Vísir - 10.10.1968, Qupperneq 13
rV'ÉSíÍR . Elmsatudagur 16. október 1968. .... .................... f j
Hagalín sjöfugur
8. síöu.
sjifífetaaðaíi mefð, með óteljandi
og óíyrirs jáanJegum þroska-
niöguleikum." Þessa sjáifstæðu
HMsði hefur hann síðan löngum
kannað í skáldskap sínum og
lýst þekn margvíslega þroska,
sem Bf og kriagumstæðumar
hafa búið þeim. Árangurinn af
þessum könnunum hans hefur
svo komið fyrir almennings-
sjónir f sérstæðum og snjöilum
marmiýsingum, stundum í ódauð
legnm lístaverkum, svo sem
gamla konan í Hamravík og
ýmsar af smásögum hans bezt
Arið 1935 svaraði Hagatín
á þessa leið spumingunni hvers
íslenzka þjóðin eigi að krefjast
af skáldum sínum: „Fyrst og
fremst þess að þau hafi þá
þekkingu og kunnáttu og þá
skáldgáfu til að bera, að þau
geti lagt fram þau lífsviðhorf
og sjónarmið, sem þeim eru eðli-
leg í sem samræmustum, sönn-
ustum og mest Hfandi búning.“
Hann hefur sannarlega farið
eftir þessu í ritum sínum, senni-
lega fiestum öðrum fremur.
í samræmi við það hefur hann
verið einhver traustasti baráttu
maöur okkar á meðal fyrir and
legu freisi, sjálfur gersamlega
óháður öllum kreddum og kenni-
setningum og túlkað sín sjálf-
stæðu sjónarmið út frá sínum
eigin lögmálum einum. Og hverri
viðleitni til að veita bókmennta-
straumunum eftir einhverj-
um ákveðnum fárvegum hefur
hann svarað með harðvítugri
andspyrnu, jafnvel þó að hann
stæði næstum einn uppi. Svo
var um og eftir 1940, þegar
kommúnistar voru hér voldug-
astir í heimi bókmenntanna. Þá
gaf Hagalín út ritgeröasafniö
Gróður og sandfok, þar sem
flett var ofan af bókmenntaiðju
öfgastefnumanna og ofsatrúar-
mönnum yfirleitt sagt óþyrmi-
lega til syndanna. Bókin féll
-íS>
Piltar á námskeiðl f radíótækni.
Aukin starfsemi
lýðsráðs í vetur
— L'idó aftur tekið i notkun fyrir dansleiki
og ýmsar skemmtanir
Á komandi vetri mun Æskulýðs-
ráð Reykjavíkur standa fyrir fjöl-
breyttu félags- og tómstundastarfi
fyrir fólk. Aðstaða til félags-
starfa, margvislegra skemmtana og
dansleikta á vegum æskulýðsráðs
er fullkomnari nú, en nokkru sinni
áður. Reykjavíkurborg hefur, eins
og kminugt er, kej'pt veitingahúsið
að SKaftahlið 24 (áður Lídó), en
b*» ►.lunu verða haldnir dansleikir
o« ymsar skemmtanir fyrir ungt
Að Fríkirkjuvegi 11 verður starf
semm með líku sniði og undan-
farna vetur, Þar ver,ður „Opið hús“
fyrir unglinga 15 ára og eldri þrjú
kvöld í viku, og fyrir 13—15 ára
á sunnudögum.
í sambandi við „Opið hús“ verð-
ur efnt til ýmiss konar skemmtana,
sýninga og dansleikja.
Nokkur félög og klúbbar munu
einnig starfa að Fríkirkjuvegi 11
og í Golfskálanum, í samvinnu við
Æskulýðsráð.
Námskeið í radíóvirkjun og ljós-
myndaiðju verða haldin að Frí-
kirkjuvegi 11, og í sjóvinnubrögð-
um að Lindargötu 50.
Æsku-
Innritun í námskeiðin hefst um
miðjan október.
I bátaskýli siglingaklúbbsins
Sigluness verður unnið á miðviku-
dögum að bátasmíði og viðgerðum.
1 gagnfræðaskólum borgarinnar
miin Æskulýðsráð í samvinnu við
skólana standa fyrir félags- og tóm-
stundastarfi, sem kynnt mun verða
í skólunum, hverjum fyrir sig.
Æskulýðsráð mun leitast við að
aðstoða félög og klúbba æskufólks,
einkum er varðar húsnæði til starf-
semi þeirra, og ungt fólk, sem hef-
ur i hyggju að stofna félög um
áhugamál sín, er hvatt til þess að
leita aðstoðar og samvinnu Æsku-
lýðsráös.
Allar nánari upplýsingar gefur
skrifstofa Æskulýðsráðs Reykjavík-
ur, Fríkirkjuvegi 11, opin virka
daga kl. 2—8 e. h. Sími 15937.
reyndar í fremur grýttan jarð-
veg meðal menntamanna þá, en
síðan hafa mörg vötn til sjávar
runnið og skoðanir manna á
Gróðri og sandfoki breytzt [ sam
ræmi við það.
• Guðm. Hagalín hefur aldr-
ei leiðzt út í þá freistni að rita
annað en það, sem hann ger-
þekkti og gat lifað sig fullkom-
lega inn í. Er þar eflaust að
finna eina af ástæðunum fyrir
þvf, að umhverfið í sögum hans
er mjög oft vestfirzkt og per-
sónumar vestfi rzkar að lífsskoð
unum og málfari. Á Vestfjörð-
um fékk hann sína æskumótun,
gjörþekkti sitt fólk, kvnntist því
þar til sjós og lands sem dreng-
ur og hefur aldrei komizt eða
kært sig um að komast undan
andlegum áhrifum þess. Enda
hefur Hagalín reist í verkum
sínum Vestfirðingum bemsku
sinnar veglegri bautastein en
nokkurt annað íslenzkt skáld
fólki þess landshluta, þar sem
það er upp runnið.
Ekki er þó svo að skilja, að
Hagalín hafi ekki kunnað að
rita sögur af öðrum en Vestfirð-
ingum. Ein af beztu skáldsögum
hans — Blítt lætur veröldin —
gerist á Austfjörðum, og í þeirri
bók hefur fólkið engan vest-
firzkan svip. Er hún að ýmsu
leyti ölík öðrum skáldsögum
Hagalíns, en einkar vel heppnuð
eigi að síður.
Guðmundur Hagalín er braut-
ryðjandi í því að rita ævisögur
eftir frásögnum aðalpersönanna
í þeim, og var fyrsta sagan á
íslandi í þeirri grein Virkir dag
ar 1936. Síðan komu margir
lærisveinar á eftir með slíkar
ævisögur. Enginn þeirra hefur
þó náð meistara sínum, enda
hefur Hagalín ákveðna aðferð
við slíka ævisagnagerð. Hann
verður að komast í eins konar
sálrænt samband við" söguper-
sónuna, lifa sig inn í hana á
Iíkan hátt og góðir höfundar
lifa sig inn í skáldsagnapersón-
ur sínar. Ef slíkt samband tekst
ekki, hættir hann við söguritun
ina, og hefur hann sagt mér, að
það hafi nokkrum sinnum gerzt.
Ég get ekki lokið þessu spjalli
án þess að minnast örlítíð á
störf Guðmundar Hagalfns f
þágw ahnenningsbókasafna f
landinu. Á þeim málum hefur
hann jafnan haft mikinn áhuga
og verið á undan smni samtið
hér á landí. Er þessi bókasafna
áhugi hans tengdur glöggum
skilningi hans og reynslu á nauð
syn sjálfsfræðslu. Hann segir á
einirm stað á þessa leið: .
skólafræðslan verður aldrei ann-
að en lítilfjörlegt upphaf þess,
sem verður að taka við, ef fénu
til skólanna á ekki að vera að
mikiu leyti kastað í sjóinn —
en það er sjálfsnámið. Er það
furðulegt, að okkur íslendinga,
sem manna lengst höfum lifað á
sjálfsfræðslunni, skuli hafa
skort skilning á þessu hingað
til.“ Án almenningsbókasafna
verður slíkri sjálfsfræðslu vart
við komið.
1 samræmi við þetta leitaðist
Guðmundur Hagalín við, þegar
hann var bókavörður á ísafirði,
að iaða fólkið, einkum ungling
ana, að safninu þar. Kenndi
hann bókmenntasögu og bóka-
safnsfræði f gagnfræðaskólan-
um, fékk unglingana með sér f
safnið og reyndi að glæða áhuga
þeirra á bókunum og notkun
þeirra, Er mér sagt, að Isfirð-
ingar búi enn að því merkilega
starfi, sem Hagalín vann þar
í þessu efni.
Sem bókafulltrúi rikisins, sá
fyrsti í þeirri stöðu, tók Guð-
mundur Hagalin við almennings
bókasöfnum landsins f niður-
níðslu. Mikið hefur vissulega á-
unnizt á bókafulltrúaárum hans,
þótt mikið sé óunnið enn, enda
verið við ramman reip að draga
sums staðar.
Nú er Guðmundur Hagalín
sem sagt orðinn sjötugur. En
það er ekki hár aldur nú á dög-
um, enda sjást ekki á honum
nein ellimörk, hvorki sem áhuga
manni, gleðimanni né rithöfundi.
Um hið síðast nefnda getur
skáldsagan Márus á Valshamri,
sem kom út f fyrra, gleggst vitn
að.
Eirfkur Hreinn Finnbogason.
HARÐVIÐAR-UTIHURÐIR
MAHOGNI-GLUGGAR
KONVAC-GLUGGAR
(VAKUUM-IMPREGNERET)
úr ofnþurrkaðri sænskri furu
LEITIÐ TILBOÐA
JfhHi- £, Mtihufii
t?
H. Ö. VILHJÁLMSSON
RÁNARGÖTU 12 . SÍMI 19669
KLÆÐNINGAR OG
VIÐGERÐIR
á alls konai bólstruöum húsgögnum. Fljót
og góð þjónusta. Vönduð vinna. Sækjum
sendum. Húsgagnabólstrunin, Miðstræti 5
símar 13492 og 15581.
INNANHÚSSMÍÐI
Vanti yður vandað
ar innréttingar 1 hí-
býli yðar þá leitiö
fyrst tilboða f Tré-
smiðjunni Kvistí
Súðarvogi 42. Sími
33177 — 36699.
LEIGAN s.f.
Vinnuvélar til leigu
Litlar Steypuhrœrivélar
Múrhamrar m. faorum og fleygum
RafknOnir Steinborar
Vatnsdœlur (rafmagn, benzín )
Jarðvegsþjöppur Rafsuðutœki
HDFDATUNU. - SiMi 23480
Vfbratorar
Stauraborar
Slipirokkar
Hitablásarar