Vísir - 21.09.1968, Page 2
2
V í SIR . Laugardagur 21. september 1968.
Ritstj. Stefán Guðjohnsen
Spilið 1 dag er mjög lærdóms-
ríkt, hvað úrspilið snertir. Stað-
an var ailir utan hættu og suð-
ur gaf.
4 K-D-5
4 ekkert
4 A-K-G-6-3
4 D-G-6-4-2
4 10-9-8-7 4 enginn
V K-9-6-4 V D-7-5-3-2
4 9-4 4 D-10-8
4 A-10-8 4 K-9-7-5-3
4 A-G-6-4-3-2
4 A-G-10-8
4 7-5-2
4 ekkert
Sagnir n-s voru þannig, a-v
sögðu alltaf pass:
Suður: Norður:
1 4 2 4
2 4 3 4
3 4 3 4
4 4 6 4
P
Vestur spilaði út spaðatíu,
blindur lét kónginn og austur
kastaði hjarta. Suður taldi níu
toppslagi og auðséð var að tíg-
ullinn varð að gefa a. m. k.
þrjá. Suöur spilaði því laufi og
trompaði og svínaði síðan tígul-
gosa. Austur drap með drottn-
ingu og spilaði meira laufi, sem
suöur trompaði. Sagnhafi sá nú
að hann var í talsverðum erfið-
leikum. Ef hann trompaði
hjarta i blindum, þá gat hann
ekki komizt heim aftur til þess
að taka trompin af vestri.
Hann tók því trompin og
hjartaásinn og fjórir tígulslagir
í viðbót gerðu samtals 11, eða
einn niður.
Það eru talsverð vonbrigði
að tapa sex spöðum á þessi
spil og eflaust sjáið þið hvernig
má vinna spilið nokkuð ör-
ugglega. Þegar blindur er inni
á spaðakóng, á hann strax að
spila LÁGUM TÍGLI. Sé tígull-
inn 3—2 eða drottningin ein-
spil, þá er samningurinn örugg-
ur.
Eins og spilið liggur, þá tek-
ur austur tíguslaginn, spilar
laufi, sem suður trompar. Þá er
hjarta trompað í blindum, spaða
drottning tekin, síðan tígulás,
til varnar því, að vestur eigi
fjóra tígla. Þá er lauf trompað
heima, trompin tekin a-f vestri
og þrír tígulslagir í viðbót eru
samtals 12 slagir.
4
Einmenningskeppni Bridgefé-
lags Reykjavíkur hófst s.l. mið-
vikudag og eru 48 þátttakendur.
Eftir fyrstu umferð eru þessir
efstir:
1. Hörður Þórðarson 417, 2.
Reimar Sigurðsson 413, 3. Karl
Ágústsson 399, 4.—5. Eggrún
Arnórsdóttir 392, 4.—5. Arnar
Hinriksson 392, 6.-7. Hjalti
Elíasson 389, 6.—7. Páll Bergs-
son 389, 8. Bragi Erlendsson
383.
Næsta umferð verður á miö-
vikudaginn kl. 20 i Domus
Medica.
FRÁ GAGNFRÆÐA-
SKÓLUM REYKJAV'IKUR
Skólarnir verða settir þriðjudaginn 24. sept.
n.k. sem hér segir:
Gagnfræðaskóli Austurbæjar: Skólasetning
kl 10.
Gagnfræðaskóli Vesturbæjar við Vonarstræti:
Skólasetning í Iðnó kl. 14.30.
Hagaskóli: Skólasetning I. bekkjar kl. 9, II.,
III. og IV. bekkjar kl. 10
Réttarholtsskóli: Skólasetning I. bekkjar kl. 14
II., III. og IV. bekkjar kl. 15.
Lindargötuskóli: Skólasetning IV. bekkjar kl.
10, III. bekkjar kl. 11.
Gagnfræðaskóli verknáms: Skólasetning III.
bekkjar kl. 9, IV. bekkjar kl. 11.
Gagnfræðadeildir Miðbæjarskóla, Austur-
bæjarskóla, Laugafnessköla, Langholts-
skóla, Hlíðaskóla, Laugalækjarskóla og Álfta-
mýrarskóla: Skólasetning I. bekkjar kl. 9,
II. bekkjar kl. 10.
Gagnfræðadeild Árbæjarskóla: Skólasetning
I. bekkjar kl. 9.
Gagnfræðadcild Vogaskóla: Skólasetning
verður fimmtudaginn 26. september kl.
14 í íþróttahúsinu v,ið Hálogaland.
SKÓLASTJÓRAR.
Ife
a morgun
Merkja- og blaðasöludagur Sjálfs
bjargar, landssambands fatlaðra, er
á morgun, Á þessu ári eru liðin 10
ár frá stofnun fyrstu félaganna og
j er starfsemi Sjálfsbjargar mikil og
1 vaxandi eins og vera ber hjá þess-
um hagsmunasamtökum. Félags-
menn eru nú hátt á níunda hundrað
í 10 félagsdeildum víðsvegar um
Iandið.
Eitt af þeim málum, sem hæst
hafa borið undanfarið, er bygging
Vinnu- og dvalarheimilis Sjálfs-
bjargar við Hátún i Reykjavík. í
júlímánuði var lokið við að steypa
5. og efstu hæð fyrsta áfanga. Þar
verður eins og mörgum er kunnugt,
dvalarheimili fvrir fatlaða með 45
einstaklingsherbergjum ásamt æf-
ingastöð, húsnæði fyrir gervilima-
smið og ortopediskan skósmið. Enn
fremur fullkomið eldhús, sem ætlað
er tii afnota fyrir alla bygginguna
á sínum tíma.
1 bygginguna hafa nú verið lagð
ar 17% milljón, en kostnaðaráætl
un er um 50 milljónir. Fjölmargir
eru þeir sem bíða eftir því, að geta
setzt þar að á eigin heimili. Er því
vissulega mikil þörf fyrir, að fólk
taki sölubömunum vel, þvl þetta
er raunverulega eini tekjumöguleiki
Sjálfsbjargar.
Tímaritið Sjálfsbjörg kemur nú
út í 10. sinn. Efni blaðsins er mjög
fjölbreytt og er að venju helgað
málefnum fatlaðs fólks. Blöðin og
merkin verða afhent á morgun í öll
um barnaskólum í Reykjavík, Kópa
vogi, Garðahreppi og Hafnarfirði.
Einnig verða sölubörn afgreidd að
Marargötu 2 og á skrifstofu Sjálfs
bjargar Bræðraborgarstlg 9,
Reykjavík.
TÁNINGA-
SÍÐAN
„Yardbirds"
VINSÆLDALISTINN /áta , sér
ÍSLAND:
1. (-) Hey Jude, Beatles.
2. (-) SOS, ást í neyð, Vilhjálmur Vilhjálmsson og hljómsv.
Magnúsar Ingimarssonar.
3. (1) Mony, Mony, Tommy fames and the Shondells.
4. (2) I’ve gotta get a message to you, Bee Gees.
5. (7) Amen, Simon Dupree and the big sound.
6. (4) Yummy, yummy, ’-ummy, Ohio Express.
7. (-) High in the sky, Amen Corner.
8. (-) Mrs Thursday, Dave Dee og félagar
9. (3) Undarlegt með unga menn, Rúnar Gunnarsson.
10. (6) Lovin'things, Marmalade.
DANMÖRK:
1. (1) Lille sommerfugl, Bjöm Tidmand
2. (3) Vi skal gá hánd i hánd, Keld Heick.
3. (2) Help Yourself, Tom Jor.es.
4. (6) Fire, The crazy worid of Arthur Brotvn
5. (8) Yummy, vummy, ýummy, Ohio Express.
6 (-) Hello, I love you, Doors.
7. (9) Do it again, Beech Boys
8. (4) Hurdy, Gurdy Man, Donovan.
9. (5) Baby come back, Equals
10. (7) Yesterday Has Gone, Cupids Inspiration.
heyra á ný
Enska beat-hljómsveitin
„Yardbirds" kom nýlega fram
á sjónarsviðið eftir tveggia ára
hvíld. Þeir komu fram i Kaup-
mannahöfn og vöktu mikla at-
hygli. Þeir eru nú aðeins þrír,
en roru áður fimm. Meðal
þeirra sem hafa verið i hljóm-
sveitim.i má nefna Jeff Beck.
sem nú hefur sína eigin hijóm-
sveit. Eric Clapton, sem leikur
með hinni heimsþekktu
„grúbbu“ Cream. Þeir þykja nú
all-nýstárlegir í útliti og hljóð-
færaleik o? hafa undirritað
hljómplötusamning við Warner
Brothers til tveggja ára og
fengu við undirskriftina 12
milljónir íslenzkar krónur. Ný-
liðinn sem álitinn er þeirra bezt-
ur heitir John Paul Jones, en
hann hefur leikið undir hjá
Donovan og einnig leikið meö
á hliómplötum Rolling Stones.
Hann þykir vera með beztu gít-
arleikurum í beat-heiminum I
dag.