Vísir - 20.09.1968, Blaðsíða 7
V1SIR . Föstudagur 20. september 1968,
7
Jiri Hajek baðst
lausnar í gær
Oldrich Cernik forsætisráðherra gegnir störfum
utanrikisráðherra til bráðabirgða
9 Hin oninbera tékkneska
fréttastofa tilkynnti í gær, að
Jiri Hajek utanríkisráðherra hafi
beðizt lausnar.
Sovézkum árásum hefur ver-
ið haldið áfram á hann daglega
að undanförnu.
Svoboda forseti hefur beðið
Oldrich Cernik forsætisráðherra
að gegna störfum utanríkisráð-
herra um stundarsakir.
Sagt er, að í bréfi, sem Hajek
skrifaði forsetanum, hafí hann
óskað eftir að fara frá þegar í
stað.
Hajek var einn af þremur ráö-
herrum, sem Rússar kröfðust aö
létu af störfum í Moskvuviðræðun-
um fyrir þremur vikum. Hinir tveir
voru Ota Sik, aðstoðarforsætisráð
herra, en talið er að hann hafi ver-
ið skipaöur verzlunarmálafuiltrúi f
tékkneska sendiráðinu í Belgrad.
Hinn ráðherrann var Josef Pavel
innanríkisráöherra, sem setztur er
í helgan stein.
Ekki er vitaö með vissu, hvað Haj
ek tekur sér fyrir hendur, en talið
er, aö hann muni sækja um prófess-
orstöðu í Karlsháskóía í Prag.
Humphrey var / gær heitið stuðningi talsmanns
verkamanna, en óttast er að margir verkamenn
bregðist i kosningunum
• George Meany, formaöur hinna
samtengdu verkalýðssambanda
Bandarikjanna AFL CIO, hefur birt
einróma ályktun sambandsstjórnar-
. innar, sem 125 menn eiga sæti í,
■ en ályktunin felur í sér áskorun til
: þeirra 13,5 milljóna verkamanna,
' sem í samböndunum eru, að kjósa
1 Humphrey í forsetakosningunum,
1 sem í hönd fara, og Edmund Muskie
; varaforseta.
Meany sagði, að sameiginlega
gætu þeir Humphrey og Muskie
treyst grundvallarskipulag, sem
væri bandarískri verkalýðshreyf-
ingu mikilvægt á komandi tíma.
Meany hefur alla tíð verið mikill
stuöningsmaður Humphreys.
Hann lýsti Nixon sem manni,
sem hefði gert samkomulag við
öfl, sem vildu aöskilnað hvítra
manna og hörundsdökkra, og hélt
því fram, að'í stefnuskrá republik-
ana væri ekkert tillit tekið til
krafna verkalýösins.
Annars leggur Meany mikla á-
herzlu á, að stimpla George Wall-
ace sem höfuðforsprakka þeirra
manna, sem ekki vilja unna blökku-
mönnum almennra mannréttinda. í
fyrsta skipti síðan 1948 er um for-
setaefni. að ræða, sem gengur út í
bardagana undir merki hatursins,
sagði Meany. Hann kvað hann ekki
hafa upp á neitt annað aö bjóða.
Hann kvað verkalýðinn hafna al
gerlega þeirri staðhæfingu Wallace,
að hann væri vinur verkalýðsstétt-
þetta orðið til þess að skerða veru-
lega fylgi demokrata.
Humphrey berst nú fyrir póli-
tískri framtíð sinni. Hann hefur
sjálfur minnt á hversú horfði fyrir
Harry S. Truman, baráttuna sem
leiddi til, að hann sigraði í kosn-
ingu 1948, en viö þeim sigri hafði
engnn búzt. ,,Ég var sama ár kjör-
inn öldungadeildarþingmaður,"
sagði Humphrey í fyrradag, „og viö
munum endurtaka þetta.“
George Wallace.
anna.
En þessi stuðningur sambands-
stjórnar mun ekki hindra, að mikill
fjöldi verkamanna mun kjósa Wall-
ace. — Skoðanakannanir hafa að
minnsta kosti leitt í ljós mikið fylgi
hans meðal verkamanna, og gæti
morgun
útlönd í morgun
útlönd í morgun
útlönd í morgun
útlönd
HUMPHREY 0G NIXON GEFA
GEORGE WALLACE NÁNAR GÆTUR
För Dubceks tíl
Moskvu frestuð
För Dubceks aðalritara tékkneska arnir Husak og Spacek. Æðstaráð
kommúnistaflokksins til Moskvu
var í gær frestað á síðustu stundu.
Menn ætla, að þetta gefi til kynna,
að Rússar hafi meiri áhuga á við-
ræðum við einhverja aðra tékk-
neska ráðamenn, heldur en Ðub-!
cek.
Þeir sem fara áttu með Dubcek
til Moskvu og taka þátt í viðræðun-
um voru Svoboda forseti, Cernik
forsætisráðherra og flokksleiðtog- j
/wwwwwwvwww
tékkneska kommúnistaflokksins
minntist ekki á þetta fyrirhugaða
ferðalag eftir fund sinn f gær.
Nixon fagnað í Chicago
Nixon er hvarveína vel fagnað, þar sem hann kemur á kosningaferðalögum sínum, eins og getið ,
hefur verið hér í blaðinu, og hér er mynd af kom u hans til Chicago, borgarinnar miklu við Stóru ,
vötnin, en þar var flokksþing demókrata háð — umkringt lögregluliði og herliði gráu fyrir jámum. j
’Bandaríkin draga
stórlega úr f júr-
veitingum til
annarru landa
Fjárveitinganefnd fulltrúa-
deildar Bandaríkjaþings skar í
gær stórlega niður frumvarp
stjórnarinnar um fjárhagsaðstoð
við önnur lönd. Nefndln sam-
þykkti sfðan frumvarp, þar sem
öðrum löndum er ætlaður minni
styrkur en nokkru sinni fyrr á
þeim tuttugu árum, sem liðin
eru síðan Bandaríkin hófu styrk-
veitingar til annarra landa.
/WWWNWWWVWVAAA/
LEIÐRÉTTING: I greininni á 8.
síðu í gær átti aö standa: .. verið
að vinna í Potsdam-skilmálann til
stuðnings þeirri skoðun, að Sovét
ríkin hafi rétt til að grípa inn f
hernaðarlega • í Vestur-Þýzkalandi"
o. s. frv.
NÝJA DEHLI: Átta menn biðu bana
og mörg hundruð meiddust í sólar-
hringsverkfalli opinberra starfs-
manna, sem krefjast bættra kjara.