Vísir - 19.12.1968, Side 1
Wíái&iSiv
VISIR
;] Johnson á sjúkrahúsi
Johnson Bandaríkjaforseti var ensu. Hún er útbreidd í 33 sam
' fluttur á sjúkrahús í gær. Hann bandsríkjum Bandaríkjanna og
i var með lágan hita og átti ekki mörg fyrirtæki segja aö 1 af
hægt með öndun. hverjum fimm starfsmönnum
Líklegt er, að hann hafi feng- sé fjarverandi af völdum veik-
hí svokallaða Hongkong-innflú- innar.
Ósöluhæfur rjómi á markuSuum
Heilbrigðisnefnd leggur fyrir samsöluna að vanda
betur til vörunnar — Forstjóri Mjólkursamsölu
kennir um hlýju veðri og löngum flutningi
Rjóminn, sem hefur feng-
izt hér í Reykjavík, hefur
vakið óánægju að undan-
förnu. Hann hefur verið
súr, þegar átti að neyta
hans. Tvær ályktanir hafa
verið samþykktar varð-
andi rjómann önnur frá
Heilbrigðisnefnd sem hljóð
ar þannig: Að gefnu til-
efni leggur Heilbrigðis-
nefnd fyrir Mjólkursamsöl
una, að ekki verði hafður
á boðstólum ósöluhæfur
rjómi hér í borginni.
Hin ályktunín er frá aðalfundi
Bandalags kvenna í Reykjavík og
stendur þar, að aðalfundurinn skori
á Mjólkursamsöiuna að setja dag-
setningu á umbúðir um rjóma.
Þessi áskorun sé m. a. borin fram
vegna þess, að nokkuð beri á því,
að rjóminn sé orðinn súr, þegar
hann sé keyptur.
Blaðið talaði við Stefán Björns-
son forstjóra Mjólkursamsölunnar,
sem skýrði frá því, að Mjólkur-
samsalan flytti rjómann norðan úr
Iandi, frá svæðinu allt frá Blöndu-
ósi að Húsavík. Þetta stafi af því
að mjólkurframleiðslan hefur dreg-
izt saman hér sunnanlands. Þá
sagði Stefán að borið hefði á því
að rjóminn hefði verið gallaður og
kenndi því um að hlýtt heföi ver-
ið í veöri og miklir örðugleikar
séu á því aö geyma rjómann ó-
skemmdan. Megi búast við því, að
með kólnandi veðráttu leysist
þetta vandamál að einhverju leyti.
Við erum búnir aö gera allar hugs-
anlegar ráöstafanír i samráði við
þá fyrir norðan til þess að ráða
bót á þessu. Stefán sagði einnig,
að sum mjólkurbúanna fyrir norð-
an teldu sér ekki alltaf fært að
senda nýjan rjóma og söfnuðu sam-
an rjóma til þess að senda. Rjóm-
inn sé sendur í brúsum á bifreið-
um. Þessir rjómaflutningar hafa
staðið síðan í október.
Jólaópera
/ Melaskóla
Margar glæsilegar skemmtanir
fara fram í barnaskólunum á
„Litlu jólunum“. í gær var jóla-
ópera flutt í Melaskólanum. Þar
komu fram bæði jólasveinar,
Grýla og Leppalúði og kór. Að
vonum vakti óperan, sem Magn-
ús Pétursson samdi, mikla á-
nægju barnanna.
Annasamir dagar framundan
hjá alþingismönnum
Mórg mál afgreidd fyrir helgina, en jbó fara
beir i langt jólafri
■ Það verða miklar annir hjá
alþingismönnum fyrir jólin
ekki síður en hjá húsmæðrum og
verzlunarmönnum. Síðustu fund
ir hjá neðri og efri deild verða
í dag og Iiggja allmörg mál fyr-
ir, sem bíða afgreiðslu í
deildum og verða væntanlega
afgreidd í dag. Fjárlagafrum-
varpið verður tekið til þriðju
umræðu í sameinuðu þingi á
morgun, en á laugardag verða
væntanlega atkvæðagreiðslur
unt frumvarpið, en þá fara al-
þingismenn í langt jólafrí alveg
fram í byrjun febrúar.
í deildunum bíða allmörg mál af-
greiðslu í dag. Allmörg mál eru
enn hjá nefndum, en eru væntan-
leg þaðan í dag og verður þá
væntanlega gengið frá þeim. I
neöri deild er t.d. búizt viö, að
gengið verði frá frumvarpi um ráð
stafanir í sjávarútvegi vegna gengis
lækkunarinnar, frumvarpi um toll-
skrárbreytingar, þóknun fyrir inn-
heimtu opinberra gjalda og fleiri
málum,
í efri deild er væntanlega beðið
með mestri eftirvæntingu eftir af-
greiðslu frumvarpsins um undan-
þágur smærri togveiðiskipa innan
landhelginnar. Þetta er viökvæmt
mál, en hefur verið afgreitt úr
neðri deild og samþykkt þar. Af
öðrum málum má nefna hækkun á
námslánum vegna gengisbreyting-
arinnar, frumvarp í landbúnaði af
sömu ástæðu, frumvarp um Bjarg-
ráðasjóð, frumvarp um breytingu
á lögum um skólakostnað og fleiri
mál.
Eftir er að kjósa í margar nefnd-
ir, en jafnan er beðið eftir því með.
nokkurri eftirvæntingu. Meðal þess
arra nefnda sem eftir er að kjósa í
má nefna öll bankaráðin.
Hæstiréttur
lækkaði bæturnar
og orðið fyrir slysi, þegar spreng-
ing varð í eldhólfi gufuketils í
þvottahúsi heimilisins.
í Hæstarétti féll dómur á þann
veg, að elliheimilinu skyldi gert að
greiöa ekkjunni og börnum hins
látna samtals kr. 780 þús. auk máls-
kostnaðar í héraði og Hæstarétti,
sem næmi 175 þús. kr.
Voru þannig bæturnar iækkaðar,
sem elliheimilinu skyldi gert að
greiða, frá því sem gert var ráð
fyrir í Héraðsdómi.'Þar höfðu bæt-
urnar verið ákveðnar 1.144 þús. kr.
ásamt vöxtum og 150 þús. kr. máls-
kostnað. Þeim dómi hafði elliheim-
iiiö ekki unaö og því áfrýjað til
Hæstaréttar.
í forsendum dómsins í Hæstarétti
þótti sem hinn látni hefði sýnt
nokkra óvarkárni, og því væri rétt,
að hann bæri sjálfur Yt skaðans,
en elliheimilið, vinnuveitandi hans,
3Á-
Einn hæstaréttardómarinn skiiaði
sératkvæði, sem gerði ráð fyrir, að
hinn' látni bæri skaöa sinn að %
hlutum, en elliheimilinu yrði gert
að greiða 624 þúsund krónur til
ekkjunnar og barnanna, auk 150
þús. kr. málskostnaðar.
Dómur hefur failið í Hæstarétti
í máli, sem ekkja höfðaði gegn
elliheimiiinu Grund fyrir sig og
börn sín eftir mann sinn látinn, en
hann hafði starfað fyrir elliheimilið
Sveinn Asgeirsson á skrifstofu Neytendasamtakanna meðan hann stýrði þeim.
„Þrfr fjórðu fundarmanna með
föisuð skírteini"
— segir Sveinn Asgeirsson um aðalfund
Neytendasamtakanna
Innrásiii í neytendasam- takanna, hefur ritað Seg
tökin nefnist bæklingur, ist hann í bæklingi þess-
sem Sveinn Ásgeirsson, um rekja hvemig innrás-
fyrrum formaður sam- in var gerð í samtökin
29. júlí með fölsuðum fé-
lagsskírteinum og hvern
ig valdarán var framið
að kvöldi 4. september
síðastliðins.
Sveinn segir í pésa þessum aö
þrír fjórðu fundarmanna hafi
verið með fölsuð félagsskírteini
og hafi þeim verið smalað sam-
an fyrir fundinn.
Lýsir hann fundinum og eftir
leik hans. — Auk þess rekur
hann stuttlega sögu samtakanna
í þessum pésa. Fer Sveinn ófögr
um orðum um núverandi stjórn
samtakanna.
Mál neytendasamtakanna
voru sem kunnugt er mikið á
dagskrá í haust í það mund,
sem stjórnarskiptin urðu. — Var
þá af núverandi stjórnendum
samtakanna krafizt rannsóknar
á bókhaldi samtakanna og mun
það og fleira í rekstri síöustu
ára vera í opinberri rannsókn.