Vísir - 05.06.1968, Qupperneq 13
VISIR . Miðvikudagur 5. Júni 1968.
13
Sýningar á vori -
6. siðu.
samhengi. Um málverkin og
teikningamar verður það tæp-
lega sagt
Nýiega er lokið sýningum
tveggja þekktra málara: Krist-
jáns Davíðssonar og Valtýs Pét-
urssonar. Báðir eru fljótvirkir
og afkastamifelir — og ósparir á
að kynna ateenningi verk sfn
um leið og þau fæðast. En með
þessum orðum eru lfka upptal-
in flest eða öll sameiginleg ein-
kenni þeirra. Sýning Valtýs var
miklu yfirgripsmeiri. Til hægðar
auka skulum við deila verkum
hans niður í þrjá flokka. Hinn
fyrsta nefnum við rómantfskar
abstaksjónir, annan landslags-
hngdettur og þriðja sölarlags-
myndir. Ég dreg sfzt dul á, að
það eru fyrstu flokkamir tveir,
sem vert er áð nefna. Hínn
þriðji stendur óralangt að baki
— getur varla taiizt annað og
meira en fyrstu skref nýrra land
vinninga eða framsóknar. En
nóg um það. Aftur á móti voru '
málverkin: Saga, Rökkur og
Rauðka nákvæmlega á réttum
stað í tfmarúminu.... enda
lýstu þau upp veggfletina til
beggja hliða. Þau minntu sterk-
lega á ólgublandna heiðrfkju
geómetrfunnar um 1950 og þátt
Valtýs f innrás hennar. Eða er
það kannski rauði liturinn f
myndunum, sem kallar á viö-
kvæmni, trega — þeytir okkur
aftur í tfmann til löngu liðinna
ára. Valtýr málaði bezt þá er
hann Iagði rautt ofan á rautt
eða svart við svart. Enn eru
slíkir litir bergmál af hjartablóði
hans. Mér hefur alla jafna fund-
izt Valtýr snerta okkur samferða
mennina dýpst þegar hann
treystir handleiðslu forsjónar-
innar í einu og öllu, gengur bein
ustu Ieið að formi og litum en
forðast ofhlæði, skraut og kokk-
fceila listarinnar eins og heitan
eíd.
Sýning Kristjáns er eftirminni
legust. Þó kom fátt í opna
skjöldu. Eða eins og félagi minn
sagði: Kristján var eins og ég
hélt. Hvað hélt málarinn, hvem-
ig voru myndir Kristjáns? Flest-
ar nýjar og ferskar eins og skiss
ur, gagnsæjar eins og hálfkarað
verk, feitar eða örgrannar. Á
mörgum dúkanna voru auðir
blettir, sannkallaður leikvöllur
hugarflugs okkar hinna, sem
drógumst með f leikinn. Aðeins
nokkur hluti tónanna hafði los-
að sig við glæsileik fyrstu snert-
ingar. Ef einhver hyggur að höf-
undur pistilsins hafi ætlað að
sýna fram á veikleika málarans
með sfðustu línunum hér á und-
an, þá fer hann sannarlega vill-
ur vegar. Ég held einmitt, að {
léttleiki rissins, skart túpu- eða
blandaðra lita, sé styrkur Krist-
jáns Davíðssonar. Fáir eða eng-
ir málarar hér á landi nálgast r
hann f slíkum brögðum, þvflík- |
um töfrum. Hitt er annað mál, i
að Kristián treystir um of á
náttúruaðferöina. Sakir þess
verða stundum til myndir, er
samsvara hvorki gáfum hans né
metnaði. Mér hefur orðið tíðrætt
um hinar fögru myndir Krist- :
jáns — litakrónur hans. En hann
slær einnig dýpri strengi. Venju-
lega kallar undirritaður slikar
myndir: rammar — en málverk
Kristjáns af þessari gerð eru
miklu fremur: beisk. Stærsta
verkið á sýningunni í Bogasaln-
um er ákaflega beiskt og óneit-
anlega gott dæfni um harmleiki
líðandi stundar. Það er alls ekki
f skjótri hreyfingu eins og svip-
mynd. Það er engan veginn létt
eða skrautlegt til jafns við opn-
ur ævintýrabókanna. En veröld
þessa dags hefur að einhverju
leyti tekið sér bólfestu í hjarta
þess. Getum við beðið um nokk-
uð annað.... og meira?
500.00 krónu mappa
Þelr áskrifendur Vísis, sem tiafa safnað „Vísi I vikuloldn" frá
upphafi f þar til gerfia .nöppu, eiga nú 116 blaðsfðna bðk, sém
er yfir 500 króna viröi.
Hvert viðbótareintak af „Vísi í vikulokin“ er 15 króna virði. — >
Gætið þess því afi missa ekki úr tölublað.
Aðeins áskrifendur Visis fá „Vísi f vikuloldn“. Ekki er hægt
að fá fylgiblaðið á annan hátt. Það er þvi mikils virði að vera
áskrifandi afi Vísi.
Gerizt áskrifendur strax, ef pér eruð það ekki þegarí
Dagblaðið
VÍSIR
HÚSMÆDUR!
TilboÖ óskast um sölu á eftirtöldu byggingar-
efni í Tollstöðvarbyggingu í Reykjavík:
1. Hert, litað gler í utanhúss veggþiljur.
2. Tvöfalí samlímt rúðugler.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri.
ÍBLJÐ TIL SÖLU
Snotur hriggja herb. kjallaraíbúö til sölu við Lindar-
götu. Sérlega hagstæðir skilmálar. Uppl. á matar-
tímum í síma 83177.
Aöalfundur
Tollvörugeymslunnar h.f. verður haldinn í
Sigtúni í dag, miðvikudag 5. júní 1968 og
hefst kl. 20.30.
Stjórain
Póst- og símamálastjórnin
óskar eftir tilboðum í byggingu stöðvarhúss
á Skálafelli í Mosfellssveit.
Útboðslýsingar verða afhentar í skrifstofn
Tæknideildar á 4. hæð Landssímahússins eftir
hádegi 5. júní 1968.
Sknfstofubúsnæbi
20—30 ferm húsnæði óskast sem allra fyrst.
Uppl. í síma 21365 milli kl. 14 og 18.
ATVINNA
MÁLNINGARVINNA
Get bætt við mig utan- og innanhússmálun — Halldör
Magnússon málarameistari, sfml 14064.
BÍLAMÁLUN SKAPTAHLÍÐ 42
Sprautum og hlettum bfla.
BARNAGÆZLA
Barngóð 13 ára stúlka óskar eftir bamagæzlu á góðu
heimili, ’ elzt f vesturborginni. Uppl. í síma 11976.
HÚSRÁÐENDUR ATHUGIÐ
Geri gamlar hurðir sem nýjar, skef upp og olfuber, hef
olíu og lökk á flestar harðviðartegundir. Sími 36857.