Vísir - 26.07.1968, Síða 1

Vísir - 26.07.1968, Síða 1
•* VISIR 58. árg. - Föstudagur 26. júlf 1968. - 164. tbl. Beitulaust um öll Suðurnes □ Beitulau^t er nú um öll Suðumes og víðar er mikill skortur á beitu fyrir Iínuveið- ar, er það eru einkum útilegu bátar, sem stundað hafa línu- ■ veiðar f sumar. □ Verður að sækja síld til beitu norður f land og munu birgðir takmarkaðar af beitu- sfid. Afli sunvianbáta hefur verið með eindæmum tregur síðustu dagana. Trollbátarnir frá Reykja vík hafa komið meö þetta 3—4 tonn skást eftir veiðiferð nú upp á síðkastið. Humarbátar dóla þetta 4—6 tíma með vörpuna á eftir sér og hafa hálfa körfu af humar upp úr krafsinu. — Skak aflinn hefur heldur tregðazt. en hann hefur verið jafn og góður i allt sumar. Mest af handfæra- aflanum er ufsi og hefur nú ver- ið bannað að verka hann í viss- ar pakkningar. Eins og kunnugt er hefur ver- ið fyllt upp í samninga við Rússa þetta ár, hvað snertir fisksölur og er þvi veitt upp á væntanleg- an markað. Tékkar sameinast um frelsisstefnuna — en kunna aó veróa kúgaóir □ Vestrænir fréttamenn segja Dubcek njóta alþjóðar-stuðnings við frjálsræðisstefnuna, en hann •• Olvun á Akureyri Mikil og almcnn ölvun var á Ak- ureyri í gær og nótt að því er Iög- reglan sagði Vfsi i morgun. Varð að taka marga úr umferð, aðkomu- menn og heimamenn. Mikiil ferða mannastraumur er á Akureyri um þessar mundir og veðurblíða þar verið með eindæmum. ’beið ósigur f gærkvöldi í flokks- ráðinu. □ Viðbrögð frelsisunnandi manna í Tékkóslóvakíu, er það fór sem eldur í sinu um Prag, að Dubcek hefði beðið ósigur við atkvæðagreiðslu f flokksráðinu um afstöðu til sovétstjómar, urðu þau, að ýmsir hópar komm- únista hófust þegar handa um nýja undirskriftasöfnun Dubcek til stuðnings, og skeytin berast að áfram úr öllum áttum hvað- anæva af landinu. með hvatning um um að hvika ekki. En um alla Tékkóslóvakíu og víðar er spurt: Tekst Rússum að knýja Tékka til undanhalds og fall- ast á að hafa sovézkt setulið í landinu? Fundur flokksstjórna Tékkósió- vakíu og Sovétríkjanna er ekki enn hafinn, svo að vitað sé. Líklega verður hann haldinn um miðbik næstu viku og aðalmálið „tilboð“ Rússa um sovézkt setulið í Tékkó- slóvakíu, henni til verndar gegn árásum frá Vestur-Þýzkalandi. (Sjá nánar inni í blaðinu). FRÉTTIN UM ÓSIGUR DUBCEK BORIN TIL BAKA. Prag árdegis: Fréttin um að Dub- cek fiokksleiðtogi hafi beðið ósigur í flokksstjórninni var árdegis í dag kölluð hlægileg og brjálæðisleg og talsmaður miðstjórnarinnar sagð ur hafa tckið þannig til orða. , Sex menn af ellefu hafi greitt at- kvæði gegn Dubcek, en fimm með. Þetta fái ekki staðizt, þvf að elnn meðlimanna sem er frjálslyndur, Josef Pacek, sé veikur og hafi eklci tekið þátt í fundinum í gær. Þessi frétt barst rétt fyrir hádegi. Hitabylgja á Islandi Ef íslendingar á annað borð geta talað um hltabylgju á landinu stendur ein slík yfir núna. í gær voru óvenju hlýindi u..i allt land, en þó hlýjast norðan- og austanlands. Mesti hitinn var mældur á flugvellinum á Egilsstöö- um 23 stig kl. 3. Enginn hámarks- hitamælir er á flugvellinum, þannig að ekki er vitað nema hitinn hafi verið enn hærri. 21 stigs hiti mældist á Staðarhóli i Aðaldál i Þingeyjarsýslu, Grfms- 10. sfða Fjölbreytt listadagskrá í Þjóöleikhúsinu á vígslu- degi Norræna hússins # „Við vinnum af miklum krafti núna,“ sagði Ivar Eskeland, forstöðumaður Nor- ræna hússins f viðtali við Visi i morgun, er við leituðum frétta hjá honum um tilhögun vfgslu liússins hér. Sagði Eskeland, aö vfgsludagur væri ákveðinn 24. ágúst, og yrðu þá ræöur fluttar f húsinu sjálfu. Aðalræöumaður þar er Halldór Laxness. Sfðar sama dag veröur fjölbreytt dag- skrá f Þjóðleikhúsinu. Þar mun skemmta listafólk frá öllum Norðurlöndunum, og mun dag- skráin taka um 2 tíma. Nú er verið að leggja síðustu hönd á glerkúpu, sem er á þaki hússins, á þeim hluta þess, sem er ofan við lestrarsal og bóka- safnið. Mun glerkúpan veita dagsbirtu inn í safnið, og gera birtuna þar bægilegri. Eskeland, sagði, að fulltrúar íslands á listadagskránni i Þjóð- leikhúsinu yrðu þau Brynjólfur Jóhannesson og Guðrún Á. Símonar. Frá Danmörku koma þau Arne Bech og Solveig Öst- ergaard, iistdansarar, frá Fær- eyjum Anna Olsen, ung fær- eysk stúlka. frá Noregi Per Aabel, frá Finnlandi kemur listapar og frá Svíþjóð Gunnar Turesson. lslenzkir tónlistar- menn munu og flytja þar ís- lenzka tónlist. y/ „Mjólkurhyrnukartöfl ur' teknar upp á Eyrarbakka • „Mjólkurhyrnuliartöflutekja“ er hafin á Eyrarbakka. Kven- fólkið í þorpinu gengur nú dag Iega út í hina víðlendu kartöflu garða og tfnir saman í soðið undan „hyrnukartöflunum“. — Þessar „hyrnukartöflur” draga nafnið af mjólkurhyrnunum sem kartöflunum er sáö í síðari hluta vetrar. Þar eru þær látnar dafna þar til tímabært þykir að setja þær niður í garða. Ekki er nema lítill ■ • • hluti kartaflnanna í görðunum á Eyrarbakka „hyrnukartöflur" en e.t.v, á fjöldi þeirra eftir að aukast, þegar sýnt er að þessi óvenjulega ræktunaraðferð hef- ur gefið góða raun. Fyrst vár „hymukartöflunum" sáð út f fyrra. Þessi kartöflutekja á Eyrar- bakka er óvenju snemma á ferö inni í ár, þcr sem rétt er nýlokið við að setja kartöflur niður sums staðar á landinu. Norræna húsið og umhverfi. Myndin er tekin af þaki Hótel Sögu. Sögusagnir um stjórnar- breytingu „bæjarsiúinr" — segir dr. Gylfi Þ. Gislason, ráÓherra • Þaö hefur að undanförnu geng i starfsins“ og mun helzt átt við, ið fjöllunum hærra meðal almenn að Franisóknarflokkurinn fái aðild ings að I ráði sé með haustinu að að ríkisstjóm ásamt Sjálfstæðis- „breikka grundvöll stjórnarsam-.l og Alþýðuflokknum. Hið háskalega SOL TUNARSKIPIN BJARGA FINN- LANDSSAMNiNGUNU.V. — Góð reynsla af fyrstu ferÓ Elisabeth Hentzer 1 í morgun var langt komið ð losa söltunarskipið Elisabetu lentzer, á Raufarhöfn, og verð- ir síldinni síðan skipað um borð Dísarfell, sem flytur hana rak- eitt til Finnlands. Þessi síldar- armur fyllir nærri þvf jpp í samningana við Finna, sem komnir voru í eindaga, en búizt er við að farmur af veiðiskipinu Hafdfsi frá Breiðdalsvfk, sem er á landleið með nokkur hundruð tunnur af saltaðri síld verði einn ig sendur út til Finnlands. Hreiðar Valtýsson, sem stjórnaði þessum söltunarleiðangri, ságði Vísi í morgun, að hann hefði geng- ið eftir áætlun, þessi reynsla væri ekki vcrri en búizt var við. — Þetta var erfið vinna, sagði Hreiðar, og m. a. s. saltað fyrsta sól- arhringinn á leið í land. Síldin var .ýmist háfuð beint úr nótum vejðiskipanna eða þá tekin af dekki þeirra, eftir að þau voru búin að háfa í sig. Sagði Hreiðar aö söltunin um borð hefði gengið betur en ætlaö hefði verið. en óttazt var að hún yrði nok.krum erfiðleikum bundin vegna veltings. Saltað var niðri á millidekki, en síldin var hausskorin á efra dekki. Sagði Hreiðar að stúlkurnar hefðu komizt upp í um 400 tunnur í ferðinni og búizt væri við að þær ástand í efnahagsmálum er manna á meðal talin helzta orsök þess að samstarf um ríkisstiórn yrði gert víðtækara. Erfiðar viðræður við frystihúsin standa yfir, lítil von viröist um verðhæ'f'—mr á útflutningsafurðum okkar og gjaldeyrissjóðir fara æ rýrnandi Til að forvitnast um. hvað hæft væri í þessum kvitti. sneri blaðið sér til tveggja ráð- herra, sem gjörst ættu um það aö vita, þeirra dr. Gylfa Þ, Gíslason- ar, viðskiptamálaráðherra og Jó- hanns Hafsteins dómsmálaráð- herra. Dr. Gylfi kvað þetta hreint bæjar slúður, og væri ekkert til í þessu Engar slíkar hugmyndir hefðu kom ið fram f alvöru. Eðlilegt væri, að fólk bæri ugg í brjósti vegna á- standsins í efnahagsmálum, en fyr- ir utan viðræður við frystihúsin, væri ekki á döfinni róttækar að- > gerðir f þeim fyrst um sinn. Jóhann Hafstein kvað ekkert hæft í þess- um sögusögnum, slíkt heTði ekki > 10 sföa. verið í bígerð.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.