á þessu, því maðurinn kvaöst mundi borga vel fyrir greiöann. Vel sá ég að eitthvað mundu þeir félagar hafa verið í gleðinni áður en þeir gengu til skips, en fékkst þó ekki um. Veður var mjög gott. Farþegi minn stígur út í „julluna" og við leggjum af stað. Hann situr aftur á en ég ræ. Allt í einu sé ég að hann tekur bakfall og steypist f sjóinn. Verður mér nú ekki um sel en sé þó hattinn hans fljóta rétt við borðið, sting þá hendinni niður f sjóinn og allt upp að öxl og næ þá f jakkalafið. Ekki veit ég hvað þvf olli að ég gat dröslað hon- um upp f „julluna", tel ég mig sjaldan hafa komizt í mannraun meiri, því maðurinn var bæöi hár og digur. Við skipshlið fannst mér liggja nærri að illa færi en svo var þó ekki, og þá var að bíða launanna .Eftir að hafa leitað í ölium vösum, gat hann reytt saman 13 krónur og það urðu verkaláun mfn. En þar sem hann stendur þama á dekkinu kollvotur og ekki beint kempulegur, verður honum að oröi: „Hvað ætli kærastan mín segi þegar hún sér mig svona verkaðan*1. Við þvf gat ég vitanlega engin svör gefið. — Jæja, Sigurður, og svo að- eins eitt aðlokum:Hvemigfinnst þér starfið sem þú nú gegnir? — Ég kann þvf vel. Það er Iffrænt og skemmtilegt, þvf marga bittir maður að máli. Þ. M. „Hvernig finnst yður fiskimjölskexið og pyls- urnarir' Við hittum nokkra Reykvík- inga inni f Le.ugardalshöll þar sem þeir voru að bragða á pyls- um og kexi, blönduöu fiskimjöli og spurðum þá hvernig þessi mat ur bragðaðist. Kristinn Valtýsson. „Mér finnst þessar pylsur bara alveg eins góðar og venjulegar pylsur, en ég er nú ekki farinn aö smakka á kexinu." Sigríöur Einarsdóttir: „Þær erú hreint ekki sem verstar þessar pylsur og líklega er þetta bara nokkuö sniöugt. Kexið er lfka á- gætt.“ Þóra Jakobsdóttir: „Mér finnst kexið reglulega bragðgott, og jafn ast á við bezta venjulegt kex. Pylsurnar finnst mér líka mjög góöar.“ Seima Marteinsdóttir: „Mér finnst kexið sérlega gott, en pylsúrnar ekki eins góðar, en þó ekki bragð vondar.“ Björn Ómar Jónsson: „Þetta er bý.sna bragðgott, en ég verð að segja að mér finnst nú kexiö béfra en pylsumar."

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.