Vísir - 01.08.1968, Blaðsíða 3
í
VlSIR . Fimmtudagur 1. ágúst 1968.
BESSASTAÐIR
Heimsókn á
aö er gaman aö koma aö
Bessastööum á sólbjörtum
sumardegi, reika um staöinn og
rifja upp sögu hans.
Flestir kannast við sögu
Bessastaða að meira eöa minna
leyti, og ekki er ástæöa til þess
að rifja hana upp hér.
Myndsjáin brá sér í gær í
stutta kurteisisheimsókn til
Bessastaða. Veðrið var eiginlega
hvorki vont né gott, sæmilega
heitt en sólarlaust.
forsetasetrið
Þegar heim á staðinn kom
var þar litla hreyfingu að sjá.
Einn ungur maður var þar að
mála kantsteina, og syfjulegur
hundur lá fram á lappir sínar
og virti komumenn naumast
viðlits.
Túnin á Bessastöðum eru stór
og búið var að slá þau og ná
saman heyinu af þeim. Heyið
virtist vera gulnaö og hálfhrak-
ið eftir siðustu daga, sem hafa
verið votviðrasamir.
Við göngum til kirkju. Þar
á sumardegi
inni er hálfrokkiö og svalt.
Það tekur svolítinn tíma að
venjast dimmunni, svo að hægt
sé að byrja að skoða þessa
kirkju, sem er meö hinum feg-
urstu á landinu. Inni í kirkjunni
hanga uppi minnisskilldir um
fólk, sem grafið er í Bessa-
staðakirkjugarði.
Úti fyrir þýtur í grasi og trjá-
laufi. Söngfuglakvak berst að
eyrum okkar, þegar við ljúkum
þessari tilefnislausu heimsókn
á höfuðból þjóðarinnar.