Alþýðublaðið - 04.01.1966, Blaðsíða 3
Hagur þjóðarinnar
aidrei verið betri
NÚ SEM FYRR er við ýmsa örðug
leika að etja og þó er það rétt,
að þegar á allt er litið liefur hag
ur okkar aldrei verið betri en nú
sagði forsætisráðherra, Bjarni
Benediktsson í nýársávarpi sínu til
þjóðarinnar. Hann sagði, að hag
sæld almennings væri engin sjón
hverfing, heldur hafi lífskjör hrað
batnað vegna aukinnar framleiðslu
og auðlegðar þjóðarinnar. Það eru
þess vegna engar ýkjur að við sé
um nú færari til þess en nokkru
sinni fyrr að ráðast í ný verk
efni. Þó bað ráðherrann þjóðina
að minnasta þess, að þótt góður
efnahagur sé undirstaðan, þá sé
hann ekki einhlítur til velfarnað
ar.
Bjarni fó- snemma í ræðu sinni
með tvær tilvitnanir, sem hann
vildi benda þióðinní á. Hin fyrri
var eftir einum reyndasta sendi
herra þjóðarinnar. sem hefði á
það bent. að íslendinga*- nytu góð"
álits um allan heim, ekki vegna
fornrar bókmenntafrægðar, um
liana vissu fáir. heldur vegna fram
komu okkar á ve+tvangi alþjóða
mála nú á tímum.
Síðari tilvitnunin var eftir ein
um af f emstu leiðtogum stjórnar
andstæðinga, sem sagði nýlega:
„Við þurfum ekki að blygðast okk
ar í samanburði við aðra fyrir þá
efnahagsþróun sem hér hefur orð
ið á undanförnum áratugum. Og
efnahagslega séð erum við betur
færir til þess en nokkru sinni fyrr
að ráðast í ný verkefni."
Fo-sætisráðherra gat þess, að
verðbólgan væri enn ólæknuð mein
semd allt síðan 1941, og mundi
seívt finnast varanleg lausn á efna
hagsmálum. Þó hefðu stjórnmála
flokkarnir unnið hver með öðrum
að vísu aldrei allir í einu en þó
alHr einhvern tíma með öllum
öð'iim, Væri þetta einstakt meðal
r>a benti til þess að pólitísk
sundrung væri ef til vill ekki eins
mikii hér á landi og menn vildu
vera láta.
'-v',npði Biarni Benediktsson
kpinr: gagnrvni. sem nvlega hefur
hevrvt að fslendinga bíái um of
lífohaigindagræðgi “ Sagði hann.
að mönnnm færist ekki að hneyksl
Framhald á 15. síðu.
Drukkinn ökumab■
ur olli slysi
Rvík, ÓTJ. fálksbifreið vestur brautina og er
Drukkinn ökumaður á stórri komið var á móts við Stigahlíð
ame ískri fólksbifreið olli alvar rak't hún af heljarafli á þá litlu
legu slysi á Miklubraut á nýársdag sem kastaöist á Ijósastaur á gang
Ameríska bifreiðin ók á eftir minni
Fékk smádrengi til að
Rvik, — ÓTJ.
Kaupmaöur nokkur var tekinn á
nýársdag fyrir að selja ólöglegt
sprengiefni. iheifur Jónsson hjá
rannsóknarlögreglunni sagði A1
þýðublaðinu að fyrst hefðu þrír
drengir verið teknir fyrir að selja
liina svokölluðu Banditt kínverja
Þeir skýrðu frá því að þeir væru
að selja fyrir mann sem þeir
höfðu keypt af fyrir sjálfa sig.
Lögreglan heimsótti manninn sem
viðurkenndi að hafa keypt 20 kart
H'ramhaid a 15 siOu
OOOOOOOO'OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO
30 menn fengu
fullt dagkaup
Reykjavík
Alþýðublaðið skýrði frá því nokkrum dögum fyrir jól, að
verkamönnum við höfnina hefði verið sýnd mjög ósæmileg og
í alla staði óviðunandi framkoma af yfirmanna hálfu, er þeir
voru dregnír á því í heilan dag hvort um vinnu fyrir þá yrði
að ræða þann daginn eður ei Undir kvöld fengu þeir þau svör
að engin vinna yrði fyrir þá þann daginn, en þá höfðu þeir
hímt og beðið svars allan daginn.
Verkamannafélagið Dagsbrún lét þetta mál strax til sín taka
og urðu úrslit þau, að um 30 þeirra, sem til náðist og sannan-
lega höfðu noprað við höfnina allan daginn fengu greidd full
tíu tíma daglaun frá Eimskip vegna þeirra mistaka, sem þarna
áttu sér stað.
0<XXX>OOOO000000<XXXXXXX>00000ð<X>0
stéttinni, þar sem hún snerist við
höggið. Við það kastaðist öku
maðurinn út, og lá meðvitundar
laus á götunni þegar lögreglan
kom á vettvang.
Hinn slasaði, Kjartan Árnason
til heimilis að Mávahlíð 13, var
fluttur á Slysavarðstofuna og það
an á Landakot. Hann hafði hlotið
mikil höfuðmeiðsli. sem þó voru
*kki talin lifshættuleg. Hvað hin
’im viðvék viðurkenndi hann að
hafa setið að drykkju lengst af
’iæturinnar á undan, og virtist
sem hann væri síður en svo búinn
að jafn sig eftir það gaman. Eft
\r að blóðsýnishorn hafði verið tek
5ð af honum var hann fluttur í
c'>no-nfrevmclu lögreglunnar.
I Solisti Veneti hin fræga ít
alska itrengjasveit. sem hér var
á ferð fyrir 2 árum er væntanleg
hingað til lands seinni hluta þessa
mánaðar.
I Soloisti Veneti er ein fremsta
hljómsveit sinnar tegundar og hef
ir hróður hennar farið vaxandi
með. hverju árinu. Nú fyrir
rkömmu hlaut sveitin „Diapason"
verðlaun ársins 1965 á Ítalíu, á i
samt Mario Del Monaeo og píanó
leikaranum Benedetti Michelang
eli.
Hljómsveitin fer í hljómleika'
för til Bandaríkjanna í janúar og
þar kemur út plata um sömu mund
ir hjá CBS.
I Solisti Veneti halda eina hljóm
leika hér í borg á vegum Péturs
Pétursjonar.
frskir listamenn
í Þjóðleikhúsinu
Að morgni þess fimmta þessa
mánaðar kemur hingað til landsins
20 manna hópur írskra listamanna
og heldur listafólkið eina sýningu
á vegum Þjóðleikhússins, en hún
verður n.k. miðvikudagskvöld kl.
20. Flokkur þessi nefnist Feis Eire
ann og kemur listafólkið hingað
frá Dublin og er förinni héðan
heitið til Bandaríkjanna og Kan
ada, en þar mun listafólkið sýna
í nær því 40 — 50 borgum á næstu
4 mánuðum.
Framhald á 14. siðn.
Krag skoraði á konuna
að skila barninu aftur
Kaupmannahöfn 3.1. (NTB—RB)
Prófessor Stephan Hurwitz eft
irlitsmaður með starfi hins opin
bera, sat í allan dag við símann
á heimili sínu í Gentofte, einni út
borg Kaupmannahafnar, í von um
að óþekkta konan, sem rændi litlu
stúlkunni Tina Wiegels, hringdi í
hann.
í nýársræðu sinni skoraði Jens
Otto Krag forsætisráðherra á kon
una að skila barninu aftur til for
eldra þess, t.d. með því að snúa
'■é'- til eftirlitsmannsins í síma.
Tina litla, sem er þriggja mánaða
gömul. hvárf fyrir þremur vikum
og lögreglan hefur tekið við 3.500
tilkynningum í sambandi við mál
ið.
Axel Nielsen dómsmálaráðherra
svaraði í dag fyrirspurn Niels
Westerbys þingmanns um, hvort
barnsræninginn fengi grið ef hún
skilaði foreldrum Tinu heilli á
húfi. Svarið verður birt á morgun
og vitað er að tilmælum verður
hafnað, enda sagði Krag forsætis
ráðherra í nýársræðu sinni að ekki
kæmi til mála að gefa bamsaræn
ingjanum grið.
ÁITA HÆÐA HÚS FYLLIST AF REYK
Reykjavík — OÓ. an níu í gærkvöldi var slökkvilið
íbúðir við heilan stigagang í ið kvatt að húsinu nr. 16—18 við
átta hæða húsi fylltust af reyk Ljósheima, sem er átta hæða íbúð
gærkvöldi þegar eldur komupp íarblokk. í kjallara hússins hafði
kjallara hú sins: Laust fyrir klukk Framhald á 14. síðu.
• ; •»•-••-- » .. . . . . j -
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 4. jan. 1966 3