Vísir - 01.08.1968, Blaðsíða 1
B8. árg. - Fimmtudagur 1. ágúst 1968. - 169. tbl.
Nítján skip með afla
Það var talsvert unnið á á síld-
armiðunum síðasta sólarhring.
Mörg skip köstuðu í nótt, en flest
urðu að láta sér næcla smáslatta.
Nítján skip'tilkynntu síldarleitinni
um afla, 1600 lestir. Síidin heldur
sig á sömu slóðum suður af Sval-
barða og er fremur erfið viðureign
ar. Hún er stygg og heldur sig
fremur djúpt.
Þessi skip tilkynntu um afla síð-
asta sólarhringinn:
Gísli Árni 335 tonn, Guðrún 140,
Bjartur 167, Þorsteínn 120, Jörund-
ur II. 123, Sigvrbjörg 60, Súlan 90,
Ólafur Magnússon 20, Ingiber Ól-
afsson 40, Kristján Valgeir 40, Fífill
40 .Bergur 60, Ásberg 50, Bára 30,
Þórður Jónasson 60, Barði 130, Dag
fari 70, Óskar Halldórsson 40, og
Guðbjörg 45.
Togveiðibátar verða varir við síld
úti fyrir Norðurlandi
— Ov'ist hvort um nokkurt verulegt magn
er oð ræðo — Fyrsta söltunars'ildin til
Siglufjarðar i gær
■ Togveiðibátar, sem veitt
hafa fyrir Norðurlandi að und
anförnu hafa orðiö varið síld-
ar á veiðisvæði sínu undan-
gengna daga. Hafa skipin
fengið fáeinar körfur af síld
í botnvörpur sínar og kom
eitt þeirra, Vonin KE inn til
Sigiufjarðar á dögunum. með
2-3 körfur af síld, sem bát-
urinn fékk í trollið.
Gera Norðlendingar sér nú
allt eins von um að síld kunni
að veiðast úti fyrir Norðurlandi
seinna í sumar, þar eð óvenju-
líflegt hefur verið í sjónum þar
úti fyrir í allt sumar. Ekkert
lát er á togveiðiaflanum úti fyrit“
Norðurlandi og hafa aflabrögö
ekki verið slík á þessum slóðum
f háa herrans tíð.
Hins vegar þykir oröið nokkuð
óvarlegt að treysta fréttum af
sildarfundi togaranna. Þeir hafa
á hverju sumri fundið smá
síldardreifð úti á Skagagrunni
og þar annars staðar nyrðra og
fengið þar fáeinar körfur í vörp-
urnar og jafnharðan hafa skip
þust á staðinn til þess að góma
síldina, en gripið í tómt.
Menn lifa þó enn í voninni um
aö síldin veiöist aftur á Gríms-
eyjarsundi og líf færist í tusk-
urnar á Siglufirði og öðrum sfld-
arbæjum nyrðra. Siglfirðingar
hafa hins vegar ekki undan
neinu að kvarta það sem af er
þessu sumri þvf að megninu af
þeirri síld sem veiðzt hefur í
sumar hefur verið landað þar
og þangað kom fyrsta söltunar
síldin f gær. Reykjaborg kom
með um 800 tunnur af saltsfld,
sem tekin verður til handar-
gagns hjá síldarstöðinni Hafliða
h.f. Þá er von á togaranum Vfk-
ingi f næstu viku með fsaða síld
til Siglufjarðar og verður reynt
að salta hana á þremur plönum
á Siglufirði. Víkingur er enn á
miðunum og var búinn að fá
90 tonn, þegar síðast fréttist, en
hann getur tekið um 6000 tunn-
ur af ísaðri síld.
ÞJÓÐHÖFÐINGJASKIPTI í DAG
Dr. Kristján Eldjárn tekur við embætti í dag
í dag verða þjóðhöfð-
: ingjaskipti á íslandi. Hinn
[ vinsæli og virti forseti, £ :|j*
herra Ásgeir Ásgeirsson, %
ir:v ^ fl lætur nú af starfi og við p.|||NI
m tekur dr. Kristján Eldjárn, Él v * J
i hinn nýkjömi forseti. ^|\ W0*
mi.. ■ tfm Athöfnln liefst í Dómklrkjunnl Hra
klukkan 15.30, en að guðsþjónustu | öáUdflBf THB
lokinni verður gengið aftur til Al-
mk JHH þingishússins í sai ncðri dcildar, HgNgn|HIB||||B|r
þar sem forseti Hæstaréttar lýsir
kjöri forseta og afhendir dr. Krist- WRyðBBB
jáni kjörbréf hans, og hann vinnur A dwm&íW
síðan cmbættiseið sinn, sem hljóðar mgBBMjStð isl
svo: .Æbq
„Ég undirritaður, sem kosinn er QHHHI 3
Ásgeir Ásgeirsson. forseti íslands um kjörtímabil það, Kristján Eldjárn.
sem hefst 1. ágúst 1968 og lýkur
31. júlí 1972, heiti því, aö viölögð-
um drengskap mfnum og heiöri,
aö halda stjórnarskrá lýöveldisins
Islands.“
Er forseti hefur undirritað eið-
stafinn, mun hann flytja ávarp af
svölum Alþingishússins. Því ávarpi
rærður útvarpað, svo og öllu því,
sem fer fram í Dómkirkjunni og
Alþingishúsinu.
Færri hvalir, en
afurðameiri
212 hvalir hafa nú veiðzt í Hval-
stöðinni i Hvalfirði, þar af eru 19
búrhvalir, en hitt langreyðar. f
morgun var Hvalur 9 á Ieið til
lands með búrhval. Var skyggni
lélegt á miðunum, en þau eru djúpt
undan Vestfjörðum.
Töluvert færri hvalir hafa veiðzt
nú en á sama tíma í fyrra, en hins
vegar byrjaði vertíðin í ár sfðar
en í fyrra og einnig hefur lang-
reyðurin verið óvenju væn og af-
urðamikil I ár.
Ný rækjumið á Seyðisfírði:
?
— Rannsóknarleiðangur
rækju — Lofar góðu
Rækjuleit, sem gerð hefur ver-
. ið á Seyðisfirði undangengna
daga, hefur borið mjög góðan
árangur. Hafa fengizt um 250
kg af stórri rækju í einu haii,
eða um 150 kg á klukkustund,
sem þykir afbragðs veiði.
Rækjuveiðar hafa aldrei verið
stundaðar á Seyðisfirði áður og
gera menn þar sér góðar vonir
um nýja atvinnugrein, sem kæmi
sér vel í fásinninu þar eystra
yfir veturinn, þegar síldarvertíð
er úti.
Það er tuttugu tonna bátur, Þór-
veig fS, sem fenginn var til þess-
arar rækjuleitar á Seyðisfirði og
er Hrafnkell Eirfksson, fiskifræðing
ur leiðangursstjóri, en skipstjóri er
Baldur Sigurbaldursson. Leiðangur
þessi er geröur á vegum Rannsókn-
arstofnunar sjávarútvegsins. Stóð
til að slíkur leiðangur yrði gerður
út snemma í vor, en hann strandaði
á því að báturinn sem fenginn var
til þess arna sat fastur í ís nyrðra
og komst ekki austur.
Unnur Skúladóttir, fiskifræðing-
ur, sem mest hefur fengizt við
athuganir á rækjunni hér við land,
sagði f viötali viö Vísi í morgun,
f innur Jbar stóra og góða
segja fiskifræðingar
að þessi rækjufundur f Seyðisfirði
lofaði góðu. Rækjan væri mjög stór,
eða 5—6 grömm, en til samanburð-
ar má geta þess að rækjan, sem
veiddist í lsafjarðardjúpi, er þetta
4—5 grömm.
Hins vegar sagði Unnur að ekk-
ert væri vitað ennþá hve stórt
rækjusvæðið væri á þessum slóðum,
þar sem ennþá hefði aðeins tak-
markað svæði verið leitað.
Seyðfirðingar eru mjö.g bjartsýn-
ir á þessar tilraunir og hafa lengi
verið fýsandi þess þar eystra að
slík rannsókn yrði gerð, þar sem
menn hafa þótzt ráða það af rækju,
sem komið hefur upp úr fiski þar
úti fyrir, að þar væru rækjumiö.
Atkvæðaseðlarnir prentaðir undir eftirliti borgarfógeta i §
morgun.
\
II
HÁTÍÐALJOÐ 1968
u
Ljóðin úr keppninni komá út á morgun
Nýstárleg Ijóðabók, „Há-
tíðaljóð 1968“ kemur út á
morgun. Bókin inniheldur 26
Ijóð úr hinni margumtöluðu
samkeppni og eru ljóðin eftir
21 höfund, en 33 áttu ljóð
í samkeppninni.
Sverrir Kristinsson útgefandi
iókarinnar, sagði Vísi í morgun,
að hverri bók mundi fylgja sér
prentaður atkvæðaseðill, þar
sem kaupendur eru spurðir,
hvort þeir telji eitthvert ljóö-
anna vert 10.000 kr. verölauna,
og hvaða ijóö þeir álíti bezt. Ef
eitthvert ljóðanna hlýtur ein-
faldan meirihluta atkvæða mun
'útgefandinn veita því 10.000 kr.
verölaun.
Prentun atkvæöaseölanna fór
fram í gær í Prentsmiðjunni
Eddu að viðstöddum borgar-
fógeta. Til þess að atkvæðaseðl-
arnir lendi aðeins í höndum
kaupenda verður bókin seld í
lokuðum umslögum, með álímdri
kápumynd bókarinnar.
Atkvæðaseðlana munu, kaup-
endur siðan senda í pósthólf
2500, en þeir verða taldir á skrif
stbfu borgarfógeta. Skilafrestur
er til 15. september, og verða úr
slitin kunngerö fljótlega eftir
þann tíma.
Verði þessarar bókar er stillt
mjög í hóf. Með söluskatti kost-
ar hún 134.25, en auk þess verða
gefin út 125 eintök af henni á-
rituð og tölusett. Þau verða
seld á 275 kr. og hægt er að
panta þau meö því að skrifa til
Útgefandans, pósthólf 3000.
Aftast í bókinni er forvitni-
legur listi, þar sem er skrá yfir
nöfn og dulnefni höfundanna,
sem töku þátt í þessari frægu
samkeppni.