Alþýðublaðið - 04.01.1966, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 04.01.1966, Blaðsíða 2
eimsfréttir siáastliána nótt ★ WASHINGTON: — Johnson forseti tók í gær við skýrsl- ura diplómata sem ferðazt liafa um allan heim til að kanna mögu- leika á friðsamlegri lausn á Vietnamdeilunni. Forsætisráðherra Breta, Wilson, sendi í gær liinum sovézka embættisbróður sínum. Kosygin, orðsendingu og bað hann um að athuga hvort ekki bæri að boða til nýrrar Genfarráðstefnu um Vietnam. Hanoiblað- ið ,,Nhan Dan” liæddist í gær að friðartilraunum Johsons forseta og ítrekaði kröfuna um brottflutning bandarískra hersveita sem skilyrði fyrir friöarviðræðum. ★ SAIGON: — Bandarískir fallhlifaliðar beittu táragasi úr Iþyrlum gegn Vietcong í harðri orustu á hrísgrjónaekrunum á Alekongósa svæðinu í gær til að hrekja skæruliða úr felustöðum sínum. Bandaríkjamenn hafa sigrað í þessari orrustu, sem geisað hefur síðan á sunnudag og milcið mannfall hefur orðið í liði Viet- eong, sem gerðu tilraun til að ná á sitt vald hrísgrjónauppsker- unni á ósasvæðinu. ★ TASJKENT: — Leiðtogum Indlands og Pakistans, Lal Bahadur Shastri og Ayub Iíhan, var ákaft fagnað er þeir komu í gær til höfuðborgar sovétlýðveldisins Uzbekistans þar sem þeir ■♦lefja viðræður um Kasmírmálið í dag. Diplómatar eru svartsýnir á árangur þessara fyrstu viðræðna æðstu manna Indlands og f'akistans síðan Kasmírstríðið brauzt út í september. Þetta er í fyrsta sinn sem Sovétrikin reyna að miðia málum í alþjóðadeilu. ★ LAHOilE: — Indverskir og pakistanskir hermálafulltrú- ar komu saman til fundar í Laliore í gær um brottflutning her- sveita frá vopnahléslínunni. Fulltrúi SÞ, Tulio Marambio hers- höfðingi, kallaði fulltrúana saman til fundar. ABIDJAN: — Til bardaga kom milli ófriðarseggja og her- fnanna í gær í Ouagadougou, höfuðborg Efri-Volta, þar sem boðað tiefur verið til ailsherjarverkfalls í trássi við bann stjórnarinnar, Scm hefur lýst yfir neyðarástandi þar sem komizt hefur upp um fiamsæri kommúnista. Fyrrverandi þingforseti er sakaður um að haf stjórnað þcssu samsæri um að sameina landið Gana. ★ BANGUI: Herinn í Mið-Afríkulýðveldinu hefur gert bylt- ingu og leiðtogi byltingarinnar, Bokassa ofursti myndaði nýja stjórn í gær. ★ DAHOMEY: — Stjórnin málasambandi við Kína. í Dahomey hefur slitið stjórn- ★ NEW YORK: — Milljónir New Yorkbúa urðu að hjóla eða ganga til vinnu sinnar í gær vegna verkfalls flutningaverka- —tnanna og þannig varð komizt hjá umferðaröngþveiti, sem Lind- say borgarstjóri hafði óttazt. ★ KAIRÓ: — Bandaríkin og Egyptaland undirrituðu í gær sarnning sem k\eður á um að Egyptar fái matvæli að verðmæti 5p,5 millj. dollara á næstu sex mánuðum. ★ PARÍS: — Jafnaðarmaðurinn Vincent Auriol, fv. forseti brakka, lézt á sunnudag. Þór lagðist á hlið- ina í Slippnum vin í m.s. Selá Nokkrir kassar af smygluðu á fengi fundust í M.s. Selá rétt fyr ir áramótin. Lögreglumenn sem voi-u á vakt við höfnina að nóttu til sáu mann vera að rogast með kassa upp úr skipinu og töldu rétt að athuga innihaldið. Kom í ljós að það voru 12 flöskur af smygl uðu áfengi. Leit var gerð í skip inu og fundust þá þrjátíu og átta flöskur í viðbót. Við yfirheyrslu viðurkenndu tveir skipverjar að eiga smyglvarninginn. 16 útköll yfir nýársdagana Jökull Jakobsson og Agnar Þórðarson taka við verðlaununum Leikritun og tón list verðlauiiuð Hin árlega styrkveiting úr Rit höfundasjóði ríkisútvarpsins fór fram í Þjóðminjasafninu á gamlárs Reykjavík, — GO. Samkvæmt upplýsingum slökkvi liðsins í Reykjavík var það kvatt út 16 sinnum á gamlársdag og ný ársdag, eða á tveim sólarhringum Einu sinni var um grun að ræða fjórum sinnum gabb, þrisvar úr brunaboða og einu sinni úr síma (Jag. Styrkinn hlutu að þessu sinni ellefu sinnum var um eld að ræða, I ieikritaskáldin Agnar Þórðarson en smávægilegan í öll skiptin og 0g jökull Jakobsson, 25 þúsund varð ekki af teljandi tjón. Á sama krónur hvor um sig. Kristján Eld Framhald á 15. síðu. | járn formaður sjóðstjórnarinnar af Drukknaói er bíll hans fór í sjóinn Reykjavík, ÓTJ. I eftir bifreiðina, en þar eð engir Þrítugur maður, Heimír Bald- sjónarvottar voru að slysinu var Reykjavík, — OÓ. Þegar verið var að draga varð skipið Þór í slipp í gærdag vildi t|jáð óhapp til að iskipið losnaði í dráftarbrautarsleðanum og féll á ♦iliðina. Ekki féll það alveg til -Jiarðar þar sem önnur hlið sleð •ans stóð fyrir. Skemmdir urðu ekki «nlklar á skipinu og enginn mað Hjr slasáðist, en einn af starfsmönn *im slippsins féll í sjóinn og synti < adn að næstu bryggju og varð öktíi meint af. Ekki reyndist hægt Cð láta skipið renna í sjóinn aftur, ••♦Ktl sleðinn skekktist mikið og arttmiu hjól hans ekki cftir braut JtXtiÁ. Ekkj var hægt að rétta skip 4ð,íísleðanum og stóð því þarna allt -4ast í gær ogi nótt. t'dag verður gerti tilraun til að ná dráttar sleðan um lausum frá skipinu með því að sjóða sundur nokkra bita í botni hans og verður Þór þá rennt í sjóinn vinsson frú Bárðardal, drukknaði jf Akureyrarhöfn á gamlársdag, er 'hann missti stjórn á hifreið sinni og hún fór í sjóinn. Vm kl 9 að morgni þess dags var lögrpglunni tilkynnt um stóra vörubifreið sem ekið var á mikilli ferð á Guðmanns. hús á mótum Kaupvangsstrætis og Hafnarstrætis Varð af þessu milcill skarkali og brot úr hofni hússins dreifðust víðsvegar um. Eftir þetta lenti bifreiðin á Eim- skipafélagshúsinu af miklu afli, og fór þaðan í sjóinn. Þar sem höfnin var isilögð myndaðist vök ekkert vitað um það sem skeð hafði, eða hvort maður var í bif- reiðinni. Fljótlega kom þó á dag- inn að svo var, og var froskmaður þegar sendur niður. Manninum var náð upp en lífgunartilraunir báru ekki árangur. Heimir, sem var starfsmaður Olíuverzlunar íslands, hafði mætt til vinnu sinnar um morguninn, og sáu vinnufélagar hans þá ekkert athugavert við hann. Talið er að hann hafi misst meðvitund við stýrið, en honum var að sögn hætt við yfirliðum. SPÁNVERJISTÖRSLASAST í HAFNARFIRÐI Rvík OTJ. Spánskur sjómaður stórslasaðist í Hafnarfirði á gamlárskvöld. Hann var á norsku lýsisflutningaskipi sem lá í höfninni þá um kvöldið og hafði brugðið sér í bæinn á samt félögum sínum. Þeir voru á leið yfir Strandgötuna þcgar spán verjinn varð fyrir Volkswagenbif reið sem kom aðvífandi. Kastaðist hann í loft upp, skall niður á farangursgeymsluhlífina, fór í gegnum framrúðuna og rakst svo harkalega í rúðukarminn að hann dældaðist mikið. Þaðan féll hann svo I götuna. Við þetta fót brotnaði hann á báðum fótum, og var a.m.k. annað brotið opið. Auk þess hö.fuðkúbubrotnaði hann, kjálkabrotnaði, kinnbeinsbrotnaði og skarst víða á höfði -Alþýðublað ið hafði samband við lögregluna í Hafnarfirði í- gærkvöldi, og leið manninum þá eftir atvikum, en hanu var fluttur á • Landsspítal ann. henti þeim verðlaunin með stuttrt ræðu. Kvað hann þetta vera I fyrsta skipti sem þessi viðurkenn ing væri veitt fyrir leikritagerð, en áður hafa ljöð— og sagnaskáld notið hennar. Er þetta tíunda ár ið sem styrkurinn er veittur en alls eru styrkþegar nú orðnir 19 talsins og hefur fénu langoftasf verið skipt á milli tv.eggja höfunda Sú kvöð fylgir styrknum að hö£ undar skuli láta útvarpið njóta verka sinna fyrir hann þó ekkl muni hart gengið eftir þeirrl skyldu. En þeir Agnar og Jökull hafa báðir sem kunnugt er skrif að leikrit gagngert fyrir útvarp auk leiksviðsverka. Þeir voru báð ir viðstaddir athöfnina í Þjóðminja safninu og tóku sjálfir á móti verð launum sínum. Þá voru einnig veittir í fyrsta sinn, styrkir úr nýúofnuðum Tóri skáldasjóði Rikisútvarpsins, sem er hliðstæð stofnun við Rithö£ undasjóðinn og ætlað að veita tón skáldum sambærilega styrki. Vil hjálmur Þ. Gíslason útvarpsstjórl Framhald á 15. síðu. DA6SBRÚN SEXTÍU ARA Verkamannafélagið Dagsbrún verð ur sextugt síðar í þessum mán uði, eða hinn 26. janúar. Félagið var stofnað þann dag árið 1900 Ekki hefur verið ákveðið hvern ig afmælisins verður minnst, en það mun gert á viðeigandi hátt. / Á fimmtíu ára afmæli Dagsbrún ar fóru fram fjölbreytt hátíða höld. Var hálfrar aldar afmælis félagsins m.a. minnst með hófi að Hótel Borg, afmælisfundi f Aust urbæjarbiói og sérstakri útvarpa dagskrá. i 2 4. jan. 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.