Vísir - 22.08.1968, Síða 8

Vísir - 22.08.1968, Síða 8
8 VISIR Útgefandi: Reykjaprent h.f. Framkvæmdastjóri Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjómarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson Augiýsingastjóri: Bergþór Úlfarsson Auglýsingar: Aðalstræti 8. Slmar 15610 11660 og 15099 Afgreiðsla: Aðalstræti 8. Sími 11660 Ritstjóm: I íugavegi 178. Sími 11660 (5 llnur) Áskriftargjald kr. 115.00 á mánuði innanlands 1 lausasölj kr. 7.00 eintakið Prentsmiðja Vísis — Edda hi. Lofar ekki góðu Forustugrein Þjóðviljans s.l. þriðjudag var hugleið- ing út af þeim orðum iforsætisráðherra í sjónvarps- viðtalinu á dögunum, að samráðs mundi verða leitað við stjórnarandstöðuflokkana um lausn þeirra stór- felldu vandamála, sem nú blasa við þjóðinni. Svo sem vænta mátti gleymdi ritstjórinn ekki að taka fram, að meginástæða erfiðleikanna væri „röng og háskaleg stjórnarstefna á undanförnum árum“. Þessi þvætt- ingur hefur svo oft verið hrakinn með gildum rökum, að ástæðulaust er að eyða um hann mörgum orðum. Það er t. d. fáránleg fullyrðing, að „fjármunum þjóð- arinnar hafi verið sóað í stjórnlausa fjárfestingu“ á undanförnum árum. Þvert á móti hefur aldrei í sögu þjóðarinnar verið keypt meira af atvinnutækjum. En þótt meira fjármagni hefði verið varið til þeirra greina, sem stjórnarandstæðingar telja að hafi orðið út undan, mundi það ekki hafa komið í veg fyrir þau áföll, sem dunið hafa yfir þjóðina. Aflabresturinn og verðfallið eru meginástæðurnar. Það hlýtur hver heil- vita maður að sjá, og því er furðulegt að bæði Tíminn og Þjóðviljinn skuli halda áfram þessum blekkinga- vaðli. Það lofar sannarlega ekki góðu um árangur af viðræðum um samstöðu allra flokka til þess að sigr- ast á erfiðleikunum. Þá segir Þjóðviljinn að ráðherrann hafi „af umtals- verðum áhuga“ talað um „nauðsyn þess að auka er- lenda fjárfestingu hérlendis, enda þótt hann viti full- vel að stjórnarandstöðuflokkamir hafi beitt sér gegn þeirri stefnu og talið að landsmönnum sjálfum beri að hagnýta auðlindir sínar“. Allir kannast við afstöðu stjómarandstæðinga í stóriðjumálunum og hún ber ekki vott um glöggskyggni. Það er ekkert álitamál lengur, og hefui; raunar aldrei verið, að álbræðslu- samningurinn er íslenzkum efnahag mikil lyftistöng og framkvæmdirnar við Mývatn líka. Og vitaskuld ber að stefna áfram að fleiri slíkum framkvæmdum, ef kostur.er á að hagnýta á þann hátt meira af auð- lindum landsins. Stjórnarandstæðingar virðast halda að útlend auðfélög bíði í ofvæni eftir að þeim sé boð- ið upp á slíka samvinnu, en eins og forsætisráðherra tók fram í sjónvarpsviðtalinu, er síður en svo að því sé þannig varið. Hitt ætti öllum að vera Ijóst, að þess háttar framkvæmdir getum við tæplega ráðizt í, og allra sízt nú, nema erlent fjármagn komi að einhverju leyti til. Ekki verður séð, hvað væntanleg ákvörðun um það, hvort íslendingar skuli halda áfram aðild að At- lantshafsbandalaginu kemur við lausn þeirra vanda- mála, sem forsætisráðherra talaði um að leita sam- ráðs við stjórnarandstöðuflokkana um. Það er því undarlegt að ritstjóri Þjóðviljans skuli vera að blanda þessu tvennu saman. Og það lofar heldur ekki góðu um samstarfsvilja kommúnista. VI SIR . Fimmtudagur 22. ágúst 1968. AXEL THORSTEINSSON, aðstoðamtstjóri: Innrásin í T ékkósló vakíu / Yakubovsky yfirmaður hersveita Varsjárbandalagsins kveð- \ ur yfirmann hers Tékkðslóvakíu, er hersveitir Varsjárbanda- Ílagsins loks fóru frí Tékkóslóvakíu, ,að loknum heræfingum þar. Og nú er Yakubovsky komii.n aftur til Tékkóslóvakíu og allur heimurinn bíður eftir vvað næst muni gerast þar — 7 í kommúnistalöndunum — og ef til vill í öllum heiminum. T ) / Tþegar þetta er ritað (21/8 — innrásardaginn í Tékkósló- vakíu) er að sjálfsögðu ekki / unnt að gera sér grein fyrir l' hvað því veldur, að Sovétríkin \j og þau ríki sem þeim fylgja að \ málum gegn Tékkóslóvakiu, / tóku ákvörðun um að ráðast inn \ í Tékkóslóvai.íu, aðvörunarlaust til þess aö hernema landið né heldur er unnt á þessu stigi aö segja neitt um hvaö næst muni gerast, en kvíði mun hafa vakn að í margra hugum þjóðanna um alla heimsbyggöfna, hvort hér heföi það gerzt, sem af leiddi að þriðja heimsstyrjöldin yröi ekki lengur umflúin Þegar þetta er ritaö hafa ekki i, borizt áreiðanlegar fréttir um \ . blóðsúthellingar, né komin stað I festing á, að útvarpshúsið stæði ' í björtu báli, eins og fregn barst / um árdegis I gær, en um leið og sú frétt barst kom önnur ! / þess efnis að sovétflugvél hefði \ lent fullsetin hershöfðingjum og ' hefði þeim verið ekið við her- i vemd til Prag og í kjölfar þess ara frétta komu þær, að Kosy- gin forsætisráðherra Sovétríkj- ana hefði beðizt lausnar og Í! Grjetsko landvarnaráðherra og \ varð þá ljóst aö það sem nú ; hefir gerzt hefir leitt til stjórn- málalegs stórviðburðar heima fyrir í Sovétríkjunum. Og hvað getur þá ekki gerzt I löndum samherjanna? Skömmú eftir að fréttir höfðu borizt frá Prag um, að þeir væru j famir frá Kosygin og Grjetsko, i \ kom frétt frá Moskvu þess efn- I is, að fréttin frá Prag væri \ þvættingur. l Þegar stórviðburöir gerast er \ reynslan sú, að ýmsar fréttir / berast, sem styöjast við oröróm ) og kemur ekki i ljós fyrr en síö- ' ar hið rétta. Og oft getur verið ; fótur fyrir fréttum, sem bornar eru til baka, og að því er varöar I þá Kosygin og Grjetsko, kem- ( ur vafalaust eitthvað í ijós fyrr en varir, hvort staða þeirra er jafn traust og hún virtist vera, fyrir innrásina. Hér ve.ða nú birtar í yfirliti helztu fréttir, sem bárust í gær eftir að blaðið fór í prentun, þar sem sumt varpar ljósi á ýms atriöi og kann að verða til glöggvunar á því, sem gerö- ist í nótt (aðfaranótt fimmtu- dags) og í morgun. OSLÓ: Haft var eftir Per Bort en forsætisráöherra, aö ríkis- stjórnin væri skelfingu lostin yf- ir þvi, sem gerzt hefur í Tékkó- slóvakíu og væri það jafnvel enn verra jn menn höfðu óttazt. Hann kvað ríkisstjórnina hafa samband við hinar Norðurlanda- stjómirnar um málið. LONDON: Stjórnarfundur var haldinn í London, en Wilson kom heim úr sumarleyfi sínu á Scillyeyjum í skyndi, vegna inn- rásarinnar. Hann ræddi við John son Bandaríkjaforseta í gær. Michael Stewart utanríkisráö- herra kom einnig heim f skyndi úr sumarlevfi og sagöi: Þetta eru mjög alvarleg tíðindi og einkum vegna þess, að þetta gerist á þeim tíma, er skilyrði virtust fyrir hendi til bættrar sambúðar austurs og vesturs. — Lögreglan í London brá við snöggiega til ýmislegra örygg- isráðstafana til vemdar sovézk- um eignum I London og var öfi- ugur vörður settur viö sovézka sendiráðið við Kensington Gard- ens. Almenningur fékk ekki að göngu aö sendiráðum Sovétríkj- anna og Tékkóslóvakíu. PRAG: Líkur voru vaxandi aö í odda skærist, einkum voru horf- ur ískyggilegar við Útvarpshús- iö, sem sovétlið hafði umkringt og hertekió. Fréttir ,oru birtar um aö það hefði verið skotið á fólk, er par satnaöist saman og það i efði lagt á flótta. Sovétlið var sagt hafa hertekið land- varnaráðuneytið. — Sagt var frá fundi miðstjómar Kommún- istaflokks Tékkóslóvakfu, í bygg > ingu, sem hernumin var. BONN: Dr. Kiesinger kanslarí Vestur-Þýzkalands vítti í gær , innrásina sem augijóst brot á sjálfstæði Tékkóslóvakiu og ■ þingið samþykkti ályktun sama efnis og vftti brotið og íhluturi- ina um innanríkismál Tékkó- slóvakíu. PRAG: Reyksúlur sjást risa . víða í borginni. Fólk lætur and- úð sína í ljós með ýmsu móti. Kommúnistaflokkurinn hefir. birt yfirlýsingu þar sem segir, :■ aö þetta sé í fyrsta sinn, í sögu , alþjóöakommúnismans, sem, kommúnistarfki hafi gert sig sekt um ofbeldisverknað gegn öðru kommúnistariki. „Vér krefj umst brottflutnings herliðsins tafarlaust“. — Staðfest er, að? tveir menn hafa verið drepnir. — Dubcek er enn í skrifstofu sinni. LONDON: Settur sendiherra , Tékkóslóvakíu f London sagði, í gær: „Við lítum á það sem, gerzt hefur sem innrás. Við gerð, um ráð fyrir, að Sovétrfkin hefðu „nægilegan styrk til þess að þola h:8 frjálsa orð, en þeir drápu þessa von í nóit og banda menn þeirra“. Þetta færir okkur heim sanninn um það, að frelsi og kommúnismi eiga ekki sam- leið. BRUSSEL: í aðalstöð Norður- Atlantshafsbandalagsins, Shape, er viðbúnaður vegna hvers sem fyrir kann að koma. OSLÓ: Miðstjóm Verkalýðs- flokksins norska hefur birt til- kynningu í gær þar sem skor- að er á sovétstjómina „á þess- um sögulegu tímamótum" að/ kveðja burt frá Tékkóslóvakiu allt hemámsliðið, og þvf er mót- mælt að fimm Varsjárbandalags-. lönd skuli hafa notað sáttmála . þess sem átyllu til fhlutunar um innanríkismál Tékkóslóvakiu. Minnt er á, að mótmælt hafi ver iö innrás Hitlers f Prag 1939, er Rússar sendu her manns inn I Ungverjaland 1956 til þess að bæla niður frelsishreyfingu — og „vér mótmælum nú". PRAG: Czteka birtir frétt um, að sovézkir hermenn hafi neytt ritstjóra Rudo Pravo til þess aö yfirgefa skrifstofu sína. — Mikil andúð var látin í ijós í Osló í gær fyrir utan sovézka sendi-. ráðiö. — Norsk blöð víta inn- rásina harðlega. PRjiG: Vestur-þýzk ungmenni sem tala rússnesku spurðu rúss- • neska hermenn af hverju þeir væru korr ’ir. „Við erum komn- • ir til þess að frelsa ykkur, frelsa ykkur frá Vestur-Þjóðverjum, eins og við frelsuðum ykkur 1945“. LONDON: Neðri málstofan hefur verið kvödd til fundar til þess að ræða innrásina. Rfkis- stjórnin hefir birt yfirlýsingu og fordæmt hana. PRAG: Nokkrir Tékkar eru sagöir hafa verið drepnir .1 Pils- en 80 km. suðvestur af Prag hefur útvarpið birt frétt um að 25 menn hafi verið drepnir í átökum s. jan innrásin hófst. Brezk fréttastofa segir að sovét liðið virðist hafa fengið fyrir- skipun um aö komast hj$ blóðs úthellingum. AU STUR-BERLÍ N: Austur- þýzki kommúnistaflokkurinn hefur birt tilkynningu, þar sem segir, að „vissar persónur i Tékköslóvakíu hafi beðið um hernaðarléga aðstoð". OSLÓ: jAS hefur frestað öll- um flugferöum til Prag. G

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.