Vísir - 19.12.1968, Blaðsíða 7
V í SIR . Fimmtudagur 19. desember 1968.
7
útlöiid £ inorgun útlönd í morgun
morgun
MIKIL VERÐHÆKKUN Á
FRJÁLSUM GULLMARKAÐI
■ Vegna óvissunnar um stefnu
Bandarikjanna varðandi gull
Forvaxfahækkanir
i Bandaríkjunam
og Kanada
Forvextir hafa verið hækkaðir í
Bandaríkjunum og Kanada, i
Bandaríkjunum úr 5% af hundraði
í 5y2 og í Kanada úr 6 í 6 og hálfan
af hundraði. Tilgangurinn er að
draga úr verðbólguhættu.
hækkaði verð á gulli í gær á
frjálsum markaði, svo að það
komst í hærra verð en það hefur
komizt í frá í júní.
Fyrir hönd Nixons, veröandi for-
seta Bandaríkjanna, var sagt £ gær
að hann heföi ekki breytt afstöðu
sinni frá í kosningabaráttunni, en
þá sagöist hann búast við óbreyttu,
opinberu verði á gulli, þ. e. 35 doll-
arar únzan.
Það munu einkum hafa verið um-
mæli Davids Kennedys, sem leiddu
til hækkunarinnar.
New York í gær:
David Kennedy, sem verður fjár-
málaráðherra £ stjóm Nixons, sagði
í gær, að hann skuldbyndi sig ekki
til þess að halda gullverði dollars
óbreyttu, og þegar um efnahags- og
peningamál væri að ræða myndi
hann halda opnum öllum möguleik-
um, eins og hann kvað að orði.
Paris i gær:
Viðræður um menningarleg sam-
skipti Frakklands og Sovétrikjanna
eru í þann veginn að byrja, en áttu
upphaflega að byrja í marz.
Það er vegna óska sovétstjórnar-
innar, aö viðræðunum verður flýtt.
í óstaðfestum fregnum segir, að
Sovétríkin hafi boðið Frakklandi
aðstoð vegna gjaldeyriserfiðleik-
anna.
Laos-lið hrekur N-Víetnama
úr landamærabæ
Laos-herlið, sem naut stuðnings
flugvéla, hefir hrakið Norður-Víet-
nama frá bæ £ Laos skammt fr:
landamærum Suður-Víetnam. Bær
þessi er mikilvæg samgöngumiðstöð
Strauss varar við
afleiðingum víg-
búnaðar Sovéf-
ríkjanna
Strauss fjármálaráðherra Vestur-
Þýzkalands hefir i tímaritsgrein
varað við þeirri hættu, sem stafar
af auknum viðbúnaði Sovétrikj-
anna á Miðjaröarhafi, og til áhrifa
í nálægðum Austurlöndum, og
gagnrýndi hann, að þessari hættu
hefði ekki verið sinnt sem skyldi
í Vestur-Evrópu.
og hafa Norður-Víetnamar flutt um
hana lið og birgðir síöan er þeir
hertóku hana í fyrri viku. Barizt
var enn í nágrenni bæjarins, er síð-
ast fréttist í gærkvöldi.
N.V. hefir mikið
lið i Suður-Víetnam.
Nýútkomið NEWEWEEK birtir
grein um herstyrk Norður-Víetnam,
samkvæmt seinustu könnunum,
sem gerðar hafa verið af Banda-
ríkjunum, og er niðurstaða þeirra,
að rangar séu og fjarstæðukenndar
fréttir um, að Norður-Víetnam sé
mun veikara hernaðarlega en áður.
Áðurnefnd athugun ieiðir í ljós, að
Norður-Víetnam hafi 140 — 160.000
manna lið i Suður-Víetnam eða
grennd, og Víetcong 40.000 og
þetta sé nægiiegur liðsafli til þess
að hefja sókn þá til Saigon, sem
svo mjög hefir verið um rætt.
Velfum
islenzkt
tll jólagjafa
Tékkneskir málmiðjumenn
hóta oð hefja verkföll
Prag í morgun: Málmiðjuverka-
menn í Tékkóslóvakíu hafa hótað
verkfalli ef stefnan í umbótamál-
um leiðir til stöðusviptinga, jafnt
hvort sem um þjóðarleiðtoga er að
ræða eða aðra.
Prag í gær: Tveggja daga um-
ræða hófst í dag á þjóðþingi Tékka
til þess að ræða skiptingu landsins
í tvö sambandslýðveldi undir einni
sambandsstjórn.
Dr. Húsak, leiðtogj Kommúnista-
flokks Slóvakíu segist ekki taka við
flokksforystu Kommúnistaflokks
Tékkóslóvakiu af Alexander Dub-
cek.
Ky og Harríman
á fundi i gær
Ky, varaforseti Suður-Víetnam,
ráðunautur sendinefndar lands síns,
sem kominn er til Parísar til þess
aö sitja Víetnam-ráðstefnuna á
breiðara grundvelli, sagðj í París
í gær, að Bandaríkjastjóm legði
nú fast að stjórn Suöur-Víetnam,
aö vera samkomulagsliprari.
Ky sagði þetta eftir að hann
kom af fundi með Averil Harri-
mann, aðalsamningamanni Banda-
ríkjanna. — Ky endurtók við frétta
menn gagnrýni á Clark Clifford,
landvarnaráöherra Bandaríkjanna.
Frönskum stúdent-
um hótað svipt-
inqu námsstyrkja
Lögreglan í París var í gær kvödd
frá heimspeki-háskóladeildinni í
Nanterre við París, í von um að
það leiddi til þess að stúdentar
hættu mótmælaaðgerðum.
Jafnframt varaði innanríkisráð-
herrann stúdenta við afleiðingum
þess, aö ókyrrö héldist áfram, og
gæti það leitt til þess, að stúdentar
yrðu sviptir námsstyrkjum og yrðu
ekki lengur aönjótandi þeirra frið-
inda, að vera undanþegnir her-
þjónustu.
ÓTRÚLEGT
m SATT
Hin margeftirspurðu svefnherbergis-
sett eru komin aftur.
Nú geta allir eignazt
svefnherbergissett
Við bjóðum yður svefnherbergissett
gegn skilmálum og verði í sérflokki.
Hjónarúm með dýnum á aðeins
kr. 12.900,00
með okkar viðurkenndu
greiðsluskilmálum.
Ennfremur höfum við á boðstólum
góðar springdýnur, verð frá
kr. 3.000,00.
■ Verzlið þar sem úrvalið er mest
og kjörin bezt.
Hvar gerið þér betri kaup?
TRÉSMIÐJAN VÍÐIR
LAUGAVEGI 166 . SÍMAR: 2 22 22 OG 2 2229