Vísir - 23.11.1968, Síða 16

Vísir - 23.11.1968, Síða 16
Borgin í samningum um kaup á íþrótta- höilinni allri 12,3 millj. kr. vantar til au fullgera húsib, sem nú kostar 51,3 millj. kr. VISIR Laugardagur 23. nóvember 1968. Ung lisfnkona sýnir í Unuhúsi Svala Þórisdóttir opnar á morgun sýningu í Unuhúsi á 24 olfumálverkum og 3 rauö- krítarmyndum. Svala er nýkomin heim frá myndlistamám í Englandi, en þar hefur hún dvalið í 4 ár. Þetta er fyrsta einkasýning hennar hér, en í vor hélt hún sýningu á myndum sínum í Oxford. Svala kvaðst vera alkomin heim, og hyggja gott til að starfa hér. Einkum sagðist hún hafa áhuga á því að mála port- raitmyndir af fólki. Sýningin verður opin daglega til 3. des. frá kl. 14 til 22. Verð myndanna er frá 4 þúsund kr. til 24 þúsund kr. • Reykjavík hefur staðið í samningum nokkuð á annað ár um að kaupa upp hlutdeild Sýningarsamtaka atvinnuveg anna í íþrótta- og sýninga- höllinni í Laugardal. - Sam- tökin hafa ekki getað staðið í skilum með skuldbindingar sínar vegna byggingarinnar og hefur því verið áhugi af hálfu borgarinnar að yfirtaka allt húsið. Sýningarsamtökin hafa aðeins greitt 26% af kostnaðarverðinu eins og það er nú í stað 41% eins og um hafði verið samið. Borgin hefur greitt 65,2% af kostnaðarverðinu, sem er 51,3 millj. kr., en hefði átt aö greiða 51%. íþróttabandalag Reykja- víkur hefur staðið f skilum með sína hlutdeild. Hefur greitt 8,8% af kostnaðarveröinu, en á að greiða 8%. Þetta kom fram á borgar- stjórnarfundi í fyrrakvöld í svari borgarstjóra við löngum spurningalista fulltrúa Alþýðu bandalagsins um íþróttahöllina. Á; jtlaður kostnaður við aö fullgera húsiö er 12,3 milljónir króna, en ýmislegt á eftir að gera í húsinu eins og t.d. að ganga betur frá þaki, lýsingu, hita- og loftræstingu, áhorf- endapöllum o.fl. Það kom fram að haHi á rekstri hússins frá 1. des. 1965 til 30. júní 1968 nemur 711,938 krónum og 12 aurum betur. Kostnaðurinn við reksturinn hefur verið um 7,4 millj. kr. en tekjurnar um 6,7 millj. kr. Tekj urnar hafa að mestu verið leig- | ur vegna kappleikja eða um 3.8 | millj. kr., en leigan hefur verið | miðuö við 25% af seldum að- 1 göngumiðum. Hafa íþróttafélög in því fengið 75% af andvirði að göngumiðanna í eigin rekstur. Lágmarksgjald er þó 5000 kr. Fyrir leigu vegna æfinga hafa komið inn um 800 þús kr. og fyr ir leigu vegna sýninga um 1,2 milij. kr. MikiII áhugi var á þessu máli £ borgarstjóm og stóðu umræð- ur nokkuð á þriðju klukku- stund. Þaö verður væntanlega að teljast gleðitíðindi fyrir fþróttaæsku borgarinnar, að borgarfulltrúar skuli sýna þessu máli svo mikinn áhuga. i Björgunarmenn bisa enn v/ð oð ná Surprise á flot — Skipið bifaðist á stórstraumsflæbi i gær ■ Togarinn Surprise bifaöist lítiö eitt á strandstaönum austur á Landeyjasandi í gær, um morgun- flæðina klukkan 7, en þó ekki nógu mikið til þess aö hægt væri að ná honum á flot. Stórstreymt var í gær og hugðust björgunar- menn því nota ' ækifærið. Fengu þeir varðskip austur að sandinum og átti það að draga skipið út, en taug varð aldrei komiö á milli . skipanna, enda voru aðstæður til ,þess ekki nógu hagstæðar. | Björgunarmennirnir keyra stöö- ugt vélar skipsins og búa þar um borð. Skipið hefur ekki haggazt í fjörunni að heitið getur frá því þvi sló flötu þar skömmu eftir strandið fyrr en nú. Og enn er ekki öll von úti um. að það takist að ná því út. Franska stjórnin tekur ákvörðun um frankann í dag Éngin gjaldeyrisviðskipti áttu sér stað í gær í Bonn, París og London og viðar en búizt við, að allt liggi ljósara fyrir í dag og allt komist í gang á peninga- mörkuðunum á mánudag. Sjá bls. 7 í dag. m~> 10. síða Franska stjórnin kem- ur saman til fundarída§ •••••••••••• ••••••••••••••••••••• ••••••••••••••• (laugardag) og mun þá verða tekin lokaákvörð- un varðandi gengi frank ans. í gær lá ekkert fyrir um það opinberlega i Frakklandi, að gengið yrði lækkað, og var það, sem um þetta var sagt byggt á fréttum frá Basel og Bonn, en flest virðist benda til einhverrar gengislækkunar frankans, eða a. m. k. 7—10 af hundraði, eins og sagt var í fréttum í gær. Getgátur hafa komið fram um meiri gengislækkun eða allt að 20%, en ekki talið að það hafi við sterk rök að styðjast. ITveir drengir slasast i iaf sjónvarpsloftnetumi ; — Rafmagnseftirlitið aðvarar almenning l um frágang rafmagnstækja Fyrirlestur um ábyrgð Prófessor Matti Ylöstalo frá Helsingforsháskóla flytur fyrirlest- ur £ boði lagadeildar Háskólans mánudag 25. nóvember kl. 5.30 e.h. í I. kennslustofu Háskólans. Fyrirlestu- ->n. sem fluttur verð- ur á sænsku, fjallaf um ábyrgö. Öllum er heimill aðgangur. • VERJIÐ BÖRNIN YKKAR! ÞIO, SEM EIGIÐ SJÖNVARPS- TÆKI MEÐ INNILOFTNETI! - Þannig hljóðar neyðaraðvörun, sem Rafmagnseftirlit ríkisins beinir til alls almennings. Nýlega urðu tvö slys á smá- snáðum, sem stungu inniloft- neti í samband við 220 volta-inn stungu og hleyptu þannig raf- straum á Ioftnetsstangir sjón- varpstækja heimila sinna. Þegar þeir síðan snertu stangirnar, hlutu þeir af slæm brunasár. Rafmagnseftirlit rikisins var- ar fólk eindregið viö þessári hættu og beinir þvi til bæði al- mennings og útvarpsvirkja, að stuðlað verði að þv£ að slfk ó- nöpp geti ekki orðið. Orsök beggja slysanna var einfaldlega sú, að tengiklóin á loftnetssnúr unni var þannig úr garði gerö, að auðvelt var að stinga henni í venjulega rafmagnsinnstungu, sem á er lifshættuleg rafspenna, eins og allir vita. Tiðum hafa orðið slys af þess um sökum erlendis og hefur það leitt til þess að framleiddar hafa verið tengiklær, sem ekki er unnt að stinga £ samband við lágspennuinnstungu. Enda eru tengiklær, eins og þær sem ollu ofannefndum slysum óheimilar hérlendis. Auðvelt er að fyrirbyggja þessa hættu meö þvi að nota einfaldlega klær, sem eru af svo nefndum,. IEC-staðli. Eins og .neöfylgjandi mynd sýnir, er ó- mögulegt að koma þeim £ sam- band við venjulega lágspennu- innstungu vegna tinds sem geng ur út úr klónni á milli tengiarmanna. Einnig eru til í verzlunum sérstakir plasttappar sem hægt er að setja í lág- spennuinnstungur, þegar þær eru ekki í notkun. a myndmm sést það, sem hættulegt hefur reynzt þ. e. sjónvarpsloftnet tengt með þessari tegund af kló, sem of auðvelt er að koma inn í venjulega rafmagnsinnstungu. Til vinstri eru varnartækin, IEC-tengikló með tindi í miðjunni og plasttappar í innsíungurnar.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.