Vísir - 20.09.1968, Blaðsíða 1

Vísir - 20.09.1968, Blaðsíða 1
VISIR 58. árg. — Föstudagur 20. september 1968. - 211. tbl. 4 érn drengur slnsnsf í bílslysi Fjögurra ára drengur varð fyrir bfl á Reykjanesbraut í gærkvöldi og slasaðist mikið lærbrotnaði og viðbeinsbrotnaði. Drengurinn hafði verið að leika sér á þrihjóli við veg- inn þar sem hann liggur fram hjá Ytri-Njarðvík, þegar slysið varð. Liggur hann nú á sjúkrahúsinu i Keflavík. SÍLDIN LÉT EKKI SJÁ SIG Á MIÐUNUM í NÓTT Almenn bjartsýni rikir þó fyrir austan — „Vid s'óltum upp i samninga", segir Ólafur Óskarsson *»> Síldin fór í feluleik við veiðimenn á miðunum í nótt. Hún hafði ekki fundizt I morg un, þegar síðast fréttist. — IVIenn voru þó aimennt bjart- sýnir um, að hún léti sjá sig með kvöldinu, en enginn bát- ur fékk afia í nótt. Síldin þokast þó jafnt og þétt suður á bóginn, en það er ekki nóg, ef hún lætur ekkert á sér bæra. Blaðið hafði í morgun sam band við söltunarstöðvar á Norð firði og Seyöisfirði og var þar sö.Itun f fullum gangi. Á Norðfirði er búið að salta um 1200 tunnur, en á Seyðisfirði er búið að salta um 2500 tunnur. Ólafur Óskarsson á Seyðisfirði segir, að örugglega verði saltað upp f samninga í ár og geti menn vissulega verið bjartsýnir. Síldin, sem að undanfömu hefði verið komiö með til sölt- unar væri öll ísuð og i alla staði mjög væn. Aðspurður um, hvort aðkomufólk væri farið að koma til Seyðisfjarðar, sagði Ólafur að reynt yrði eftir megni að fá allt heimafólk, sem fyrir væri, en síðan yrði fengið að- komufólk ef nauðsyn krefði. SILIKON-STÓRIDJA A ÍSLANDI? Rætt v/ð Jóhann Hafstein idnaðarmálaráóherra, sem kominn er heim frá Sviss — Framkvæmdum v/ð Búrfell og i Straumsvik verður liklega hraðað um þrjú ár — Athuganir á frekari stóriðju, sjóefnavinnslu og silikon- frek og hagkvæmt að virkja vatnsafi til hennar. — Annars var einn helzti ár- angur ferðar minnar sagði iðn- aðamálaráðherra, að góðar horf- ur eru á, að uppbyggingu sfðari áfanga álbræðslunnar í Straums m-* 10. sfða. — í Sviss átti ég viðræð- ur um hugsanlega bygg- ingu verksmiðju til vinnslu á silikon-málmi, sagði Jóhann Hafstein ■.V.'.V.’.VV.V.V.V.V.V.V.V :■ Skemmtilegur fj'ól- ;I •’ skylduviðburður: í :i Systur eignuðust :• ■: börn sín suntu í duginn jí Fæðingarheimilið á Eirlksgötu:í «[ber nafnið með rentu. Þegar»J J'komið er inn fyrir dyrnar er þarj; *,einkar heimilislegt andrúmsloft. -ÍFrá göngunum berast lágværar •Jsamræður og þegar inn er kom- Jtið er stemningin sú, sem fylg- •Jir alltaf litlum bömum. Það er J'verið að hjóla þeim í rúmunum ksínum í stofuna sína frá mæðr- •Junum, sem voru nýbúnar að V gefa þeim. Á stofu níu eru tvær ■’mæður með bömin sín og blaða- 10 siða vinnslu, sigla hraðbyri iðnaðarmálaráðherra í viðtali við Vísi í morg- un, en hann er nýkom- inn til landsins frá við- ræðum í Sviss um frek- ari stóriðju á íslandi. — Það er japanskt fyrirtæki, Showa Denko, sem hefur áhuga á slíkri verksmiðju. Fulltrúar þess voru á fslandi í maí s.l. og einnig hefur Eirikur Briem Landsvirkjunarstjóri verið í Japan til að ræða þetta mál. Upphaflega var það Vilhjálmur Þór, bankastjóri við Alþjóða- bankann, sem átti frumkvæöi að því, að þessi möguleiki yrði athugaður, sagði Jóhann Haf- stein. — Vinnslan yrði að ýmsu leyti hliðstæð álvinnslunni. Flutt yrði inn málmgrýti og unninn úr því silikon-málmur. Þessi vinnsla e‘r gífurlega orku- Geðdeild fyrir börn við Dalbraut Kunnur aflaskipstjóri lætur lífið á miðunum Sá hörmulegi atburöur gerðist á síldarmiöunum í gærmorgun að hinn kunni aflaskipstjóri, Víðir Sveinsson, lét lífið um borð í skipi sínu, Jóni Garðari. Engar fréttir hafa borizt um það, hvernig at buröinn bar að, en skipherrann á varðskipinu Óðni sendi skeyti til lands, en læknir er um borð í Óðni og kom hann fljótlega á vettvang. Margt þykir benda til þess, að Viöir hafi látizt af slysförum, en ekkert skal fullyrt um það, vegna þess hve talstöðvarsamband var lé legt. Jón Garðar er nú á leið til lands og er væntanlegur til Sand- gerðis um helgina. Víðir hefur ver- ið skipstjóri á Jóni Garðari frá upp hafi og ætíð verið í fremstu röð aílamanna hérlendis. Víðir Iætur éftir sig konu og börn. Félagsmálaráð leggur til að hluti upptóku- heimilisins verði nýttur i þvi skyni B Félagsráð Reykjavíkur hefur stungið upp á því að sá hluti upp- tökuheimilisins við Dalbrf-.ut, sem ekki er fullgerður, verði not- aður sem geðdeild fyrir böm og unglinga. Þar verði komið fyrir bráðabirgðahúsnæði fyrir börn og unglinga með geðræna sjúkdðma og meiri háttar hegðunarvandkvæði. í ályktun ráðsins er sagt, að ekki megi dragast lengur að stofnuð verð: sjúkradeild fyrir þessi börn. Ljóst er, að ekki er rekstrar- grundvöllur fyrir nema eina slíka stofnun í landinu, segir í ályktun- inni. Því er nauðsynlegt að skapa frá upphafi starfs og rekstrartengsl viö aðrar sjúkradeildir, sérstaklega almennan barnaspítala, geðsjúkra- hús, taugasjúkdómadeild, röntgen- deild og fávitahæli. Vegna þess, hversu aðkallandi lausn þessa vanda er, hefur ráðið rætt hugsan- lega bráðabirgðalausn. Þó að ráðið bendi á þann mögu- leika að nota hluta upptökuheimil- isins við Dalbraut, er því ljóst að þörfum borgarinnar fyr- ir upptökuheimili er ekki full- nægt eins og er og telur nauðsyn- legt að jafnframt verði unnið að lausn þess máls. Félagsmálaráð beinir því þeim tilmælum til borgarstjóra, að tekn- ar verði upp viðræður milli rfkis og borgar um lausn þessa mikla vanda, er varðar heilbrigðis- og barnaverndarmál alls landsins. Aðvaraði fyrst þjófinn, hringdi svo í lögreglu — Innbrotafaraldurinn heldur áfram — Þrjú innbrot i nótt Tvær hamingjusamar mæður og systur, þær Sóiveig og Eiín Eyjóifsdætur með börnin sín • Innbrotsþjófar hafa heldur bet ur látið hendur standa fram úr ermum undanfarna daga eins og komið hefur fram i fréttum. í nótt héldu þeir uppteknum hætti og var brotizt inn á þremur stöðum í borg- inni. Brotizt var inn í veitingastaö inn Sigtún, stolið þaðan 20 flöskum af áfengi og tóbaki, í mjólkurbúð- ina að Sólhcimum 35 og stolið það an nokkur hundruð krónum í skipti mynt og Ioks var brotizt inn í geymslu við Laugaveg 53A og ein- hverju stolið þaöan. Lögreglan hefur beint þeim til- mælum til borgaranna, að þeir geri henni viðvart, ef þeir verða varir við grunsamlegar mannaferðir, sér- staklega um nætur. Kona, búsett í Veltusundi, varð vör við ferðir þjófsins við Sigtún, en hún hefur eitthvað misskilið hvernig bezt sé að bera sig að, þegar innbrotsþjót ur er annars vegar. Hún vaknaði um kl. 5 í nótt við brambolt úti á götu. Þegar hún leit út sá hún mann vera að bauka eitthvað við bakdyr Sigtúns, en hann gekk nær þegar upp Brekkugötu. Hún hugs aði þvf ekki meira út í þetta, en hálfri klukkusund seinna vaknaði hún aftur við brambolt úti á götu og sá aftur sama mann við bak- dys Sigtúns. Hún opnaöi glugga, kallaði til mannsins og spurði hvað hann væri að gera. Maðurinn þreif þá upp hvítan poka, setti hann á bak sér og hljóp á braut. Eftir að -hafa varað þjófinn við, hringdi kon an í lögreglu og tilkynnti um innbrotið, en að sjálfsögðu var fuglinn floginn, þegar hún kom á vettvang.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.