Vísir - 10.10.1968, Blaðsíða 3

Vísir - 10.10.1968, Blaðsíða 3
V f SIR . Fimmtudagur 10. október isros. ~ ' ' ' ........... $ ,-ÁviíltöýCY/, Þarna undir lágu hræ ca. 250 brunninna svína í stiunum. 1 baksýn sést hlöðurústin og súr- heysturninn við enda hennar. BNSSííSýí-'Jí 'l/'ið gátum ekkert gert. Eld- 99 urinn fór um húsin, eins og í sinu,“ sagði bóndinn á Þórustöðum, Ingólfur Guð- mundsson, við Myndsjá Vísis, þegar hún brá sér austur í Ölfus í gær. Það var ljót aðkoma. Hræ af ca. 250 svínum lágu í útihúsa- rústunum undir leifunum af þakinu, sem hrunið hafði ofan á þau. Engu hafði tekizt að bjarga úr svínahúsinu. Þau höfðu öll brunnið inni. ,,Þau voru eitthvað hátt á þriðja hundrað," sagöi Þóru- staöabóndinn. Hann vissi það ekki gjörla. Var ekki búinn að átta sig á skaðanum til fulls, því margir grísir höfðu komið í þennan heim síðustu vikur. Á örskammri stundu hafði eldurinn læst sig um öll úti- húsin, sem voru í sambyggingu. 80 gripa fjós, 1200 hesta hlöðu og svínahúsiö. Fjósamaðurinn hafði farið til gegninga í fjósið kl. rúmlega 5 í gærmorgun, en hann varð einskis var, fyrr en hann — eftir að hafa starfað drjúga stund í fjósinu — leit inn í hlöð- una, sem var full af velverkaðri töðu. Þar var þá gosinn upp eldur. Vakti hann hitt fólkið á bæn- um og var þá beðið um aðstoð slökkviliðs nærliggjandi staða, á Selfossi og Hveragerði. Þá var kl. 6.15. „Viö rétt gátum hleypt út kúnum," sagði Ingólfur bóndi viö Myndsjána. „En viö kom- umst ekki nærri svínunum fyrir eldhafinu. Þaö var allt orðið al- elda í einni svipan.“ Slökkviliðið á Selfossi varð fyrst á vettvang, kl. 6.40, en þá voru þök húsanna 1 þann veg- in að falla. Kl. 7 var allt hrunið, án þess að nokkuð hefðí fengizt að gert. Þá voru þrjár slökkvi- dælur komnar i gang og var síðan unnið að slökkvistarfi fram eftir degi. Unnu menn við að rffa sundur heystabbann og slökkva 1 glæðunum, þegar Myndsjána bar að. 1 fjósinu höfðu verið 42 mjólk- andi kýr og allmargir kálfar og geldneyti. f svona tíðarfari, þegar skepnur eru flestar í hús- um, skapast mikil neyð af slík- um eldsvoða. Var kúnum komið fyrir á tveim nálægum bæjum, sem ekki eru lengur í byggð, Bræðrabýli og Hvoli. Tjón af þessu er geipilegt og gizkuðu menn á, að þarna hefðu farizt verðmæti, sem næmu hátt á fjórðu milljón króna. „Við höfðum tryggt, en mað- ur veit ekki ennþá, hvað það nær yfir mikið af þessu,“ svar- aði Ingólfur spurningu Mynd- sjárinnar. Enginn gat gert sér grein fyrir því, hvernig eldsupptök höfðu orðið. Tvennt var talið geta komið til greina. Sjálfs- ikveikja í heyinu, sem þykir ekki líklegt, vegna þess hve hey var vel verkað og gott. Eða þá vegna rafmagns, en úti- húsin voru raflýst. Vikugamall kálfur fyrir utan heimili sitt, sem brann, '' ..x' Um hlaðið hjá Ingólfi Guð- mundssyni bónda lágu slöng- ur slökkviliðsmanna þvers og kruss. YNDSJ I Menn unnu við að slökkva giæðurnar í heystabbanum og niðri í geilunum unnu menn einnig við að rífa sundur stabb- ann. Þar sem áður var 80 gripa myndarlegt fjós, skildu að básana. i, standa nú útveggirnir einir og rörin, sem <9 I 1

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.