Vísir


Vísir - 11.10.1968, Qupperneq 5

Vísir - 11.10.1968, Qupperneq 5
5 VlSIR IIIIIIHIIHIIIII Föstudagsr M. oktöber 1Ö6S. Eru foreldraverndarfélög stað barnaverndarfélaga tímabær? T gær vörpuðum við fram þeirri spumingu hvort for- eldrahlutverkið væri orðið ó- þarft á Islandi. Það er ekki spurt að ástæðulausu. Frásögn „fósturmóður" ætti að vekja einhverja til umhugsunar. — Skýrsia sérfræðings um svefn þörf og þó aðallega svefnleysi íslenzkra bama er athyglisverð sömuleiðis kennslukonu, sem skýrði kvennasíðunni frá því að rauðeygð böm af svefnleysi væm ekki óalgengt fyrirbæri í sínum bekk, einnig það, að böm in fá ekki að borða áður en þau fara í skóla. Ef tfl vill er tímabært að stofna hér foreldravemdarfé- lög í stað barnavemdarfélaga. Ef foreldrar treysta sér ekki lengur til þess að koma börnum sinum í rúmið á hæfilegum tíma ef þau treysta sér ekki til þess að fá þau inn á kvöldin á hæfi legum tíma í stað þess að láta lögregluna gera það, sbr. útivist artíma bama aö vetrarlagi. Ef þau treysta sér ekki til að hamla móti kröfum barna sinna um ó- hófleg fatakaup, ef þau treysta sér ekki til þess aö fá sínar frí stundir í friði fyrir unglingum, sem æða inn á þau á nóttu sem degi. Þá er foreldravemdar- félaga-málið á dagskrá. Einhverjir munu vilja kenna sjónvarpinu um það að svefn- tími skerðist hjá börnum. Sú á- sökun er vanhugsuð. Sérstakir bamaþættir eru ekki á þeim tímum kvölds, þegar böm á skólaskyldualdri ættu að vera komin í rúmið, ef þau eiga aö fá nægilegan svefn fyrir næsta vinnudag. Öðru máli gegnir, ef foreldrar ráða ekki við bömin, sem heimta að fá að sjá ákveö- inn þátt, sem er síðla kvölds. Sjónvarpið ætti ekki að vera meiri hindrun en bókin, sem bókaormar laumuðust til að lesa fram eftir kvöldi i trássi við foreldrana né heldur útivist eða sjoppuhangs. Hins vegar er það ósiður fuílorðins fólks að fara mjög seint i háttinn. Hefur oft verið vikið að því, að hér á Is- landi er háttatími miklu seinni en i nágrannalöndunum. Það leiðir aftur af sér að fólk kemur vansvefta í vinnu, húsmóðir hef ur sig ekki á fætur á morgnana til að hafa morgunverðinn til- búinn og er þá fljótt skapaður vítahringurinn — seint i háttinn seint á fætur. Börnin verða fyrir þessum ósið hinna eldri, þau vita, aö svefntíma foreldranna er ekki nándar nærri kominn og þau wíta einnig að móðirin verður eKki komin á fætur til að taka til morgunverðinn. Börn á skólaskyldualdri hafa sinn vinnutíma, sem er allstrang ur og em auk þess á vaxtar-, skeiði Þess vegna þurfa þau holla og góða fæðu. Tvöfalt magn mjólkur á við fullorðna, vítamínríkar fæðutegundir og næga hvíld. Morgunverður verð ur að vera samsettur á þann hátt, að hann búi líkamann sem bezt undir dagsverkiö. Hæfilegur skammtur bama og unglinga að 21 árs aldri er talinn vera: % 1. mjólk, 20—30 g ostur, Vi egg, fiskur, dálítið kjöt eða innmatur, mikið af græn- meti og ávöxtum og gróft brauð (rúgbrauð, heilhveitibrauð) — Hins vegar er sælgæti, feitar kökur, vínarbrauð og álíka ekki til þess fallið til að örva matar- lyst eða stuðla að byggingu líkamans. I Bandaríkjunum og Englandi er mikið gert úr morgunverðin- um og oft fjölbreyttar fæðuteg- undir á borðum. Þar tíðkast að fjölskyldan safnist saman við morgunverðarborðið. Oft er byrj að á því að drekka appelsínu- safa eða borða eitthvert aldin, og er þaö góður siður, sem flestir ættu að taka upp. I stað steikts fleks og eggja höfum viö fsl. fæðuteg., mjólk ost og — eða egg, súrmjólk, skyr, hafragraut Hol'ur og góður morgunmatur er undirstaða þess að dags- verkið gangi vel. — Nægur svefntími einnig. eða annan graut fyrir þá sem hafa mikla heitaeiningaþörf og gjarnan slátur. Rúgbrauð og heilhveitibrauð eru hollari en frariskbrauð og normalbrauð. Þessar fæðutegundir ættu að búa bamið og unglinginn vel undir dagsverkið sem á köflum myndi reynast hverri meðal- manneskju ærið nóg. Ef talin væri hver einstök bók í bókastaflanum, sem bam- ið og unglingurinn þarf að brjót ast í gegnum, áður en skóla- göngunni lýkur kæmi út há tala. Fyrir utan það þarf barnið oft að snatta að ástæðulausu fyrir foreldrana. Skipulögð vinna þar sem þess er gætt að barninu sé ekki lagt of mikið á herðar en sé um leiö nægilegt til þess aö bað finni samábyrgð sína á heim ilinu er það æskilegasta. En fyrst og fremst þurfa foreldrarn ir að hafa það í huga að ofgera því ekki í neinu en hjálpa þar sem þess er þörf. * S.Í.B.S. S.Í.B.S. Hinn 10. þ. m. voru dregnir út hjá borgar- fógeta vinningar í merkjahappdrætti Berkla- varnadagsins 1968. IJt voru dregnir 30 vinningar: 10 Blaupunkt Java sjónvarpstæki og 20 Blaupunkt Diva ferðaviðtæki. Vinningar féllu þannig: Sjónvarpstæki: Nr. 1425 4526 9381 12607 13524 16294 18691 23792 28489 32889. Ferðaviðtæki: Nr. 1180 1766 3538 5049 5557 8823 10710 13270 18695 20306 20881 20955 21817 22544 25578 29097 31367 33777 37395 39430. Eigendur merkja með framangreindum núm- erum framvísi þeim í skrifstofu vorri, Bræðra- borgarstíg 9. S.Í.B.S. IBÚÐIR TIL SÖLU bæði í vestur og austurbæ, nýtt og eldra. — Hagkvæm- ir skilmálar. Uppl. á kvöldmatartíma í síma 83177. Kaupum hreinar léreftstuskur VISIR FRAMLEIÐENDUR: TIELSA, VESTUR-ÞÝZK GÆÐAVARA OG JÓN PÉTURSSON HÚSGAGNA' FRAMLEIÐANDI BBIalálalaBIalálálsIálaEiIalÉiCsIlllIsía E1 G1 G1 G1 G1 G1 G1 G1 ELDHUS- Gllalalalalalálalalalaialalala % KAUPIÐ Á FÖSTU VERÐI 5jt STAÐLAÐAR ELDHÚSINNRÉTTINGAR ERU ÓDÝRARI, FALLEGRI OG ÖLL TÆKI FYLGJA L£ 7 7 ! % HAGKVÆMIR GREIÐSLUSKILMÁLAR UMBOÐS- OG HEILDVERZLUN KIRKJUHVOLI SÍMI 21718 og 42137 FULLKOM1Ð SÝNINGARELDHÚS í KIRKJUHVOLI

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.