Vísir - 23.11.1968, Side 8
8
V1SIR . Laugardagur 23. nóvember 1968.
VISIR
OtgefandJ: Reykjaprent hJ.
Framkvœmdastjórl Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
AOstoðarritstjóri: Axei rhorsteinson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjómarfulltröi: Valdimar HL Jóhannesson
Auglýsingar: Aðalstræti 8. Slmar 15610 11660 og 15099
Afgreiösla: Aðalstraeti 8. Simi 11660
Ritstjóm: 1 augavegi 178. Simi 11660 (5 linur)
Áskriftargjald kr. 125.00 6 mánuði innanlands
í lausasölu kr. 10.00 eintakið
Prentsmiðja Vísis — Edda hJ.
Óábyrg stjórnarandsfaða
gtjómarandstæðingar héldu uppteknum hætti í út-
varpsumræðunum. Þeir börðu höfðinu við steininn
eins og fyrri daginn. Þeir reyndu að gera sem minnst
úr áhrifum aflabrests og verðfalls á afkomu þjóðar-
búsins, en lögðu að sama skapi meiri áherzlu á, að
stjómarstefnan hefði verið röng og til þess mætti að
mestu leyti rekja þá efnahagserfiðleika, sem þjóðin
á nú við að etja.
Þetta er að verða gömul plata, en þó má vera að ein-
hverjir vilji enn hlusta á hana. Rökin fyrir því, að
miklu minni afli og stórlækkað aflaverð hefði ekki
þurft að valda teljandi erfiðleikum eru þau, að útflutn-
ingstekjurnar nú séu ekki lægri en meðaltal síðustu
10 ára eða t.d. árið 1962. Jafnframt er varazt að nefna
hvað tilkostnaður allur hefur vaxið á þessum tíma.
Er þetta heiðarlegur málflutningur? Getur sú stjórnar-
andstaða kallazt ábyrg, sem leyfir sér að bera svona
„rökfærslu" á borð fyrir þjóðina?
Er það ábyrg stjórnarandstaða, sem aldrei fæst til
að leggja fram raunhæfa tillögu um lausn á nokkrum
vanda, en lætur það jafnframt alltaf vera sitt fyrsta
verk, að snúast með offorsi gegn hverri ráðstöfun
ríkisstjórnarinnar og æsa almenning til andstöðu og
jafnvel óhæfuverka?
Stjórnarandstæðingar eru margir þaulreyndir stjóm
málamenn, einkum forystumennirnir. Þeir hafa sjálf-
ir þurft að glíma við margan vanda þegar þeir hafa
farið með völd, þótt erfiðleikarnir hafi aldrei verið
eins gífurlegir og nú. Þessir menn vita mætavel, hvað
um er að tefla, og því eru þeir að fara með vísvitandi
blekkingar, þegar þeir eru að reyna að telja þjóðinni
trú um, að hægt hefði verið að afstýra þessum áföllum
að mestu, ef fylgt hefði verið annarri stjórnarstefnu.
Það vill svo til, að sumir þessara manna hafa sjálfir
verið í ríkisstjórn og fylgt annarri stefnu. Síðast á ár-
unum 1956-1958. Þá var mesta góðæri, sem til þess
tíma hafði komið í sögu þjóðarinnar. En hvernig end-
aði ráðsmennskan? Það verður ekki rifjað upp hér að
þessu sinni, enda eflaust minnisstætt öllum, sem þá
voru komnir til vits og ára.
Ráðstafanir, sem skerða lífskjör almennings eru
alltaf óvinsælar, hversu nauðsynlegar sem þær eru.
Og þegar forystumenn tveggja stjórnmálaflokka, sem
hafa upp undir helming þingmanna, taka höndum sam
an um að magna tort'ryggni og andúð gegn hverri ráð-
stöfun stjórnvaldanna, hlýtur það að valda glundroða
og jafnvel stundum koma alveg í veg fyrir að sá ár-
angur náist, sem til var ætlazt.
Þennan leik hefur stjórnarandstaðan á íslandi leik-
ið nú samfellt í tíu ár, og þannig hefur hún í raun
stöðugt verið að viíina gegn hagsmunum og efnahags-
legu öryggi þjóðarinnar.
■Listir-Bækur-Menningarmál-
Stefán Edelstein skrifar tónlistargagnrýni.
HRIFNING
Cinfóníuhljómsveit íslands hélt
^ 5. tónleika sína sl. fimmtu
dagskvöld. Voru þetta óvenju-
legir tónleikar f marga staði.
Til að byrja með efnisskráin:
„Duttlungar" fyrir píanó og
hljómsveit eftir Þorkel Sigur-
bjömsson, með höfund í ein-
leikshlutverki, planókonsert í G-
dúr eftir Ravel, einleikari Hall-
dór Haraldsson, og eftir hlé, 6.
sinfönfa (Pathetique) eftir
Tsjaikovský.
Áður en ég kem að efninu,
get ég ekki látiö hjá h'ða að íninn
ast á þann ósið allmargra tón-
leikagesta að mæta óstundvís-
lega á tónleikana. Það er ekki
nema lágmarkskurteisi við
hljómsveitina, stjómanda henn-
ar og stundvísa tónleikagesti að
mæta annað hvort á réttum
tíma eða bíða fyrir utan salar-
dymar þangað til fyrsta verk-
inu er lokið.
Fyrst á efnisskránni var hið
nýja verk Þorkels. Þaö er alltaf
stórviðburður, þegar verk eftir
íslenzkt tónskáld er fmmflutt
hér heima. Þorkel er óþarfi að
kynna sem tónskáld, hann hefur
samiö mörg tónverk stærri og
smærri. Það er oft erfitt að vera
spámaður í sínu eigin landi,
enda er það svo, að beiðnir um
tónsmíðar hafa borizt Þorkatli
erlendis frá frekar en héðan.
Nægir hér að minnast á strok-
kvartett og ballett, sem tón-
skáldið hefur samið samkvæmt
beiðni frá sænskum aöilum.
Það lá spenningur í loftinu,
áður en verkið hófst, og áber-
andi var hve gestir lögðu vel við
hiustirnar. Ég vona að þeir hafi
haft ánægju af erfiðinu. Því að
þetta verk er að mínum dómi
ekki aðeins gott, heldur framúr
skarandi tónsmíð, sem ætti
heima í hvaða tónleikasal stór-
borganna sem er, hvað gæði
snertir. Tónsmíðin er iaus við
allan óþarfa, alla „effekta", alla
sýndarmennsku, heiðarleg út í
æsar, tilbreytingarík hæfilega
löng, skýrt mótuð f uppbygg-
ingu, tilbrigði um tónefnið og
tilbrigði í samleik. Stjómand-
inn, Sverre Bruland, haföi þá
ágætu hugmynd að tvítaka verk
ið. Við þessa endurtekningu
jókst skilningurinn að sama
skapi og ánægjan um leið. Það
er sjálfsögð og prýöileg hug-
mynd að endurtaka slík verk
(ef þau eru ekki því lengri).
Eyru tónleikagesta eru langt
frá því nægilega skóluð til að
taka við samtímatónlist, svo
að nokkra gagni komi. Er það
raunar eðlilegt, þar sem slík
verk heyrast þvf miður sjaldan
á áskriftartónleikum Sinfóníunn
ar.
Hljómsveitin stóð sig með
mikilli prýði og lék af öryggi,
hvort sem það var undir föst-
um taktslætti (margslungnum
og flóknum) stjómandans, eða
í „taktleysum." Til hamingju
Þorkell!
Næst heyrðum við píanókon-
sert Ravels í G-dúr. Þetta er
glæsilegt verk, brilliant í orðs-
ins fyllstu merkingu, og ákaf-
lega vandmeðfarið f flutningi,
bæði fyrir einleikarann og ekki
síður fyrir hljómsveitina.
Halldór Haraldsson var hér
alveg heima hjá sér. Þvi miður
hafa íslenzkir einleikarar allt of
fá tækifæri til að koma fram
með hljómsveitinni (og einir sér)
Það er í raun og vera ófyrirgef-
anlegt, því að hver ný fram-
koma (debut) er eins og fyrsta
framkoma, þegar líða e.t.v.
fleiri ár milli tónleika. Allt hang
ir á einum þræði, taugamar
eru yfirspenntar.
Halldór virtist afslappaöur og
öraggur. Enda spilaði hann
þetta níöþunga verk á virtuosan
hátt, sem virðist hans sanna
„element." Kom þetta bezt fram'
í 3. þætti. Hann náði og góðum
tökum og lék með fallegum
mettuðum tón í hinum Ijóðræna
2. kafla. Til hamingju Halldór!
Burtséö frá smáóhappi í upp
hafi, gerði hljómsveitin sínu erf
iði hlutverki góð skil. Þó vant-
aði stundum á, að hún næði
þeim blæbrigðum og þeim
franska „charme“, sem einkenn
ir þetta verk, sem sagt léttleika
glæsibragsins. í hæga kaflanum
var hreinleikinn ekki alltaf með
bezta móti hjá tréblásuranum.
Sfðast á efnisskránni var 6.
sinfónía Tsjaikovskýs, sú Patet-
iska. Margir hafa eflaust hallað
10. síða.
Orgeltónlist
tTaukur Guðlaugsson orgelleik
ari, hélt tónleika í Krists-
kirkju sl. miðvikudagskvöld. Á
efnisskránni vora Toccata og
fúga Doriska eftir Bach, 10
sálmaforleikir eftir sama höf-
und óg að lokum Choral í E-dúr
eftir César Frank.
Haukur hefur haldið marga
tónleika hér í höfuðborginni og
viðar, og er áreiðanlega ekki
orðum aukið að halda því fram,
að hann hefur náð miklu valdi
á hljóðfæri sfnu. Það er ekki
tæknilega hliðin, sem hér er átt
við, hún er aðeins sjálfsagöur
hlutur hjá Hauki og þjónar
þeim æðra tilgangi að forma og
endurskapa hin -stóra meistara-
verk orgeltónlistarinnar. Hauk-
ur spilar með miklu stílöryggi á
hljóðfæri sitt og á jafnt heima
hjá Bach og Frank. Toccatan og
fúgan Doriska var leikin af
þrótti og reisn, og sálmaforleik-
ir Bachs, hver og einn perla að
gæðum sem tónsmíð, voru fall-
ega „registreraðir" f anda hvers
sálms hvað innihald snertir.
Að lokum ómuðu hinir róman
tísku hljómar Césars Franks I'
Kristskirkju og minntu hlust-
endur á, að orgelið, drottning
hljóðfæranna, er ekki eingöngu
ætlað til að spila verk gömlu
meistaranna eins og Frank og
Reger. Forvitnilegt hefði veriö aö.
heyra Hauk leika einhver önd-
vegisverk nútímaorgelbók-
mennta, t. d. eftir Messiaen, en
hann mundi vafalaust gera slík-
um verkum góð skil. Vonandi
gerir hann það næst.
Þetta var eftirminnilegt
kvöld, þrátt fyrir harða setu á
bekkjum Kristskirkju.
Tjátttakendur í „Hastingsmót-
^ iö” 1968—69 hafa nú . jrið
valdir. Er engum af keppendun
um frá því í f; . ra boðið, en
mikil óánægja var rkjandi hjá
forráðamör.num mótsins vegna
svokallaðra stórmeistarajafn-
tefla, sem settu svip á keppnina
í fyrra. Tólf keppendur tefla aö
þessu sinni í efsta flokki m.a.
Gligoric Júgóslavíu, Smjelkal
Tékkóslóvakíu, Hilbner Vestur-
Þýzkalandi og tveir sovézkir
skákmenn.
Bent Larsen stóð í ströngu á
Ólympíumótinu í Lugano. Auk
þess að vera fyrirliði dönsku
sveitarinnar tefldi hann á 1.
boröi. Larsen treysti augsýni-
lega ekki öðrum meðlimum
sveitarinnar fyrir 1. borðinu,
heldur tefldj sjálfur hverja ein-
ustu umferð. í undankeppninni
gekk Larsen vel, hlaut 6y2 vinn-
ing af 7 mögulegum og átti mest
an þátt í að koma liði sínu upp
í úrslitakeppnina. f úrslitunum
var róöurinn þyngri og Larsen,
sem án efa hefur verið skák-
þreyttur eftir geysimikla tafl-
mennsku undanfarná mánuði,
náðj ekki 50% vinningum. Hlaut
Larsen 6 vinninga af 13 mögu-
legum og tapaði m.a. fyrir Hort,
Spassky, Gligoric og Najdorf.
Þá ,fékk Ungverjinn Portisch
gott tækifæri til hefnda, en hann
tapaði sem kunnugt er gegn
Larsen í 10 skáka einvfgi fyrir
nokkru. Portisch mætti Larsen
í 11. umferð og hér sjáum við
hann gera upp reikningana við
danska stórmeistarann.
Hvítt: Portisch
Svart: Larsen
Sikileyjarvöm.
1. Rf3 c5 2. c4 g6 3. d4 cxd
4. Rxd Bg7 5. e4 Rc6 6. Be3 Rf6
7. Rc3 Rg4 8. DxR RxR 9. Ddl
Þes: stööu þekkir Larsen vel.
Á Piatigorsky skákmótinu 1966
fékk hann sömu stöðu gegn
Petroshan. Þá ’:afði Larsen
hvftt og vann "tlr glæsilega
drottningarfórn. Hér hefur hann
svart og það reynist erfiðara
hlutskioti.
9.... Re6
Þennan l.eik Iék Petroshan
einnig í fyrrnefndri skák Til
greina kemur 9.. e5 10. Rb5
0—0 11. Dd2 Dh4 12. Bd3 d5!?
13. Bg5 Dg4 14. f3 Dd7 15. RxR
dxc! sbr. skák Bisguier: Stein
Tel Aviv 1964.
10. Hcl d6 11. Bd3 Bd7 12. 0—0
a5? Veikir reitina b6 og b5
hættulega mikið. 13. f4 Bc6
14. Bbl Rc5 15. De2 0-0? -
Larsen virðist yfirsjást hótun
hvíts. 15 ... Ra4 var nauðsynleg
ur leikur.
16 e5! Ra4 17. RxR BxR 18.
b3 Bc6 19 Hcdl Dc7 20 exd
exd 21. f5! Öll spjót standa á
svörtum og vörnin veröur sí-
fellt erfiðari. 21 . Hfe8 22. Df2
a4 23. Bb6 Dd7 24. Bd4
axb 25. axb BxB 26. HxB
He5 27. Bd3 De7 28. Hf4
g5? Betra virðist 28. .. He8.
T.d. 29. f6 Df8 og hvítur á enn
erfitt verk fyrir höndum. Eða
29. fxg fxg 30. Hf7 Dd8 31.
Df4 H5e7 C2. Df6 HxH 33.
DxHt Kh8.
29. f6! DeS 30. Bf5 De8 31. Hg4
h6 32. Df4 HxB.
Svartur neyðist til að láta af
hendi skiptamun til að forðast
mát. Ef 32. . . Db8 33. HxgthxH
34. Dxgt Kf8 35. Dg7t Ke8
36. Dg8 mát. 33. DxH
De3f 34. Klil He8 35. Hg3 Dd2
3.6. h4 He2 37. Dh3 Dd4 38. hxg
h5 39. g6! Gefið.
Jóhann Siguriónsson.
. . T.'WIBt'