Vísir - 21.12.1968, Qupperneq 1
Menntskælingar fara í
hráskinnaleik
Þaö verður margt á seyði á
jólagleði Menntaskóians í
Reykjavík þann þrítugasta. Nem
endur vinna af kappi þessa dag
ana við undirbúning gleðinn-
ar.
Yfirskrift hennar verður: „Lif-
andi brunnur hins andlega seims“,
en gleðin verður raunar helguð
skemmtunum Islendinga að fomu
og hnútukast
kennaranna af ýmsu því, sem
menn hafa haft að dægurgamni
hér á landi.
Þegar Vísir brá sér bak við tjöld-
in í Laugardalshöllinni, þar sem
skemmtunin verður, gat að líta
myndir af ýmsum göfugum iþrótt-
um fornmanna, svo sem hnútukasti
og hráskinnaleik, glímu, kveðskap
»->■ 10. síða.
Þessir hafa, sýnist manni, brugðið sér í eina bröndótta. Myndin er eftir Jón Ásbergsson, en þeir sem
gægjast þar hjá rammanum eru Ragnar Kvaran, Sigurður Guðmundsson, Snorri Zóphóníasson, Þor-
lákur Helgason (inspector scholae) og Ingólfur Margeirsson.
og nýju. Myndir hafa verið gerðar
eftir áreiðanlegum heimildum
Hvað á að gefa í
jólagjöf?
V'ISIR 1 DAG
— 32 s'iður
— aukablað um
jólagjafainnkaup
Það er vandi að velja jóla-
| gjöfina, — og enn meiri vandi
að gefa gjöf því það verður að
gerast með hinu rétta hugar-
fari og í hinum rétta og sanna
anda jólanna.
j í jólagjafahandbók Vísis, síð-
ara hluta, sem fylgir blaðinu í
dag, er að finna ýmsar smá-
gjafir, sem sannarlega ættu ekki
að koma við pyngjuna, þær
kosta allar innan við 100 kr.
Þá eru ráðleggingar um ýms-
ar dýrarj gjafir, gjafir HANDA
HENNI og HANDA HONUM,
það eru gjafir, sem ættu að
vera hentugar og koma að gagni
í framtíðinni.
Olíuhöfn í Geldinganesi ráðgerð
— Lækkun oliuverðs vegna stærri oliuskipa.
— Mikilvægt að losna v/ð jbau úr höfninni
vegna hættunnar segir hafnarstjóri.
Frumdrög að olíuhöfn við Geldinganes hafa verið
unnin á vegum Reykjavíkurhafnar og var lokið við
þau í sumar. Gert er ráð fyrir að sköpuð yrði að-
staða fyrir öll olíufélögin á Geldinganesinu og er á-
ætlað að um 70 þús. tonna oiíuflutningaskip geti
lagzt þar að bryggju í upphafi, að því er Gunnar
Guðmundsson, hafnarstjóri sagði Vísi í gær.
Seinna er gert ráð fyrir aö
höfnin yrði stækkuð þannig, að
100 þús. tonna olíuflutningaskip
gætu Iandaö þar olíu. — Stærstu
olíuflutningaskipin, sem nú
koma til landsins eru um 20
þús. lestir. Aðstaðan er ekki
fyrir hendi til að taka á móti
stærri skipum.
Hafnarstjóri sagði, að þessi
höfn ætti eflaust langt i land,
þó að nú væri byrjað aö vinna
aö undirbúningi hennar. Þetta
væri þó aðstaða, sem nauðsyn-
legt væri að skapa olíufélögun-
um, sem búa nú við mjög úrelt
fyrirkomulag. — I olíuhöfninni
í Geldinganesi yröi aðstaða fyr-
ir olíuskipin, sem annast um
dreifinguna innanlands, en það
væri mikið nauðsynjamál að
losna viö þau úr Reykjavíkur-
höfn, þar sem þau valda hættu.
Samkvæmt lauslegri kostnað-
aráætlun um gerð hafnarinnar,
mun hún kosta um 50 milljónir
viö fyrsta áfanga, þ.e. gerð
bryggju og athafnasvæðis fyrir
olíufél. Þessi kostnaðartala er
frá því í sumar, en hún mun að
sjálfsögðu hækka við gengis-
lækkunina og hækkanir á verð-
lagi innanlands. 1 frumdrögun-
um er einnig gert ráð fyrir
svæði undir olíuhreinsunarstöð,
en eins og kunnugt er hefur
nokkuð verið rætt um að koma
slíkri stöð upp hérlendis.
Hallgrímur Hallgrímsson, for-
stjóri Skeljungs sagði í viðtali
viö Visi, aö það væri algjört
nauðsynjamál fyrir olíufélögin
og landið í heild, að olíuhöfn
yrði byggð, sem fyrst. ÖH að-
staöa olíufélaganna væri orðin
löngu úrelt. Flest olíuskipin,
sem kæmu með olíu hingað tfl
m->- 10. síða.
Bókasalan mikil og nokkuð jöfn
Hnútukast ú
Alþingi
— sjá bls. 10
— Visir forvitnast um söluhæstu jólabækurnar
— Bók Laxness jbó greinilega vinsælust
Salan á jólabókunum er yfir-
leitt mikil og jöfn var svarið hjá
flestum bókaverzlununum, sem
Vísir hafði samband við í gær til
að forvitnast um jólabókasöluna.
Erfitt er að gera upp á milli
Það er mikið um afleysingar á skipunum jólin. Hér gengur nýr vélstjóri um borð í Laxá
í Keflavík. Hann fær sér upplyftingu með ferð til Portúgals um leið og einn vélstjórinn getur
notið jólanna heima til tilbreytingar.
margra bókanna. Þó voru allar
fimm verzlanirnar, sem Vísir
hafði samband við sammála um
að Kristnihald undir Jökli, eftir
Halldór Laxness væri efst á
blaði.
Verulég hreyfing er nú komin
á bóksöluna, þannig að útgefend-
ur þurfa varla að sjá eftir því, þó
að þeir hafi hvolft bókaflóðinu
yfir þjóðina um þessi jól eins og
áður.
Þær bækur, sem helzt voru
nefndar eru: Kristnihald undir
Jökli, I striði og stórsjóum eftir
Svein Sæmundsson, Svipir Reykja
víkur (Ámi Óla), Reynistaðarbræð-
ur (Guðm. Guðlaugsson), Séra
Jónmundur (uppseld hjá forlaginu),
Afreksmenn (Gunnar M. Magnúss),
Séra Friðrik (eftir nokkra vini),
Gróandi þjóðlíf (Þorsteinn Thorar
ensen, en hún selst vel þó að hún
sé með dýrari bókum á markaðn-
»->- 10. síða.
LAGT UPP I
JÓLATÚRINN
— Margir sjómenn fjarverandi um jólin
Þeir verða margir sjómenn-
irnir, sem verða fjarri heim-
ilum sínum nú um jólin eins
og önnu.- jól. Þeir eru þó ekki
allir sjómenn að staðaldri,
sem munu standa við stjóm-
völinn á íslenzku skipunum á
úthöfunum nú um jólin. Af-
leysingar eru ávallt miklar
um jólin. Sjómenn, sem hafa
verið fjarri heimilum sínum
á jólunum áður fá frí en land-
krabbar og gamlir sjómenn
bregða undir sig betri fætln-
um og fara í eina ferð sér til
upplyftingar.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Vísir hefur aflað sér verða flest
ir togararnir á veiöum um jól
10. sfða.