Vísir - 23.11.1968, Síða 10

Vísir - 23.11.1968, Síða 10
10 V1SIR . Laugardagur 23. nóvember 1968. Ujtgir þiéfssr handfekitir O 14 02 15 ára drengir voru vald- ir að þjófnrðum, sem framdir voru í vikunni í símstöðinni í Hafnar- firði og bókaverzlun Olivers Steins. Lögreglan hafði hendur í hári drengjanna samdægurs og daginn eftir að þeir stálu peningunum, svo að þýfið komst til skila að mestu. Tveir 15 ára gamlir piltar voru teknir nokkrum klukkustundum eft ir að þeir höfðu stolið nokkur hundruð krónum i peningum úr peningaskúffu á símstöðinni. Þeir höfðu staöið í afgreiðslunni, þegar starfsstúlkan, sem var ein að vinna í afgreiðslunni, þurfti aö bregða sér á bak við til þess að vélrita skeyti. Komust drengirnir í skúff- una, án þess að gera neinn hávaða og voru svo á bak og burt, en tveim stundum síðar uppgötvaðist þjófnaðurinn og var lögreglunni gert viðvart. Fyrst eftir handtöku þrættu drengimir ákveðiö, fyrir að ■vera valdir að peningahvarfinu, en þegar peningamir fundust í skón- um þeirra játuðu þeir á sig sökina. Aörir tveir drengir 14 ára gamlir stálu 6000 krónum úr peninga- skúffu í bókaverzlun Olivers Steins, Hjá skúffunni var bókahilla og hjá henni stóðu drengirnir með- an afgreiðslufólk sinnti öðrum störfum. Þóttust þeir vera að skoða bækur í hillunni, en meðan annar skyggöi á með líkama sínum, laum aðist hinn í skúffuna. Þeir náðust strax morguninn eftir og játuðu. Höföu þeir eytt aðeins 150 krónum. Hrifning — y 8. siðu sér aftur makindalega til að láta tilfinningabylgjur Tsjai- kovskýs streyma yfir sig. Um verkiö má margt segja, og vil ég ekki dylja þá skoðun mína, að það er oft á takmörkum hins þolanlega. Víst eru í því fall- egir kaflar og æsilegir, Tsjai- kovský kann að „spila“ á hljóm sveitina, hann þekkir liti hennar og möguleika og nýtir þá. En hann er oft væminn, eða þá brú tal. Beztur er vafalaust næst síðasti kaflinn, og hefði tón- skáldiö átt aö enda á honum, virtust raunar margir þeirri skoðun sammála, þegar þeir tóku óspart að klappa. En þá var ólokið síðasta kaflanum, sem er vægast sagt neðanþindar músík. Hvað sem segja má um tón- smíðina — látum það liggja milli hluta núna — lék hljóm- sveitin í einu orði sagt glæsi- lega. Hver maöur vatt úr sér síðasta blóðdropann og nýtti möguleika sína og hljóðfærisins til hins ýtrasta. Til hamingju Sinfóníuhljómsveit fslands. Sverre Bruland kann sitt handverk. Hann virðist eiga jafnt heima í samtímatónlist og í ólgutónlist Tsjaikovskýs. Aldr- ei linnti hann spennunni í á- stríðuþrungnum bogum verks- ins. Hann stýrði sfnu skipi gegnum ólgusjó og náði sigri hrósandi tií hafnar. Því miður kveðjum við þenn- an ágæta stjómanda að sinni. Vonandi fáum við að njóta starfskrafta hans aftur. Við þökkum honum prýöilegt starf. Til hamingju Sverre Bruland. Stjömur kvöldsins fengu all- ar fallega blómvendi, og hrifn- ing áheyrenda lýsti sér í löngu og sterku lófaklappi, blönduðu einstaka bravóhrópi. Að lokum risu áheyrendur úr sætum og þökkuðu stjómandanum kvöldið ásamt öðrum eftirminnilegum fimmtudagskvöldum. FranSsinn — íe síöu. Sterkasta heimildin fyrir gengis- lækkuninni eru ummæli Strauss fjármálaráðherra Vestur-Þýzka- lands, en hann segir að gengi frankans verði lækkað. Franska stjórnin hefir til at- hugunar hvað unnt sé að gera til þess að draga úr áhrifum gengislækkunar á kjör hinna verst settu í þjóöfélaginu. MESSUR Bústaðaprestakall. Barnasam koma í Réttarholtsskóla kl. 10.30. Guðsþjónusta kl. 2. Séra Ólafur Skúlason. Langholtsprestakall. Barnasam- koma kl. 10.30. Guðsþjónusta kl. 2. Séra Árelíus Níelsson. Ásprestakall. Messa í Laugar- neskirkju. Barnasamkoma 1 Laug arásbíói kl. 11. Séra Grlmur Grímsson. Elliheimilið Grund. Guðsþjón- usta kl. 10 f.h. Séra Láms Hall dórsson messar. Heimilisprestur. Grenásprestakall. Barnasam- koma í Breiðagerðisskóla kl. 10.30 Síðd. messa kl. 5. Séra Felix Ólafsson. Hallgrímskirkja. Barnaguðsþjón usta kl. 10. Systir Unnur Halldórs dóttir. Messa kl. 11. Óskað er eft ir að foreldrar fermingarbarna komi til messunnar. Dr. Jakob Jónsson. Háteigskirkja. Barnasamkoma kl. 10.30. Séra Arngrímur Jóns- son. Messa kl. 2. Séra Jón Þor- varösson. Hafnarfjarðarkirkja. Messa kl. 2. Barnaguðsþjónusta klukkan 11. Séra Garöar Þorsteinsson. Neskirkja. Barnasamkoma kl. 10.30. Messa kl. 2. Séra Jón Thor arensen. MýrarhúsaskóH. Bamasamkoma kl. 10. Séra Frank M. Halldórs- son. Laugarneskirkja. Messa kl. 2 e. h. Barnaguðsþjónusta kl. 10 f. h.. Séra Garðar Svavarsson. Dómkirkjan. Messa kl. 11. Séra Jón Auðuns. Síðd. messa kl. 5. Séra Óskar J. Þorláksson. For- eldrar fermingarbarna eru vin- samlega beðnir að mæta við guðs þjónustuna. Barnasamkoma í sam komusal Miðbæjarskólans kl. 11 f.h. Séra Óskar J. Þorláksson. FLOKKAGLÍMA REYKJAVÍK- UR fer fram að Hálogalandi laugardaginn 7 des n.k. kl. 5.eh. MÓTANEFND. Nú, eru betta fiölskyldubréf til forstjórans, ég hélt að þetta væru skilaboð til sendilsins. TILKYNNINGAR Langholtssöfnuður. Sunnudaginn 24. nóv. verður í Safnaðarheim- ilinu óskastund bamanna kl. 4. — Kynningar- og spilakvöld kl. 8.30. Prentarakonur. Basarinn verður 2. des. Gjörið svo vel að skila mun unum sunnudaginn 1. des. milli kl. 3 og 6 í félagsheimili H.f.P. Frá kvennadeild Rauða kross fslands. Munið fundinn þriðjudag inn 26. nóv. kl. 8.30 í Átthagasal Hótel Sögu. Fjölmennið og tak ið með ykkur gesti. Kvenfélag Hallgrímskirkju — hefur hafið fótaaðgerðir fyrir aldrað fólk í félagsheimili kirkj- unnar alla miðvikudaga kl. 9-12. Pantanir í síma 12924. Bræörafélag Bústaðasóknar. — Fundur verður í Réttarholtsskóla mánudaginn 25. nóv. kl. 8.30. Kvenfélag Neskirkju. Afmælis- fundur félagsins verður haldinn þriðjudaginn 26. nóv. kl. 8.30 í félagsheimilinu. Skemmtiatriði, afmæliskaffi. Stjómin. Í.R-ingar — Í.R.-ingar. Aðalfundur skíðadeildar f.R. veröur haldinn í Tjarnarbúð uppi þriöjudaginn 26. nóv. n.k. kl. 8.30. Venjuleg aðalfundarstörf. Mætið stun'’víslega. Stjórnin, Basar Sjálfsbjargar verður í Lindarbæ sunnudaginn 8. des. kl. 2. Velunnarar félagsins, eru beðnir að koma basarmunum á skrifstofuna eöa hringja i síma 33768 (Guðrún) — Basarnefndin. Kvenfélag Óháða safnaðarins. Félagskonur og aðrir velunnar- ar Óháða safnaðarins eru góðfús- lega mi,.ntir á ba"ar félagsins. sem veröur sunnudaginn 1. des. í Kirkjubæ. Kvenfélag Ásprestakalls held- ur basar 1. des. nk. í Langholts- skóla. Munum á basarinn veitt móttaka f félagsheimilinu að Hólsvegi 17 þriðjudaga og fimmtu daga kl. 2—6. Einnig fimmtudags kvöld. Sfmi félagsheimilisins er 84255. Laus staöa Staða yfirverkfræðings við Sementsverk- smiðju ríkisins á Akranesi er laus til umsókn- ar. Umsækjendur skulu hafa lokið háskóla- prófi í efnaverkfræði. Umsóknir sendist stjórn Sementsverksmiðju ríkisins, Hafnarhvoli Reykjavík, sem jafn- framt veitir nánari upplýsingar um starfið. Umsóknarfrestur er til 15. desember n. k. Reykjavík 22. nóvember 1968. Stjóm Sementsverksmiðju ríkisins. Glugga og dyraþéttingar Þéttum opnanlega glugga úti og svalahurðir. Varanleg þétting — nær 100%. Þéttum í eitt skipti fyrir öll með „Slottslist- en“. Ólafur Kr. Sigmunds- son og Co. Sími 83215 — 38835. Lausar stöður Staða deildarstjóra og nokkrar tollvarða- stöður við tollgæzluna í Reykjavík eru lausar til umsóknar. Umsóknarfrestur til 10. des. n. k. Laun samkvæmt launakerfi ríkisstarfsmanna. Menn á aldrinum 19—25 ára með góða undir- búningsmenntun (stúdents- eða verzlunar- skólapróf) ganga fyrir um tollvarðastöðurnar. Umsóknareyðublöð fást hjá skrifstofu toll- stjóra í Arnarhvoli og hjá tollgæzlustjóra í Hafnarhúsinu. Allar upplýsingar um störfin veitir tollgæzlustjóri. Tollstjórinn í Reykjavík. mum TEPPIN SEfVS EN0AST 0G EN0IST ■ EINSTÆÐ ÞJÓNUSTA! — KEM HEIM TIL YÐAR MEÐ SÝNISHORN. TEK MÁL OG GERI BINDANDI VERÐTILBOÐ YÐUR AÐ KOSTNAÐARLAUSU! Daníe. Kjartansson . Sími 31283. Kvenfélag Kópavogs heldur basar ; félagsheimilinu laugar- daginn 30. nóv kl. 3. Félagskon- ur og aðrir velunnarar félagsins geri svo vel að koma munum til Rannveigar Holtagerði 14, Helgu Kastalagerði 15, Guðrúnar Þing- hólsbraut 30, Arndísar Nýbýla- vegi 18, Hönnu Mörtu Lindar- hvammi 5 eða Líneyjar Digranes- vegi 78, eða hringi í síma 40085 og þá verða munirnir sðttir. —".'wrg' mi

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.