Vísir - 09.08.1968, Qupperneq 6
6
V í SIR . Föstudagur 9. ágúst 1968.
TáNABÍÓ
tslenzkur texti.
HETJUR
KOMA
AFTUR
(Return of the Seven)
Snilldar vel gerð og hörku-
spennandi, ný amerísk mynd
í litum og Panavision.
Yul Brynner.
Sýnd kl. 5 og 9.
Bönnuð innan 14 ára.
STJÖRNUBIÓ
Dæmdur saklaus
Islcnzkur texti.
Ný, amerísk stórmynd með
Marlon Brando
Sýnd kl. 5 og 9.
Bönnuð börnum innan 14 ára.
íslenzkur texti.
(Rififi 'n Amsterdam)
Hörkuspennandi, ný ítölsk-
amerísk sakamálamynd í lit-
um.
Sýnd kl. 5.15 og 9.
Bönnuö innan 14 ára.
GAMLA BÍÓ
Brostin hamingja
(Raintree Country)
meö Elizabeih Taylor
Montgomery Clift.
Eva Marie Saint.
Endursýnd kl 5 og 9.
Bönnu' innan 12 ára.
BÆiARBÍÓ
Glæpamenn i Lissabon
Spennandi, amerlsk stórmynd
í litum með Oscars-verðlauna-
hafanum:
Ray Milland, ásamt
Mmireen O'Hara
Sýnd kl. 9.
Bönnuð bömum innan 14 ára.
Angelique i ánauð
Sýnd kl. 7.
Bönnuö býmum.
Síðasta sinn.
|—Listir -Bækur -Menningarmál-
LOKAÐ YEGNA
SUMARLEYFA
- ÍSLENDINGAR
í SUMARHÍÐI
„LOKAÐ VEGNA SUMAR-
LEYFA" er setning, sem víða
má sjá á dyrum um þessar
mundir. Leikhúsin standa lokuö,
sum kvikmyndahúsin gera smá-
hlé á starfseminni og sinfóníu-
tónleikarnir byrja ekki fyrr en
með skammdeginu.
Á sumrin er lítið um meiri
háttar listviöburði. Það er vond-
ur bissniss að gefa út bækur hér
á landi, nema þá kannski rétt
fyrir jól, og ; svo er jú líka
hugsanlegt að gefa út skringi-
legar bækur á sumrin — bækur
á borð viö „Hátíðarljóð 1968“.
Að líkindum stafar þessi
menningardeyfð af því, að á
sumrin stendur atvinnulífið í
blóma, menn eru að vinna fyr-
ir menningunni næsta vetur,
því að menning er dýrt tóm-
stundagaman. Einnig stafar
deyfðin af því, að fólk notar
sumrin til ferðalaga út um lands
byggðina, þar sem þaö er flestra
álit aö ferðalög, sem ekki eru
farin á sólbjörtum sumardegi,
séu misheppnuð.
O; vegna þess að á sumrin
eru flestir íslendingar upptekn-
ir við aö vinna, ferðast eöa
sleikja sólskinið fá erlendir
feröamenn, sem hingað koma
næsta lítið tækifæri til aö kynn
ast íslenzkri nútímamenningu.
Þeir eru drifnir út á land aö
skoða Gullfoss, Geysi, Mývatn
og Þingvelli. Það er farið meö
þá á Þjóðminjasafnið, Árbæ, og
fleiri söfn. Þeir sjá helztu bygg-
ingar, fá að vita allt um vík-
ingana og írsku þrælana, Leif
heppna og Ameríku, og aö
sjálfsögðu er mikið rætt við þá
um „The Icelandic Sagas“.
Útlendingum er enginn kost-
ur gefinn á að fara hér á tón-
leika, í leikhús eða á listsýn-
ingar — nema þegar túrista-
hópum er sýndur Ásmundur.
Þeir fá sem sagt lítil eða eng-
in tækifæri til að kynnast Is-
lenzkri nútímamenningu, enda
eru íslendingar sjálfir í hálf-
gerðu menningarbindindi á
sumrin.
Hélztu atvinnugreinar hér-
lendis munu vera sjávarútveg-
ur, landbúnaður og iðnaður. I
sumar hefur mikið verið gert ti)
þess að kynna þessar greinar,
t. d. með stórkostlegum sýn-
ingum f Laugardalshöllinni.
Kostnaður við þessar sýning
ar er mikill, en hann næst aftur
meö aðgangseyri — og óbeint
meö framtíðaráhrifum sýning-
anna. Hvernig væri nú, þegar
búiö er að gera svona vel viö
helztu atvinnugreinar okkar, að
fagna því með því að slá upp
menningarviku með pomp og
prakt.
Menningarvika eöa listavika
í Laugardalshöllinni gæti ver-
ið kærkomin tilbreyting. Og
meira en það, listamönnum
hvatning til að slá I gegn og
sýna hvað í þeim býr. Með
listaviku, sem haldin væri að
sumarlagi mundi jafnframt gef-
ast þess kostur að kynna erlend-
um feröamönnum íslenzkt nú-
tímaþjóðlíf og nútímamenningu.
Þrðinn.
Þráinn Bertelsson skrifar kvikmyndagagnrýni:
Kæn er konan
(Deadlier than the Male).
Stjómandi: Ralph Thomas
Aðalleikendur: Richard
Johnson, Elke Sommer,
Sylva Koscina, Nigel
Green, Suzanna Leigh.
Ensk, íslenzkur texti,
Háskólabfó.
Eins og nafn myndarinnar
bendir til eru það að þessu
sinni konur, sem fremja glæp-
ina, þótt hðfuðpaurinn sé karl-
maður.
Eftir þeim aðferðum, sem
stúlkukindumar beita viö fram-
kvæmd glæpanna, að dæma,
virðist konan ekkert sérlega
kæn, þvi að langsótt og flókin
ráð eru notuð til að koma ein-
földum hlutum i framkvæmd.
Dæmi:
Manni beinlínis ofbýður, þeg-'
ar stúlkumar eiga að koma for-
stjóra nokkrum fyrir kattamef,
því að í stað þess að fara þar
troðnar slóöir, þregður ein
þeirra sér í flugfreyjulíki, smeyg
ir sér með kaffisopann inn til
forstjórans í einkaþotu hans,
tekur stóran vindil úr sokka-
bandi sínu og réttir honum.
Forstjórinn púar af hjartans lyst
en svo ríður af skot — úr
vindlinum, og í gegnum heila-
bú forstjórans. Flugfreyjan
fleygir hinum ytri klæðum og
stendur eftir á sundbol. Hún
setur síöan upp hjálm og spenn
ir á sig fallhlíf, stillir tíma-
sprengju, og stekkur út.
Fyrir neðan bíður önn-
ur fegurðardís, fáklædd að
sjálfsögðu, á hraðskreiðum báti
til að fiska stallsystur sína úr
sjónum.
Þetta er svo langt frá því aö
vera óskynsamlegasta atriðið 1
myndinni, sem f stuttu máli
sagt fjallar um mann nokkum,
sem hefur f þjónustu sinni her-
skara kvenna, og hjálpar hann
auðhringum að komast að hag-
stæðum samningum, með þvi aö
ryðja keppinautum þeirra úr
vegi.
Góöi , júdósérfræöingurinn,
sem sér um að glæpahyskið fái
makleg málagjöld, er að þessu
sinni leikinn af Richard John-
son, sem er einn af hinum hag-
stæðari kvikmyndahetjum
Breta. Hann gerir hlutverki
sínu sæmileg skil, en handrit
myndarinnar er svo fáránlegt
að tekur fu yfir allan þjófa-
bálk, enda virðast jafnvel höf-
und... þess hafa séð f hvert ó-
efni var komið, þvf að sjálf að-
alhetjan er sífellt að tönnlast á
því, hve atburðarásin sé furðu-
leg, og sannarlega er þá erfitt
að komast hjá að vorkenna hon-
um lítið eitt.
Þeási mynd á að sjálfsögöu aö
ver. ádeila á nýtízku glæpa-
myndir, en sú ádeila missir al-
gerlega marks, vegna þess aö
hún er ófyndin og ófrumleg.
Tvær kynbombur leika vondu
konurnar, Elke Sommer hin
þýzka, og Sylva Koscina hin
tékkneska. Hin sfðamefnda virð
ist hafa einhverja minniháttar
leikhæfileika til að bera, þótt
það kunni að vera misskilning-
ur, þvi ekki þarf mikið til að
standa sig vel við hliðina á
Elke Sommer.
HÁSKÓLABIÓ
Kæn er konan
(Deadlier than the Male)
Æsispennandi mynd frá Rank
í litum, gerð samkvæmt kvik-
myndahandriti eftir Jimmy
Sangster, David Osborn og Liz
Charles-Williams. Framleiðandi
Betty S. Box. Leikstjóri Ralph
Thomas.
öalhlutverk:
Richard Johnson
E'ke Sommer
Islenzkur texti.
Sýnd kl. j, 7 og 9.
Bönnuð bömum innan 16 ára.
HAFNARBÍÓ
Kvennagullið
kemur heim
Fjörug g skemmtileg litmynd
með hinum vinsælu ungu leik-
urum Ann Margret og Michael
Parks.
íslenzkur texti.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Drottning hinna
herskáu kvenna
(Prehistoric Women)
Mjög spennandi ævintýra-
mynd f litum og Cinemascope.
Martine Jeswick
Edina Ronay
Bönnuð yngri en 12 ára
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
LAUGARÁSBÍÓ
Darling
Með Julie Christie og Dick
Borgarde. — Endursýnd kl. 5
og 9.
íslenzkur texti.
AUSTURBÆJARBÍÓ
Tigrisdýrið
Sérstaklega spennandi frönsk
sakamálamynd.
Roger Hanln.
Bönnuö innan 16 ára,
Sýnd kl. 5 og 9.