Alþýðublaðið - 04.01.1966, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 04.01.1966, Qupperneq 7
MINNINGARORÐ: Helgi Hjörvar, rithöfundur EITT þeirra einkenna, er mest skilja nútímann frá fyrri öldum, er hin margvíslega útvarpstækni, sem hefur brúað bilið miili landa, milli héraða, milli einstaklinga. Útvarp náði almennri útbreiðslu árin eftir fyrri heimsófriðinn, en sjónvarp tók sinn fjörkipp eftir síðari ófriðinn, hefði líklega kom- ið áratug fyrr, ef friður hefði haldizt. Áhrif útvarps og sjónvarps hafa orðið svo margvísleg, að þeim verður ekki lýst í stuttu máli. Þessi tæki hafa skapað svo til hverjum einstakling tækifæri til að setja sig í samband við um- hverfi sitt, livenær sem hann vill, heyra kunnuglegar raddir, hlýða á fréttir og annað efni. Langar eyður í lífi manna er nú unnt að fylla margvíslegu efni, sem menn geta valið sjálfir. Um leið hafa foringjar og aðrir áhrifamenn fengið ný tæki til að ná til heilla þjóða og hafa áhrif á þær. Tón- list hefur orðið almannaeign. Að sjálfsögðu er mikið um tímasóun í útvarpi og sjónvarpi, en Dante er þó kominn inn í veitingastof- ur Ítalíu og Ibsen inn á afdala heimili í Noregi. Heilar þjóðir fylgjast með stórviðburðum sam- tiðarinnar um leið og þeir eiga Bér stað. Allt hefur þetta gerzt á sína vísu hér úti á íslandi. Útvarpið hafði því meiri þýðingu, sem landið er strjálbýlt og samgöngur oft erfiðar, svo að enn getur ekk- ert tæki jafnazt á við það til að tengja þjóðina saman. íslenzkur lestur á góðu efni sex daga vik- unnar hefur vegið á móti erlendri bíómynd Iiinn sjöunda. Og nú fengu stjórnmálamenn að ávarpa heila þjóð, sem áður heyrði ekki eða sá þingmenn sína nema með nokkurra ára millibili. Sú breyting, sem útvarpið gerði á íslenzku þjóðlífi, var ótrúlega mikil, þótt hún kunni að gleym- ast fljótt. En því er þessi þróun rifjuð upp nú, að í dag fer fram útför ’Helga Hjörvars rithöfundar, sem var einn af frumherjum út- varps á íslandi og einn þeirra, sem mest mótuðu dagskrá hins tal- aða orðs. Ríkisútvarpið hóf starfsemi sína við frumstæð skilyrði og sendi í fyrstu aðeins út stutta dagskrá hvert kvöld. En það markaði sér þegár í upphafi stefnu, sem hefur verið haldið síðan: að flytja menntandi, íslenzkt efni og hina beztu tónlist. Siðan hefur dagski-á- in verið lengd og fjölbreytni hennar hefur aukizt, en kjarni kvölddagskrárinnar er hinn sami. Otðsending frá Húsmæðraskéla Reykjavíkur. Væntanlegir nemendur dagskólans mæti í skólanum miðvikudaginn 5. janúar kl. 2 s.d. Skólastjóri. Kópavogur Alþýðublaðið vantar blaðburðarbarn á Digranesveg. SÍMI 40 753. Alfrýðublaðið Blaðburðarbörn vantar í eftirtalin hverfi: Stórholt Gnoðavog Kleppsholt Laugaveg efri Asgarður Laufásvegur Lindargötu Hverfisgötu I og II Laufásveg Laugaveg neðri Bergþórugata. Alþýðublaðið sími 14900. Enn lifa dagskrárliðir, sem stofn- að var til á fyrstu árunum: Er- indin um daginn og veginn, vrt- varpssagan, kvöldvökurnar, lestúr fornrita. Þegar hefja átti dagslcrárgerð fyrir íslenzkt útvarp, var Helgi Hjörvar kallaður til, en liann var þá þekktur af ritstörfum og reynd- ur kennari. Hann varð fyrsti for- maður útvarpsráðs, en gerðist síð- an skrifstofustjóri ráðsins og í rauninni dagskrárstjóri, þótt hann bæri ekki þann titil. Hafði harin ekki aðeins mikil áhrif á þróun dagski'árinnar, heldur reyndist sjálfur einn bezti litvarpsmaður, sem þjóðin hefur eignazt. Mest j varð frægð hans af lestri útvarps- sagna, sem hann hafði sjálfur þýtt af vandvirkni og umhyggju fyrir íslenzku máli. Slepptu fáir, sem hlustað gátu, því tækifæri að sitja við tækin, er Helgi las sögur eins og Gróður jarðar eftir Hamsun, Kristínu Lafranzdóttur eftir Und- set eða Bör Börsson eftir Falk- berget. Helgi kom víðar við i dagskránni og reið á vaðið með nýjungar. Hann lýsti atburðum á stálþráð, og þótti nýstárlegt, þótt nú sé segulbandstæki á öðru hverju heimili. Hann las og lýsti og talaði frá eigin brjósti, ávallt á vönduðu, íslenzku máli, sem hann flutti skýrt og fagurlega. Var það eitt af mestu áhugamál- um hans, að útvarpið yrði tæki til verndar tungunni. Erlendis heyrir útvarp víða undir ráðuneyti pósts- og síma- mála og sérlærðir embættismenn stjórna því. En íslenzka þjóðin skipaði sínu útvarpi frá upphafi í verkahring menntamálaráðuneytis og valdi hóp listamanna til að stýra því og undirbúa efni þess. Þar eru í hópi brautryðjenda rit- höfundar, tónskáld og leikarar. Þarf engum að koma á óvart, þótt ekki væri alltaf guðsfriður í stoín- uninni, en andleg framleiðsla er nú einu sinni því marki brennd, að hún blómgast í gusti en dofnar í lognmollu. Verk þeirra manna, sem sköpuðu reisn Ríkisútvarps- ins munu lengi verða í minnum höfð. Það er mat þeirra, sem bezt þekkja til, að útvarpsdagskrá hér á landi sé og hafi lengi verið ö- trúlega fjölbreytt og góð miðað við nágrannalönd okkar, þrátt fyrir fámennið. ★ Helgi Hjörvar fæddist 20. ágúst 1888 í Drápuhlíð í Helgafellssveit. Foreldrar hans voru Salómon bóndi Sigurðsson og fyrri kona hans, Guðrún Sigurðardóttir. Löngu síðar sýndi Helgi ást sína og þekkingu á æskuhéraði sínu með því að rita lýsingu Snæfells- og Hnappadalssýsiu í Árbók Ferðaíélagsins, ágætt verk, sem enn í dag er unun að lesa. Þar fylgist allt að: Hin tignarlega nátt- úra, glæsileg fornaldarsaga, þjóð- líf síðustu kynslóðar. Helgi hlaut kennaramenntun og tók próf 1910. Gerði hann kennslu að aðalstárfi sínu næstu tvo ára- Helgi Hjörvar rithöfundur. tugi, kenndi við barnaskólann í Reykjavík, kynnti sér kennslumál i öðrum löndum, varð loks náms stjóri og gegndi um skeið störfum fræðslumálastjóra. Samtímis hóf hann ritstörf og sendi frá sér smásagnasafn. Varð hann, áður en yfir lauk, umsvifamikill rithöfund- ur og mikill starfsmaður í röðum listamanna í baráttu þeirra fyrir aukinni viðurkenningu og betri i aðstöðu. Loks hóf hann aukastörf I á skrifstofu Alþingis og leiddl það j til þess eftir tilkomu útvarpsins, að ! hann tók að sér að semja og lesa þingfréttir. Bæði í samtökum kennara og listamanna naut Helgi míkils trausts, og var kjörinn í æðstu trúarstöður. Kona Helga er Rósa Daðadótt- ir bónda Daðasonar að Vatnshorni í Haukadal. Þau áttu mörg börn og mannvænleg, en urðu fyrir þeirri miklu sorg, að einn sona þeirra lézt sviplega nokkrum vikum fyr- ir andlát föður síns. Við andlát Helga Hjörvar þagn- ar sú rödd, sem íslenzka þjóðin hefur líklega þekkt betur og hlýtt oftar á síðasta mannsaldur en nokkra aðra. Þetta var rödd, sem barst inn á heimili landshorna milli á kyrrlátum stundum, er heimiRsi'ólk gat tekið sér hvíld frá störfum, rödd, sem las fornar og nýjar sögur, sagði börnum ævin- týri, lýsti þingsetningu eða skíða- stökki, stýrði umræðum stjórn- málamanna eða ræddi um daginn og veginn. Við andlát Helga hverfur af sjónarsviðinu svipmikill samtíðar- maður, sem verður lengi minnis- stæður.. Benedikt Gröndal. HELGI IíJÖRVAR er allur. Með honum er horfinn af jarð- nesku sjónarsviði sterkur og sér kennilegur persónuleiki. íslenzk tunga og íslenzk salga eiga iá bak að sjá einum af éstmögum sin- um. Han.n elskaði móðurmálið af ástríðuihita æskumannsins allt til hinztu stundar, og sagan var honum sístreymandi lind unaðar cg lífsfyllingar. Hann var prýðilega ritfær, gaf út tvö smásagna söfn og íslemJc aði nokkrar útlendar bækur. Ilann. var málsnjall svo að af bar. Mun lengi í minnum hafðnr flutn ingur hans í utvarp, bæði á þing fréttum og ei'gin þýðingum á er- lendum skáldverkum. Vissi ég til þess, að hann hlaut blessun margra aldaraða, sem heyrnar deyfa meinaði að njóta annarra, radda i útvarpi. Rödd hans og framsögn féil einkar vel að lestri fornsagna, og var unun á að hlýða. Svo var innlifun hans sterk, að það var sem hann gengi sjálfur í bardaga með söguhetjum og ætti drjúgan þátt i, þegar vel skipaðist um, 'sættir fyrir milligöngu göfugra manin.a. Ást sína á íslenziku máli sýndi Helgi Hjörvar meðai annars með iþví, að hann, ásamt eiginkonu sinni, stofnaði sjóð til minningar um son þeh-ra látin.n. Ur þéssujn sjóði skulu verðlaun veitt fyrir snjalla meðferð móðurmálsins í útvarpi. Helgi Hjörvar var lcngi formað ur Rithöfundafélags Islands og heiðursfélagi síðustu árin. Hann var einnig um árabil í stjórn Bandalags islenzkra listamanna. Hann vann af alúð og ósérplæghi að hagsmunamálum rithöfunda. Fyrir það eru honum nú að leið arlokum færðar hjartans þnkkir. Megi hann umbun hljóta sinna ævistarfa. Rithöfundafélag íslands sendir óstvinum hans innilegar samúð'ar kveðjur. Ragnheiður Jónsdóttir. - 1 ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 4. jan. 1966 J

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.