Vísir - 10.12.1968, Blaðsíða 8

Vísir - 10.12.1968, Blaðsíða 8
s flM—— VISIR Otgefandi: Reykjaprent h.f. Framkvæmdastjóri Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Aöstoöarritstjóri: Axel Thorsteinson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson Auglýsingar: Aöalstræti 8. Slmar 15610 11660 og 15099 Afgreiðsla: Aðalstræti 8. Simi 11660 Ritstjóm: Laugavegi 178. Slmi 11660 (5 línur) Áskriftargjald kr. 145.00 á mánuöi innanlands í lausasölu kr. 10.00 eintakið Prentsmiöja Vísis — Edda h.f. Röng hlutföll Áhyggjuleysi gagnvart kommúnismanum er orðið töluvert útbreitt hér á landi eins og annars staðar á Vesturlöndum. Þetta er út af fyrir sig skiljanlegt. Þeir, sem eru andsnúnir stjórnarfarinu í kommúnista- ríkjunum, hafa um langan aldur notað sterk orð um það. Margir eru orðnir leiðir á þessu umtali og finnst það óraunverulegt, því að þeir hafa sjálfir ekki enn orðið fyrir barðinu á þessu stjórnarfari. Ef einhver gagnrýnir stjórnarhætti í kommúnista- ríkjunum, segja menn, að hann hafi ekki enn læknazt af kalda stríðinu, og þar fram efti'r götunum. Innrásin í Tékkóslóvakíu hefur dregið nokkuð, en samt furð- anlega lítið, úr þessum hugsunarhætti. Menn freistast til að draga fjöður yfir stjórnarfarið í Sovétríkjunum og fylgiríkjum þeirra eða skoða það mildum augum gegnum gleraugu fjarlægðarinnar. Margir vilja ekki eða nenna ekki að trúa því, að Stalin'hafi á ferli sínum látið útrýma 15—20 milljón- um manna, sem þó er margsannað mál. Og það er raunar staðfest, að útrýmingarherferðir nazista gegn Gyðingum og öðrum voru barnaleikur í samanburði við aðgerðir Sovétstjórnarinnar gagnvart villuráfandi kommúnistum og endurskoðunarsinnum og fjölskyld- um þeirra. En hvaða máli skipta nútímamenn atburðir, sem gerðust á Stalinstímanum í Sovétríkjunum? Þeir skipta máli, því að margir núverandi valdhafar þar eystra, þar á meðal Kosygin og Brezhnev, urðu ein- mitt áhrifamenn í hreinsununum miklu fyrir síðustu heimsstyrjöld. Þeir lifðu og hrærðust í ógnaröldinni og mótuðust af henni. Innrásin í Tékkóslóvakíu sýnir, að Stalinisminn lifir enn góðu lífi. Það er enn grunnt á hinum tilfinningalausa ruddaskap. Þessi mál eru íslendingum fjarlæg. Stjórnskipulag okkar hvílir á öðrum og mannlegum grunni. En það er að sjálfsögðu ekki fullkomið. Við verðum oft áþreif- anlega varir við það. Alþingismenn okkar eru sagðir ekki nógu góðir og duglegir. Við erum sagðir vera of afturúr í skólamálum, vísindum og mörgu öðru. Ótal vankantar eru harðlega gagnrýndir eins og vera ber. ' En sá galli fylgir, að með gagnrýninni síast inn fyrirlitning á lýðræðinu. Fjölmennir hópar manna, ekki síður meðal yngri kynslóðanna, magna fyri'r sér vapkanta lýðræðisins en smækka galla alræðisins. Hinir tiltölulega smávægilegu blettir á lýðræðinu verða þyngri á metunum en öll óhæfa alræðisins. Þannig geta hlutföllin raskazt. Mörgum andans mönn- um, sem hafa mikil áhrif í þjóðfélaginu, sést yfir þessi röngu hlutföll. Þeir grafá þannig óafvitandi undan lýðræðinu. Við skulum gagnrýna lýðræðið okkar eftir efnum og ástæðum. En samt skulum við aldrei slaka á vöku okkar og vörnum gagnvart alræðiskerfum. vrsiR . Þriðjudagur 10. desember 1968. Vestur-þýzk skriðdrekasveit á æfingu. Vestur-Þjóðverjar efla iand- her sinn, flugher — vegna nýrra viðhorfa eftir innrásina i Tékkóslóvakiu □ Landvamaráöherra Vestur- Þýzkalands Gerhard Schröd er, flutti ræðu nýlega í sam- bandsþinginu og bar fram til- lögur, sem miöa að því aö efla og búa nútímatækjum her Vest- ur-Þýzkalands, — .vegna út- þenslu- og ágengnisstefnu Sovét rikjanna, sem í ljós hafi komið með innrásinni í Tékkóslóvakíu. Samkvæmt tillögunum veröa útgjöldin til landvarnanna aukin Gerhard Schröder. um 2,5 milljaröa marka og fer hluti fjárins til nýrra herflugvéla og kafbáta, en einnig er gert ráð fyrir hærri þóknun fyrir störf innan vébanda landvamanna. Fénu verður variö á næstu 4 ár- um sem að ofan segir. Líta má á þessar tillögur sem undirtektir Bonn-stjórnarinnar vegna vibhorfsins á ráðherra- fundi Norður-Atlantshafsbanda- lagsins vegna innrásarinnar í Tékkóslóvakíu og ákvörðunar- innar Um, að efla varnir banda- lagsins vegna hættunnar. Miðað er við að fullskipa — og hafa jafnan fullskipaöar þær hersveitir Noröur-Atlantshafs- bandalagsins, sem ávallt eiga að vera reiðubúnar til varna, verði á eitthvert land bandalagsins ráðizt. Gerhard Schröder sagði er þann lagði fram tillögurnar, að með inrásinni i Tékkóslóvakíu hefði raskazt jafnvægið á megin landinu Varsjárbandaiaginu i hag, og einnig vegna ihlut- unar Sovétmanna í deilunum og átökunum í Austurlöndum nær milli ísraels og Arabaríkj- anna, og loks vegna þess að Sovétríkin hefðu aukið stórkost lega flota- og flugvélastyrk sinn á Miðjarðarhafi. Allt þetta væru stoðir undir útþenslustefnu Sovétríkjanna, þ.e. að þenja út yfirráða- og áhrifasvæöi sín. Schröder kvaö unnt að greina í þessu öllu heimsveldisáform og hann hélt því fram, að hér kynnu Rússar að vera aö leggja grundvöll að því að geta hafið sókn þessum áformum til fram dráttar, og má í því sambandi minna á að mikið hefir verið rætt um þá hættu sem Rúmenía og Júgóslavía kynnu aö komast í ef framkoma Sovétríkjanna og fylgiríkja þeirra yrði’ víöar eins og hún var í Tékkóslóvakíu. Willy Brandt studdi einnig tillöigurnar um aukin fjárframlög til varna og minnti á niðurstöö- ur þær, sem ráðherrar. Norður- Atlantshafsbandalagsins hefðu komizt að á fundi sínum í Brussel, en þær hvildu á þeim stoðum, að Sovétríkin sjálf teldu heimsveldisáformum sínum hættu búna vegna varna NATO að þaö talaöi sínu máli, að nú væri farið að tala um hið „social istiska samveldi“ austan tjalds og að með herflutningunum vest ur á bóginn væri brotiö í bág við stefnuna um aö i austri og vestri yrði gagnkv. dregið úr víg feúnaði og fækkað mönnum und ir vopnum. Willy Brandt, varakanzlari stjórnarinnar og utanríkisráö- herra, sagði ennfremur að engin breyting væri á þeirri stefnu stjórnarinnar, að draga úr við- sjám milli þjóðanna í austri og vestri. og flota Willy Brandt. Schröder neitaði, að áformaö væri aö fækka í her V-Þýzka- lands, en í honum eru nú 400*000 hérmenn og yrði það að haldast, en vegna áformanna um eflingu vama, kynni að verða um fjölg- un í hernum að ræða. Hann kvað ' og svo að oröi að þótt Vestur- * Þýzkalandi væri öryggi í á- byrgðarvemd Bandaríkjanna sem kjarnorkuveldis hefðu land herir N-Atlantshafsbandalags- • ríkjanna aukið gildi vegna þeirr- : ar nauðsynjar að geta flutt mikið Iið til í skyndi ef til innrásar kæmi. Hann kvað þörf vera á næsta • ári fyrir 240.000 þjálfaða liðsfor ingja, undir- og yfirforingja, en innan við 200.000 um að ræða ' nú, sem til mála kæmu. Til þess að ráða bót á þessu yrði kaup undirforingja aukið og von um að það leiddi til fjölg ' unar þeirra og að margir undir foringjar sem áður vora f hem um gangi í hann aftur af eigin hvötum. Schröder sagði, að keyptar ’ yrðu 2000 loftvarnabyssur með 20 mm hlaupvídd til viðbójar. 220 fallbyssur, sem ekið er undir eigin afli stað úr stað, 88 Phantomþotur og að 50 Star- fightpr-þotur verði smfðaðar í V-Þýzkalapdi meö sérstakri bandarískri heimili. Loks yrðu smíðaðir 12 kafbátar til strand- gæzlu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.