Vísir - 23.08.1968, Side 13
VlSIR . Föstudagur 23. ágúst 1968.
13
Gert grein fyrir
kaupum á
Thorvaldsens-
stræti 2
Mikil blaðaskrif hafa orðið út af
kaupum póst- og símamálastjóm-
arinnar á fasteigninni Thorvald-
sensstræti 2 í Reykjavfk. —
Nú hefur stjómin sent frá sér
eftirfarandi greinargerð:
Núverandi símahús við Thorvald-
sensstræti 4 var byggt fyrir 37
árum og var staðsett í miðju
Reykjavíkur, þar sem flestir sim-
ar voru þá þar í kring. Þetta hús
er löngu orðið of Mtið og hefur
orðið að flytja ýmsar deildir í
leiguhúsnæði á aðra staði í bænum,
þótt það væri mun óhagkvæmara.
Þegar borgin byggðist langt austur
_ á við, var byggð, önnum símstöð
við Grensás fyrir þá símnotendur,
er búa þar í kring, og era rúmir
4 km á mil'fi stöðvanna, vegna vax-
andi viðskipta (svo sem tvöföldun
notenda á 10 áram) hefur orðið að
auka húsrýmið og er nú verið að
reisa viðbyggingu á Thorvaldsens-
stræti 6. Er nú aðeins um frekari
stækkanir að ræða þama með fram-
tfðarbyggingu að norðanverðu, á
Thorvaldsens s træti 2, þvl að of
idýrt þótti að fcljúfa miöbæjarstöð-
im f tvennt, þ. e. a. s. hafa hana
á tveimur stöðum í miðbænum.
LóJBn er 601,8 fermetrar að
stærð og brenabótamat hússins sem
»á henni stendur og er vel við
, haldið er rúmlega 12 milljónir kr.
Stærð lóðasr í miðbænum er ekki
eina atriðið sem máli skiptir varð-
andi verðmætið heldur m. a. hve
mikið má byggja á henni eða hve
stóran samanlagðan gólfflöt má
byggja á henni o. fl.
Ríkisstjómin keypti á sfðasta ári
fasteignir við Kirkjustræti (nr 8,
8b og 10) að sunnanverðu gegnt
sfmahúsinu. Áður hafði hún látið
fara fram mat á þeim og var
sá grandvöllur lagður við matið
að hver feraietri lóðar var met-
inn á kr. 12150, en timburhúsin
á þeim, Kirkjustræti 8 (57 ára gam
alt) á 57% af brunabótaverði, en
hin sem vora eldri á 40% af
branabótaverði. Á fasteignunum
við Kirkjustræti var veittur 10
ára gjaldfrestur á helmingi verðs-
ins og var hver fermetri lóðarinnar
þá hækkaður úr kr. 12150 í kr.
13700 og húsin tilsvarandi.
Sami grundvöllur var notaður
við mat fyrir kaup pósts og sfma-
málastjómarinnar á lóðinni Tor-
valdsensstræti 6 og Thorvaldsens-
stræti 2.
Verð lóðar og húss Thorvald-
sensstræti 2 varð kr. 16.243.000 og
er þá miðað við að milljón kr.
greiðist viö undirskrift samnings,
2,619 millj. kr. 6 mánuðum síðar
og afgangurinn á 10 árum.
Ef nauðsynlegt hefði orðið að
leita annars staðar fyrir framtíðar-
aukningu miðbæjarstöðvarinnar
hefði það valdið miklum aukakostn-
aði, m. a. vegna aukinna jarðsíma
milli stöðva, sjálfvirks búnaðar fyr-
ir millistöðvaafgreiðsluna, aukins
gæzlukostnaðar og margs konar
annars óhagræðis.
Taka má fram, að áður en kaup-
in voru gerð hafði itarleg könnun
farið fram á fasteignakaupum f
miðbænum að undanfömu og var
það sameiginlegt álit allra sem
um málið fjölluðu að hagkvæmt
væri fyrir póst- og símamálastjóm-
ina að gera þessi kaup.
W'" •• »N NNN SV NNNNNNN:<»NNy>S v s •• *• vw s v nww • •. V.
■ ■■: ■.•'
tIIÍI
Þessi silast hægt og þunglamalega eftir Hringbrautinni á rangri akrein. Jafnvel atvinnubílstjórar
I virðast ekki haf!> lært ennþá að aka á „réttri“ akrein.
Herferð gegn vinstri akreinavillu
■ Frá þvf hægri umferð gekk
í gildi hefur allmikið borið á
því, að ökumenn aki að ástæðu-
lausu á vinstri akrein, þar sem
tvær eða fleiri akreinar era fyr-
ir sömu akstursstefnu. Hefur
þetta oft og tíöum haft í för
með sér mikið óhagræði og vald-
ið umferöartöfum, þegar tvær
eða fleiri bifreiðir aka samhliða
neðan við eðlilegan umferðar-
hraða. Einnig getur það hent, að
sá ökumaður, sem langtfmum
saman ekur á vinstri akrein,
finnst hann aki í vinstri umferð
og getur það orðið til þess, að
hann falli í „vinstri villu“ í um-
ferðinni.
■ Lögreglan í Reykjavfk og
Umferðamefnd Reykjavíkur hafa
ákveðið að beita sér gegn þessu
vandamáli og munu lögreglu-
þjónar verða næstu daga \dð
þær götur, sem skipt er með
akreinum til að leiðbeina öku-
mönnum um rétt val akreina.
Munu þeir stöðva þær bifreiðir,
sem telja má að ekið sé að á-
stæðulausu á vinstri akrein og
afhenda ökumönnum þeirra
leiðbeiningabækling um akstur á
akreinum, sem fyrmefndir aðil-
ar hafa gefið út.
»:':->í\wW.y.Wft^!NV.»VAw.^\v.^ww.w<*x.w*,'V.'*."VAVA,Aswww.y,w>Nv.y.sr.v.wv.\W'V,sw.yAw,',vNNv,‘,v,vAv,v.%V'Nx.y.^\w
Föstudagsgrein -
-> 9. síðu.
Tjess er skemmst að minnast,
að íslenzkur rithöfundur
skrifaði skáldsögu að jólabók,
sem átti að túlka fyrir okkur,
hvemig Bandaríkjamenn ætluðu
að undiroka íslenzku þjóðina.
Hann talaði þar um urr í víg-
vélum, baseball-leik skólafélaga
á leikvellinum, sjónvarpsnetin
yfir þökunum, hátalara sem til-
kynntu „Attention please“.
Loks var íslenzka þjóðin orðin
útlæg í eigin landi. Okkur
fannst þessi bók í fyrstu fjar-
stæöukennd, en nú sjáum viö
að hún var meira en það. Hún
lýsir þeim atBurðum sem nú era
að gerast í Tékkóslóvakíu, nema
hún snýr hlutunum við. Hún
rægði-þá sem voru saklausir til
að skýla lyginni. $íðan hefur
þessi sami höfundur haldiö
margar ræður til dýrkunar á
Rússastefnunni. Þannig er lygin
dýrkuð meö útúrdúrum og með
því að s núa öllum hlutum á
hvolf.
En er þetta nokkuð einstakt?
Frægasti og mesti rithöfundur
þjóðarinnar viðurkenndi á end-
anum, að hann hefði í tuttugu ár
vfsvitandi haldið lyginni að
sinni saklausu íslenzku þjóð. Og
þó var hann ekki iðrunarfyllri
en það, að hann afgreiddi sína
eigin forsmán með léttum
brandara: „Ég hélt, að Eyjólfur
myndi hressast". Þetta var sem
sagt bara til að hlæja að því.
T rauninni er þetta svo skelfi-
legt ástand fyrir okkar eigin
þjóð, að manni liggur við að
örvænta. Hvert verður framhald-
ið af hinni islenzku dýrkun lyg-
innar? Hvaða „ónafngreindar
persónur“ meðal íslenzku þjóð-
arinnar eru reiðubúnar í fram-
haldi af þessari skurögöðadýrk-
un sinni að æskjá „frelsunar?"
Hitler sagði á sínum tíma,
þegar hann var varaður við þvi
hvaða áhrif innrásin f Tékkó-
slóvakíu hefði á almenningsálit-
ið í heiminum: „Blessaðir hafið
ekki áhyggjur af því, heimurinn
verður búinn að gleyma þessu,
eftir hálfan rnánuð".
Hvað verður, þegar hálfur
mánuður er liðinn frá hinu
rússneska hernámi Tékkósló-
vakíu? Verður heimurinn þá bú-
inn að gleyma þvi alveg eins og
hann gleymdi svo fljótlega at-
burðunum í Ungverjalandi á
sínum tíma. Verður þá hægt að
halda áfram í íslenzku blaði
sömu lofgerð lyginnar?
Þorsteinn Thorarensen.
Þegar umferðin er þung er eðlilegt að báðar akreinar séu notaðar, en þeir sem telja sig þurfa að
„taka það rólega“ eiga að velja vinstri akreinina, jvo að þeir sem þurfa að flýta sér komist áfram.
TIL ÁSKRIFENDA VÍSIS
Vísir oendir áskrifend>m sínum á að hringja í afgreiðslu blaðsins fyrir kl. 7 að kvöldi,
ef þeir hafa ekki fengið blað dagsins. Hringi þeir fyrir kl. 7, fá þeir blaðið sent sérstak-
lega ti) sín og samdægurs. Á laugardögum er afgreiðslan lokuð eftir hádegi, en sams
konar símaþjónusta veitt á tfmanum 3.30 —4 e.h.
Munið uð hringju ffyrir klukkun 7 í símu 1-16-60