Vísir


Vísir - 05.06.1968, Qupperneq 12

Vísir - 05.06.1968, Qupperneq 12
12 / V í S IR . Miðvikudagur 5. júní 1968. CAROL GAINE: □ 1,7 nÆ ít i -1>riJp/3 §?[ ==s! —•—Li AMilLf — Hvenær ætlarðu að segja honum það? — Ég — ég veit það ekki, sagði ég vandræðalega. — Það er bezt að þú gerir það sem fyrst, annars verð ég að gera það fyrir þig. — Ég skal segja honum það á morgun, Peter, flýtti ég mér að segja. — Ég — ég fer út með honum ein á morgun. — Gott! Ég vona að hann óski mér til hamingju þegar þið komið aftur. Klukkan var orðin nærri tvö þegar ég komst í bólið. Ég bylti mér sitt á hvað og hryllti við morgundeginum — hryllti við að segja John að ég væri trúlofuð Péter. Mig grunaði ekki þá, að ég mundi ekki fá tækifæri til að segja honum það. KEPPINAUTAR. Marcia kom inn til mín klukkan átta, og sagði að John væri kom- inn og biði eftir mér. — Þá verð ég að fara á fætur undir eins, sagði ég og geispaði. — Ég hefði gjarnan viljað sofa svo sem tvo tíma i viðbót. Ég er ekki nærri útsofin. Hún horfði á mig með vorkunn- arsvip. — Þetta verður alvarleg rimma hjá þér, við John. Þeir hitt- ust i ársalnum áðan, hann og Peter, og ég get ekki sagt að þeir hafi heilsazt hlýlega. Ég brosti. Marcia átti að verða sú fyrsta, sem ég segði trúiofun- arfréttina, undir eins og ég hefði sagt John hvemig komið væri fyr- ir mér. Ég fór fram úr og i morgunkjól- inn. — Hvað hyggstu fyrir i dag? spurði Marcia. — Ég veit það ekki ennþá. Ég býst við að ganga út með John fyrripartinn. svaraði ég og það fór hrollur um mig við tilhugsunina um það, sem ég varð að segja hon- um. Ég flýtti mér að klæða mig, og þegar ég kom niður á svalirnar sá ég báða unnustana mína við mat- borðið, hvom meö sitt blaðið. ; í Þeir létu blöðin síga þegar é? 1 settist við borðið og buðu hjartan lega „góðan daginn“. ÝMISL E G T ÝMISt-EGT SS-r-% 30435 I Pökum að oííkut r.vers konai múrbrot og sprengi'.mnu I húsgrunnum og ræs um. Leigjum út loftpressur og víbra sleða Vélaleiga Steindórs Sighvats ionai Alfabrekki. viö Suðurlands braut, simi 10435 GlSLl JÓNSSON Akurgerði 31 Simi 35199 Fjölhæf jarðvinnsluvél, annasi lóðastandsetningar. gref hús grunna, hoiræsi o. fl. Tt-KUR ALL.S KONAR KLÆÐNVNG^R^ ' f'LJÖT OG VÖNDUÐ VJNNA IJRVAL AF ÁKLÆÐUM tAUGAVEG 62 - SIMI 10825 HEIMASlMI 83634 BOLSTR U M — Svafstu vel í nótt? spuröi ég og sneri mér að John. — Nei. Rúmið var grjóthart. Peter leti á hann með vorkunn- arsvip. — Það var leitt að þér skylduð ekki geta fengið herbergi hérna. „Loretta“ er vígfræg fyrir góð rúm. Tohn urraði eitthvað og sneri sér að mér. — Þú lítur ljómandi vel út, góöa mín. — Þér urðuð á undan mér, flýtti Peter sér að segja. — Ég ætlaði að fara að segja nákvæmlega það sama. Hann þreifaði eftir hendinni á mér undir borðinu og hélt fast í hana þegar ég reyndi að kippa henni að mér. Það var ertni í rödd- inni þegar hann sagði: — Og aug- un í þér era svo fallega græn ... Hann leit á John. — Hafið þér tekið eftir þvl, að stundum verða augun í Joyce dökkgræn? John starði á hann. — Skelfing geturöu bullað, Peter, sagði ég í léttum tón, áður en John fékk tækifæri til að svara. Ef ég á að upplifa fleiri svona máltíðir verð ég að aumingja, hugs- aði ég með mér. Til þess að hefna mín á Peter var ég afar blíö við John. Ég sá að hann mýktist smám saman og mér fannst ég vera svik- ari, og að bráðum mundi hann verða bæði sár og reiður. Ég óskaði að ég gæti frestað nokkra daga að segja honum tíðindin, svo aö hann gæti þó átt nokkra skemmtilega daga fyrst. — Hvað eigum við að gera í dag, góða mín? spurði hann þegar við stóðum upp frá borðinu. Ég brosti. — Hvað sem þú vilt. — Getið þið ekki ekið ti! Monte- mar og farið í sjó? sagði Peter. — Þar kvað vera bezti baðstaðurinn á ailri ströndinni. Þið ættuð að 1 reyna hann. John sneri sér að mér. — Hvern ig lízt þér á það, Joyce? — Ég er til í þaö. — Ég verð að kaupa mér bað- skýlu fyrst. Ég gleymdi að taka hana með mér. — Ég get léð yöur baðskýlu, sagði Peter. — En hún er kannski of þröng ... John roðnaöi. — Ég kaupi mér skýiu sjálfur. Meðan ég var uppi í herberginu mínu til að tygja mig, var barið á dymar. Það var Peter. — Ég elska þig. Joyce, og það var rétt komið að mér að segja það viö borðið niðri, sagði hann og þrýsti mér að sér. — Þú sagðir meira en nóg við borðið, sagði ég stutt. — Þú hag- aðir þér óvenjulega illa. — Ég hefði getað hagaö mér miklu verr, svaraði hann kankvís- lega. — Þú mátt ekki gleyma, að við höfum gert samning, Peter! — Nei en þú verður að halda hann fyrir þitt leyti. Hvenær ætl- arðu aö segja þessum ástfangna íitukagga að ég sé maðurinn, sem þú ætlir að giftast? — Þegar við höfum farið í sjó. Og — hann er enginn fitukaggur. Peter brosti og studdi hendinni á öxlina á mér. — Það er krotað „broddborgari" á allan manninn. Allt f einu varð hann alvariegur: — Hvað hefurðu sagt John? Hann kom með svo einkennilegar spurn- ingar áðan. — Um hvað var það? — Ég veit ekki. Það var svo að heyra að hann væri á verði. Mér skilst að hann hafi grun um, að eitthvaö dularfullt sé að gerast hérna, og hann álítur, að því fyrr sem þú komist til Englands því betra. En það er ég, sem er lög- regluspæjari hér á staðnum — að því er þú segir — og ég vil engar slettirekur hafa. — Ég hélt að þú hefðir lokið spæjarastarfinu? — Það má kannski segja svo, en ... John þrammaði óþolinmóður fram og aftur niðri i garðinum, og ég sendi Peter koss á fingrinum um leið og ég hljóp út úr herberg- inu. — Skelfing varstu lengi, sagði John ólundarlega. — Hvemig komumst við til Montemar? — Það fer kannski almennings- vagn þangað. En við verðum að kaupa skýluna handa þér fyrst. Þegar við loksins komumst á bið- stöðina, sáum við að enginn vagn átti að fara fyrr en eftir klukku- tíma. — Við gætum kannski farið gangandi, sagði ég á báðum áttum. — Nei, við getum ekki gengið svo langt. Það er of heitt til þess! Meðan við tvístigum þarna og töluðum um hvað við ættum að gera, stanzaði leigubíll hjá okkur. — Bíl, ungfrú? spurði bilstjór- inn, gamall Spánverji með yfirskegg og gljáandi svört augu. — Þetta er betra, sagði John og opnaði bilinn fyrir mér. — Farðu inn! Ég sagði bilstjóranum að við fær- i baðstaðinn í Montemarvikinni. — Já, senorita. „ENSKU FERÐAFÓLKI RÆNT“. En þegar kom til Montemar ók bílstjórinn rakleitt framhjá bað- staðnum. Ég beygði mig fram og barði á rúðuna og ætlaði að leið- rétta bílstjórann. En hann lét sem hann heyrði mig ekki. Ég barði aftur. Hins vegar jók bílstjórinn hraðann, og þegar við vorum kom- in gegnum bæinn beygði hann upp á mjóan veg, sem lá upp til fj-alls. Ég leit undrandi á John. — Hvað er maðurinn að gera? — Hann ekur okkur til Monte- var, eöa hvaö það nú er, sem stað- urinn heitir — er það ekki? — Við erum komin framhjá Montemar! John leit forviða á mig. — Erum við það? Hvers vegna léztu hann ekki stanza? — Ég hef margreynt það. Hann vill ekki stanza. John beygði sig fram og barði bylmingshögg á rúðuna. En bílstjórinn jók bensíngjöfina og bíllinn brunaði áfram. — Maðurinn hlýtur að vera brjálaður, sagði John fokvondur. ^2^allett LEIKFIMI JAZZ-BALLETT Frá DANSKIN Búningar Sokkabuxur Netbuxur Dansbelti Margir litir Allar stærðlr Frá GAMBA Æfingaskór Svartir, bleikir, hvltir Táskór Ballet-töskur ^^allettlfúJin U E R Z l U N I N ^jexjnXtueluA '~T' BRÆÐRABOBGnRSTIG 22 SfMI 1-30-76 MlTUnl ilnl.n I' t n 11111111111111111111 nraibVMilHTJ Iíagstæðustu verð. Greiðsluskilmálar. Verndíð verkefm íslenzkra handa. FJÖLIÐJAN HF. Sími 21195 Ægisgötu 7 Rvk. „ivötudu, La. VI8 snúum til Opar til að 1áta sifta okkur.“ - „Þangað til - snertu ekki við mér.“ „Tarzan er þinn, Ijðshærð - hugsaðu vel um hann. La snýr til baka til hinnar hræðilegu Opar, þar sem enga ást er að fliltiw." „En meðan Tarzan lifir veit ég að til er sannleikur, styrkur og fegurð, og ein- hvern tíma fær La kannski að kynnast því aftur.“ ERCO BELTI og BELTAHLUTIR á BELTAVÉLAR BERCO Keðjur Spyrnur Framhjó! Botnrúllur Topprúllur Drifhjól Boltor og Rær jafnan fyrirliggjandi BERCO er úrvals gæðavara á hagstæðu verði EINKAUMBOÐ ALMENNA YERZLUNARFÉLAGIÐf SKIPHOLT 15 — SÍMI 10199

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.