Vísir - 20.09.1968, Side 4

Vísir - 20.09.1968, Side 4
 s í ðan s Alana og George. George Hamilton í klípuP Hvað í ósköpunum var George Hamilton að „meina“ með því aö leiða stúlkuna við hönd sér? Hin leggjalanga tízkudama frá Texas, Aiana Collins, fylgdi hetjunni eftir, hvert sem hún fðr. Þau skötuhjúin skoðuðu sig um á Italíu, frá Rómaborg til eyjunnar Caprí. Eins og venja er við slík taekifæri, lýsti George Hamilton því yfir, að þau væru aðeins góð ir vinir. Raunar var hún, að sögn hans, að sýna honum nýjustu tízku á Ítalíu. Hamilton er nefni lega í kiipu, ef svo mætti segja. Hann er „tilneyddur" að setja á fót fjölda tízkuverzlana I New York, Kaliforníu og í Evrópu. Ann ars tekur Sámur frændi, það er Bandaríkjastjórn, drjúgan skild- ing úr vasa leikarans af tekjum hans af sjónvarpsmyndinni „The Survivors“ (þeir, sem eftir lifa),. sem sýnd- verður í Bandaríkjunum j I haust. < Kvenfrelsiskonur segja ungfrú Ameríku stríð á hendur „Engin ungfrú Ameríka fram- ar.“ Þannig hljóðar boðskapur kvenfrelsissamtaka í Bandaríkjun um. Mátti lesa þetta í flugriti þeirra. Mótmælin koma frá hópi reiðra kvenna undir forustu Robin Morgan, 27 ára. Hún er húsmóðir og hefur dundað viö kveðskap. Frelsiskonumar líta þannig á málið: Ungfrú Ameríka er dæmi kynþáttamismunar með rósum, hún er verndargripur fallinna á vígvellinum. Enn fremur táknar hún þá hugmynd „pop“menning- arinnar, að tæta í sundur og fleygja síðan. Fegurðarsamkeppnin fór fram i samkomuhúsi í Atlantic City. Hin ar mótmælandi konur hópuðust fyrir utan húsið og skoruðu á alla að fleygja í ruslafötu eina mikla „brjóstahöldurum, magabeltum, krullum, fölskum augabrúnum, hárkollum og eintökum af spillt um kvennablöðum." Harðhentir lögregluþj ónar Það er óþarft að rifja upp hér sögur um mótmæli og óeirðir í Bandaríkjunum hina síöustu mán- uði. Æska landsins virðist vera í uppreisnarhug, og er henni ekki sérlega hlýtt til lögreglunnar. Er flokksþing demókrataflokksins var haldið I Chicago til þess að velja forsetaefni flokksins, urðu miklar óspektir fyrir utan þing- húsið. Áttu hippíar og jippíar þar £ höggi við harðsnúið lið lögreglu og þjóðvarða. Blaðamenn og ljós- myndarar urðu fyrir kylfuhögg- um iaganna varða, þegar þeir snerust gegn mótmælendum. Borg arstjórinn I Chicago, Daley, lá undir ámæli fyrir afskipti lögregl unnar, sem margir vildu telja að hefði komiö óeirðunum af stað með hrottaskap. Borgarstjórinn hefur svarað fyrir sig með þvi að láta birta kvikmynd, sem sýn- ir atburðina og er ætlað að sanna, að lögreglan hafi hagað sér með mesta sóma. Hvaö sem þessum málum líður halda stúdentar og aðrir æskumenn áfram aö reita lögregluna til reiði í ýmsum borg um Bandaríkjanna. Samtímis leggja allir frambjóöendur til for seta áherzlu á „lög og reglu“ í landinu. Æskumenn hefðu senni- lega fremur kosið þá McCarthy og Rockefeller en Nixon, Humphr ey og Wallace. Þess vegna láta þeir nú öllum illum látum. Þó er ekki augljóst, hvað ungmennin vilja. Þau vilja bara fá „eitthvaö nýtt.“ Ef tll vill hefur lögreglumönnunum ekki þótt neitt að því að koma nálægt þessari þokkagyðju, sem var í fararbroddi í stúd- entaóeirðunum i Bandaríkjunum. Verður hætt við allt slíkt „stúss“? Innrásarherinn skemmtir sér Innrásarlið Sovétríkjanna og fylgirikja þeirra hefur nú hreiðr- að um sig í hinni hrjáðu Tékkó- slóvakíu. Leiðtogar hins her- numda lands hafa neyözt til að vera Rússum eftirlátir og komið á ritskoðun aö nýju. — Á meðan er allt gert, sem unnt er, til þess að Rússum leiðist ekki vistin og fái ekki eftirþanka. Þyrilvængja sveif yfir Prag eins og stærðar skordýr. Ungar stúlkur I „mini“ pilsum sátu á milli fóta harð- gerðra hermanna. Þær þóttust vera aö læra að fljúga, á milli þess, sem þær skríktu og flissuðu, er hermennimir klipu þær. í ná- grenninu lágu ungir Tékkar I gras inu ásamt rússneskum hermönn- um, skoöandi vélbyssur þeirra og leikandi sér með byssustingi. Til þess að leggja enn frekari á- herzlu á vinsemd sína héldu Rúss arnir sýningu með þátttöku söngv ara og brjóstmiklar, ljóshærðrar dansmeyjar á leikvelli í Prag. Tékkarnir sýndu fyrirlitningu sína með því að koma þar hvergi nærri. Rússnesk dansmær Tékkóslóvakíu. íþróttaspjall Heimsókn Benfica-manna frá Portúgal hefur vakið athygli og ánægju allra áhugamanna um knattspyrnu og raunar fleiri, þv£ ýmsir sem annars aldrei fara á völlinn, þeir bregða sér til aö horfa á slika garpa, sem getið hafa sér orðstir úti um allan helm. Fyrirfram var mik- ið bollalagt, hvort hér væri ekki um hreinan bamaskap aö ræða, og aöeins endurtekning á 14: 2 leik eins og gegn Dönum sæll- ar minningar. En aðrir töldu slik an leik sjálfsagðan, þó ekki væri nema til að siá með elgin augum þvilíka kappa. Og auðvitað eru allir himin- lifandi yfir árangrinum, að ná jafntefli við þessa fræknu at- vinnumenn, en nokkrir þeirra, sem á horfðu eru fullir efa semda. Þeir gátu meira, og full nýttu ekki tækifærin sögðu þeir. Það er eins og menn geti ekki fram á aö fara i Portúgal. Lið atvinnumanna þarf á mikilli aö- sókn að halda, því annars geta þeir ekki borgað út. Fyrir þeim er þetta eins og hver önnur síld staðinn, því auövitaö hlýtur hann lika að hafa i för með sér efasemdir til að bollaleggja um, hvernig sem úrslit hans ann ars verða. Svona er knattspyrna trúað á íslenzkan sigur i slíkum leik. Nú eru menn farnir að Ieggja niður fyrir sér dæmið eins og stór-spekúlantar, og segja spekingslega: Þetta eru atvinnu- menn, og ef þeir hefðu burstaö hérna, þá hefðu þeir enga aö- sókn fengið á seinni Ieikinn, sem arútgerð, nema að þeirra „síld“ eru áhorfendurnir, sem koma á völlinn til að horfa á. Auðvitað verða menn aldrei á eitt sáttir og halda áfram að brjóta heilann um þessi mál í hið óendanlega. Að minnsta kosti þar til næsti leikur er af annars yfirleitt, full eftirvænting ar og spennings. Knattspyrnan er reyndar til þess að vekja spennu, og hefur þann eigin- leika, að aldrei verða alllr á eitt sáttir hvernig sem úrslit verða. En hvað sem efasemdunum líður, þá var þetta skemmtileg- ur og spennandi Ieikur, svo ekki er annað að segja en þessi heim- sókn hafi heppnazt á bezta hátt. Áhorfendur fengu mikinn spenn ing og fiðring fyrir sinn snúð, og hafa nóg um að ræöa og bollaleggja til næsta Ieiks. En hvað sem hver segir, og þó einhverjir vilji halda þvi fram, að Benfica hefði getað lagt sig meira fram, þá stóðu Vals- menn sig vel, og er óhætt að óska þeim til hamingju með leik inn. Einnig vil ég óska þeim góðrar ferðar til Portúgals, og vona að heillavættir verði Val þar einnig hliðhollir, og láti veöriö verða hæfilega heitt og matinn hæfilega góðan, svo ekk- ert hafi áhrif á núverandi spenn ing og ánægju. Með þökk fyrir leikinn. Þrándur í Götu. i

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.