Vísir - 21.09.1968, Page 8
V í SIR . Laugardagur 21. september 1968. ’
VISIR
if
morgun
útlönd £ morgun
útlönd í morgun
dtlo
Otgefandi: Reykjaprent h.í.
Framkvæmdastjóri Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjómarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson
Auglýsingastjóri: Bergþór Olfarsson
Auglýsingar: ^ðalstræti 8. Simar 15610 11660 og 15099
Afgreiðsla: Aðalstræti 8. Sími 11660
Ritstjóm: Lnugavegi 178. Simi 11660 (5 Unur)
Áskriftargjald kr. 115.00 á mánuði innanlands
I'lausasölj kr. 7.00 eintakið
Prentsmiöja Vísis — Edda h.f.
Tóku þeir sinnaskiptum?
þjóðviljinn hefur látið í ljós gleði yfir sigri jafnaðar-
manna í sænsku kosningunum. Það hefði einhvern
tíma þótt saga til næsta bæjar, að lof væri borið á
stjórnarfarið í Svíþjóð í því blaði. íslenzkur kommún-
isti, sem var í Svíþjóð á stríðsárunum síðari og komst
til töluverðra mannvirðinga í flokknum eftir heim-
komuna, sagði að „íhaldið“ á íslandi væri frjálslynd-
ur flokkur í samanburði við sænska „krataafturhald-
ið“. Og þannig hefur tónninn fram að þessu verið í
Þjóðviljanum bæði í garð sænskra jafnaðarmanna og
annarra sósíaldemókrata.
En mönnum er leyfilegt að skipta um skoðun. Og
nú væri ekki úr vegi að spyrja. Er þá jafnaðarstefnan
á Norðurlöndum og í Bretlandi sá „lýðræðislegi sósí-
alismi“, sem Þjóðviljinn vill nú veita brautargengi?
Sé svo og'sé það jafnframt almenn skoðun í Sósíalista-
flokknum, virðist ekkert óeðlilegra en að hann verði
lagður niður og sameinaður Alþýðuflokknum. Séu þau
sinnaskipti, sem Þjóðviljámenn hafa tekið, eftir inn-
rás Rússa í Tékkóslóvakíu, annað og meira en látalæti,
ættu þeir að lýsa því hreinskilnislega yfir, að þeir hafi
áður vaðið í villu og viti nú fyrst hver hinn rétti sósí-
alismi sé. Fyrirmyndin sé í Svíþjóð, en ekki Rúss-
landi, eins og þeir hafi hingað til haldið.
Það er ekki nóg að íslenzkir kommúnistar fordæmi
innrásina í Tékkóslóvakíu í orðum: Þeir þurfa að sýna
það í verki, að þeir séu snúnir frá villu síns vegar. Þeir
ættu m. a. að biðja þjóðina afsökunar á því, að þeir
skuli í upp undir 40 ár hafa beitt öllum tiltækum áróðri
til þess að telja henni trú um, að stjórnskipulagið í
Rússlandi Sé hin æðsta og eftirbreytniverðasta fyrir-
mynd. Þeir þurfa að afneita opinberlega og lýsa fyrir-
litningu sinni á eftirfarandi orðum Lenins, í ræðu, sem
hann hélt í Moskvu árið 1920. En þau hafa hingað til
verið þeim sem heilög boðorð:
„Af hverju ætti að leyfa málfrelsi og ritfrelsi? Af
hverju ætti stjórn, sem er að gera það, sem hún heldur
sjálf vera rétt, að leyfa gagnrýni á sér? Hún mundi
ekki leyfa að beitt væri banvænum vopnum. Hug-
myndir eru miklu áhrifameiri en byssur. Af hverju
ætti að leyfa nokkrum manni að kaupa prentvél og
dreifa út hættulegum skoðunum, sem ætlað er að
valda ríkisstjórninni örðugleikum?“
Þannig tala kommúnistar, þegar þeir hafa náð völd-
um. Þeir hafa allra manna hæst um mannréttindi og
frelsi meðan þeir eru að berjast til valda. En þessi orð
Lenins eru sönn lýsing á því, hvernig þeir fara með
valdið þegar þeir hafa fengið það í hendur. Vilji Sósí-
alistaflokkurinn sýna það svart á hvítu, að hann sé
snúinn frá þessum kenningum Lenins, getur hann það
t.d. með því að losa sig við þá menn úr forustuliðinu,
sem vitað er að hafa þessar kenningar í heiðri í hjarta
sínu, þótt þeim þyki henta að afneita þeim í orði nú
sem stendur.
V)
))
Sovézk blöð ómyrk í máli
um .tékkneska vandamálið'
# Sovézk dagblöð hafa
tekið upp meira ógn
andi tón í árásum sín-
um á það, sem þau kalla
„andsósíalistísk öfl og
fjandsamlegar aðgerðir
í garð Sovétmanna í
Tékkóslóvakíu“.
^ Flokksmálgagnið
Pravda viðurkenndi,
að almenningsálit í
Tékkóslóvakíu gegn
hernaðaríhlutun væri
mikilvægur þrándur í
götu og bætti því við,
að hægt gengi í þá átt
að ná eðlilegu ástandi,
þar sem margvíslegir
örðugleikar væru þar í
veginum.
Rauða stjarnan, málgagn sov-
ézka hersins, birtir harðoröa á-
rás á andbyltingaröfl í Tékkósló-
vakíu. Blaðið segir um þau, að
þrátt fyrir að dregið, hafi úr
starfsemi þeirra, hafi þau breytt
aðferðum sínum og séu enn til
mikils tjóns.
Sovétskaja Rossja ákærir Mao
Tse-tung formann og júgóslavn-
eska valdamenn fyrir að taka
þátt í því, sem blaðið kallar
„andkommúnistíska móður-
sýki“ í sambandi við tékkneska
vandamálið. Blaðið heldur því
fram, að „óvinirnir“ reyni að
innleiða borgaralega hugmynda-
fræði í kommúnistaríkjunurn —
einkum og sér í lagi Tékkósló-
vakíu.
Blaðið Pravda ræðir einkum
um vandamálin í sambandi við
að koma aftur á eðlilegu ástandi
í Tékkóslóvakíu og leggur á-
herzlu á fjögur atriði til að sýna
þá erfiðleika, sem hernámsliðið
á að mæta.
1. Þrátt fyrri að méirihluti
kommúnista og verkamanna
hafi sýnt raunsæi á þaö þó ekki
við um allan almenning, sem
fylgist ekki allt of vel með hlut-
unum og tekur ekki ávallt já-
kvæða afstöðu til hentugrar
lausnar á vandamálunum.
2. Andsovézkar aðgerðir
hafa ekki hætt, segir í blaöinu, •
og þar er getið um, aö sovézkur
stríðsminnisvarði hafi verið eyði.
lagður í smáþorpi í nágrenni
Brno.
3. Tilraunir hafa verið gerö-
ar til að koma í veg fyrir sam-
starf kommúnista og „heiðar-
legra borgara" og annarra, sem
hafa reynzt tryggir Sovétríkj-
unum.
4. Fjölmörg blöð hafa birt
greinar, sem innihalda rangar
upplýsingar til þess að reyna að '
fá menn til að trúa, að ekki
verði hægt að koma á eðlilegu,
ástandi í Tékkóslóvakíu, segir í
Pravda.
Sovézkt geimfar
umhverfis tunglið
— liður / tilraunum Rússa til að senda
mannað geimfar til tunglsins
9 Sovézkt geimfar, „Zond-5“,
flaug umhverfis tungliö á mið-
vikudag. 'tíé’imfariö, sem skotiö
var upp -á sunnudag, fór um-
hverfis tunglið í 1900 kílómetra
fjarlægð frá yfirborði þess,
Sovézka fréttastofan Tass
skýrði ekki frá þessum atburði
fyrr en í yer, og var þá frá því
sagt, að þetta geimskot væri
liður í rannsóknum á loftlögum
í námunda við tunglið.
• í Moskvu var ekkert sagt
frá því, hvort geimfarið mundi
lenda aftur á jörðunni. I tilkynn-
U'ngverjinn L. Portisch sigraði
á skákmótinu í Skopje einu
sterkasta skákmóti ársins. Port-
isch byrjaði mjög vel, vann
skákmeistara Sovétríkjanna,
Polugaevsky í 1. umferð. Eftir
12 umferðir hafði Portisch tekið
hreina forustu með 9% vinning.
13. úmferðin reyndist Portisch
ekki sem hagstæöust, en þá tap-
aði hann sinni einu skák í mót-
inu, gegn a-þýzka skákmeistaran
um Uhlman. Portisch valdi
kóngsindverska vöm, en þá vörn
þekkir Uhlman flestum betur.
Enda fór svo að eftir 25 leiki
mátti Portisch gefast upp fyrir
margvíslegum hótunum Þjóðverj
ans. En Portisch efldist aðeins
við tapið og vann næstu fjórar
skákir og varð öruggur sigurveg
ari mótsins með 14 % vinning af
19 mögulegum. Geller hlaut ann
að sætið með 13% vinning, en
hann tapaði einni skák gegn
landa sínum Polugaevsky. f 3.
sæti varð Polugaevsky meö 13
vinninga, þá Hort með 12%
vinning og Matulovic 11% vinn-
ing.
Það vakti mikla athygli er ung
ur og Iftt þekktur skákmaður.
Hiibner Vestur-Þýzkalandi, sigr
aði á skákmótinu í Busum 1968.
Sex stórmeistarar og fimm al-
þjóölegir meistarar urðu aö
sætta sig við sigur Hiibners. —
Meðal þeirra var Hollendingur-
inn Donner, en hann tapaði iili-
lega fyrir Hiibner í eftirfarandi
skák.
Hvítt: Donner
Svart: Hiibner.
Kóngsindversk vörn.
1. d4 d6 2. c4 e5 3. Rf3. Hvítur
hagnast lítið á 3. dxé dxe 4. DxDt
KxD og þar eð drottningarnar
eru horfnar af borðinu, er hrók-
un ekki nauðsynleg fyrir svart-
an 3... Rc6 4. Rc3 g6 5. dxe
Rxe 6. e4 Bg7 7. Rd4 Re7 8. Be2
0—0 9. 0—0 c6 10. Be3.
Gefur svörtum tækifæri til að
jafna stöðuna. Betra virðist 10.
Rc2 sem kemur í veg fyrir 10 ...
d5, og hótar 11. f4. Ekki dugði
strax 10. f4 vegna Rg4
10...d5! 11. cxd cxd 12. f4
Rc4 13. BxR dxB 14. Dd2 Bd7
15. Df2.
Framhaidið 15. f5 Rc6 16. RxR
BxR 17. DxD HfxD 18. f6 Bf8
leiðir til betri stöðu fyrir svart-
an,
15. ... Rc6 16. RxR BxR 17.
ingunni sagði aðeins, að geim- ‘
farið hefði náð tilætluðum vís-;.
indaárangri.
• Fyrri geimför Sovétmanna'
af þessari tegund hafa verið
send á loft í sambandi við áætl- ■
un þeirra um að senda mannað;
geimfar til tunglsins. „Zond-3“i
tók myndir af bakhlið tunglsins '
árið 1965. Hvað varð um „Zond- •
4“ vita menn ekki, en nokkrir '
meðal vestrænna vísindamanna;
telja, að geimfarið hafi farið um-
hverfis tunglið en eyðilagzt á'
leið aftur til jarðarinnar.
Hadl Da5 18. Bd4 BxB 19. HxB ;
Dc5 20. Hfdl b5 21. Rd5 BxR 22.
HxB Dc6 23. f5.
Hvítur er í nokkrum vanda,
v.egna peðameirihluta svarts á
drottningarvæng. Reynandi'
hefði verið að leika 23. Dd4
Hfc8 24. Hd6 Dc5 25. DxD HxD
26. Hd8t HxH og hvítur ætti
varla að tapa skákinni.
23. .. . b4 24. Hcl Hfc8 25. Dd4
c3! 26. Dxb?
Donner er sannarlega misjafn
skákmeistari. Fyrir skömmu
vann hann sterkt skákmót, þar
sem heimsmeistarinn Petroshan
varð í 2. sæti. Hér fellur hann í
einfalda gamalkunna gildru.
Eftir 26. bxc bxc 27. Hxc!
DxH 28. Hd8t HxH 29. DxD
hefði jafntefli verið sennilegustu
úrslitin.
26. . .Hab8 27. Dxc Eða 27. Dd4
cxb! 27 ... Db6t 28. Hc5 HxH
29. DxH Hc8!
Gefið. Eftir 30. DxD HxHt og
svartur hefur hrók rieira.
Frá Taflfélagi Reykjavíkur
T.R. er nú að hefja vetrarstarf
semi sína. Hefst hún með septem
bermóti, sem byrjar 23. septem-
ber. Veröa tefldar tvær klukku-
tíma skákir á kvöldi, 7 umferð
ir eftir Monrad-kerfi. Þá hefst
haustmót T.R. 6. október, en í
því verða tefldar 11 umferðir
eftir Monrad-kerfi. Telft verður
í skákheimili T.R. og Skáksam-
bands íslands að Grensásvegi.
Jóhann Sigurjónsson