Vísir - 01.08.1968, Blaðsíða 8

Vísir - 01.08.1968, Blaðsíða 8
V í S I R . Fimmtudagur 1. ágúst 1968. 8 VÍSIR Otgefandi: Reykjaprent h.t. Framkvæmdastjóri Sveinn R. Eyjölfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Aöstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjómarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson Augiysingastjóri: Bergþór Olfarsson Auglýsingar: Aðalstræti 8. Simar 15610 11660 og 15099 Afgreiðsla: Aðalstræti 8. Sími 11660 Ritstjóm: laugavegi 178. Simi 11660 (5 línur) Áskriftargjald kr. 115.00 á mánuði innanlands í lausasölj kr. 7.00 eintakið Prentsmiðja Visis — Edda h.f. Forsetaskipti JJerra Ásgeir Ásgeirsson lætur í dag af störfum eftir sextán ára farsæla þjónustu við þjóð sína í æðsta embætti landsins. Áður hafði hann sem kunnugt er gegnt fjölmörgum opinberum trúnaðarstörfum, allt frá því að hann var fyrst kjörinn á þing fyrir Vestur- ísfirðinga árið 1923. Öll sín störf hefur hann rækt með þeirri réttsýni, góðvild og ljúfmennsku, sem honum er í blóð borin. Allir, sem með honum hafa unnið eða haft af lionum einhver persónuleg kynni, viðurkenna mannkosti hans, víðsýni og velvilja. Þótt kosningabaráttan væri hörð þegar Ásgeir Ás- geirsson var kjörinn forseti 1952, gekk enginn þess dulinn, að færi hann með sigur af hólmi mundi hann í hvívetna reynast traustsins verður og gegna hinu háa embætti með þeim hætti að þjóðinni yrði sæmd að. Sú várð líka reyndin. Hvar sem hann hefur farið, innanlands eða utan, hefur framkoma hans og þeirra hjóna, meðan beggja naut við, vakið traust og virð- ingu. Ferðir hans til annarra landa hafa orðið hin bezta kynning á íslenzku sjálfstæði og þjóðmenningu. Má í því sambandi minna á ummæli, sem fyrir skömmu voru höfð eftir Pétri Thorsteinsson sendi- herra í blaðagrein. Kvaðst hann hafa fyllzt aðdáun á framkomu og hæfileikum Ásgeirs Ásgeirssonar á tveggja mánaða ferðalagi með honum um Vesturheim og telja að slík kynni forustumanna erlendra rfkja af æðsta fulltrúa íslenzku þjóðarinnar væru ómetanleg landkynning. Og útlendir sendimenn og gestir, sem hafa sótt forsetann heim að Bessastöðum, hafa látið í Ijós mikla hrifningu yfir viðræðuhæfileikum hans, fjölþættri menntun og gáfum. Allur sá fjöldi íslend- inga, sem komið hefur á forsetaheimilið í valdatíð hans mun ljúka upp einum munni um að þar hafi far- ið saman höfðingleg reisn og alúðleg ljúfmennska. Af þessu öllu má ljóst vera hvílík fásinna það er, sem stundum heyrist haldið fram, að hver vammlaus meðalmaður geti verið forseti landsins. Þar þarf sann- arlega meira til, ef vel á að takast. Og það er ekki vandalaust að setjast í sæti Ásgeirs Ásgeirssonar fyrir hvern sem til þess hefði valizt Hann hefur ekki með öllu verið friðhelgur fyrir þeirri illkvittni, sem mörg- um íslendingum er of tamt að beita gegn þeim, sem gegna forustuhlutverkum í þjóðfélaginu, en yfirgnæf- andi meirihluti þjóðarinnar mun þó bera fyrir honum óblandna virðingu og meta hann að verðleikum, Og hlutlaus dómur sögunnar mun skipa honum í ílokk meðal landsins merkustu og beztu sona. Starfssaga hans er mikil og margþætt og hamingjan hefur verið með honum í verki. Og nú að loknum löngum og giftu- ríkum starfsdegi eru honum sendar óskir um fagurt og friðsælt ævikvöld. Um leið og hinn fráfarandi forseti er kvaddur með virðingu og þökk alþjóðar er hinum nýja forseta, sem tekur við embættinu í dag, óskað heilla og hamingju í starfL ) ) 1, | ! ) \ V •I 'i \ A , i 7 Ijf í / Grimmileg lokaátök sennilega skammt framundan íNigeríu Hefur sambandsherinn sókn um leið og friðarráðstefnan hefst 5. ágúst? Ojukwu, leiðtogi Biafra-manna. 1 NTB-frétt í gær var það haft eftir ofursta nokkrum í sam- bandshemum í Nigeriu, að hann biði fyrirskipana um að hefja lokasókn, á „hálfum mánuði væri hægt að gersigra Biafra“. Ofurstinn gagnrýndi harölega alþjóða hjálparstofnanir, — London, að komnir væru til Lagos 15 flutningabílar og nokkrir Landroverbílar, og heföi verið greitt fyrir þá af fé því, sem brezka stjómin hefði veitt til hjálpar í Nigeriu — báðum aðilum - en upphæðin, sem var veitt var 250.000 sterlingspund. Vikuritið Newsweek birtir þessa mynd. Texti: Hungurréttir. Rottur til sölu á markaði f Biafra. kvað sambandsherinn eiga við nóga erfiöleika að stríða við að koma birgöum til dreifðra og af- skekktra flóttamannabúða, þótt ekki bættist annaö viö. Og of- urstinn spurði: „Hvað getur Rauði krossinn gert? Ekkert. Þeir hafa ekkl einu sinni flutn- ingabíla“. Þetta var um sama leyti, sem frá því var sagt í fréttum frá Sannleikurinn virðist sá, að ekkert gengur með að ná sam- komulagi um flutninga og flutn- ingaleiðir, vegna þess, að af- staða leiðtoga beggja aðila er til hindrunar, og sambandsstjórn- ar í Lagos sízt minna, ef hennar er þá ekki meginsökin. En þaö stendur ekki á því, aö unnt sé að flytja áfram sovézk og brezk hergögn til sambandshersins. Úng móðir í Biafra með barn sitt. Sunday Times £ London birtir frásögn tveggja fréttaritara — Tony Geraghti, sem sendi fréttapistil frá Lagos og Alex Mitchells, sem sendi annan frá Owerri. Þúsundir flóttamanna streyma inn á mitt landsvæði Ibo-anna (Biafra er aðallega byggt fólki af Ibostofni), meðan báðir aðilar búi sig undir að heyja seinustu blóðugu lokabardagana i hinni ársgömlu borgarastyrjöld. Mán- uöum saman hefir yfirstjóm Biafrahers orðið að senda her- menn I hundraöa tali marga þeirra óvopnaða og óþjálfaöa — til þess að deyja í hörðum bardögum. Þegar hafa 4Y2 milljón manna flúið undan sambandshernum. Alex Mitchell segir að þar sem hann lagöi leið sína hafi veriö þröng á öllum vegum, grannar. beinaberar konur, bám börn sín og pjönkur þar til yfir lyki. Meðfram vegunum em grafnir djúpir skuröir undir líkin. Skæruliðar reyna aö laumast aö baki meginher sambandshersins og vinna hermdarverk meö sprengjum, frumstæðum en • haglega gerðum, sprengiefn- inu kannski komið fyrir í pípu- bút. Það er margt, sem bendir til að framundan — sennilega skammt fram undan séu grimmi legri átök en enn hafa átt sér staö í þessu landi hörmunganna. Það em aðrar staðreyndir sem Sunday Times bendir á sam- kvæmt upplýsingum fyrrnefndra fréttamanna: í fyrsta lagi sé sú staðreynd þótt meö hana hafi átt að fara sem trúnaðarmál, að ekki fyrr en 15. september var markið sett hjá Rauöa krossinum, að hjálparstarfsemin yrði komin í fullan gang, en það er á tíman- um þangað til sem grimmilegast kann að verða barizt. í öðru lagi er sú staðreynd, að sambandsstjómin hefur „blettaö. sinn skjöld“ með kyrrsetningu þúsunda manna, sem tilheyra þjóðernisminnihlutum vegna þess eins, að þeir eru menntaðir menn. í þriðja lagi er þaö ásetning- ur stjómarinnar, að hafa áfram undir vopnum, þegar styrjöld- inni er lokið 50.000 af þeim 75.000 sem hervæddir eru. Svo stóran her virðist þurfa aðeins til hernáms alls Bíafra eða vegna skæruhernaðar í stórum stfl. Sókn af hálfu sambandshers telja fyrmefndir fréttaritarar, að gæti hafizt 5. ágúst samtímis þvi að frlðarráöstefnan hefst 1 Addis Abbeba. , iiwniiwiiff ''"aaaMg ZZZZSESSSBEl

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.