Vísir - 21.09.1968, Blaðsíða 16
VISIR
Laugardagur 21. sept. 1968.
Tor Myklebost, sendi-
herra Norðmanna, látinr
Aöfaranótt föstudags andaöist
I Noregi Tor Myklebost sendi-
herra Norðmanna á Islandi.
Hann var 54 ára gamall, fæddur
10. desember 1913. Honum hafði
verið veitt lausn frá sendiherra
embættinu snemma í þessum
mánuði, en þvi gegnir nú Björn
Frode Öjtem, sem er Chargé d’
affaires í sendiráðinu hér.
Tor Myklebost var menntað-
ur í lögfræði, hagfræði og stjórn
visindum. Hann byrjaöi feril
sinn sem blaðamaður og árið
r > 10. síða
Stjarna hennar Margrétar með folaldinu Fenju, f baksýn er Gunnar Jónsson.
ÍSLENZKI HESTURINN VEKUR AT-
HYGLI í DANMÖRKU
, • íslenzku hestarnir Perla og Stjarna, sem Margrét ríkis-
erfingi Dana fékk í brúðargjöf voru ekki fyrir alllöngu i
fréttum danska blaðsins T. Þar segir að Perla sé nú i
reiðskóla Kristjánsborgarhallarinnar þar sem hún er þjálfuð
af kommglegum reiðmeistara Gredsted fyrir börn konungs-
fjölskyldunnar. Stjarna er hins vegar í f.óstri hjá Gunnari Jóns-
syni formanni félagsskaparins „Danskir íslandshest-
ar“, en Stjarna átti folald um daginn með Styggi, sem er eini
ísienzki kynbótahesturinn í Danmörku.
í blaðinu segir ennfremur að
vaxandi áhugi sá á íslenzk-
um hestum í Danmörku og það
sé vegna þess, að þessi tegund
hesta sé ágæt sem fjölskyldu
hestur. íslenzki hesturinn sé
ekki eins stór og venjulegur
hestur, en þó stærri en flestir
ímynduðu sér. íslenzki hesturinn
sé hinn upþFunalegi kynbótahest
ur Norðursins og hafi veriö rækt
aður í 900 ár án annarrar kyn-
blöndunar.
Þá segir að nú sé í fyrsta sinn
eftir síðari heimsstyrjöldina
hafinn á ný innflutningur ís-
lenzkra hesta til Danmerkur, 10
hestar séu þegar komnir til
landsins og aðrir tíu séu vænt-
anlegir. Allir séu þeir valdir af
Gunnari Bjarnasyni ráðunaut.
Og hver hestur hafi sína eigin
ættartölu.
10. síða.
Flugfélögin með svipaða
áætlun og í fyrravetur
þrátt fyrir samdrátt i þjóðfélaginu
• íslenzku flugfélögin tvö,
Flugfélag íslands og Loftleiðir,
munu 1 vetur hafa svipaðar á-
ætlanir og í fyrravetur. Ekki er
í bígerð nein fækkun áætlunar-
ferða, þó að samdráttur hafi ver
ið hér á landi og því væntanlega
minna um ferðamenn héðan. —
Innanlandsástandið hér hefur
sáralítil áhrif á fjölda ferða-
Merkjasala Menningar- og
minningarsjóðs kvenna
I dag hefst merkjasala Menning-
ar- og minningarsjóðs kvenna. Sjóð
urinn er stofnaður með dánargjöf
Bríetar Bjamhéðinsdóttur að upp-
hæð 2.000 krónum. Tilgangur hans
er að styrkja efnalitlar konur til
náms, vísinda og ritstarfa. Styrk-
veiting úr sjóðnum fór fvrst fram
árið 1946, en ails hafa rúmlega 200
konur hlotið þessa styrki.
Samkvæmt skipulagsskrá sjóðs-
ins skal mikill hluti af tekjum hans
leggjast viö höfuðstól og kemur þvf
eigi til árlegra styrkveitinga. Merki
sjóðsins verða í dag afgreidd í öll
um barnaskólum borgarinnar frá
kl. 1 og eru einnig seld víða úti um
land.
manna í áætlunarferðum Loft-
leiða, en gæti haft veruleg áhrif
á farþegafjölda Flugfélagsins.
Forstjóri Flugfélagsins, Örn John
son sagði í viðtali við Vísi f gær, að
mikil óvissa væri að sjálfsögðu um
farþegafjöldann í vetur. Flutningarn
ir á veturna væru þó þess eðlis að
samdráttur í þjóöfélaginu kæmi
ekki eins mikið við þá eins og á
sumrin. Samdráttar gætti fyrst í
ferðum skemmtiferðamanna, en á
veturna bæri mest á ýmsum opin-
berum embættismönnum, mönnum,
sem eru að fara á ráðstefnur, mönn
um úr viöskiptalífinu og námsmönn
um. Það væri ekki nema að veru
legur samdráttur yrði í viðskiptalíf
inu að þess gætti í fluginu.
Vetraráætlun Flugfélagsins var
gerð f marz sl. þannig að ekki var
unnt að hafa hliðsjón af þeim sam
drætti, sem síðan hefur orðið. Áætl
unin verður að sjálfsögðu endur-
skoðuð, ef farþegafjöldinn verður
mikiö minni, en við bjuggumst við,
sagði Öm Johnson.
iVilhjálmur Bergsson opnar':
■málverkasýningu í Bogasall
Norræna listiðnaðarsýningin Surprise enn á
verður einnig á Akureyri j stuð
Fyrr I þessari viku hélt for-
stöðumaður Norræna hússins,
Ivar Eskeland, til Akurevrar til
að athuga, hvernig gengi að
finna þar húsnæði undir nor-
tænu listiðnaðarsýninguna, sem
nú er í ráði að flvtja þangað.
Þessi sýrdng hefur verið mjög
fjölsótt hér f Reykjavtk, en sýn-
ingargripirnir á henni eru frá öll
um Norðurlöndunum. í framtiöinni
mun verða efnt til fleiri svipaöra
sýninga í Norræna húsinu, og er
það góð hugmynd að gefa Akureyr
ingum einnig kost á að sjá þær.
Norræna listiðnaðarsýningin á
Akureyri verður að líkindum opnuð
einhvern tfma á næstunni.
Togarinn Surprise er enn á sömu
slóðum og undanfarið. Er unnið að
undirbúningi að björgun skipsins,
en það er Bergur Lárusson, sem hef
ur tekið verkið að sér ásamt öðrum.
i Hafa þeir félagar undanfarið verið
austur á söndum við undirbúning-
inn að því að koma togaranum af
I strandstað.
I dag kl. 2 opnar Vilhjálmur
Bergsson listmálari sýningu
á verkum sínum í Bogasal
Þjóðminjasafnsins þar sem
hann sýnir 18 málverk.
Þetta er fjórða sjálfstæöa sýn-
ing Vilhjálms hér á landi, en
hann hefur > áður sýnt f Ás-
mundarsal áriö 1961, þar sem
hann sýndi op-verk, en það mun
hafa verið >' fyrsta sinn. sem
verk þeirrar stefnu voru kynnt
hér á landi. Næst sýndi hann í
Bogasalnum ’62, en þriðja sýn-
ing hans var í Listamannaskál-
anum ’64.
• Síðar í haust mun Vilhjálmur
sýna verk sín á AP-galIeríi í
Kaupmannahöfn, en þar hefur
hann sýnt áður árið 1965. Auk
sjálfstæðra sýninga hefur Vil-
hjálmur tekið þátt i samsýning-
um hér heima og erlendis.
Vilhiálmur Bergsson er fædd-
ur 1937, og að loknu stúdents-
prófi hélt hann til Kaupmanna-
hafnar og stundaði þar nám i
myndlistaskóla reknum af
Danska ríkislistasafninu. Þvi
næst stundaði hann nám i tvö
ár í París, en hefur síðan dvalizt
langdvölum í Kaupmannahöfn
og þar að auki tæp't ár á Spáni.
'.V.VV.W.