Vísir - 09.08.1968, Blaðsíða 5

Vísir - 09.08.1968, Blaðsíða 5
V'ÍSIR . Föstudagur 9. ágúst 1968. i >?Þótti ekki fínt „að vera með sauðalitina44 — To/oð v/ð frú Aðalbjörgu Guðmunds- dóttur um lopapeysuna Aðalbjörg jhefur ekki tölu á öllum þeim lopapeysum, sem hún hefur prjóiiað um ævina. Jslenzka lopíapeysan er sú flík, sem við höfum þróað upp í að verða að vinsælli og sam- keppnisfærri vöru erlendis. Hún stenzt samanbcrð við fyrsta flokks tízkufatnað erlendan og er eftirsótt sem lúxusvara frá- brugðin hinu venjulega. Flest- ar eigum við lopapeysu og marg ar okkar hafa prjónaö hana sjálfar. En Iopapeysur ganga úr sér ekki síður en aðrar' flíkur og áður en við tökum fram prjónana og fitjum upp á nýrri væri rétt að geí.a Aöalbjörgu Guðmundsdóttur prestsfrú á Mosfelli orðiö. Aðalbjörg segást vera ein ninna venjulegu prjónakvenna, og hafi hún prjónaskapinn að tómstundagamni nú orðið. Viö getum allar verið sammála um það, að prjónakonur nefnist allar þær konur, sem fást við prjónaskap hverju sinni — en þegar betur er aö gáö hafa aðrar það r.ö hálfgerðu atvinnu- heiti. Eftir að íslenzkir fram- leiöendur komu auga á það, að íslenzka lopapeysan væri út- flutningsvara, sem hægt væri að fá borgaða í beinhöröum gjaldeyri tók prjónaskapurinn stórt stökk. Ráönar voru prjóna konur um allt land og á öllum aldri sem hafa aflað sér auka- tekna eöa haft af þvl fulla vinnu við að prjóna lopapeys- ur. — Ég byrjaði að prjóna úr lopa og selja svolítiö strax áriö 1942 segir Aðalbjörg. — Á þeim árum fékkst ekkert garn og ein- göngu prjónað úr lopa. Ég vann um tíma á prjónastofu þar sem lopinn var vélprjónaður og það varð svo mikill úrgangur að lopanum var hent. Þess vegna byrjaði ég eiginlega að prjóna — úr afgöngum sem annars hefði verið hent. Þá voru peysurnar allt öðru vísi en nú. Þær voru prjónaðar sléttar og saumað í þær eftir á. Munstrin voru allavega — skíðamunstur var t. d. vinsælt. Sauðalitirnir þekktust heldur ekki þá. Allar peysumar voru úr lituðum lopa eða hvítum, það þótti ekki fínt að vera meö sauðalitina. sú tízka kom ekki fyrr en útlendingar komu auga á lopapeysurnar og fóru að kaupa þær. Á þeim árum var lika erfitt að fá munsturblöð en ég er alin upp í sveit og vön talsveröum prjónaskap og komst upp á lagið með að vinna með mínum eigin munstr- um. Ég get ekki sagt, að ég vinni þau eftir fyrirfram ákveön um geröum heldur koma munstr in smám saman eftir því sem ég vinn peysuna. Þegar ég kom hér að Mosfelli fyrir 15 árum var hringmunstrið komið, svipað og í þeim peysum, sem eru svo vinsælar núna. Ég held að íslenzka lopapeysan hafi vakið svo mikla athygli vegna þess að hún er eina peys- an, sem ekki er hægt aö prjóna í vél, og þaö þýðir ekki, að bjóða aðrar peysur til sölu en þær sem eru með íslenzka hringmunstrinu. — Er til eitthvað sérstakt ís- lenzkt munstur? — Það eina sem mér finnst vera hægt að segja að sé ís- lenzkt munstur, er áttablaöarós- in. f Þjóðminjasafninu er hægt að sjá það munstur ,í altarisklæð um, í leppum og sessuborðum t. d. — en það er í afar mismun- andi geröum. — Hvað tekur það þig lang- an tfma að prjóna eina peysu? — Ég hef einu sinni tekið tímann, maöur er annars alltaf aö hlaupa frá prjónaskapnum, en 1 það skiptið tók það mig 12 tíma með gamla lopanum. Hespulopinn er hins vegar fljót prjónaðri. Það er líka mjög gott aö vinna 'r honúm, því að það er hægt að vera með hann alls staðar, hann er hreinn og það þarf ekki að þvo peysuna á eftir og það er eins og meö garn. Lopinn er einnig ágætt handprjónagarn og það er mis- skilningur að ekki sé hægt að nota hann sem slíkan, það má nota lopan í allar uppskriftir fyrir gróft garn — sérstaklega hespulopann, það er meiri end ing í hespulopanum en hinum lopanum, fyrir utan það er lop- inn mikiö ódýrari en garn. Svo er það eitt atriði, sem mig Iangar að tala um, en það er prjönafestan. Ég myndi vilja leggja á þaö áherzlu, að prjón- arnir séu valdir eftir þeirri prjónafestu, sem hver kona hef ur tamið sér en ekki eftir ein- hverri forskrift. Það er taliö að 7 lykkjur og átta umferðir geri 5 cm. ferhyrning á prjóna núm- er 4y2. Ef konan hefur hins veg ar veriö vön aö nota prjóna í öðru númeri fyndist mér sjálf- sagt að hún notaði þá áfram, ef hún nær með þeim hæfilegri prjónafestu. SAMKEPPNI Borgarsfjórn Reykjavíkur hefur ákveðið uð efnu til samkeppni meðal arkitekta um Æ5KULÝÐS- HEIMILI a lóðinni Tjarnargata 12 í Reykjavík samkvæmt samkeppn- isreglum Arkitektafélags íslands 1. verðlaun kr. 105.000,00 2. verðlaun kr. 70.000,00 3. verðlaun kr. 30.000,00 Auk þess er dómnefnd heimilt að kaupa til- lögur fyrir allt að kr. 30.000,00. Keppnisgögn eru afhent af trúnaðarmanni dómnefndar, Ólafi Jenssyní fulltrúa Bygg- ingaþjónustu A.Í., Laugavegi 26, sími 22133. Skila skal tillögum til trúnaðarmanns dóm- nefndar í síðasta lagi 4. nóv. 1968. TEKUR ALLS KONAR KLÆÐNINGAR FUÓT OG VÖNDUB VINNA ClRVAL AF AKLÆÐUM LAUGAVEG 62 - SlMI 10626 HEIMASlMI 63694 BOLSTRUN * SvetnbekKir i ur ali á *erkstæðisvei;öi. Jfia" SS-»"» 30435 Tökuro að oickui Qvers konar múrbro' og sprengivlnnu i búsgrunnitro og ræs um Leigjuro úi loftpressui og sdbr; sleða Vélaieiga Steindórs Sighvats ,onai Alfabrekkt viC Suðurlands DrauL slmi 10435 Vöruflutningar um allt iand

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.