Vísir - 01.08.1968, Blaðsíða 13
1 í S IR . Fimmtudagur 1. ágúst 1868.
t 3
SfÓ skrifar frá Maríulondi:
Bregða „Gunna var í sinni sveit
á fóninn þegar Eimskip birtist
■ Steikjandi hiti hefur
kreist svitann úr Baltimor-
búum undanfarnar vikur, svo
að gamlir menn tala um að
þeir muni ekki aðra eins tíð.
Menn ganga að vinnu bull-
andi sveittir dag eftir dag, en
krakkar busla í vatni í plast-
laugum, sem eru í hverjum
húsagarði, eða þá mömmurn-
ar sprauta á þá úr slöng-
um, ef engin er laugin. Mik-
ið er drukkið af vatni og gosi,
og um helgar þeysa allir sem
vettlingi geta valdið út
í næstu krummavík
til að kæla sig eftir viku-
langa saunu borgarinnar. Lít-
ill svali er á næturnar, og
þykir sá ekki maður með
mönnum, sem ekki hefur
kælikerfi í svefnherberginu.
Sumir sérvitringar láta sér
þó nægja viftur, sem eru ð-
dýrari, hvað sem allri kæli-
kerfatízku líður. Mikið er
fjargviðrazt út af hitanum,
og margar leiðir reyndar til
að skjóta honum ref fyrir
rass. Menn aka, eins og f jand-
inn væri á hæium þeirra til
að krækja í dálítinn svala, ef
bíllinn er ekki loftkældur, og
á kvöldin rambar fjölskyldan
í loftkældar verzlanir til þess
að svala sér, en einhleyping-
ar og utangarðsmenn hanga á
loftkældum börum og ræða
heimsvandamálin. Sjónvarps-
stöðvarnar hamast við að
auglýsa alls konar kælikerfi
og flugnaveiðara. og svitinn
lekur í stríðum straumum, og
ekkert lát er á hitanum, þrátt
fyrir allar kuldaspár.
Ekkert lát er á baráttu for-
setaefnanna fyrir væntanlega
flokksútnefningu, og hafa þeir
MacCarthy, Rockefeiler og
Wallace nýlega haldið kosninga-
fundi hér í Baltimore. Virðast
menn almennt hafa meiri áhuga
á þvi að verða sér úti um dá-
lítiö meiri svala en að fylgjast
með kosningabaráttunni, enda
voru fundir þeirra þremenning-
anna þunnskipaðir. Reynt var
að púa Wallace niður og honum
hótað öllu illu, en hann lét það
ekkert á sig fá, heldur óx ás-
’megin og hótaði gjörbyltingu
á öllum sviöum, ef hann yrði
kosinn forseti, sem hann gerði
helzt ráð fyrir. Þetta er mjög
viðkunnanlegur maður, með ró-
legan suðurríkjatalanda. Ku
Wallace eiga fylgjendur meðal
óánægðra manna, sem sennilega
myndu fylgja róttækum vinstri
flokki, væri hann einhvers megn
ugur hér, og svo auðvitað kyn-
þáttaaðskilnaðarmanna. Rocke-
feller og MacCarthy lofuðu líka
ýmsum breytingum á stefnu
stjómarinnar og kjörum almenn
ings og skírskotuðu til unga
fólksins og stríðsins I Víet-
nam. Annars voru allir þessir
fundir keimlíkir með vígreifum
ræðustúfum og klappi, hrópum
og lúðrablæstri á miili. Mesta
spennan virtist ríkja á fundinum
hjá Wallace, og hefur hann nú
aflaö nógu margra undirskrifta
til þess að verða í framboöi í
forsetakosningunum í haust hér
i Maríulandi.
Eftir Nato fundinn í Reykja-
vík í júlíbyrjun birtist grein
eftir C. V. Flowers í blaöinu The
Sun hér í Baltimore, en hann
er fréttaritari blaðsins í Lundún
um. Var þetta all myndarleg hálf
síðu grein með mynd af Reykja-
vík, hitaveitugeymunum með
Esjunni í baksýn. Virtist grein
in að mestu tekin upp úr pésan-
um, Fact about Iceland, og
myndin sennilega líka. Talar höf
undurinn um að erfitt hafi ver
ið að viðhalda nákvæmri vinnu
áæ'tlun vegna hinna björtunátta.
Segir hann, að íslendingar ráði
skynsamlega bót á þessu
með því að fara heim, meðan
sól sé enn hátt á lofti, draga fyr
ir gluggana og ganga til hvílu.
Segir hann, að fundurinn hafi
verið stærsti viðburður í Reykja
vik um áraraðir. Kvaðst hann
undrast, að hin nýtízkulegu og
þægilegu hótel borgarinnar
skyldu geta hýst allan gestafjöld
ann með tilliti til stærðar borg-
arinnar. Segir Flowers, að Dean
Riusk hafi géngið um borgina og
kál)að hana Iítinn eðalstein i
borgarlíki. Síðan eru upplýsingar
úr Fact about Iceland, en að
lokum segir höfundur: „ísland
hefur alls engan herafla en er
stofnfélagi í Nato. Þátttaka
þess f bandalaginu er varnar-
sáttmáli, sem leyfir Bandaríkjun
um að hafa flugstöð um 20 míl-
ur frá Reykjavík. Bandaríkja-
sjóher hefur þrjú þúsund menn í
gengur lífið sinn rólega vana-
gang á Islandi. En til þess að
nýta á réttan hátt dagana og
næturnar þyrftu að koma fram
æðri mannverur sem gætu sofið
allan veturinn og vakað alit sum
arið“.
Mikið er dekraö við þá Eim-
skipafélagsmenn f Cambridge,
tveggja tfma akstur frá Balti-
more. í hvert sinn, sem skip
þeirra leggjast þar að bryggju,
tilkynnir þulurinn klökkri röddu
að nú séu íslendingar af hafi
komnir færandi björg, saltfisk,
í bú, býður þá velkomna og slær
fslenzkri plötu, Gunna var í
sinni sveit, á fóninn — eöa þá,
íslands hrafnistumenn, ef hún
er við höndina. Kunna landar
Rusk í klóm fréttamanna — Síðan komst hann að raun um hvílík-
ur eðalsteinn Reykjavík var.
Foss á fullri ferð með „björgina” —
Þeir eru vinsælír hjá Eimskip í Cambridge, USA.
herstöðinni. Af því að Golf-
straumurinn leikur við suður-
ströndina eru vetur mildir. Ekkj
vegna þess að nauðsynlegt sé að
minnast á það, er rætt er um
loftslag, en álitið er, að Reykja-
vík sé á norðurtakmörkum
stuttpilsanna. Sú fagurfræðilega
athugasemd á fullan rétt á sér.
Þrátt fyrir nýtízkulegan veiði
flota allar nýbyggingarnar, þátt-
töku landsins í Nato, hin góðu
lífskjör og þótt fylgzt sé með
í framförum á öllum sviðum,
þessu vel að sögn þeirra Selfoss
manna. Og, er maður ekur um
höfnina f Baltimore berst hin
sérkennilega íslenzka saltfisks-
lykt að vitum manns, eins og
maður væri allt í einu kominn
innan um kerlingar bograndi
á saltfisksreit.
Þrátt fyrir hita, svita, flugur
og vatnahestalíf, sveitast Balti-
morebúar í gegnum sumarið og
láta hverjum degi nægja sfnar
þjáningar, og lífið gengur sinn
vanagang.
Meira en f|ór l hver miði vin: 3i |á nuría 1
\ ■ \ ■ \ Dregið 5. ágúst Draglb ekki oð endurnýja \ \
Vöruhappdra :tti Síl 5S
>. , ■ ’JS*
ÍBÚÐ TIL SÖLU
Innkaupastofnun ríkisins, f.h. ríkissjóðs,
leitar tilboða í íbúð í kjallara Flókagötu 45,
Reykjavík, sem er eign ríkissjóðs.
Eignin er til sýnis væntanlegum kaupendum
kl. 5—10 'e.h. fimmtudag og föstudag 1. og 2.
ágúst n.k., þar sem allar nánari upplýsingar
verða gefnar og þeim afhent tilboðseyðublað
sem þess óska. Lágmarkssöluverð íbúðarinn-
ar, skv. 9. grein laga nr. 27. 1968, er ákveðið-
af seljanda kr. 750.000.00.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu vorri
fimmtudaginn 8. ágúst 1968 kl. 2 e.h.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI7 slMI 10140